Morgunblaðið - 28.10.2003, Síða 43

Morgunblaðið - 28.10.2003, Síða 43
INNKÖLLUN VEGNA RAFRÆNNAR SKRÁNINGAR HLUTABRÉFA Í MEDCARE FLÖGU HF. Mánudaginn, 12. janúar 2003 Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Medcare Flögu hf. að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Medcare Flögu hf., Vesturhlíð 7, 105 Reykjavík eða í síma 510 2000 eða á netfang hluthafaskra@medcare.is. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag. Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Íslands hf, fyrir skráningardag. verða hlutabréf í Medcare Flögu hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Medcare Flögu hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Medcare Flögu hf. tekin til rafrænnar skráningar en þau eru öll í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi. Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum sjálfum skráningardeginum. Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa. Hluthöfum félagsins hefur verið kynnt þetta bréfleiðis. www. .commedcare ALLS voru fimm ökumenn grun- aðir um ölvun við akstur um helgina og 32 teknir fyrir of hraðan akstur. Tilkynnt var um 42 umferðaróhöpp þar sem eignatjón átti sér stað og fimm óku gegn rauðu ljósi. Um helgina var til- kynnt um 13 innbrot og 25 þjófnaði. Rétt eftir kl. 8 á föstudagsmorgni var tilkynnt um innbrot í Gnoð- arvogi, rúða hafði verið brotin og skjávarpa stolið að verðmæti um 170 þúsund krónur. Málið er í rann- sókn. Skömmu síðar var tilkynnt um innbrot í Árbænum. Þar hafði verið brotist inn í nýbyggingu, það- an stolið verkfærum og öðrum verð- mætum Um klukkustund síðar var tilkynnt um innbrot í bifreið í Vest- urbænum. Rúða hafði verið brotin og stolið geislaspilara, geisladiskum og úlpu. Um kl. 12.30 var ekið á 10 ára dreng sem var á hlaupum yfir ak- braut við Stekkjarbakka. Dreng- urinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild en talið er að hann hafi verið með minni háttar höf- uðáverka. Ráðist á mann með skærum Um kaffileytið á föstudag var til- kynnt um slagsmál tveggja manna. Annar var fluttur á slysadeild með áverka á hendi, upphandlegg og höfði. Ráðist hafði verið að mann- inum með skærum og sparkað í hann. Árásarmaðurinn var handtek- inn og vistaður í fangageymslu auk þess sem hann var grunaður um ölvun við akstur. Rétt fyrir kl. 21 á föstudagskvöld var maður tekinn með ætluð fíkni- efni, var hann laus að lokinni yf- irheyrslu. Rétt fyrir kl. 23 var til- kynnt um eignaspjöll og bruna í Hlíðunum. Þarna hafði eldur verið borinn að glugga. Öryggisvörður slökkti eldinn, en skemmdir eru á glugganum og gluggakarminum. Flúði á 143 km hraða Um kl. eitt aðfaranótt laugardags veitti lögreglan bifreið á ofsahraða eftirför. Ökumaður neitaði að stöðva bifreiðina og jók hraðann. Mældist hraði bifreiðarinnar 143 km/klst þar sem leyfilegur hraði er 70 km/klst. Lögreglumenn misstu sjónar á bifreiðinni en fundu þó ökumann og bifreiðina skömmu síð- ar. Ökumaður var handtekinn og færður á lögreglustöð til skýrslu- töku og var foreldrum hans tilkynnt um málið. Rétt fyrir kl. 6 á laugardags- morgni var tilkynnt um harðan árekstur við Vesturlandsveg, og hafði annar ökumaðurinn og farþegi í bifreiðinni hlaupið af vettvangi. Ökumaður og farþegi í hinni bifreið- inni voru flutt með sjúkrabifreið á slysadeild. Um kaffileytið var brotist inn í íbúðarhús í miðborginni og þaðan stolið antikmunum, verkfærum og fleira. Málið er í rannsókn. Um svipað leyti var farsíma stolið úr bifreið. Tilkynnandi hljóp á eftir mönnunum og sá hvert þeir fóru. Lögreglan handtók síðan mennina og flutti á lögreglustöð. Rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags var tilkynnt um slags- mál í Breiðholti og beðið um sjúkra- bíl á staðinn. Þarna höfðu verið átök milli ölvaðra manna. Einn maðurinn fékk verk fyrir hjartað og var hann fluttur á slysadeild. Hvítt efni í geisladiskahulstri Um svipað leyti hringdi maður og tilkynnti að hann hefði fundið geisladiskahulstur úti á götu og að í hulstrinu væri hvítt efni í poka. Lögreglan lagði hald á efnið sem talið er vera fíkniefni. Rétt eftir kl. 2 var tilkynnt um mann vera að ota hníf í allar áttir í miðborginni. Lögreglan afvopnaði manninn sem var með hníf í hulstri og lagði hald á hnífinn. Manninum var ekið á slysadeild vegna skurðar á augabrún. Nokkuð um innbrot og þjófnaði Úr dagbók lögreglunnar 24. til 27. október FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 43 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá stjórn Röskvu: „Í kjölfarið á ræðu rektors við út- skrift þar sem hann gerði skólagjöld við Háskóla Íslands að umræðuefni vill Röskva koma eftirfarandi á fram- færi: Undanfarið hefur mikil um- ræða átt sér stað um fjárveitingar til háskólastigsins og samkeppnisstöðu háskóla á Íslandi. Háskóli Íslands býr við afar erfiða samkeppnisstöðu þar sem einkaskólunum eru tryggð- ar sömu fjárveitingar á hvern nem- anda og Háskóla Íslands en þeir hafa auk þess umtalsverður tekjur af inn- heimtu skólagjalda. Við þessar aðstæður verður um- ræða um skólagjöld við Háskóla Ís- lands sífellt háværari og æ fleiri virð- ast telja lausnina við fjársvelti skólans felast í skólagjöldum. Stjórnvöld bera ábyrgð á Háskóla Íslands og ákvörðun um upptöku skólagjalda liggur þar af leiðandi hjá þeim. Þrátt fyrir að Háskólinn hafi beðið stjórnvöld að ræða vandann hafa stjórnvöld ekki tekið á málun- um heldur sagt það verkefni Háskól- ans. Það er kominn tími á að stjórn- völd taki á vandanum í stað þess að kasta boltanum aftur til Háskólans. Röskva hafnar öllum hugmyndum um skólagjöld og því að Háskóli Ís- lands gefi eftir grundvallarhug- myndir um jafnrétti til náms. Mik- ilvægt er að háskólayfirvöld sem og stúdentar gefist ekki upp, heldur berjist fyrir bættum háskóla án skólagjalda. Röskva skorar jafn- framt á alþingismenn að ræða mál- efni Háskólans. Alþingismenn sem og aðrir verða að gera sér grein fyrir þeim mikla auð fyrir samfélagið sem býr í menntun. Lausnin á fjárhags- vanda Háskóla Íslands felst í aukn- um fjárveitingum til skólans en ekki skólagjöldum.“ Röskva hafnar hug- myndum um skólagjöld MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi tilkynning frá Stúdenta- ráði Háskóla Íslands: „Vegna ummæla rektors Háskóla Íslands við brautskráningu kandídata í gær um að skoða verði kosti og galla upptöku skólagjalda við skólann vill Stúdentaráð Háskóla Íslands árétta eftirfarandi: Stúdentaráð er einhuga í afstöðu sinni gegn upptöku skólagjalda við Háskóla Íslands. Ljóst er að Háskóli Íslands á í fjárhagsvanda og í vetur hefur innan háskólasamfélagsins far- ið fram umræða um skólagjöld sem lausn á þeim vanda. Stúdentaráð hef- ur hins vegar barist gegn því að tekin verði upp skólagjöld og bent á að ekki sé eðlilegt að fjárhagsvanda háskól- ans sé velt yfir á stúdenta. Stúdenta- ráð Háskóla Íslands mun halda áfram öflugri baráttu sinni gegn skólagjöld- um – með hagsmuni stúdenta og Há- skólans að leiðarljósi. Ljóst er að ým- islegt í rekstri Háskóla Íslands má betur fara en einnig þarf ríkisvaldið að leggja sitt af mörkum til þess að bæta rekstrarumhverfi skólans. Háskóli Íslands er fyrsta flokks rannsóknarháskóli og jafnframt und- irstaða menntunar í landinu. Það er hlutverk stjórnvalda að sjá til þess að öllum þegnum landsins verði gert mögulegt að stunda háskólanám óháð efnahag og án þess að þurfa að greiða skólagjöld.“ Stúdentaráð andsnúið skólagjöldum í HÍ Félag íslenskra fræða heldur rannsóknarkvöld í Sögufélagshús- inu, Fischersundi 3, á morgun, mið- vikudaginn 29. október, kl. 20.30. Fyrirlesari er Orri Vésteinsson, forn- leifafræðingur, og nefnist erindi hans: „Þúsund ára barátta við eld og ís – Náttúruöflin í íslenskum sögu- skýringum.“ Í erindinu verða m.a. færð rök fyrir því að ekki sé sjálf- gefið að náttúruhamfarir eða um- hverfisbreytingar hafi áhrif á sam- félag fólks. Að erindinu loknu verða umræður. Öllum er heimill aðgangur. Frjálshyggjufélagið heldur mynd- bandakvöld á morgun, miðvikudag- inn 29 október, kl. 20, í hliðarsal Kringlukrárinnar. Sýndur verður annar þáttur í þáttaröð Miltons Friedmans sem heitir Free to Choose. Yfirskrift þáttarins er „Tyr- anny of Control“. Í þættinum fjallar Milton um afskipti ríkisvaldsins af mörkuðum. Allir velkomnir og er að- gangur ókeypis. Fyrirlestur um uppeldi með Gitte Lassen verður á morgun, miðviku- daginn 29. október, kl. 20–22 í Ljós- heimum, Brautarholti 8, 2h. t.v. Í fyr- irlestrinum verður fjallað um ráð til að auka gæðin í uppeldisstarfinu. Fyrirlesturinn er á ensku og kostar 1.500 kr. Málstofa um þróun viðskiptajafn- aðar þegar þjóðin á von á skelli Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands heldur málstofu á morgun, miðvikudaginn 29. október, kl. 16.15 á Aragötu 14. Ásgeir Jónsson, sér- fræðingur hjá Hagfræðistofnun, flyt- ur erindi er nefnist: Þróun viðskipta- jafnaðar þegar þjóðin á von á skelli. Fjallar hann um áhrif tímabundinnar gengishækkunar vegna stór- iðjuframkvæmdanna á almenna neyslu og viðskiptajöfnuð í landinu, og þá einkum hvort slík geng- ishækkun geti verið þensluhvetjandi. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Hagfræðistofnunar http:// www.ioes.hi.is/Á MORGUN Ráðstefna um rödd verður haldin föstudaginn 31. október kl. 9 á Hót- el Nordica. Skráning fer fram kl. 8–8.30. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands setur ráðstefnuna. Erindi halda: Erkki Vilkman háls-, nef- og eyrnalæknir, Marketta Sihvo talmeinafræðingur, Anita McAllister talmeinafræðingur, Ein- ar Thoroddsen háls-, nef- og eyrna- læknir, Hannes Petersen háls-, nef- og eyrnalæknir, Bryndís Guð- mundsdóttir talmeinafræðingur, Valdís Jónsdóttir talmeinafræð- ingur og Helga Jóakimsdóttir Alex- anderkennari. Fundarstjórar eru: Ingibjörg Hinriksdóttir yfirlæknir á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og Elmar Þórðarson talmeinafræð- ingur. Ráðstefnan fer bæði fram á ensku og íslensku. Verð er 12.000 kr., ef mætt er eftir hádegi er borgað 6.900 kr., náms- menn fá afslátt. Hægt er að skrá sig á heimasíðunni: http://simnet.is/ einval/ einnig með tölvupósti: gestamottaka@yourhost.is Árshátíð Önfirðingafélagsins verður haldin laugardaginn 1. nóv- ember í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, Reykjavík. Húsið opnað kl. 20 en hátíðin hefst kl. 21. Heið- ursgestir: Benedikte Thorsteinsson, formaður Kalak, vinafélags Græn- lands og Íslands og f.v. félagsmála- ráðherra Grænlands og maður hennar Guðmundur Þorsteinsson. Leynigestir: Einar Oddur Krist- jánsson, alþingismaður á Sólbakka og eiginkona hans Sigrún Gerða Gísladóttir. Veislustjóri: Reynir Traustason, ritstjórnarfulltrúi á Fréttablaðinu og rithöfundur. Boð- ið verður upp á kaffi og snittuhlað- borð. Jóhannes Kristjánsson eft- irherma frá Brekku á Ingjaaldssandi skemmtir og Birkir Þór Guðmundsson rokkbóndi frá Hrauni á Ingjaldssandi leikur fyrir dansi kl. 23–3. Á NÆSTUNNI Konur í gegn um glerþakið Í tilefni femínistaviku, 24. október–1. nóv- ember, stendur hópur ungra fem- ínista fyrir hádegisfundi í dag, þriðjudag, kl. 12.05–13.10 í Lögbergi, stofu 101. Konur sem hafa brotist í gegn um glerþakið í sínu fagi segja frá sinni reynslu. Frummælendur verða: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stjórnmálamaður, Ingrid Kuhlman framkvæmdastjóri Þekkingarmiðl- unar og Edda Björgvinsdóttir leik- kona. Allir velkomnir. Heilbrigðishópur femínistafélags Íslands stendur fyrir morgunverð- arfundi á Grand Hótel í dag, þriðju- dag, kl 8–10, undir yfirskriftinni: „Stefnumótun í heilbrigðiskerfinu og áhrif hennar á líf kvenna.“ Erindi halda: Ingibjörg Georgsdóttir barna- læknir, Lára Björnsdóttir félags- málastjóri í Reykjavík og Kristín Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur, auk þess sem fulltrúar allra þing- flokka munu taka stuttlega til máls. Fundarstjóri verður Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins. Allir velkomnir. Borgin í bítið fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnarsal, í dag kl. 8.30–10, í tengslum við sýninguna Lifandi landakort – LUKR í fimmtán ár. Ætlunin er að skoða þá möguleika sem kerfi eins og LUKR og tenging þess við önnur upplýsingakerfi getur nýst Reykjavíkurborg á fleiri sviðum en nú er. Erindi halda: Anna Krist- insdóttir borgarfulltrúi, Sigríður Jónsdóttir frá Félagsþjónustunni og Hreinn Hreinsson upplýsinga- fulltrúi. Boðið verður upp á léttan morgunverð. Allir velkomnir. Í DAG Sími 552 1400 fax 552 1405 Laugavegi 170, 2. hæð, 105 Reykjavík Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur löggiltur fasteignasali Heimasíða: www.fold.is - Netfang: fold@fold.is 20 íbúðir - 2ja, 3ja og 4ra herbergja Okkur hefur verið falið af opinberum aðila að útvega 20 íbúðir, 2ja, 3ja og 4ra herbergja, í Reykjavík. Staðgreiðsla í boði fyrir réttar eignir. Skoðun og kaup ganga mjög hratt fyrir sig. Áhugasamir hafi samband við sölumenn Foldar fasteignasölu í síma 552 1400 eða í síma sölumanna: Ævar 897 6060, Þorri 897 9757, Böðvar 892 8934 eða Helgi 897 2451 FASTEIGNIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.