Morgunblaðið - 28.10.2003, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 28.10.2003, Qupperneq 38
MINNINGAR 38 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jónas Bjarnasonfæddist á Uppsöl- um í Blönduhlíð í Skagafirði 26. mars 1926. Hann lést á heimili sínu á Akur- eyri 19. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin á Uppsölum, Sigurlaug Jónasdóttir húsmóð- ir, f. 8. júlí 1892, d. 13. okt. 1982, og Bjarni Halldórsson bóndi, f. 25. jan. 1898, d. 15. jan. 1987. Systkini Jónasar eru Halldór, f. 1922, Kristín, f. 1925, Egill, f. 1927, Gísli, f. 1930, Árni, f. 1931, Stefán, f. 1933, d. 1934, og Helga, f. 1935. Jónas kvæntist 25. desember 1954 Rakel Grímsdóttur sjúkra- liða, f. í Örlygshöfn við Patreks- fjörð 1928, dóttur Maríu Jónsdótt- ur og Gríms Árnasonar, sem lengst af bjuggu á Grundum í Kollsvík í Rauðasandshreppi. Börn Jónasar og Rakelar eru: 1) Bjarni Smári, f. 1955, kvæntur Guðrúnu F. Hjartardóttur, börn þeirra eru Hjörtur Þór, Rakel Edda og Arnar Már. 2) Grímur Már, f. 1957, kvæntur Theodóru Reynisdóttur, dætur þeirra eru Rakel og Salóme. 3) Sigurlaug Bára, f. 1959, gift Haraldi Haraldssyni, börn þeirra eru Jón- as, Huld og Dagný. Jónas ólst upp á Uppsölum við hefð- bundin sveitastörf og stundaði vegavinnu á sumrin. Fór síðan til Akureyrar og nam rennismíði í Vél- smiðjunni Atla, lauk sveinsprófi 1949 og hlaut meistararéttindi 1952. Jónas starfaði við rennismíðar allan sinn starfsferil og um rúmlega hálfrar aldar skeið átti hann og rak Járn- smiðjuna Varma á Akureyri, lengst af í félagi við Ívar Ólafsson. Jónas var frá unga aldri stuðn- ingsmaður Sjálfstæðisflokksins og á tímabili virkur í starfi flokksins á Akureyri. Þá var hann lengi félagi í Karlakór Akureyrar. Hin síðari ár var hann ötull félagsmaður Oddfellowreglunnar. Útför Jónasar verður gerð frá Akureyrarkirkju og hefst athöfnin klukkan 13.30. handtaki sem sagði miklu meira en orð fá lýst. Jónas stóð við rennibekkinn lengst af sinni starfsævi og líklega undi hann sér þar einna best. Þar var unn- ið frá morgni langt fram á kvöld og oftar en ekki varð helgin að láta und- an, því mikið var að gera og mörgu búið að lofa. Alltaf gaf hann sér þó tíma fyrir barnabörnin, sem hændust mjög að honum, oft var erfitt að koma þeim í háttinn eftir að afi var búinn að leika við þau. Hann hafði einstakt lag á börnum og gaf þeim mikið af sér, mikill er missir þeirra. Jónas var maður hæglátur og bar ekki veikindi sín á torg, hann tók á þeim af æðruleysi og kjarki og var ekki minnsta bilbug á honum að finna allt til þess síðasta. „Ég hef það ágætt, hvernig hefur þú það?“ sagði hann gjarnan þegar maður spurði um heilsuna. Jónas hafði gaman af góð- látlegu gríni. Hann fékk eitt sinn mann á verkstæðið til sín sem bað hann að draga fyrir sig öxulbút. „Jú, ekki verður það vandamál,“ sagði Jónas og sagði manninum að leggja hann frá sér upp við vegginn. Nokkru síðar kemur maðurinn aftur og spyr um öxulinn, jú hann var enn á sínum stað. Nokkrum dögum seinna kemur hann aftur og spyr hann þá Jónas hvort ekki fari að koma að öxlinum. Tók Jónas þá fram snærisspotta og batt utan um öxulinn, dró hann einn hring umhverfis rennibekkinn og rétti síðan manninum og sagði verk- inu lokið. Mér finnst þessi ágæta saga segja svo margt um Jónas; þrátt fyrir alla þessa vinnu og annir var alltaf tími fyrir smáskemmtun. Nú þegar þessu er lokið er maður ekki sáttur við það sem fram fór, finnst að þeim sem örlögunum ræður hafi orðið mikið á í messunni í þetta skiptið. Ég vil nú að leiðarlokum þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér og mínum. Ég votta ættingjum, vin- um og vandamönnum samúð mína og bið þá sem huggunar leita að muna allar góðu stundirnar því þar er af nógu að taka. Haraldur Haraldsson. Jónas ólst upp hjá foreldrum sín- um á Uppsölum. Stundaði vegagerð hjá frænda sínum, Gísla Gottskálks- syni. Um tvítugsaldur flytur hann til Akureyrar og lýkur námi í renni- smíði. Eignast verkstæðið „Varma“, í félagi með öðrum, og rekur það til dauðadags. Jónas var félagi í Oddfellowregl- unni og söng í nokkur ár með Karla- kór Akureyrar. Jónas var í raun margslungin persóna. Sem ungur maður gat hann, hæfileika sinna samskiptum sínum við barnabörnin. Þá byrjaði nú fjörið fyrir alvöru. Það er of vægt til orða tekið að segja að barnabörnin væru hænd að afa sín- um, þau dýrkuðu afa sprellara. Tengdamóður minn þótti oft nóg um öll lætin og minntist þá stundum á gamla daga þegar hann skrapp heim í hádeginu og tókst á örskammri stundu að gera krakkana kolvitlausa. Mér er þakklæti efst í huga á þess- ari kveðjustundu. Ég vil þakka fyrir góðan tengdaföður. Börnin gráta nú einstakan afa. Tengdamóðir mín hef- ur mest misst, traustan lífsförunaut sem aldrei brást. Ég vil biðja góðan Guð að blessa Jónas á nýjum vegum og vaka yfir okkur öllum. Theodóra. Mig langar í örfáum orðum að minnast tengdaföður míns, Jónasar Bjarnasonar. Vil ég þakka honum samfylgdina á þessum 26 árum sem liðin eru síðan ég fór að umgangast fjölskylduna, sérstaklega er mér það minnisstætt þegar hann bauð mig velkominn í fjölskylduna með þéttu Með glettið blik í auga, hlýtt við- mót og þétt handtak. Þannig tók hann á móti gestum og gangandi. Jónas tengdafaðir minn er allur, hans haga hönd starfar ekki meir. Mér er ljúft að minnast hans, hann var einstaklega gefandi í samskipt- um, á sinn prúða og hógværa hátt, hann tranaði sér hvergi fram. Jónas var af skagfirsku bergi brot- inn. Hann ólst upp hjá ástríkum for- eldrum í glöðum systkinahópi. Hann varð snemma laginn við handverk og hélt hann til Akureyrar þar sem hann nam sína iðn. Ég tel að hann hafi ver- ið lánsmaður. Hann eignaðist góða konu og góð börn. Starfið var hans líf og yndi. Hann unni sér sjaldan hvíld- ar og stóð við rennibekkinn löngum stundum, alveg þar til sjúkdómurinn sem nú hefur lagt hann að velli setti strik í reikninginn. Þau hjón voru samvalin hvað varðaði gestrisni og myndarskap. Þau tóku höfðinglega á móti gestum og voru vinmörg. Jónas kunni vel að gleðjast í góðra vina hópi, hann var þá glaður og reifur og naut sín vel. Hvergi sá ég hann þó glaðari en í vegna, valið um leiðir í ævistarfi. Hann valdi handverkið. Það fór hon- um vel. Þar var hann hreinn listamað- ur. Meistaraverk hans höfum við fyr- ir augum, þótt maðurinn falli. Mér er það ofvaxið að lýsa, eða dæma verkin hans, sem sum hver munu lengi lifa, og lofa meistara sinn. Ég veit ekki hvort Jónas braut nokkurn tímann heilann um það, að verða annað en hann var. Ég veit heldur ekki hvort skrifstofustarf, eða hásæti embættis- manns hefði farið honum vel. Ég er ekki viss um það. Veit þó að hús- bóndavaldið hefði hann ekki misnot- að. Jónas var að eðlisfari hægur mað- ur og hlýr, hógvær, hafði hæfileika sagnamannsins ef bragð var að. Fróður um marga hluti, en flíkaði ekki. Vissi oft meira en uppi var látið. Það var notalegt að sitja í stofu hjá þeim hjónum, og ræða margvísleg mál. Við vorum ekki ævinlega sam- mála, en það breytti engu. Jónas og Rakel bjuggu lengst af í eigin íbúð við Grenivelli. Þau voru fyrir skömmu flutt í nýtt hús á góðum stað, sem auðveldaði Jónasi að færa sig til, inn- an húss og utan. Þær stundir urðu of fáar, sem hann fékk að njóta þeirra þæginda, sem íbúðin glæsilega bauð upp á. Þau hjón litu oft inn til okkar á Frostastöðum og síðar í Varmahlíð, en sonur þeirra, Grímur, var hjá okk- ur um sumartíma. Segja má að Jónas og Rakel hafi verið orðin hálfgerðir heimsborgarar, þótt þau bæru það ekki utan á sér. Síðari árin ferðuðust þau víða ásamt með nokkrum völdum vinum eða kunningjum. Flugu ár eft- ir ár til annarra landa, til fjarlægra heimsálfa. En þau ferðuðust ekki bara til að ferðast. Þau lögðu sig fram um að kynnast löndum, þjóðum, fólki, þjóðfélagsgerðum, sögu og menningu landanna. Það var hrein unun að hlýða á frásagnir þeirra frá þeim heimshlutum er þau heimsóttu. Þau hafa vafalaust átt nokkrar ferðir ófarnar. En öllum að óvörum skall óveðrið á. Heilsan brast. Illvígur sjúkdómur hefti frekari ferðalög. Mestu skiptir ævinlega hver maðurinn er. Jónas tapaði aldrei áttum, hann vissi hvað hann vildi. Hann var ljúfur félagi, góður drengur. Við þökkum sam- fylgdina. Aðstandendum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Þinn mágur, Konráð Gíslason. Þegar ég var lítill átti ég mínar hetjur. Maður las Benna, Tarsan apa- bróður og Dreka í Tímanum og dáði þessa garpa, setti sig í þeirra spor og lét sig dreyma um stökk á milli trjánna. Ekki voru þessir kappar æsku minnar þó allir úr bókum og blöðum, einn þeirra var af holdi og blóði; Jónas föðurbróðir minn. Í huga mér er gömul mynd af ungum manni. Ungi maðurinn situr á mótorhjóli af stærri gerðinni. Á hjólinu fyrir aftan hann situr faðir hans, – báðir sposkir á svip eins og þeir séu nýkomnir úr svaðilför. Sá yngri er í fullum skrúða, sem klipptur út úr bíómynd úr síðari heimsstyrjöldinni. Á þessu hjóli geystist Jónas frændi frá Uppsölum til Akureyrar á skemmri tíma en allir aðrir hafa gert. Þetta var á þeim ár- um sem manni þótti óbeislaður hraði töff. Hvort hann róaðist við aksturinn er hann fullorðnaðist veit ég ekki en ég veit að hann var frekar snöggur að skjótast hringveginn. Hann átti líka einn hlut sem ég dáði og aðeins garp- ar áttu. Hann átti nefnilega þá stærstu byssu sem ég hafði séð, byssu sem hafði farið á hreindýra- veiðar. Og úr henni komu kúlur sem klufu símastaura. Síðar meir fékk ég að prufa og passa þennan grip. Ég mundi eftir að hlífa símastaurunum. Oftast. Eitt sinn um hásláttinn var ég sendur með bogið drifskaft úr hey- þyrlu norður yfir heiði. Hitti Jónas frænda á verkstæðinu. Þar tók hann drifskaftið, skellti því í rennibekkinn, lét það rúlla nokkra hringi, stoppaði bekkinn, krítaði kross og lét vaða með stóru sleggjunni. Drifskaftið eins og nýtt. Sagði svo kíminn á svip: „Heyrðu, eigum við ekki að setja kík- isfestingar á riffilinn.“ Það leist mér vel á. „Þú útvegar festingarnar,“ sagði hann. Ég var til í það. Svo dreif ég mig heim og fór að snúa. Líða svo mörg ár og festing- arnar eru enn niðri í skúffu hjá mér, komust ekki lengra og verða þar áfram því þær festir enginn nema Jónas frændi minn. Eyþór Árnason. Eftir að ég kom til Akureyrar nú fyrir helgina vissi ég ekki fyrri til en ég ók eftir Hjalteyrargötunni og hægði á mér þegar ég fór fram hjá Varma. Þetta hafði ekki verið af ásetningi fyrir fram en hugurinn var bundinn við minningu Jónasar Bjarnasonar, góðs vinar. Ég hafði síðast séð hann tilsýndar þar sem þau Rakel óku niður með Gleránni. Það hafði verið að draga af honum síðustu misserin, þessum hrausta og knáa manni. Og nú er hann fallinn frá. Ég rek ekki æviferil Jónasar Bjarnasonar, en hann var einstakur maður, traustur og drenglyndur. Hann var sómi stéttar sinnar og sér- stakur snillingur við rennibekkinn, völundur til handanna. Af því fer mörgum sögum. Síðast sagði Jóhann- es Kristjánsson mér að oft hefði það borið við að gera þurfti erfiða hluti og þá var að fara til Jónasar, – ef hann tók það að sér, þá leysti hann það. Það brást aldrei. Hann bar af sem verkmaður, sagði Jóhannes. Með þessum hætti setti Jónas í Varma svip á iðnaðarbæinn Akureyri og skýrði inntak þeirrar hugsunar. Og auðvitað er skammt á milli hagleiks og listasmíði. Sá fagri gripur sem Jónas gaf Oddfellwreglunni á Akur- eyri ber handbragð listamannsins. Ég hafði það fyrir venju að koma við hjá Jónasi í Varma fyrir hverjar kosningar og hafði við orð að með því væri baráttan hafin. Mér þótti gott að sitja hjá honum og þiggja kaffisopa í kompunni og fara yfir málin, því að hann var hvarvetna vel heima. Hann var íhugull en um leið húmoristi og sá spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Hann fylgdi Sjálfstæðisflokknum fast að málum enda var lífsskoðun hans sú að einstaklingurinn ætti að vera ábyrgur gerða sinna, sem auðvitað er óhugsandi, nema hann hafi frelsi til orða og athafna. En á þetta reyndi einmitt þegar hann kom ungur mað- ur til Akureyrar og hvers konar hömlur voru settar á athafnir manna og um hvaðeina þurfti að sækja um leyfi til Reykjavíkur. Á þeim árum var ekki létt að berjast við KEA-veld- ið á Akureyri. En smám saman greiddist úr. Og eftir að viðreisnar- stjórnin hafði verið mynduð þurfti ekki lengur að biðja um fjárfesting- arleyfi til að byggja atvinnuhúsnæði svo að þeir Jónas og Ívar Ólafsson JÓNAS BJARNASON Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, BRYNJÓLFS GEIRS PÁLSSONAR, Dalbæ 2, Hrunamannahreppi, verður gerð frá Skálholtskirkju miðvikudaginn 29. október klukkan 13:00. Jarðsett verður í Hrepphólakirkjugarði. Kristjana Sigmundsdóttir, Anna Brynjólfsdóttir, Tryggvi Guðmundsson, Magnús Páll Brynjólfsson, Rut Sigurðardóttir, Margrét Brynjólfsdóttir, Guðrún S. Pálmadóttir, Bryndís Brynjólfsdóttir, Sigmundur Brynjólfsson, Helena Eiríksdóttir, barnabörn og langafabarn. Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, dóttur og systur, HELGU BARÐADÓTTUR, Miðbraut 21, Seltjarnarnesi, sem lést á heimili sínu laugardaginn 18. október, fer fram frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 29. október kl. 10.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á reikning nr. 327-13-700700 hjá stuðningsfélagi KRAFTS. Sveinn Logi Björnsson, Atli Freyr Sveinsson, Lovísa Birta Sveinsdóttir, Axel Fannar Sveinsson, Barði Theódórsson, Elín Gissurardóttir, Ingibjörg Barðadóttir, Theódór Barðason, makar og aðrir aðstandendur. Eiginmaður minn, GARÐAR JÓNSSON fv. skógarvörður, Hlaðavöllum 8, Selfossi, lést laugardaginn 25. október. Móeiður Helgadóttir. Elsku drengurinn minn, bróðir okkar og mágur, ÓLAFUR PÁLL ÓLAFSSON, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 26. október. Erla Sch. Thorsteinsson, Magnús Ólafsson, Dýrleif Arna Guðmundsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Leifur Rögnvaldsson, Þórhildur Lilja Ólafsdóttir, Jón Pálmi Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.