Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.10.2003, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 2003 49 FABIAN Barthez, franski markvörðurinn hjá Manchester United, er nú kominn til Marseille í heimalandi sínu sem lánsmaður. Hann hefur þó ekki fengið keppnisleyfi og bíður fregna af því hvort honum verði heimilt að byrja að spila strax í frönsku knattspyrnunni, eða hvort hann þurfi að bíða fram í janúar þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður á ný. Alþjóða knattspyrnusambandið á eftir að gefa út sinn úrskurð þar að lútandi. Barthez telur að reglurnar um félagaskiptin eigi ekki að gilda um mark- verði. „Okkar starf er öðruvísi en annarra knattspyrnumanna, við getum aðeins spilað eina stöðu, notum hendurnar og erum öðruvísi klæddir,“ sagði Barthez við franska íþróttadagblaðið L’Equipe í gær. Barthez lék með Marseille á árunum 1992 til 1995 og segir að Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hafi þá strax byrjað að fylgjast með sér. „Ferguson sagði mér að hann væri mjög leiður yfir því að ég væri ekki að spila með sínuliði og hann væri afar ánægður með að ég skyldi fara til fransks liðs,“ sagði Barthez. Hann missti sæti sitt í liði Man- chester United í sumar þegar hann lék með Frakklandi í Álfukeppninni á meðan enska liðið fór í keppnisferð til Bandaríkjanna. Þar festi Tim How- ard sig í sessi sem aðalmarkvörður og Roy Carroll komst framfyrir Bart- hez í röðinni, þannig að franski landsliðsmarkvörðurinn komst ekki einu sinni á varamannabekkinn. Barthez vill sérstakar reglur fyrir markverði  KJETIL Rekdal, þjálfari og leik- maður norska knattspyrnuliðsins Vålerenga, var hársbreidd frá því að slasa dómarann Terje Hauge eftir leik liðsins við Lyn í úrvalsdeildinni í fyrrakvöld. Þegar Hauge var búinn að flauta leikinn af spyrnti Rekdal boltanum af miklum krafti í áttina að dómaranum og boltinn straukst við höfuð hans.  REKDAL hljóp strax til Hauge og bað hann afsökunar og Hauge kvaðst taka það gott og gilt og tilkynnti ekki atvikið í skýrslu sinni. Það kemur þó væntanlega inn á borð aganefndar norska knattspyrnusambandsins frá eftirlitsmanni og Rekdal getur því átt leikbann yfir höfði sér. Hann hafði fyrr í leiknum mótmælt dómum Hauge kröftuglega, séstaklega þegar hann rak einn leikmanna Vålerenga af velli. Lyn vann, 1:0, og er sloppið úr fallhættu en Vålerenga er enn á hættusvæðinu fyrir lokaumferðina.  TOMMY Berntsen gefur ekki kost á sér til að þjálfa Lyn áfram. Hann tók við þegar Teitur Þórðarson hætti störfum síðla sumars og undir hans stjórn rétti Lyn sinn hlut á loka- sprettinum. Berntsen, sem er tæp- lega þrítugur, segist vera alltof ung- ur til að vera þjálfari en hann lék með liðinu og ætlar að einbeita sér að því áfram.  OTTO Baric, landsliðsþjálfari Króatíu í knattspyrnu, hefur ákveðið að gefa Igor Biscan, leikmanni Liv- erpool, annað tækifæri til að leika með liði sínu. Biscan yfirgaf lands- liðshóp Króata án skýringa daginn fyrir leik þeirra gegn Búlgaríu í und- ankeppni EM fyrr í þessum mánuði og Baric sagði í kjölfarið að hann myndi aldrei leika framar undir sinni stjórn.  BARIC sagði í gær að hann bæri engan kala til Biscans, og að leikmað- urinn ætti möguleika á að komast í landsliðið á ný. Aðeins þó með góðri frammistöðu og viðunandi hegðun. Króatía mætir Slóveníu í úrslita- leikjum um sæti í lokakeppni EM dagana 15. og 19. nóvember.  ÁSMUNDUR Arnarsson hefur verið endurráðinn þjálfari knatt- spyrnuliðs Völsungs á Húsavík og hann leikur áfram með liðinu. Undir stjórn Ásmundar vann Völsungur öruggan sigur í 2. deildinni í sumar og sjálfur skoraði hann 8 mörk fyrir liðið á Íslandsmótinu.  HAFSTEINN Guðmundsson, fyrr- verandi landsliðsmaður í knatt- spyrnu og handknattleik úr Val, var gerður heiðursfélagi Arsenalklúbbs- ins á Íslandi á dögunum. Hafsteinn, sem var lengi formaður Íþrótta- bandalags Keflavíkur, ÍBK, var um tíma landsliðseinvaldur í knatt- spyrnu. FÓLK ALBERT Sævarsson, fyrr- verandi markvörður Grind- víkinga, var kjörinn besti markvörðurinn í færeysku knattspyrnunni 2003 á lokahófi 1. deildarliðanna á laugardag. Albert varði mark B68 frá Tóftum í ár og fékk á sig fæst mörk allra í deildinni en lið hans varð í þriðja sæti og vann sér sæti í UEFA-bikarnum. Pól Thorsteinsson, lands- liðsbakvörður úr B36, var valinn leikmaður ársins. Hann lék með Valsmönnum eitt tímabil, árið 2000. Albert bestur í Færeyjum Morgunblaðið/Jim Smart Njarðvíkingurinn Brandon Woudstra í kröppum dansi gegn Gunnari Einarssyni og Jóni Nordal Hafsteinssyni úr liði Keflavíkur. Njarðvíkingar höfðu betur í grannaslagnum að þessu sinni. Það kom mér skemmtilega á óvartað vera valinn í hópinn og ég er hreinlega í skýjunum yfir þessu,“ sagði Ólafur Ingi við Morgunblaðið í gær, en hann var þá nýkominn heim af æfingu. Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, er með þessu að verðlauna Ólaf Inga, sem hefur staðið sig vel í leikjum með varaliði Arsenal í haust – hann hefur byrjað inn á í öll- um leikjum varaliðsins frá því hann kom út í september. Wenger gefur flestum stjörnum sínum frí í leiknum. Fjórir leikmenn úr aðalliðinu í hópnum – Brasilíumað- urinn Edu, Frakkarnir Sylvain Wilt- ord og Pascal Cygan og Nígeríumað- urinn Kanu. Ólafur hefur oftast leikið í stöðu miðvarðar með varaliðinu, en hefur þó brugðið sér í bakvarðarstöðuna og eins leikið á miðjunni. „Mér hefur bara gengið mjög vel að spila miðvarðarstöðuna og ef það kemur til að ég byrji inni á á móti Rotherham, verður það í þeirri stöðu. Ég held í vonina um að fá að spila,“ segir Ólafur. Ólafur Ingi klæðist peysu nr. 55. Þess má geta að níu leikmenn í hópn- um hjá Arsenal hafa aldrei leikið með aðalliðinu og ef Spánverjinn Francesc Fabregas leikur, verður hann yngsti leikmaðurinn til að leika með aðallið- inu – 16 ára og 177 daga gamall. Metið á Jermaine Pennant, sem var 16 ára og 319 daga gamall er hann lék gegn Middlesbrough í deildarbikarkeppn- inni 30. nóvember 1999. Þrír leik- menn hafa leikið – einn, fimm og sjö leiki, þannig að Arsenal teflir fram táningaliði gegn Rotherham. Ekkert rætt um nýjan samning Ólafur, sem er tvítugur, var á dög- unum valinn efnilegasti leikmaður efstu deild karla, Landsbankadeildar- innar, þar sem hann lék með Fylki. Hann gerði samning við Arsenal sum- arið 2001 og rennur sá samningur út næsta sumar. Ólafur segir að ekkert hafi verið rætt við sig um nýjan samning. „Ég vil eðlilega reyna að komast að hjá liði þar sem maður fær tækifæri til að spila með aðalliðinu. Ég veit að það verður erfitt hjá liði eins og Arsenal enda hópurinn stór og öflugur. Ég tel í dag líklegra að ég reyni að komast að hjá öðru liði næsta sumar en knatt- spyrnan er óútreiknanleg og því best kannski að segja sem minnst. Næstu vikur eru mjög mikilvægar fyrir mig. Leikmannamarkaðurinn verður opn- aður í janúar og það er því mjög mik- ilvægt að standa sig enda er vel fylgst með leikjum varaliðsins og alltaf ein- hverjir karlar að njósna.“ Morgunblaðið/Golli Fylkismaðurinn Ólafur Ingi Skúlason (t.h.) á hér í höggi við Baldur Bjarnason, leikmann Fram, á Laugardalsvelli í sumar. Ólafur Ingi með Arsenal gegn Rotherham ÓLAFUR Ingi Skúlason verður í fyrsta skipti í leikmannahópi að- alliðs Arsenal í kvöld á Highbury þegar liðið tekur á móti 1. deild- arliði Rotherham í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knatt- spyrnu. Ólafur er í 16-manna hópnum en það skýrist ekki fyrr en í dag hvort hann verður í byrjunarliðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.