Morgunblaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ RSH.is Dalvegi 16b • 201 Kópavogur Sími 544 5570 • Fax 544 5573 www.rsh.is • rsh@rsh.is TETRA VERSLUN • VERKSTÆ‹I Radíófljónusta Sigga Har›ar Öll fljónusta fyrir TETRA símkerfi› á einum sta› Fjarskipti framtí›arinnar w w w .d es ig n. is © 20 03 BANDARÍKJAHER rannsakaði í gær hvort skotárás af jörðu hefði orðið til þess að tvær herþyrlur fórust í norðanverðu Írak á laug- ardag. Sautján bandarískir her- menn létu lífið og er það mesta mannfall í hernámsliði Bandaríkj- anna frá því að stríðið í Írak hófst í mars. Bandarísk yfirvöld kynntu um helgina áætlun um að flýta því að Írakar taki við völdunum í land- inu en sögðu ekkert um hvenær bandarísku hersveitirnar yrðu kall- aðar heim. Fimm hermenn slösuðust þegar þyrlurnar tvær, sem voru af gerð- inni Black Hawk, hröpuðu niður í íbúðarhverfi í Mosul, þriðju stærstu borg Íraks. Eldar kvikn- uðu í nokkrum húsum en yfirvöld sögðu að enginn íbúanna hefði látið lífið. Sjónarvottar sögðu að þyrlurnar hefðu lent í árekstri og nokkrir þeirra sögðu að a.m.k. önnur þeirra hefði orðið fyrir árás. Að sögn CNN-sjónvarpsins telja yfirmenn hersins hugsanlegt að hleypt hafi verið af byssum á aðra þyrluna. Hún hafi þá hækkað flugið og rek- ist á hina þyrluna, þannig að þær hefðu báðar hrapað. Alls hafa nú 422 bandarískir her- menn beðið bana í Írak, þar af 283 frá því að George W. Bush Banda- ríkjaforseti lýsti því yfir 1. maí að meiri háttar átökum væri lokið í landinu. Hernáminu ljúki formlega í júní Íraska framkvæmdaráðið í Bagd- ad samþykkti á laugardag áætlun Bandaríkjastjórnar um að mynduð yrði írösk bráðabirgðastjórn fyrir lok júní. Samkvæmt áætluninni á íraskt bráðabirgðaþing að koma saman ekki síðar en í maí til að semja um myndun stjórnarinnar og stefnt er að því að efnt verði til þingkosninga fyrir lok ársins 2005. Donald Rumsfeld, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að þótt hernáminu lyki formlega í júní þegar íraska bráðabirgða- stjórnin tæki við völdunum yrðu bandarísku hersveitirnar ekki kall- aðar heim strax. Gert er ráð fyrir því að íraska framkvæmdaráðið og bandaríska hernámsstjórnin semji fyrir mars á næsta ári um hlutverk bandarísku hersveitanna í landinu. Hugsanlegt er að niðurstaða samn- ingaviðræðnanna verði sú að bandaríska herliðið verði í ár til viðbótar í Írak og að þeim tíma liðnum verði metið hvort ástæða sé til að framlengja hersetuna. Sautján Bandaríkjamenn létu lífið er herþyrlur hröpuðu í Írak Herinn rannsakar hvort skotið var á þyrlurnar Reuters Flaki bandarískrar herþyrlu lyft eftir að hún og önnur þyrla hröpuðu í írösku borginni Mosul á laugardag. Sautján hermenn létu lífið. Bandaríkin kynna áætlun um að flýta því að Írakar taki við völdunum Mosul. AP, AFP. ! $ %                                ! "#  $#  %#&' ()*+,* -.*./0 ' '*.1    - . / 0  *  1  1 *  2 '*.1 34 %$  + '$"$ % , "   5" +6 &  !   "     %% % / # &23    )(  + " 7 %( &%$ 8 . 9   452 6 754 34 78 :%  4   )(  $ "  7 8  92   5          "#  9  #       ARABÍSKA dagblaðið al-Qods al- Arabi kvaðst í gærkvöld hafa fengið yfirlýsingu frá hryðjuverkasamtök- unum al-Qaeda þar sem því væri lýst yfir að þau hefðu staðið fyrir tveimur tilræðum í Istanbúl sem kostuðu að minnsta kosti 23 menn lífið á laug- ardag. Ísraelskir sérfræðingar að- stoðuðu í gær tyrknesk yfirvöld við rannsókn á tilræðunum og að sögn tyrkneskra fjölmiðla bendir flest til þess að þetta hafi verið þaulskipu- lagðar sjálfsmorðsárásir á vegum al- þjóðlegra hryðjuverkasamtaka. Miklar skemmdir urðu á tveimur samkunduhúsum gyðinga þegar sendibílum, hlöðnum sprengiefni, var ekið að byggingunum og þeir síð- an sprengdir í loft upp. Fjölmenni var við bænahald í samkunduhúsun- um, Neve Shalom og Beth Israel, þegar sprengingarnar urðu. Yfir 300 manns særðust og um 70 þeirra voru enn á sjúkrahúsi í gær. Að minnsta kosti sex gyðingar létu lífið í árásunum, en flest hinna fórn- arlambanna voru múslímar sem voru staddir fyrir utan samkunduhúsin. Fjórir menn voru yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina í gær en látnir lausir þar sem ekkert kom fram sem benti til þess að þeir væru viðriðnir árásirnar. Hafin var rannsókn á líkamsleif- um tveggja manna, sem talið er að hafi framið hryðjuverkin og óstað- festar fregnir hermdu að svo virtist sem þeir væru arabar. Voru varaðir við hugsanlegum tilræðum al-Qaeda Tyrkneskir embættismenn sögðu að tilræðin hefðu verið skipulögð með það að markmiði að valda sem mestu manntjóni. Róttæk hreyfing tyrkneskra íslamista, IBDA-C, var sögð hafa lýst tilræðunum á hendur sér en tyrknesk yfirvöld voru efins um að hún gæti framið svo þaul- skipulögð hryðjuverk. Þau sögðu að svo virtist sem árásarmennirnir tengdust al-Qaeda eða öðrum alþjóð- legum hryðjuverkasamtökum. Tyrkneskir embættismenn sögðu að fyrir árásirnar hefðu borist upp- lýsingar um að al-Qaeda kynni að vera að undirbúa hryðjuverk í Tyrk- landi. Hermt er að ísraelska leyni- þjónustan hafi tvisvar varað Tyrki við hættu á árásum al-Qaeda. Al-Qaeda lýs- ir árásunum á hendur sér Istanbul. AFP, AP. Sprengjutilræðin í Istanbúl KATHLEEN Blanco var á laugardag kjörin ríkisstjóri Louisiana í Bandaríkjunum. Er það í fyrsta skipti sem kona gegnir þessu emb- ætti. Blanco, sem er demókrati, sigraði rík- isstjóraefni Repúblik- anaflokksins, Bobby Jindal. Hann er af indverskum ættum, sonur innflytjenda frá Punjab á Norður-Indlandi. Kosningarnar í Louisiana vöktu verulega athygli að þessu sinni. Íbúar þar eru jafn- an taldir til hinna íhaldssam- ari í Bandaríkjunum og þótti því tíðindum sæta að kona og litaður maður af erlendum uppruna tækjust á um þetta valdamikla embætti. Kona kjörin ríkisstjóri New Orleans. AP. Kathleen Blanco smíðastöðinni sem hafði verið gefið leyfi til að skoða skipið. Ekki liggur fyrir hvers vegna landgangurinn hrundi. Talsmaður á sjúkrahúsi í Saint- Nazaire segir að fórnarlömbin hafi fallið úr mikilli hæð. Búist er við að smíði skipsins verði haldið áfram á þriðjudag en verið var að leggja lokahönd á smíðina þar sem skipið var í þurrkví er slysið varð á laugardag. Afhenda á skipið Cunard, fyrirtæki sem sér um rekstur skemmtiferðaskipa, í næsta mánuði. FRANSKUR saksóknari hefur hafið dómsrannsókn á því hvort um hafi verið að ræða manndráp og líkams- tjón af gáleysi þegar 15 manns biðu bana á laugardag í skipasmíðastöð í Frakklandi. Fólkið fórst þegar landgangur milli stærsta skemmtiferðaskips heims, Queen Mary II, og bryggju hrundi í skipasmíðastöðinni í Saint- Nazaire. Tíu ára barn var í hópi þeirra sem féllu 15-20 m til jarðar og létu lífið. „Það er enn of snemmt að koma fram með getgátur um orsakir þessa harmleiks,“ sagði Pierre-Marie Block saksóknari við blaðamenn í gær. Tíu liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi Dómsrannsóknir af þessu tagi eru ætíð gerðar í Frakklandi þegar um vinnuslys sem valda manntjóni er að ræða. Franskir embættismenn segja að um þrjátíu manns hafi verið á upp- hækkuðum landganginum, þar á meðal börn sem voru í heimsókn í skipasmíðastöðinni. Tíu hinna slösuðu liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi. Fórnarlömbin voru fjölskyldur verkamanna í skipa- Skipið er 345 metra langt og 72 metra hátt eða á stærð við 21 hæðar hús. Það vegur 150 þúsund lestir eða tvöfalt meira en Queen Elizabeth II en stærstu farþegaskip sem nú eru í siglingum eru um 138 þúsund tonn. Alls verður rúm fyrir 2.600 farþega um borð. Skipið kostar um 696 milljónir evra eða rúma 62 milljarða króna. Fargjaldið verður frá 1.000 evrum, um 90 þúsund krónum, til allt að 30 þúsund evrum eða 2,7 milljónum króna. Manndráp af gáleysi? Saint Nazaire. AFP. Reuters Jacques Chirac, forseti Frakklands (annar frá vinstri), og Jean-Pierre Raff- arin forsætisráðherra (t.h.) skoðuðu í gær skipasmíðastöðina þar sem 15 manns létu lífið á laugardag þegar landgangur skemmtiferðaskips hrundi. Rannsókn á slysi sem kostaði fimmtán manns lífið í franskri skipasmíðastöð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.