Morgunblaðið - 28.10.2003, Qupperneq 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RAÚL Gonzalez fyrirliði meistaraliðs Real Madrid segist
ekki hafa uppi nein áform um að yfirgefa félagið jafnvel
þó að honum verði boðnir gull og grænir skógar. Raúl
segist hafa hafnað gylliboði frá Chelsea en þessi 26 ára
gamli framherji, sem ber viðurnafnið gulldrengurinn,
hefur skráð nafn sitt í sögubækurnar í Meistaradeildinni
þar sem enginn hefur skorað fleiri mörk frá stofnun
hennar. Raúl er þessa dagana að ræða við forráðamenn
Real Madrid um nýjan samning sem myndi binda hann
hjá félaginu til ársins 2010. „Ég held að ég eigi sex til sjö
góð ár eftir svo framarlega sem ég slepp við alvarleg
meiðsli,“ segir Raúl í viðtali við spænska blaðið Marca.
Raúl hóf feril sinn hjá Real Madrid 17 ára og lék sinn
fyrsta leik á móti Zaragoza fyrir níu árum.
„Þegar ég kom til Real Madrid þá datt mér ekki í hug
að ég ætti að vera hjá sama félaginu níu árum síðar. En
eins og ég hef sagt áður þá vil ég vera hjá Real Madrid
áfram og félagið vill halda mér svo þetta er bara spurn-
ing um tíma hvenær ég framlengi samning minn.“
Raúl fer ekki fet
frá Real Madrid
Raúl Gonzalez
FRODE Hagen,
norski handknatt-
leiksmaðurinn hjá
Barcelona, var valinn
besti leikmaðurinn í
stórbikarkeppni Evr-
ópu sem fram fór í
Valladolid um
helgina. Barcelona
vann þá Valladolid í
úrslitaleiknum, 30:29,
eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær.
Heimamenn í
Valladolid fengu hin
tvenn einstaklings-
verðlaun mótsins.
Armand Torrego var
valinn besti mark-
vörðurinn og Dusko
Milinovic var marka-
hæsti maður mótsins –
skoraði 12 mörk,
tveimur meira en
Ólafur Stefánsson,
sem gerði 10 mörk í
tveimur leikjum fyrir
Ciudad Real.
Fullt hús, 7 þúsund
manns, var á þremur
af fjórum leikjum
keppninnar. Aðeins
leikur Ciudad Real og
Montpellier um þriðja
sætið var leikinn fyrir
rúmlega hálfsetnu
húsi, en þann leik sáu
um 3.700 manns.
Hagen bestur
í Valladolid
Þrjú lið virðast sigurstrangleg-ust við fyrstu sýn í NBA-
deildinni og það eina sem við get-
um verið nokkurn
veginn viss um er
að meistaraliðið
mun koma úr Vest-
urdeildinni eins og
undanfarin ár. Jú, New Jersey
Nets vann tvo leiki í lokaúrslit-
unum í júní, en það þarf fjóra sigra
til að vinna titilinn og ég er hrædd-
ur um að það verði Austurliðinu
jafnerfitt og undanfarin ár.
Sumarið í ár var óvenju anna-
samt hjá framkvæmdastjórum
NBA-liðanna. Leikmenn sem verið
höfðu allan sinn feril hjá sama liði
skiptu um lið, stórstjörnur með
lausa samninga sömdu við ný lið,
og aðrir leikmenn fóru um landið
þvert og endilangt til að skipta um
lið. En þegar upp er staðið styrktu
bestu liðin sig og þar með verða
sömu liðin í baráttunni um titilinn
og á síðasta keppnistímabili.
George verður lykilmaður
hjá Lakers
Koma Gary Payton og Karl Mal-
one til Los Angeles Lakers vakti
mesta athygli af öllum þessum
mannabreytingum, enda hér stór-
breyting á því liði sem mestu fjöl-
miðlaumfjöllunina fær. Á yfirborð-
inu lítur þetta út fyrir að styrkja
Lakers, en liðið er ekki nauðsyn-
lega komið með meiri breidd með
komu þeirra og báðir eru kapparnir
við aldur sem leikmenn. Devean
George verður lykilmaður hjá Lak-
ers í vetur þegar varnarkerfi and-
stæðinganna einbeita sér að því að
stöðva þá Payton, Malone, Kobe
Bryant og Shaquille O’Neal. Ef
George hittir ekki betur en á síð-
asta keppnistímabili (hann skoraði
úr færri en 40% skota sinna) gæti
Lakers lent í erfileikum í mörgum
leikjum. En enginn skal gleyma því
að Shaq O’Neal er sá leikmaður
sem erfiðast er að stöðva þegar
hann er heill heilsu og sú er raunin
nú. Það verður altént gaman að
fylgjast með hvernig breytingin
kemur út.
Kidd vildi ekki til
meistaraliðs Spurs
Forráðamenn meistaraliðs San
Antonio Spurs reyndu allt sem þeir
gátu til að fá Jason Kidd frá New
Jersey, en hann ákvað að skrifa
undir nýjan samning hjá Nets.
Ákvörðun Kidds jók möguleika
Nets verulega á að eiga tækifæri á
titlinum, en veikti að sama skapi
möguleika Spurs á að halda honum.
Gregg Popovich, þjálfari Spurs, fór
strax af stað þegar Kidd hafði tekið
ákvörðun sína. Hann hélt á þjálf-
aranámskeið til Evrópu og fór
strax að því loknu til Slóveníu til að
tala við Rasho Nesterovic, miðherj-
ann sterka frá Minnesota, sem var
með lausan samning við úlfana þar.
Popovich fór ekki frá Slóveníu fyrr
en Nesterovic hafði samþykkt að
semja við San Antonio fyrir minni
pening en Minnesota hafði boðið
honum. Popovich hafði sannfært
miðherjann að hann ætti mun betra
tækifæri á að vinna meistartitilinn
með Spurs. Næst náði Popovich í
Tyrkjann Hedo Turkulu frá Sacra-
mento og framherjana Ron Mercer
frá Indiana og Robert Horry frá
Los Angles Lakers. Frakkinn Tony
Parker mun verða leikstjórnandinn
og Argentínumaðurinn Manu Gino-
bili bakvarðarskyttan. „Við erum
ekki með mikið af stórstjörnum í
liðinu eins og sum lið, en mér líst
vel á líkurnar hjá okkur í vetur,“
sagði Tim Duncan nýlega, en hann
mun trúlega verða allt í öllu hjá
Spurs sem fyrr.
Sacramento er loks eitt af þeim
þremur liðum sem líklegust eru til
að berjast um titilinn næsta sumar.
Liðið kemur að mestu óbreytt til
leiks en hefur orðið sterkara með
komu miðherjans Brad Miller frá
Indiana.
Af hverju er Sacramento líklegt
til afreka? Liðið var með bestu
vörnina á síðasta keppnistímabili
og Miller mun styrkja hana enn
frekar þegar Kings þarf að eiga við
Tim Duncan og Shaq O’Neal í úr-
slitakeppninni. Chris Webber verð-
ur lykilmaðurinn hjá Sacramento ef
hann nær að vera heill heilsu að
mestu. Hann hefur misst 43 leiki úr
undanfarin tvö ár og þegar hann er
fjarri er Kings ekki sama liðið.
Dallas og Jón Arnór
Hvað með Dallas Mavericks og
Íslendinginn Jón Arnór Stefáns-
son? Jú, Dallas verður í baráttunni
um toppsætin í Vesturdeildinni að
venju, en veikleiki liðsins verður
nákvæmlega sá sami og undanfarin
ár: Vörn sem gefur andstæðing-
unum of mörg stig í úrslitakeppn-
inni. Dallas stal Antawn Jamison
frá Golden State og skipti nýlega á
Raef LaFrentz fyrir Antoine Walk-
er frá Boston. Báðir eru þessir
kappar miklir skorarar og það
verður örugglega mjög skemmti-
legt að fylgjast með leikjum Mav-
ericks í deildarkeppninni. Þjóðverj-
inn Dirk Nowitzki verður
lykilmaðurinn hjá liðinu, eins og
áður. Ef hann nær að bæta leik
sinn enn meir frá í fyrra, gætu
Mavericks sett strik í reikninginn í
úrslitakeppninni.
Önnur lið í Vesturdeildinni munu
ekki blanda sér í titilbaráttuna, en
Minnesota, Phoenix, Houston og
Portland eru öll lið sem munu gera
hvaða liði sem er erfitt fyrir í sín-
um leikjum. Það sama er ekki hægt
að segja um Austurdeildina. Jú,
undirritaður er meðvitaður um að
það er keppt í Austurdeildinni. En
sjö af átta bestu liðunum í NBA-
deildinni koma úr Vesturdeild.
Það er engin spurning um að
New Jersey Nets verður langbesta
liðið í Austurdeildinni og mun gera
hvaða liði sem er lífið leitt í loka-
úrslitunum. Nets náði að halda í
Jason Kidd og styrkist verulega við
komu Alonzo Mourning frá Miami.
Ef Mourning verður heill heilsu
(hann hefur verið með alvarlegan
nýrnasjúkdóm undanfarin tvö ár),
mun hann gera starf Kidd mun
auðveldara. Mourning getur skor-
að, sem er meira en miðherjar
Nets hafa gert undanfarin ár.
Þeir Richard Jefferson, Kenyon
Martin og Kerri Kittles eru allt
miklir íþróttamenn og í þennan
mannskap hafa hin liðin í Aust-
urdeildinni ekkert að gera! Þetta er
þriðja árið sem Nets hefur verið
tiltölulega óbreytt. „Ég held að við
höfum nú minnkað bilið við bestu
liðin í Vesturdeildinni,“ sagði By-
ron Scott, þjálfari Nets, nýlega.
„Flestir íþróttafréttamenn munu
veðja á Spurs og Lakers, en ég
held að koma Alonzo Mourning
muni breyta meiru fyrir okkur en
leikmannaskipti hinna liðanna. Við
erum nú tilbúnir í slaginn við hvern
sem er,“ bætti hann við.
San Antonio virðist vera heil-
steyptasta liðið í Vesturdeildinni og
ætti að sigra New Jersey Nets í
lokaúrslitunum. Í sex leikjum, eins
og í sumar sem leið. Í millitíðinni
munu liðin leika 82 deildarleiki og
þrjár erfiðar umferðir í sitt hvorri
deild. Margt gæti breyst þar til
næsta vor.
AP
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki er
lykilmaður í leik Dallas. Hér
treður hann knettinum í
körfuna í leik gegn Utah.
NBA-deildin hefst í nótt – meistarar koma úr vesturdeildinni
ÞAÐ er eins og það hafi orðið tímaskekkja þegar litið er yfir þau lið
sem virðast líklegust til afreka í NBA-deildinni í vetur. Sömu liðin
koma sterk til leiks eins og undanfarin ár, en munurinn á bestu lið-
unum og þeim sem næst koma hefur aukist ef eitthvað er. Þetta er
kannski ekki það sem margir af aðdáendum NBA-boltans vilja
heyra, en við hér á Morgunblaðinu erum nokkuð viss í okkar spá,
enda að hefja okkar tuttugasta keppnistímabil að skrifa um NBA-
boltann frá Bandaríkjunum. Þumalfingursreglan hjá íþrótta-
fréttamönnum hér í Bandaríkjunum í að spá um gengi liða á tilkom-
andi keppnistímabili er að meistaraliðið er ávallt sigurstranglegast,
þar til annað kemur í ljós. Sem betur fer er þetta oft rangt!
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríjunum
Mikið hefur verið um
mannabreytingar
NÝJASTA stórstjarnan í NBA-
boltanum er LeBron James. Síð-
asta keppnistímabil lék hann með
gagnfræðaskólaliði sínu rétt hjá
Cleveland-borg. Hann er hins veg-
ar enginn venjulegur gagnfræða-
skólaleikmaður. Hann hafði engan
áhuga á að fara í háskóla og eng-
inn vafi lék á því að hann var á
leiðinni beint í atvinnumennskuna.
Leikjum skólaliðs hans var sjón-
varpað um öll Bandaríkin og þegar
leikmannavalið var haldið í sumar
gekk allt út á hvaða lið myndi fá
fyrst valrétt til að fá James. Þegar
Cleveland Cavaliers vann valið var
eins og hinum langþjáðu
íþróttaunnendum borgarinnar
hefði verið boðið í stórveislu. Cav-
aliers var með verstu aðsókn allra
liða í deildinni á síðastliðnu keppn-
istímabili, en eftir að ljóst var að
heimastrákurinn sjálfur myndi
leika með riddurunum seldust allir
heimaleikir liðsins upp á svip-
stundu. Cleveland mun einnig
verða þrettán sinnum í sjónvarps-
sendingum sem ná um öll Banda-
ríkin, en liðið sást aldrei í slíkum
leikjum í fyrra. James hefur svo
mikla náttúrulega hæfileika sem
leikmaður að honum hefur verið
líkt á einn eða annan hátt við Mich-
ael Jordan, Magic Johnson, Larry
Bird og Tim Duncan, sem allir
komu inn í deildina með mikla
hæfileika. Kappinn mun hins veg-
ar varla hafa eins mikil áhrif á lið
sitt og hinir fyrrnefndu kappar
þar sem þeir léku allir tvö til fjög-
ur ár í háskólaboltanum. Það mun
taka James tvö til þrjú ár að venj-
ast hinu langa og erfiða keppn-
istímabili í deildinni og hann hefur
heldur enga sérstaka stöðu enn.
James er vel yfir tvo metra, en er
mjög líkamlega þroskaður og hef-
ur þegar sýnt í æfingaleikjum Ca-
valiers að andstæðingar hans
verða að hafa miklar gætur á hon-
um. Hann virðist einnig skilja vel
hversu mikilvægt er að spila liðs-
bolta og hefur ótrúlega tilfinningu
fyrir atvinnuboltann þrátt fyrir
ungan aldur.
James hefur nú þegar gert aug-
lýsingasamninga fyrir vel á annað
hundrað milljónir dala og mun
Hver er LeBron
James?