Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Ferðir blóðbankabílsins: Þriðjudagur 18. nóvember Byko Breiddinni, klukkan 9.00-15.00 Miðvikudagur 19. nóvember Brimborg Bíldshöfða 6 klukkan 9.00-15.00 Fimmtudagur 20. nóvember Lyf og heilsa við Fjarðarkaup klukkan 9.30-15.00 www.blodbankinn.is „DAGUR íslenskrar tungu hefur fest sig í sessi í þjóðfélaginu með margvíslegum hætti,“ sagði Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra á hátíðarræðu sinni á Mál- ræktarþingi íslenskrar málnefndar sem efnt var til í gær í Hátíðasal Háskóla Ís- lands. Ráðherra afhenti síðan verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og tvær viðurkenningar og sagði það hafa verið leiðarljós sitt að þessu sinni, að beina sjónum að „formlegu upp- eldi annars vegar og því sem best gerist á því sviði og hins vegar að fjölmiðlum sem þegar best lætur eru ígildi menntastofnana og halda við því og bæta við það sem vel er gert í formlegu skólastarfi.“ Í ræðu ráðherra kom einnig fram að skólar, fyrirtæki, félagasamtök og ein- staklingar hafa tekið höndum saman fyrir hvatningu menntamálaráðuneytisins og efnt til margvíslegra viðburða undir merkj- um íslenskrar tungu. „Dagurinn hefur svo sannarlega náð fótfestu í samfélaginu. Í grunn- og leikskólum eru unnin sérstök verkefni í tengslum við Dag íslenskrar tungu, oft með áherslu á frumkvæði og ný- sköpun. Stóra upplestrarkeppnin er haldin árlega og hefst formlega á þessum degi.“ Ráðherra þakkaði Íslenskri málstöð sam- starfið við undirbúning Dags íslenskrar tungu og sagði ennfremur einstaklega ánægjulegt hversu margir hefðu lagt til viðburða dagsins með ýmsum hætti. Dagskrá málþingsins lauk síðan með því að Tara Sverrisdóttir, vinningshafi úr stóru upplestrarkeppninni frá því í fyrra, las tvö ljóð, Slysaskot í Palestínu eftir Kristján frá Djúpalæk og Sáuð þið hana systur mína eftir Jónas Hallgrímsson. Þá söng Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Guðmunds- dóttir við undirleik Marteins H. Friðriks- sonar. Dagurinn hefur náð fótfestu Morgunblaðið/Þorkell Tara Sverrisdóttir les ljóð eftir Jónas Hallgrímsson og Kristján frá Djúpalæk. Í baksýn er Skólakór Kársness sem söng undir stjórn Þórunnar Guðmundsdóttur. JÓN S. Guðmundsson, íslensku- kennari við Menntaskólann í Reykjavík, hlaut í gær verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi ís- lenskrar tungu. Verðlaunin nema 500 þúsund krónum ásamt ritsafni Jónasar Hallgrímssonar í hátíðar- bandi. Jón S. Guðmundsson var ís- lenskukennari við Menntaskólann í Reykjavík í hálfa öld en tíu ár eru nú liðin frá því hann hætti kennslu vegna aldurs. „Verðlaun Jónas Hallgrímssonar eru heiðursverðlaun til einstak- linga sem hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu og riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðl- að að eflingu tungunnar, fram- gangi hennar og miðlun verðmæta til nýrra kynslóða,“ sagði Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra er hann afhenti Jóni S. Guðmunds- syni verðlaunin. „Oft er litið á starf kennarans sem sjálfsagt og hversdagslegt og þá gleymist æði oft að það getur verið ansi langt bil á milli þess sem er vel gert í skólum og hins sem af ber,“ sagði Tómas Ingi. „Þegar best lætur er kennsla list. Kennsla móðurmálsins er grunn- þáttur þjóðlegrar menningar og þjóðlegrar sérstöðu og fyrir hvert okkar er móðurmálið málþroski og málsmekkur samofin sjálfstrausti og reisn og hefur þannig grund- vallaráhrif á líf og starf sérhvers manns. Þeir sem móta málsmekk heilla kynslóða af smekkvísi og með góðu fordæmi hafa því mikil áhrif. Máltilfinning þeirra og smekkvísi breiðist út og skýtur rótum og öðlast sjálfstætt líf í samfélaginu langt umfram starfs- tíma kennarans þótt langur sé. Það er mér bæði ánægja og heiður að veita Jóni S. Guðmundssyni verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2003 fyrir hans framlag til ís- lenskrar tungu.“ Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar menntamálaráðherra um val á verðlaunahafa segir: „Jón S. Guð- mundsson kenndi íslensku við Menntaskólann í Reykjavík í hálfa öld. Í ár eru liðin 60 ár frá því hann hóf þar kennslu. Fjöldamarg- ir árgangar nemenda nutu leið- sagnar hans og átti hann ríkan þátt í að móta málsmekk þeirra. Hann var ætíð óþreytandi í við- leitni sinni til að skerpa mál og stíl nemenda sinna í ræðu og riti. Það er hverri þjóð ómetanlegt að eiga lærimeistara sem stunda málrækt af slíkri alúð.“ Jón sagði í upphafi þakkarræðu sinnar að hann hefði lent í kenn- arastarfinu fyrir hálfgerða tilvilj- un. „Það var Björn Guðfinnsson, ís- lenskukennari við Menntaskólann, sem fékk mig upphaflega til að kenna utanskólanemendum til gagnfræðaprófs en ég var þá sjálf- ur aðeins hálfs annars árs gamall stúdent og taldi mig lítt hæfan til kennslu. En það dugðu engar mót- bárur gegn Birni Guðfinnssyni og ég hóf kennsluna og lauk henni ekki verr en svo um vorið að Björn hringdi í mig um haustið og sagði að í vetur ætti ég að kenna tveim- ur fjórðubekkjum,“ sagði Jón í þakkarræðu sinni eftir að hann hafði tekið við verðlaununum. „Margir urðu til þess að finna að því við mig að ég skyldi leggja kennslu fyrir mig. Töldu það bæði erfitt starf og illa launað. Pálmi Hannesson, rektor Menntaskólans, sagði eitt sinn við mig að það væri bara einn af hverjum tíu nem- endum sem gætu valdið erfiðleik- um. Að sama skapi væri það fyr- irhafnarlaust að kenna níu nemendum af hverjum tíu. Þetta var reynsla mín af kennarastarfinu og ég sá aldrei eftir því að hafa lagt það fyrir mig,“ sagði Jón S. Guðmundsson. Morgunblaðið/Þorkell Jón S. Guðmundsson tekur við verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar úr hendi Tómasar Inga Olrich. Móta mál- smekk kyn- slóðanna BÍLL valt út af veginum um Fagradal klukkan hálffimm í gær, en engin meiðsl urðu á fólki. Bíll- inn er mikið skemmdur. Þetta var önnur bílveltan á leið- inni milli Egilsstaða og Reyðar- fjarðar en einn var fluttur á sjúkrahús á Egilsstöðum eftir veltu um klukkan hálfþrjú í gær. Hann var ekki talinn þungt hald- inn. Þá lenti þriðji bíllinn út af veg- inum en unnt var að ná honum upp á veg aftur svo ökumaður hélt ferðinni áfram. Bílveltur á Fagradal STUTT BROTIST var inn í Safnahúsið í Vestmannaeyjum. Tilkynning um innbrotið barst lögreglu í gær- morgun en ekki var ljóst hvenær það hafði verið framið. Svo virtist sem tveimur tölvum hefði verið stolið og voru nokkrar skemmdir unnar á húsnæðinu. Lögregla segir mikil verðmæti í húsinu en svo virðist sem þau hafi að mestu verið látin eiga sig. Innbrot í Safna- húsið í Eyjum EINN árekstur á mótum Reykja- nesbrautar og Stekks var til- kynntur til lögreglu í gær. Til- kynning barst klukkan 14.39 og mun einn hafa verið fluttur í sjúkrahús með minniháttar meiðsl, að sögn lögreglu. Árekstur á Reykjanes- braut

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.