Morgunblaðið - 28.10.2003, Side 25

Morgunblaðið - 28.10.2003, Side 25
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 25 LISTAKONAN og hönnuðurinn Hulda Björg Ágústsdóttir er eini Íslendingurinn sem valin var til að taka þátt í samnorrænu listasýningunni Kunsthandverk 2003, sem nú stendur yfir í lista- miðstöðinni Rauðasteini í Gautaborg. Auk hennar eru þrjátíu listamenn frá hinum Norðurlönd- unum með verk á sýningunni, sem formlega var opnuð hinn 18. október síðastliðinn og stendur til loka nóvembermánaðar. Í tengslum við sýninguna fer fram ráðstefna dagana 6.–8. nóvember þar sem fjallað verður um nytjalist á Norðurlöndunum og þann sess sem hún skipar í alþjóðlegu samhengi. Hulda hefur alfarið unnið að hönnun skart- gripa síðastliðinn átta ár og er með fimm hluti á sýningunni sem allir eru unnir úr plexígleri. Dómnefndin sem valdi inn á sýninguna setti það sem skilyrði að verkin væru óhefðbundin, kröftug og endurspegluðu nútímann. „Ég hef mest unnið úr plexígleri síðustu árin. Það er því ekki alveg nýtt af nálinni hjá mér, en er örugglega það efni, sem ég hef mest- an áhuga á akkúrat núna,“ segir Hulda, sem er ein tíu lista- kvenna sem rekur verslunina Kirsuberjatréð við Vest- urgötu 4 í Reykjavík. „Ég hef unnið mjög mikið úr plasti og gúmmíi auk þess sem ég hef gert tilraunir með efni eins og þang og pappa- massa. Ég gerði reyndar skartgripi úr Mogganum. Setti blaðið í „mixer“ og bjó til pappamassa. Ég hef engan áhuga á eðalsteinum, en er heilluð af plastefnum. Ég hef verið að gera tilraunir bæði með form og áferð, nú síðast hef ég not- að blaðsilfur á plexíglerið, sem mér finnst skapa spennandi andstæður.“ Þegar listakonan er spurð hvort hún telji að nútímakonan sé ginkeypt fyrir plastskartgripum, svarar hún því til að fólk sé opið fyrir nýjungum og finnist þessi hönnun skemmtileg. Hulda hefur tekið þátt í alls konar samsýningum, bæði hér heima og erlendis, m.a. í Japan, Bandaríkjunum og í Þýskalandi. Þeim, sem hafa áhuga á að kynna sér sýninguna í Rauða- steini og listamennina sem þar sýna, er bent á vefslóðina www.craft-sweden.com Morgunblaðið/Sverrir Skartgripahönnuðurinn: Hulda Björg Ágústsdóttir hefur engan áhuga á eðalsteinum, en er heilluð af plastefnum í skartgripagerð.  HÖNNUN join@mbl.is Ísmolakubbafesti: Glært plastið minnir óneitanlega á klaka. Til vinstri er armband þar sem blaðsilfur hefur verið unnið í plastið og skapar það spennandi andstæður. Þegar þú ferðast ferðastu þá með AVIS Verð pr. dag kr. 2.900 M.v. lágmarksleigu 7 daga Opel Corsa eða sambærilegur Við gerum betur AVIS Sími 591 4000 www.avis.is Ítalía Skart úr plexígleri Kunsthandverk 2003: Þrír af fimm skartgripum Huldu Bjargar, sem valdir voru á samnorrænu listasýninguna í Gautaborg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.