Morgunblaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 312. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Kennsla er list Jón S. Guðmundsson hlýtur verðlaun Jónasar 6 Frækinn knapi Hestamenn heiðra Reyni Aðalsteinsson Hestar 25 Aþena er takmarkið Ragna og Sara stefna ótrauðar á Ólympíuleikana Íþróttir B4 FORSETAKOSNINGARNAR í Serbíu í gær voru ógildar vegna þess að kjörsóknin var ekki nógu mikil og er þetta í þriðja skipti á rúmu ári sem Serbum tekst ekki að kjósa forseta, að sögn óháðra eftirlitsmanna í gærkvöld. Þeir sögðu að kjörsóknin hefði aðeins ver- ið um 38,5% en hún þurfti að vera 50%. Búist er við að opinberar tölur um kjörsóknina og úr- slitin verði ekki birtar fyrr en eftir nokkra daga. Lagasérfræðingar segja að ekki verði hægt að efna til fjórðu forseta- kosninganna fyrr en í fyrsta lagi í janúar þar sem þing Serbíu var leyst upp í vikunni sem leið og boðað var til þingkosninga 28. desem- ber. Tomislav Nikolic, forsetaefni þjóðernis- sinna, fékk mest fylgi í gær, 46,5%. Tókst ekki að kjósa forseta Belgrad. AFP. Tomislav Nikolic HRYÐJUVERKASAMTÖK Osama bin Lad- ens, al-Qaeda, hótuðu í gærkvöldi hryðjuverk- um í Tókýó og lýstu á hendur sér tveimur sprengjutilræðum í Istanbúl og árás á ítalska herlögreglumenn í Írak í vikunni sem leið. Al-Majallah, arabískt vikublað í London, kvaðst hafa fengið yfirlýsingu frá al-Qaeda í gærkvöldi þar sem samtökin hótuðu að gera árás í Tókýó ef Japanar sendu hermenn til Íraks. Blaðið sagði að al-Qaeda hefði einnig lýst á hendur sér sprengjuárás á aðalstöðvar ítalskra herlögreglumanna í írösku borginni Nasiriyah á miðvikudaginn var. Nítján Ítalir og níu Írak- ar létu þá lífið. Fyrr um kvöldið skýrði arabíska dagblaðið al-Quds al-Arabi frá því að það hefði fengið yf- irlýsingu frá hryðjuverkasamtökunum um að þau hefðu staðið fyrir sprengjuárásum í Ist- anbúl sem kostuðu a.m.k. 23 menn lífiið á laug- ardag. „Þið munuð sjá bíla dauðans“ Í yfirlýsingu al-Qaeda fólst óbein hótun um sams konar árásir í Bandaríkjunum. „Við segj- um við glæpamanninn Bush og þjóna hans meðal araba og útlendinga, einkum Breta, Ítali, Ástrala og Japana: þið munuð sjá bíla dauðans með eigin augum í miðju höfuðborgar harðstjórnarinnar.“ Arabísk sjónvarpsstöð sendi í gær út hljóð- ritað ávarp, sem sagt var komið frá Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, þar sem Írakar voru hvattir til að herða andspyrnuna gegn hernámsliðinu í landinu. Hann sagði að Bandaríkjamenn hefðu ekki gert sér grein fyr- ir því hversu erfitt það yrði að hernema landið og væru í „algerri sjálfheldu“. Al-Qaeda hótar árás- um á Japan Lýsir sprengjutilræð- um í Istanbúl og Nas- iriyah á hendur sér Dubai, London. AFP.  Al-Qaeda/14 ÍSLENSK erfðagreining áætlar að hefja próf- anir í byrjun næsta árs á lyfi sem dregið getur úr líkum á hjartaáföllum. Gangi dæmið upp samkvæmt væntingum má reikna með að lyfið verði komið á markað eftir um fimm ár og ætti þá að geta skilað fyrirtækinu gríðar- legum tekjum. Fyrirtækið hefur keypt nýtingarrétt- inn á lyfinu af þýska lyfja- fyrirtækinu Bayer AG, sem hafði þróað lyfið við öðrum sjúkdómi en lyfið náði ekki að virka á þann sjúkdóm. Hins vegar virðist lyfið virka á tiltekið eggja- hvítuefni sem framleitt er af erfðavísi sem eykur verulega hættuna á hjartaáföllum og vísindamönnum ÍE hefur tekist að einangra. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfða- greiningar, segir þetta mikilvægan áfanga, ekki aðeins í sögu ÍE heldur einnig erfða- fræðiiðnaðarins. Kári Stefánsson: Áfangi af þeirri gerð að maður tapar svefni af spenningi „Þarna er verið að nota erfðafræði til að einangra meingen og síðan erum við komnir með lyf í hendurnar sem hefur áhrif á eggja- hvítuefnið sem er búið til úr þessum meingen- um. Fyrir okkur er þetta áfangi af þeirri gerð að maður tapar svefni af spenningi,“ sagði Kári í samtali við Morgunblaðið. Að sögn Kára eru hjartaáföll banvænasti sjúkdómur vestrænna samfélaga og takist að þróa lyf sem hefur tilætluð áhrif er óhemju stór markaður fyrir hendi við sölu á lyfinu. „Það þarf ekki nema eitt lyf til að skila óhemju tekjum. Ef við tökum til dæmis lyf eins og líditor, sem er mest selda fitulækkandi lyf í heimi, þá held ég að það sé rétt hjá mér að heildarsalan á því lyfi sé 16 milljarðar doll- ara á ári,“ segir Kári. Með því að kaupa nýtingarrétt lyfsins og hefja tilraunir þegar á næsta ári er Íslensk erfðagreining að stytta ferlið frá uppgötvun til vöru á markaði um a.m.k. fimm ár. Yfirleitt er reiknað með að það taki a.m.k. tíu ár að þróa lyf frá uppgötvun yfir í vöru og að kostnaður- inn nemi um 500 milljónum dollara. Með þess- um kaupum má áætla að ÍE sé að spara sér fimm ára vinnu og um 250 milljónir dollara. ÍE áætlar að hefja prófanir á lyfi gegn hjartaáföllum í byrjun næsta árs Gæti skilað gríðarleg- um tekjum eftir fimm ár Kári Stefánsson  Styttir ferlið/4 ANNAÐ árið í röð fagnaði sundfólk í Íþrótta- bandalagi Reykjanesbæjar bikarmeistaratitl- inum í 1. deild. Sigur liðsins var afar öruggur og að venju var titlinum fagnað með því að bleyta vel í sigurliðinu í Sundhöllinni. Bik- arinn fór þó ekki á bólakaf enda í öruggum höndum þjálfarans, Steindórs Gunnarssonar. En það voru ekki aðeins sundmenn og þjálf- arar sem fengu bað því bæjarstjóranum, Árni Sigfússyni, var einnig hent út í. Morgunblaðið/Eggert Suðurnesjamenn fagna glæstum sundsigri  Viljum harðari/B9 FJÁRFESTINGAR Baugs Group í Bretlandi nema nú um 39 milljörðum króna eftir að fyr- irtækið keypti um helgina, í félagi við aðra, verslanakeðjuna Oasis Stores fyrir 19,6 millj- arða króna. Baugur á tæplega 60% í Oasis og er sá eignarhlutur því tæplega 12 milljarða króna virði. Í haust keypti Baugur bresku leik- fangaverslunina Hamleys og á yfir 90% í henni. Verðmæti þess eignarhlutar er um 7 milljarðar króna. Baugur á einnig eignarhluti í verslanakeðj- unum Big Food Group, 22%, House of Fraser, 10%, og Somerfield, 3,6%, og samtals eru þess- ir hlutir um 19 milljarða króna virði. Þá lagði Baugur fyrr á árinu rúmlega einn milljarð króna inn í fasteignafélagið LXB Properties og á um 10% í því félagi, en eignasafn þess er um 40 milljarðar króna. Samanlögð tólf mánaða velta félaganna Oas- is og Hamleys er um 33 milljarðar króna og hjá þeim eru um 4.000 starfsmenn. Til samanburð- ar má nefna að ef velta Pharmaco verður sam- bærileg á síðustu þremur mánuðum ársins og hún var á fyrstu níu mánuðum þess, þá mun fé- lagið velta um 28 milljörðum króna í ár, en sú velta er aðallega utan Íslands. Sambærileg tala fyrir Bakkavör, sem er aðallega með starfsemi í Bretlandi, er um 17 milljarðar króna. Eign Baugs í breskum fyrir- tækjum 39 milljarðar króna  Töluvert svigrúm/10 ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.