Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 44
DAGBÓK
44 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Fataúthlutun þriðju-
daga kl. 16–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–
11.30 sund, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðsla, kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist, kl. 9–16.30
púttvöllurinn opinn
þegar veður leyfir.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan opin
og vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
vinnustofa, tréskurður,
postulín, kl. 10–11 leik-
fimi, kl. 12.40 versl-
unarferð, kl. 9–12 hár-
greiðsla, kl.
13.15–13.45 bókabíll.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur
og handavinna. Kl. 15
söng og harmonikku-
stund í borðsal.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 10 leir-
list, kl. 12.50 leikfimi
karla, kl. 13 málun, kl.
13.30 tréskurður.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Kl. 9
dagblöðin, rabb og
kaffi á könnunni.
Frjáls prjónastund.
Leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11.30. Brids og
saumur kl. 13. Billjard
kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skák kl. 13. Alkort
spilað kl. 13.30. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar ganga frá Ás-
garði, Glæsibæ, kl. 10.
Félagsstarf eldri
borgara, Mosfells-
sveit. Opið kl. 13–16.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, sími
575 7720. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl.
10 „Gleðin léttir lim-
ina,“ létt ganga o.fl. Kl.
13 boccia. Veitingar í
Kaffi Bergi.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler- og postu-
línsmálun, kl. 9.05 og
kl. 9.55 leikfimi, kl.
10.50 róleg leikfimi, kl.
14 ganga, kl. 14.45
boccia, kl. 19 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín,
kl. 10 ganga, kl. 13–16
handavinna.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín og glerskurður,
kl. 10 boccia, kl. 11
leikfimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 mynd-
list og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–10 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaað-
gerðir, hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun, miðviku-
dag, er fundur í Mið-
garði kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
skinnasaumur, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.15–16 postulín, kl.
10.15–11. 45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leik-
fimi, kl. 13 handmennt
og postulín, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, kl. 20,
svarað í s. 552 6644 á
fundartíma.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 20 bingó.
Öldungaráð Hauka.
Munið fundinn annað
kvöld, miðvikudag, kl.
20 á Ásvöllum.
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur. Opið hús
í sal félagsins að Álfa-
bakka 14a í kvöld kl.
20.30. Gömlu dans-
arnir. Allir velkomnir.
Í dag er þriðjudagur 28. októ-
ber, 301. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Jesús sagði: Ég er sá, og
þér munuð sjá Manssoninn sitja
til hægri handar máttarins og
koma í skýjum himins.
(Mark. 14,62.)
Anna Sigrún Bald-ursdóttir fjallar um
framtíð heilbrigðiskerf-
isins á Kreml.is. Anna
bendir á að lög kveði á
um að öllum skuli standa
til boða sú fullkomnasta
heilbrigðisþjónusta sem
völ sé á, en að framþróun
í heilbrigðisvísindum hafi
verið mjög ör og að
kostnaður hafi því aukist
meira en sameiginlegir
sjóðir landsmanna virðist
ráða við. „Til að auka enn
á kostnað í kerfinu glímir
heilbrigðisþjónustan við
breytta aldurssamsetn-
ingu þjóðarinnar, þar
sem öldruðum fjölgar
hlutfallslega mest og
þeim sem mestrar þjón-
ustu þarfnast í þeim hópi
fjölgar langmest. Úr-
ræðaleysi á nánast öllum
stigum þjónustu við
þennan viðkvæma hóp
sem dagar uppi í dýrum
bráðarýmum hefur orðið
til þess að þjónusta við
aðra neytendur takmark-
ast vegna plássleysis. Þar
er verið að veita öldr-
uðum ranga þjónustu, á
röngum stað og á röng-
um tíma. Þetta er reynd-
ar ekki eini hópurinn
sem er í þessari stöðu,
sama má segja um geð-
fatlaða. Enn síður er
þetta séríslenskt vanda-
mál og á ensku hefur
þeim sem teppa rými á
bráðadeildum vegna úr-
ræðaleysis annars staðar
verið gefið heitið „bed-
blockers“.
Kröfur fólks um skil-virka og árangurs-
ríka þjónustu munu fara
fram úr getu/vilja rík-
isrekins heilbrigðiskerfis
til að mæta þeim. Senni-
lega er sú þegar orðin
raunin og eru einkarekn-
ar læknastöðvar og ýmis
einkarekin heilbrigð-
isþjónusta í landinu til
marks um þetta. Ef eft-
irspurn er eftir einhverri
þjónustu er yfirleitt ein-
hver tilbúin til að veita
hana gegn hæfilegri
þóknun. Sú er raunin í
heilbrigðsþjónustunni
eins og annars staðar. Að
reyna að loka augunum
fyrir þessu og fordæma
allan einkarekstur eins
og um hreina einkavæð-
ingu sé að ræða er í besta
falli kjánalegt, versta
falli hættulegt. Raunhæf-
ara er að opna allar
mögulegar leiðir í einka-
rekstri í heilbrigðiskerf-
inu og efla um leið eftirlit
með slíkri starfsemi í
landinu. Slíkt myndi
auka árangur og skil-
virkni í þjónustunni og
færa okkur nær mark-
miðinu um fullkomnustu
heilbrigðisþjónustu sem
völ er á fyrir alla.“
Því fyrr sem vitrænumræða um framtíð
íslenskrar heilbrigð-
isþjónustu og hlutverk
einkaframtaksins kemst
á verulegt flug, því betra.
Að öðrum kosti munum
við áfram búa við víta-
hring aukins kostnaðar
en hlutfallslega lélegri
nýtingu fjármuna í heil-
brigðiskerfinu. Þá verða
það mjög fáir, útvaldir af
kerfinu, sem njóta full-
komnustu heilbrigð-
isþjónustu sem völ er á,
en ekki við öll.“
STAKSTEINAR
Einkarekstur í
heilbrigðisþjónustu
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI á stundum erindi áhjúkrunarheimili fyrir aldraða í
borginni. Á heimilum af því tagi eyða
margir ævikvöldinu eftir langan og
erilsaman dag og eru, eins og gengur,
í mismiklum tengslum við stund og
stað. Á deildinni sem Víkverji heim-
sækir reglulega eru flestir vistmenn
„út úr heiminum“, eins og það er kall-
að. Það er auðvitað erfitt hlutskipti,
bæði fyrir viðkomandi vistmenn og
ekki síður ættingja, en getur haft sín-
ar skondnu hliðar líka.
Víkverji hefur gaman af því að
taka gamla fólkið tali og kynnast sýn
þess á tilveruna sem einkennist oftar
en ekki af hreinskilni.
Víkverji var til að mynda staddur á
hjúkrunarheimilinu ásamt þremur
sonum sínum á dögunum þegar vel til
höfð eldri kona gaf sig á tal við hann.
„Þetta er aldeilis hópur,“ sagði hún.
Víkverji samsinnti því, kynnti sig og
synina og spurði þá gömlu síðan
hvort hópurinn væri ekki glæsilegur.
Hún horfði fyrst rannsakandi á Vík-
verja, svo á synina og sagði án þess
að blikna: „Ja, ég veit nú ekkert um
það.“ Gekk svo sína leið.
Stundum hefur Víkverji þó fengið
hlýrri kveðju á hjúkrunarheimilinu.
Einhverju sinni tók á móti honum
skælbrosandi kona. Horfði á hann
með aðdáun og mælti: „Mikið svaka-
lega ert þú fallegur maður!“ Víkverja
brá í brún við þetta einlæga hól en
þakkaði pent fyrir sig og gekk rogg-
inn inn ganginn. Ánægður með þenn-
an óvenjulega smekk konunnar. Ekki
leið þó á löngu uns Víkverji heyrði
konuna taka að nýju til máls. „Mikið
svakalega ert þú fallegur maður,“
sagði hún þá aftur. Víkverji sneri sér
við og sá þá að annar maður var
genginn í salinn. Varð hann álíka
vandræðalegur og Víkverji. Við eft-
irgrennslan kom svo á daginn að
blessuð konan heilsar víst öllum með
þessum hætti, mönnum og konum.
Það eyðilagði þó ekki augnablikið, þó
vissulega drægju þessi tíðindi úr
væginu.
x x x
ÞAÐ ER vísast að bera í bakka-fullan lækinn að hæla sýningu
Þjóðleikhússins á írska leikritinu
Með fulla vasa af grjóti. Hálf þjóðin
er víst búin að sjá hana. Víkverji, sem
sá sýninguna á dögunum, má þó til
með að ljúka lofsorði á hana. Enginn
unnandi góðrar leiklistar má láta
sýninguna fram hjá sér fara. Verkið
sjálft er vissulega prýðilegt gam-
anleikrit en það er framganga leik-
aranna tveggja, Hilmis Snæs Guðna-
sonar og Stefáns Karls Stefánssonar,
sem stendur upp úr. Þeir fara þarna
á kostum. Bregða sér í allra kvikinda
líki, manna og kvenna, og skapa
marga minnisstæða karaktera. Svo
sannfærandi var Hilmir Snær í túlk-
un sinni á Hollívúdd-leikkonunni
Caroline Giovanni að Víkverji trúði
því hreinlega að hann væri kona.
Kynþokkafull kona. Flinkari menn
eru vandfundnir á fjölunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Með fulla vasa af grjóti. Gam-
anleikur í hæsta gæðaflokki.
Lengi lifi Sláturfélag
Suðurlands
MIG langar að segja frá
góðri þjónustu hjá SS.
Þegar haustar fæ ég
ómótstæðilega löngun í
nýtt slátur. Því fór ég í
Hagkaup. Þar eru nú til 3
slátur í kassa með saum-
uðum vömbum og brytjuð-
um mör en einnig 5 slátur.
Þar eru vambirnar ósaum-
aðar. Ég varð harla glöð að
geta valið og keypti 3 slát-
ur með saumuðu vömbun-
um.
Um kvöldið ætlaði ég að
taka til óspilltra málanna
en þá hafði kassinn verið
merktur vitlaust og í hon-
um voru 5 ósaumaðar
vambir. Þetta fannst mér
hið versta reiðarslag. Þótt
ég vissi að búið væri að
loka í SS þá hringdi ég
þangað og símsvarinn gaf
upp neyðarnúmer hjá ein-
hverjum einstaklingi. Ég
hringdi með hálfum huga
því ekki var þetta beinlínis
lífsháski. Ég ætla ekki að
orðlengja það að það kom
maður með 6 saumaðar
vambir og 2 lítra af blóði til
að bæta mér óþægindin.
Ósaumuðu vambirnar gat
hann ekki nýtt sér og nú
eru þær annars staðar
komnar í góðar þarfir.
Kærar þakkir fyrir
hjálpina.
P.S. Nú fæst lambalifur
á 199 krónur í búðunum.
Sláturfíkill.
Til Fangakórsins
TIL hamingju með kórinn
ykkar. Ég veit að þið eigið
eftir að finna þá stórkost-
legu gleði og vináttu sem
kórstarfið gefur af sér.
Lengi lifi söngurinn!
Léttsveitarkona.
Mýs í bústaðnum?
ÞAÐ er farið að kólna og
þá leita mýsnar oft í yl og
æti.
Þegar inn í sumarbú-
staðinn er komið er gólfið
þakið af músaskít og það
er búið að naga eitt og ann-
að. Mér datt í hug að leita
ráða hjá lesendum blaðsins
hvort þeir viti eitthvert
gott ráð til þess að losna
við þessi litlu dýr án þess
að drepa þau. Dóttir mín
segir það ljótt að deyða
dýr og gaman væri að geta
sýnt henni gott fordæmi.
Lesandi.
Þjóðsögur
og þættir
ER einhver sem á og vill
láta Þjóðsögur og þætti
eftir Einar Guðmundsson,
fyrra bindi, útgefin líklega
1981? Þeir sem gætu lið-
sinnt mér vinsamlega
hringið í síma 566 7695.
Anna M.
Sigurðardóttir.
Tapað/fundið
Bíllyklar týndust
BÍLLYKLAR týndust við
Gunnarsbraut aðfaranótt
sunnudags 19. október.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 551 6527.
Fundarlaun.
Brún taska
týndist
LÍTIL hliðartaska, brún,
týndist í Hallgrímskirkju í
apríl – mars sl. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 551 6527.
Marglitt hjól
týndist
MARGLITT hjól með
svörtum lás týndist frá
Hlaðbæ 4. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
587 8823.
Sony-vasaútvarp
týndist
FYRIR nokkru týndist
vasaútvarp af gerðinni
Sony SRF-S53, sennilega í
strætó. Það var án heyrn-
artóla og í svörtu hulstri.
Ég myndi mjög gjarnan
vilja fá það aftur. Sími
587 1912 og 662 6360.
Marta.
Dýrahald
Læður leita
að heimili
VEGNA flutninga eru
tvær yndislegar læður að
leita sér að nýju heimili,
þær eru um 1½ árs, önnur
er alveg grá og hin grá-
bröndótt. Upplýsingar í
síma 552 7846 eftir kl. 16.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Dyttað að húsi við Ingólfstorg.
Krossgáta
LÁRÉTT
1 bremsa, 4 persónu-
töfrar, 7 ber, 8 blaðið, 9
sunna, 11 siga, 13 hug-
boð, 14 ljóstíra, 15 hag-
ræða, 17 tryggur, 20
borða, 22 illa þefjandi, 23
styggjum, 24 hugsa um,
25 framleiðsluvara.
LÓÐRÉTT
1 kasta, 2 blundar, 3
beitu, 4 raspur, 5 óvani, 6
út, 10 óalið, 12 vætla, 13
op, 15 ísbreiða, 16 vit-
laus, 18 kvabbs, 19 lofuð,
20 baun, 21 ávinna sér.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 ómerkileg, 8 búrum, 9 negla, 10 una, 11 iðrar,
13 næðið, 15 staða, 18 stórt, 21 pól, 22 nunna, 23 æruna,
24 ómissandi.
Lóðrétt: 2 múrar, 3 ræmur, 4 innan, 5 eggið, 6 obbi, 7
barð, 12 arð, 14 ætt, 15 sund, 16 afnam, 17 apans, 18
slæga, 19 ólund, 20 tían.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16