Morgunblaðið - 28.10.2003, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 29
V
LADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, hefur tekið mikla áhættu
með því að snúast á sveif með
öflugri klíku embættismanna í
Kreml, sem störfuðu áður fyrir
rússnesku leyniþjónustuna og vilja nú koma
rússneska viðskiptajöfrinum Míkhaíl Khod-
orkovskí á kné, að sögn margra sérfræðinga í
rússneskum stjórnmálum. Handtaka Khod-
orkovskís á laugardag olli miklum titringi
meðal vestrænna fjárfesta sem spáðu hruni á
rússneska hlutabréfamarkaðnum.
Khodorkovskí, sem er auðugasti maður
Rússlands og forstjóri stærsta olíufyrirtækis
landsins, Yukos, hefur gagnrýnt Pútín og
stutt tvo stjórnarandstöðuflokka fjárhags-
lega fyrir þingkosningarnar í Rússlandi í des-
ember.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að rússnesk
yfirvöld hefðu ekki handtekið Khodorkovskí
án samþykkis forsetans. Hann hefði augljós-
lega snúist á sveif með svokallaðri „sílovíkí“-
klíku embættismanna í Kreml, sem störfuðu
áður í rússnesku leyniþjónustunni í Sankti
Pétursborg – eins og Pútín sjálfur – í baráttu
hennar við „Fjölskylduna“ svokölluðu, emb-
ættismenn sem eru enn hollir kaupsýslu-
mönnum er studdu Borís Jeltsín, fyrrverandi
forseta, og auðguðust á einkavæðingunni í
lagalegu ringulreiðinni eftir hrun Sovétríkj-
anna. Auk þess að eignast ríkisfyrirtæki
komust þeir sumir hverjir yfir fjölmiðla og
reyndu að auka pólitísk ítök sín í krafti
þeirra.
Flestir eru sammála um að þessar tvær
klíkur hafi barist á bak við tjöldin og sú bar-
átta geti ráðið úrslitum um stjórnmálaþró-
unina í Rússlandi á næstu árum. „Forsetinn
vill helst ekki styðja eina fylkingu gegn ann-
arri,“ sagði Vladímír Príbylovskí, sérfræðing-
ur í rússneskum stjórnmálum við Panorama-
stofnunina sem stundar stjórmálarannsókn-
ir. „En stundum bregst kerfið sem hann
hefur komið upp til að tryggja að engin fylk-
inganna verði hinum yfirsterkari og hann
ræðst þá á eina þeirra eins og skriðdreki.“
„Brenna allar brýr að baki sér“
Um það bil tuttugu vopnaðir menn í rúss-
nesku öryggisþjónustunni, FSB, handtóku
Khodorkovskí eftir að flugvél hans lenti á
Novosíbírsk-flugvellinum í Síberíu á laugar-
dag. „FSB! Leggið byssurnar á gólfið og
hreyfið ykkur ekki, annars skjótum við!“
hrópuðu þeir til Khodorkovskís og lífvarða
hans.
Auðjöfurinn var fluttur í eitt af illræmd-
ustu fangelsum Rússlands, Matrosskaja Tis-
hina í Moskvu, og dómari úrskurðaði hann í
varðhald þar til réttað verður í máli hans, eða
að minnsta kosti til 30. desember.
Saksóknarar gáfu út ákæru á hendur
Khodorkovskí og sökuðu hann um skattsvik,
skjalafals og fjársvik. Alls eru svikin sögð
nema andvirði meira en 75 milljarða króna.
Rússneskir fjölmiðlar sögðu að handtakan
markaði tímamót í stjórmálum Rússlands.
„Handtaka Khodorkovskís, goðsagnar í rúss-
nesku viðskiptalífi, sýnir að yfirvöld hafa
ákveðið að brenna allar brýr að baki sér í
samskiptunum við viðskiptajöfrana,“ sagði
dagblaðið Vremja Novostí, sem styður
stjórnvöld. „Þau vilja ekki reyna að semja,
jafnvel í málum þeirra stærstu, og ætla að
koma þeim frá með valdi.“
Stjórnarandstöðublaðið Nezavísímaja Gaz-
eta sagði að Khodorkovskí hefði verið hand-
tekinn „eins og fjöldamorðingi og hryðju-
verkamaður“. „Markmið öryggis-
þjónustunnar er að fjarlægja voldugustu
mennina í viðskiptalífinu,“ sagði blaðið í for-
ystugrein. „Mikilvægast er að við endur-
heimtum virðinguna fyrir lýðræðislegum
gildum, sem hafa nú beðið hnekki, fjölræði og
reglunni um að menn séu álitnir saklausir þar
til sekt þeirra hefur verið sönnuð.“
Viðskiptadagblaðið Kommersant sagði að
Pútín þyrfti að velja á milli þess að „hætta
saksóknum sem eru af pólitískum rótum
runnar“ og þess að koma „KGB til valda“.
„Hver verður næstur?“ spurði dagblaðið
Nevasímaja Gazeta og benti á að áður hefðu
viðskiptajöfrarnir Vladímír Gúsínskí og Borís
Berezovskí orðið að fara í útlegð vegna að-
gerða rússneskra yfirvalda.
Níkolaj Gorshkov, fréttaritari BBC í
Moskvu, sagði að markmið ráðamannanna í
Kreml væri að tryggja bandamönnum forset-
ans sem stærstan meirihluta í dúmunni, neðri
deild þingsins, í komandi kosningum. „Flokk-
ur forsetans, Sameinað Rússlands, líkist í sí-
vaxandi mæli yfirráðuneyti, flestir forystu-
menn hans eru á meðal æðstu
embættismanna landsins, undir forystu Borís
Gryzlovs innanríkisráðherra. Óttast er að
Rússlands sé að breytast aftur í eins flokks
ríki. Nokkrir stjórnmálaskýrendur hafa lýst
þessu sem „kínversku leiðinni“, markaðsbú-
skap undir styrkri pólitískri stjórn.“
„Kapítalismi með
stalínska ásjónu“
Skömmu eftir forsetakosningarnar árið
2000 lýsti Pútín því yfir að yfirvöld myndu
ekki láta til skarar skríða gegn auðjöfrunum
sem auðguðust á einkavæðingunni ef þeir
hefðu ekki afskipti af stjórnmálunum og
greiddu skatta. „Khodorkovskí sýndi of mik-
inn metnað,“ sagði Alexander Bim, við ráð-
gjafarfyrirtækið IMAGE-Contact. „Hann
sýndi aldrei samstarfsvilja.“
Khodorkovskí hefur stutt tvo frjálslynda
stjórnarandstöðuflokka, Bandalag hægri
aflanna og Jabloko, og þeir fordæmdu báðir
handtökuna. Grígorí Javlínskí, leiðtogi Jabl-
oko, sagði hana til marks um að stjórnvöld í
Kreml væru að koma á „kapítalisma með stal-
ínska ásjónu“.
Gennadí Zjúganov, sem gagnrýndi einka-
væðingu Jeltsíns harðlega, sagði að Khodor-
kovskí hefði ekki verið handtekinn fyrir
skattsvik heldur vegna afskipta hans af
stjórnmálum. „Þegar Khodorkovskí lét
nægja að stunda viðskipti var hann banda-
maður ráðamanna,“ sagði Zjúganov. „En
þegar hann gerði pólitískan metnað sinn op-
inberan var hann strax álitinn óvinur þeirra.“
Sílovíkí-klíka leyniþjónustumannanna
fyrrverandi er talin styðja Þjóðarflokkinn,
einn af fáum flokkum í Rússlandi sem fögn-
uðu handtökunni. „Við óttumst ekki að hand-
takan grafi undan umbótunum frá síðasta
áratug,“ sagði leiðtogi flokksins, Gennadí
Rajkov. „Allir flokkar ættu að verja hags-
muni þjóðarinnar, ríkisins og forsetans í bar-
áttunni við auðjöfra sem hafa farið yfir strik-
ið.“
Nýleg skoðanakönnun bendir til þess að
um 80% Rússa séu hlynnt saksóknum á hend-
ur auðjöfrum sem auðguðust með vafasömum
hætti í lagalegu ringulreiðinni í Rússlandi eft-
ir hrun Sovétríkjanna. „Markmiðið er að sýna
meirihluta Rússa, sem er í nöp við auðjöfr-
ana, að enginn sé hafinn yfir lögin,“ sagði
rússneski stjórnmálaskýrandinn Jevgení
Volk. „Pútín reiðir sig á að fólk sem hefur
kosið kommúnista til þessa styðji Sameinað
Rússland í kosningum.“
Andrej Piontkovskí, óháður stjórnmála-
skýrandi, sagði að handtakan væri líkleg til
að auðvelda Pútín að halda völdunum en
stuðningurinn við hana byggðist á misskiln-
ingi. „Þessi barátta snýst ekki um að taka
auðæfin af auðkýfingunum og afhenda þau
fátæka fólkinu. Þetta er barátta milljarða-
mæringa sem vilja sölsa undir sig auð ann-
arra milljarðamæringa.“
Óttast að gengi
hlutabréfa hrynji
Frammámenn í rússnesku atvinnulífi sögð-
ust hafa miklar áhyggjur af handtökunni og
óskuðu eftir viðræðum um málið við Pútín en
hann hafnaði því í gær. „Það verða engir
fundir, engar samningaviðræður um störf yf-
irvaldanna að því gefnu auðvitað að þau séu í
samræmi við lögin,“ hafði fréttastofan Int-
erfax eftir forsetanum.
Moskvu-fréttir höfðu eftir einum af
frammámönnum rússneskra atvinnurekenda
að auðveldlega væri hægt að heimfæra ákær-
una á hendur Khodorkovskí til allra annarra
kaupsýslumanna sem byggðu upp fyrirtæki
sín á síðasta áratug og „flekkuðu hendur sín-
ar með því að notfæra sér lagalegu ringul-
reiðina og spillinguna á þessum tíma“.
Leiðtogar samtaka rússneskra atvinnu-
rekenda kröfðust þess að Pútín útskýrði af-
stöðu sína til handtökunnar og sögðust ekki
lengur geta treyst yfirvöldunum. „Fyrirtæki
neyðast nú til að endurskoða fjárfestingará-
form sín og hætta við verkefni sem eru mjög
mikilvæg fyrir landið,“ sagði í yfirlýsingu
leiðtoganna.
Nokkrir fjármálasérfræðingar sögðu að
efnahagslegu afleiðingarnar myndu ráðast af
því hvort látið yrði til skarar skríða gegn fleiri
fyrirtækjum. Aðrir spáðu því að ákæran á
hendur Khodorkovskí myndi leiða til hruns á
rússneska hlutabréfamarkaðnum.
KGB-klíkan í Kreml
sýnir auðjöfri klærnar
Talið er að markmiðið með handtöku rússneska auðkýfingsins
Míkhaíls Khodorkovskís sé að tryggja bandamönnum Vladímírs Pútíns
Rússlandsforseta sem stærstan meirihluta á þingi í komandi kosningum.
Hún getur hins vegar haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag landsins.
Reuters
Vladímír Pútín Rússlandsforseti (fyrir miðju) á ríkisstjórnarfundi í Moskvu í gær.
’ Þetta er barátta millj-arðamæringa sem vilja
sölsa undir sig auð ann-
arra milljarðamæringa. ‘
Reuters
Mikhail Khodorkovsky
Fá ríki heims búa
lindum en Norður-
ararbroddi þjóða við
anlegar orkulindir.
sem orkubera hafa
ndanförnum tveimur
g mikill áhugi er á
Það er stefna okkar
rðurlönd styrki til
mstarf sitt á þessu
miðlunarsjóður
nig að Íslendingar
utíð sinni efla vitn-
eskju um fornbókmenntirnar. „Nor-
rænar frændþjóðir eiga í fornbók-
menntununum fjársjóð sem við
hyggjumst beina athygli að á for-
mennskuárinu. Við viljum efla vitneskju
um þennan menningararf með margvís-
legum hætti og nýta hann sem aflvaka í
listsköpun.“
Þá sagði Davíð að Íslendingar leggðu
áherslu á að áfram yrði unnið að því að
styrkja stöðu norrænna tungumála inn-
an Norðurlanda sem utan. „Mikilvægur
þáttur í því og í verndun og útbreiðslu
norræns menningarefnis er að það sé
fært yfir á stafrænt form. Við viljum því
stuðla að því að stofnaður verði norrænn
margmiðlunarsjóður til að styrkja fram-
leiðslu slíks efnis.“
Undir lok ræðu sinnar sagði Davíð að
Íslendingar myndu í formennskutíð
sinni jafnframt fylgja eftir þeim málum
sem þegar hefði verið unnið að innan
Norðurlandaráðs. „Við munum [...]
fylgja með krafti eftir þeim góðu stefnu-
málum sem þegar er unnið að svo sem
að ryðja úr vegi hindrunum fyrir frjálsri
för fólks milli norrænu landanna. Því
hefur Poul Schlüter, fyrrverandi for-
sætisráðherra Dana, verið falið að
starfa áfram og knýja á um samræmdar
aðgerðir ráðherranefnda og ríkis-
stjórna. Undir forystu Svía hafa náðst
mikilvægir áfangar á þeirri leið að opna
landamæri í norrænu og evrópsku að-
lögunarferli.“ Þakkaði Davíð að lokum
Svíum fyrir „frábær störf og þann góða
árangur sem náðst hefði undir þeirra
forystu á mörgum sviðum norræns sam-
starfs.“
gi Norðurlandaráðs í gær
ið þjóðir
lantshaf
ku
ið
áv-
rði
ins.
sku-
r um
sjáv-
gi
ta
nda.
eftir
önd
ý-
orð-
ur
vís-
vilja
til að leita nýrra leiða í atvinnumálum fatlaðra. „Við
viljum ýta úr vör sérstöku verkefni þar sem lagt er til
að Norræna samstarfsmiðstöðin um málefni fatlaðra
kanni möguleika á norrænum starfsmannaskiptum
fyrir fatlaða sem starfa á vernduðum vinnustöðum,“
segir hún. Siv segir að slík starfsmannaskipti hafi ver-
ið reynd en nú sé vilji til að athuga hvort hægt sé að
setja slíkt samstarf í „fast form“ eins og hún orðar
það.
Hafi sameiginlega rödd
Siv segir að síðustu að norræna samstarfið hafi
breyst mikið hin síðari ár. Áður fyrr hafi það aðallega
gengið út á samstarf í menningarmálum en nú sé það
orðið mun pólitískara. „Starfið hefur eflst og breyst út
af Evrópusambandinu,“ útskýrir hún. „Þessi Evr-
ópuþróun hefur blásið nýju lífi í norræna samstarfið.“
Siv segir að nú sé norræna samstarfið m.a. að þróasta
yfir í það að vera vettvangur til að efla Norðurlöndin
gagnvart ESB.
Hún segir jafnframt að norræna samstarfið muni
eflast enn frekar vegna stækkunar ESB. „Stækkunin
mun ýta enn frekar á mikilvægi þess að Norðurlöndin
hafi sameiginlega rödd,“ segir hún.
ðamannafund í Ósló í gær
ð fái
daráði
þingi Norð-
dinga fyrir árið
Íslandi á næsta
Norðurlandanna
ukinnar hnattvæð-
ðis, heldur lagði
narhætti.“ Bætti
a gát á grunn-
att hefur til lifandi
ipi nefnd til að
tækifæra sem fel-
æta megi aðgengi
æmdavalds.“
ð halda ráðstefnu
gi.
ns
Ljósmynd/Lennart Perlenhem
andi, Davíð Oddsson, Kjell Magne Bondevik, Noregi, Anders