Morgunblaðið - 28.10.2003, Side 33

Morgunblaðið - 28.10.2003, Side 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 33 MÉR fannst vera kominntími til að skrifa litla ogfeita bók,“ segir Sigrún Eldjárn um nýútkomna bók sína, Týndu augun, og á þar við að brot bókarinnar er minna en aðdáendur Sigrúnar eiga að venjast og sagan lengri en fyrri bækur hennar (207 bls.) og í þeim skilningi „feitari“. Sigrún er jöfnum höndum mynd- listarmaður og rithöfundur og brýtur bækur sínar alfarið um sjálf, „myndskreytir og skrifar sitt á hvað“, segir hún. „Veit ekki alveg hvað kemur á undan og hvað á eft- ir, það er misjafnt, fer eftir sögum. Þetta gerist oftast einhvern veginn skipulagslaust.“ segir hún. „En mér finnst fínt að ráða öllu sjálf, enda sé ég útlit bókanna fyrir mér um leið og þær verða til.“ Varla þarf að rifja upp bækur Sigrúnar en þó má nefna sögurnar um Langafa prakkara, Kugg og Málfríði, Teit tímaflakkara og Hróa og Hörpu. Allar hafa þessar bækur orðið framhaldsbækur, allt að þrjár bækur um hvert „par“, og eru þá ótaldar ýmsar aðrar bækur sem Sigrún hefur sent frá sér allt frá því hún hóf ritferil sinn árið 1980 með bókinni Allt í plati. Þá hefur hún myndskreytt ófáar bæk- ur og minnisstæðar eru barnaljóð- abækur Þórarins Eldjárns bróður hennar sem löngu eru orðnar sí- gildar. Sigrún veltir vöngum yfir spurn- ingunni hvers vegna hún velji að hafa söguhetjur sínar oftar tvær en ekki. „Það er gott að láta tvær ólík- ar persónur vinna saman og bæta hvor aðra upp. Þá myndast tengsl og samtal á milli þeirra sem getur komið sér vel. Í Týndu augunum eru það systkinin Stína og Jonni sem eru söguhetjurnar. Það er tals- verður aldursmunur á þeim, hann er tæplega 6 ára og hún er 12 ára. Það gefur tækifæri til að þróa þau í ólíkar áttir og sýna hvað hvort um sig getur án þess að það sé endi- lega á kostnað hins.“ Sigrún segist hins vegar hafa tekið eftir því þegar hún renni hug- anum yfir bækur sínar að sögu- persónur hennar eru mjög oft krakkar og gamalt fólk. „For- eldrakynslóðin kemur hins vegar lítið við sögu. Ætli hún sé ekki bara svona leiðinleg! Alltaf að vinna. En í alvöru talað þá finnst mér gaman að tefla saman börnum og gömlu fólki. Það er einhvern veginn frek- ar auðvelt að láta gamla fólkið fá klikkaðar hugmyndir og búa yfir einhverju leyndardómsfullu. Krakkar í dag hafa flestir lítil dag- leg samskipti við aldraða og fara því áreiðanlega á mis við ým- islegt.“ Í Týndu augunum er ímyndunar- aflinu sannarlega gefinn laus taum- urinn, þar segir frá systkinum sem send hafa verið í sveit til Valgerðar frænku sinnar eftir að mamma þeirra dó og pabbinn er ekki mönn- um sinnandi af sorg. Þau komast fljótt að því að bær Valgerðar er sí- fellt umluktur svartri þoku og Val- gerður sjálf upptekin af dularfullu braski. Á bænum er gamall blindur maður, Skafti að nafni, sem reynist þeim systkinum betri en enginn. Þau ákveða nefnilega að strjúka og lenda þá í mjög dularfullum og hættulegum ævintýrum, þar sem við sögu koma léttgeggjaður prest- ur, vandræðalegur dvergur og gömul blind kona að ónefndum tveimur hröppum sem reynast vera í slagtogi með frænkunni Valgerði. Jonni sýnir hvað í honum býr þeg- ar systkinin týna hvort öðru í gjörningaþokunni á flótta undan illþýðinu sem verður á leið þeirra. „Mig langaði til að búa til spenn- andi sögu þar sem söguhetjurnar eru venjulegir krakkar sem lesand- inn getur fundið sig í en síðan fara að gerast alls kyns yfirnáttúrulegir atburðir, sagan og fantasían taka völdin. Þarna kemur margt fram sem fengið er úr þjóðsögunum og ævintýrunum, sem síðan er sett í samhengi við ýmislegt sem nútíma- krakkar þekkja betur eins og tölvuleiki og kvikmyndir. Þetta er svo sem ekki nein út- pæld samsetning hjá mér heldur legg ég einfaldlega upp með að skrifa skemmtilega og spennandi sögu í fjölbreytilegum fant- asíuheimi,“ segir Sigrún Eldjárn. Morgunblaðið/Ásdís Sigrún Eldjárn, rithöfundur og myndlistarmaður. Lítil bók en feit „Aldursmunur systkinanna gefur tækifæri til að þróa þau í ólíkar átt- ir,“ segir Sigrún. havar@mbl.is MENDE Nazer er rúmlega tví- tug Núbastúlka frá Súdan sem rænt var frá heimili sínu tólf ára gamalli og hún síðan seld sem am- bátt til auðugrar fjölskyldu í Khart- úm. Þar er hún í nokkur ár án sam- skipta við umheiminn eða nokkurrar vitneskju um stöðu sína. Það er ekki fyrr en hún er send til annarrar auðugrar fjölskyldu í London sem hún kemst að því að frelsi er ekki bara fyrir aðra heldur á hún líka rétt á því. Ekki er þó björninn unninn þótt henni takist að strjúka úr ánauðinni því þá tekur við áralöng barátta fyrir því að fá hæli sem flóttamaður í Bretlandi. Meðan á þeirri baráttu stendur skráir blaðamaðurinn Damien Lew- is sögu hennar og um það bil sem þeirri vinnu lýkur fær hún loks já- kvætt svar um hælisvist frá bresk- um yfirvöldum sem áður höfðu hafnað beiðninni á þeim forsendum að þrælahald væri ekki ofsóknir. (Bls. 257.) Mende segir sögu sína í fyrstu persónu og sjónarhorið er alfarið hennar. Hún segir frá æsku sinni í friðsælu fjallaþorpi í Núbafjöllum þar sem hin svokallaða siðmenning er rétt að hefja innreið sína og gamlar hefðir allsráðandi. Þar ráða hamingjan og eindrægnin ríkjum þrátt fyrir skort á flestu því sem vesturlandabúar telja lífsnauðsynj- ar og í huga Mende tekur þorpið heimsborginni London langt fram þótt vesturlenskum lesanda þyki það kannski líkast fornaldarlegri út- ópíu. Lýsingin á því þegar herflokk- ur araba ræðst á þorpið, brennir, myrðir, nauðgar og hefur á brott með sér hóp unglinga til að selja í ánauð er eins og úr miðaldasögu en staðreyndin er sú að þetta átti sér stað í raun og veru á því herrans ári 1994. Síðan taka við hin endalausu ár sem ambátt með tilheyrandi vinnuþrælkun, barsmíðum og nið- urlægingu. Flóttinn úr ánauðinni átti sér stað hinn 11. september ár- ið 2000. Og það var ekki fyrr en í sumarbyrjun í ár sem Mende fékk hæli sem flóttamaður í Bretaveldi. Þetta er ótrúleg lesning og aftur og aftur verður lesandi að minna sig á að þetta er ekki saga síðan fyrir löngu heldur blákaldur veru- leiki á 21. öldinni. Frásagnarhátt- urinn er einlægur og nánast bernskur enda hefur Mende ekki fengið tækifæri til að þroskast á sama hátt og aðrir unglingar. Eftir að hún er orðin „frjáls“ rennur upp fyrir henni hverju hún hefur verið svipt: „Ég var ekki neitt. Ég var ekki til. Ég gat ekki leitað læknis, ekki farið til tannlæknis, ég átti engan skóla, enga vini, enga fjölskyldu, enga peninga, ekki bankareikning, greiddi ekki skatta, hafði ekkert að kaupa eða selja. … Ég tók engar ákvarðanir um líf mitt, allt var ákveðið fyrir mig, hvenær ég átti að fara á fætur, í hvaða fötum ég ætti að vera, hvenær ég byrjaði að vinna, hvenær ég borðaði, hvenær ég svæfi.“ (Bls. 249.) Það fylgir því ábyrgð að vera frjáls og Mende hefur axlað þá ábyrgð betur en flestir með því að segja sögu sína og vekja þannig at- hygli á því að þrælahald er langt frá því að heyra sögunni til. Og það á sér ekki bara stað í myrkviðum Afr- íku heldur þrífst og dafnar við hús- dyrnar hjá okkur. BÆKUR Æviminningar Mende Nazer og Damien Lewis. Þýðandi Kristín Thorlacius, JPV útgáfa 2003, 262 bls. AMBÁTTIN Þar sem frelsi er bara fallegt orð Friðrika Benónýs Annað tækifæri er eftir metsölu- höfundinn James Patterson. Magnea J. Matthíasdóttir þýddi. Í fréttatilkynn- ingu frá útgef- anda segir að spennusögu- meistarinn James Patterson leiði lesendur inn í skelfilega undirheima í annarri bókinni um Kvennamorð- klúbbinn. Óhugnanleg morð sem hafa sett San Francisco á annan endann virð- ast ótengd að öðru leyti en hvað þau eru hrottafengin. En rannsóknarlög- reglukonan Lindsay Boxer finnur á sér að einhver þráður liggur á milli þeirra. Hún kallar saman vinkonur sínar í Kvennamorðklúbbnum til að vita hvort þær geti fundið hann. Þær komast brátt að því að morðin eru tengd og egna gildru sem morðing- inn fær ekki staðist. James Patterson er höfundur fjölda alþjóðlegra metsölubóka en aðeins ein þeirra hefur komið út á ís- lensku, Fyrstur til að deyja. Útgefandi er JPV-útgáfa. Bókin er 240 bls., prentuð í Odda. Verð: 3.980 kr. Spennusaga Stelpur í sárum er eftir breska verðlauna- höfundinn Jacqueline Wil- son. Þóra Sigríður Ingólfs- dóttir þýddi. Í kynningu út- gefanda segir m.a.: „Þær Ellie, Magda og Nadina eru hreint ekki í stuði þessa dag- ana. Allt virðist ganga á afturfót- unum og vinátta þeirra hangir á blá- þræði. En kannski er ekki allt sem sýnis.“ Áður eru komnar út eftir sama höfund Stelpur í strákaleit, Stelpur í stressi og Stelpur í stuði. Bækur Jacqueline Wilson hafa selst í millj- ónum eintaka og hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín. Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin er 180 bls., prentuð í Odda. Verð: 2.680 kr. Unglingar Læsti teningurinn eftir Eoin Colfer er þriðja bókin um Artemis Fowl. Guðni Kolbeins- son þýddi. Á kápubaki seg- ir: Artemis Fowl hefur búið til of- urtölvu með stol- inni álfatækni. Komist hún í rang- ar hendur gæti það þýtt endalok bæði álfa og manna. En ekki vera hrædd. Artemis er með stórsnjalla áætlun. Hann ætlar ekki að nota C-teninginn; hann ætlar bara að sýna hann mis- kunnarlausum bandarískum kaup- sýslumanni með tengsl við mafíuna. Butler lífvörður hans ætlar með hon- um á fundinn. Hvað gæti svo sem far- ið úrskeiðis …? Bækurnar um Artemis Fowl hafa hlotið margvíslegar viðurkenningar og verið tilnefndar til Whitbread- barnabókaverðlaunanna og Blue Pet- er-verðlaunanna. Þær hrepptu einn- ing WH Smith-verðlaunin sem besta barnabók ársins og Bresku barna- bókaverðlaunin. Verið er að gera kvikmynd byggða á sögunum um Artemis Fowl. Útgefandi er JPV-forlag. Bókin er 318 bls., prentuð í Odda. Verð: 2.980 kr. Börn Ísland í aldanna rás 1900–2000 kemur nú út í einu bindi. Bæk- urnar voru áður gefnar út í þrem- ur bindum. Aðal- höfundur verks- ins er Illugi Jökulsson en margir höfundar aðrir komu að verkinu. Í bókinni eru yfir 5.000 ljósmyndir og rekur hún helstu við- burði hvers árs alla síðustu öld og er því frábær heimild um sögu lands og þjóðar. Með því að slá bókunum saman í eitt bindi er verið að auðvelda les- endum að nota verkið sér til fræðslu og skemmtunar. Atrið- isorðaskrár og nafnaskrár bindanna þriggja hafa verið sameinaðar í eina heildarskrá sem flýtir mjög fyr- ir lesendum að kynna sér eða rifja upp einstaka atburði í sögunni eða þræða sig í gegnum þróun ýmissa mála. Bókin ætti líka að gefa betri heildarsýn á öldina. Útgefandi er JPV-útgáfa. Bókin er um 1.300 litprentaðar síður. Að- alritstjóri er Sigríður Harðardóttir. Um hönnun, útlit og umbrot sá Jón Ásgeir. Verð: 9.980 kr. Saga ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.