Morgunblaðið - 28.10.2003, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!" " !
# $
"
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDIRRITAÐUR hefur sem skóla-
maður og foreldri fylgst með ánægju-
legum árangri Skákfélagsins Hróks-
ins í samstarfi við grunnskóla
undanfarið. Það virðist svo auðvelt að
gera skákina skemmtilega ef vel er að
verki staðið í skákkennslu og skák-
mótum. Aldrei er að vita hvar næstu
skáksnillingar finnast. Því þarf skák-
in að ná til barna í öllum skólum, vítt
og breitt um landið.
Dagana 11 –14. nóvember nk. efnir
Skákfélagið Hrókurinn til enn eins
stórviðburðarins í skákheiminum, en
það er stórmeistaraeinvígi á milli
Friðriks Ólafssonar, okkar fyrsta
stórmeistara, og Íslandsvinarins
danska, Bents Larsen. Einvígið verð-
ur háð í húsakynnum Hótels Loftleiða
þar sem á árum áður voru haldin fjöl-
mörg alþjóðleg skákmót. Samhliða
þessari skákveislu býður Hrókurinn
öllum grunnskólum höfuðborgar-
svæðisins að senda nemendur 4. og 5.
bekkjar í tveggja tíma skákskóla
Hróksins, nemendum að kostnaðar-
lausu. Krakkarnir munu fá kynningu
á skáklistinni og taka síðan þátt í fjöl-
tefli gegn stórmeistara Hróksins. All-
ir nemendur í skákskólanum munu
svo útskrifast með tilheyrandi skír-
teini upp á vasann.
Árið 2003 er að mínu mati sann-
kallað ár Hróksins. Þetta kraftmikla
taflfélag undir forsæti Hrafns Jökuls-
sonar hefur staðið fyrir stórmeistara-
mótum hér á landi af hæsta gæða-
flokki, numið lendur á Grænlandi, og
síðast en ekki síst þeyst um alla skóla
landsins með bráðskemmtilega
kennslubók í skák í farteskinu. Starf-
semin hefur ekki farið fram hjá þjóð-
inni því fjölmiðlar hafa gert henni góð
skil. Almenningur leggur við hlustir
þegar teikn eru á lofti um þjóðarvakn-
ingu í þessari hugaríþrótt. Komandi
kynslóðir mega ekki fara á mis við
kynni af skákgyðjunni líkt og virðist
hafa gerst á síðustu árum.
Hugsjónamaðurinn Hrafn Jökuls-
son hefur ótrúlegan metnað fyrir
hönd skáklistarinnar. Um það velkist
enginn í vafa. Ísland skal að nýju
verða á meðal fremstu þjóða í skák.
Sóknarfærin liggja í samstarfi við
grunnskólana, ungmennafélögin og
jafnvel samtök launafólks. Skákfélag-
ið Hrókurinn hefur í samvinnu við
Eddu útgáfu hf. gefið öllum átta ára
skólabörnum skákkennslubókina
Skák og mát eftir Anatolí Karpov.
Liðsmenn Hróksins heimsækja alla
grunnskóla landsins og færa börnun-
um gjöfina við hátíðlega athöfn. Ekki
líður á löngu þar til töfl eru tekin fram
í hverri skólastofu og úr andlitum
skín metnaður og jákvæð spenna þeg-
ar börnin byrja að þreifa sig áfram í
skáklistinni. Skákin er í þeirra augum
skemmtileg. Heima heldur æfingin
áfram og í skólanum segja þau frægð-
arsögur af því hve oft þau náðu að
máta mömmu, pabba og systkini.
Skákfélagið Hrókurinn hefur fylgt
bókargjöfinni eftir með skákkennslu í
stærstu grunnskólum höfuðborgar-
svæðisins og hafa þau námskeið verið
afar vel sótt. Framfarirnar og sjálfs-
traustið sést svo á glæsilegum barna-
skákmótum sem Hrókurinn hefur
staðið fyrir á Broadway og í Húsdýra-
garðinum, þar sem mikið er lagt upp
úr umgjörð og fjölmörgum góðum
vinningum.
Ég vil að lokum tjá stuðning minn
við tillögu Hrafns Jökulssonar um að
skákkennsla verði með formlegum
hætti tekin upp sem kennslugrein í
yngstu bekkjum grunnskólans. Það
er verið að lengja skóladaginn og
skólaárið. Margt hefur jafnhliða verið
gert til að auka fjölbreytni skóla-
starfsins og má þar nefna dans-
kennslu sem komið hefur inn á
stundaskrá yngstu bekkja í samstarfi
við danskennara. Það sama ætti að
gilda um skákina. Báðar þessar
námsgreinar hljóta að teljast til for-
varna af bestu gerð. Nú gengur
Hrafn Jökulsson forseti Hróksins
fram fyrir ráðamenn til að koma þess-
ari hugsjón sinni í verk. Ég skora á
forráðamenn ríkis og sveitarfélaga að
gera allt sem í þeirra valdi stendur til
að af þessu megi verða. Kostnaðurinn
yrði óverulegur en fengist ríkulega
greiddur til baka í auknu stolti og
sjálfsvirðingu nemenda og þjóðarinn-
ar allrar.
HELGI ÁRNASON,
skólastjóri Rimaskóla.
Ár Hróksins
Frá Helga Árnasyni
Morgunblaðið/Kristinn
Hrafn Jökulsson, formaður Hróksins, leiðbeinir nemendum í Rimaskóla.
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali