Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Innkauparáðstefna Ríkiskaupa 2003 Innkaup í brennidepli InnkauparáðstefnaRíkiskaupa verðurhaldin á Grand Hótel Reykjavík 18. nóvember nk. undir heitinu Ný stefna – skilvirkari inn- kaup. Dagskráin hefst klukkan 10 f.h. með tveim- ur málstofum og klukkan 12.45 hefjast fyrirlestrar innlendra og erlendra sér- fræðinga eftir að Geir H. Haarde fjármálaráðherra hefur flutt setningará- varp. Í málstofunum verð- ur annars vegar fjallað um undirbúning og árangur útboða og hins vegar um hagnýtingu rafrænna inn- kaupa. Meðal þeirra sem taka til máls er Finnur Sveinsson umhverfisfræð- ingur sem fjallar um svo- kölluð vistvæn innkaup sem munu verða áhrifamikill þáttur í innkaupum stofnana og fyrir- tækja á komandi árum. – Um hvað snúast vistvæn innkaup? „Vistvæn innkaup snúast um að velja þá vöru sem er síður skaðleg umhverfinu eða heilsu manna samanborið við aðrar vörur sem uppfylla sömu þörf. Líftímakostnaður vistvænnar vöru á einnig að vera lægri en annarrar sambærilegrar vöru þó svo að innkaupakostnaðurinn sé hærri. Sem dæmi má nefna að vanalegar borðtölvur nota meira rafmagn og valda miklu meira hitaútstreymi heldur en fartölv- ur. Vegna hitavandamálsins verð- ur að grípa til mótvægisaðgerða til að bæta vinnuumhverfi t.d. í tölvuverum. Þó svo að fartölv- urnar séu dýrari, þá getur heild- arkostnaðurinn vegna fartölv- anna verið lægri en fyrir borðtölvurnar sé tillit tekið til mótvægisaðgerða og rafmagns- notkunar.“ – Vistvæn innkaup snúast sem sagt ekki um að kaupa um- hverfismerktar vörur? „Ekki nema að vissu leyti. Um- hverfismerktar vörur eru yfirleitt betri fyrir umhverfið en aðrar vörur. Hins vegar er ekki til um- hverfismerki fyrir mikinn meiri- hluta þeirrar vöru sem við kaup- um. Þá fjallar það um að velja þá vöru sem er síður skaðleg fyrir heilsu okkar og umhverfið. Fyrir almenning er hins vegar erfitt að gera sér grein fyrir umhverfis- áhrifum einstakrar vöru. Þá er einfaldast að velja það sem er umhverfismerkt þegar því verður við komið.“ – Þú tengir heilsu við um- hverfi, hvers vegna? „Mörg þeirra efna sem eru skaðleg umhverfinu fara ekki í manngreinarálit og eru einnig heilsuskaðleg. Þetta eru meðal annars efni sem safnast upp efst í fæðukeðjunni og þar trónum við. Margot Wallström, sem situr í framkvæmdastjórn ESB, lét mæla eiturefni í blóðinu hjá sér í sumar sem hluta af kynningar- herferð fyrir nýja efnalöggjöf í samband- inu. Í blóðinu fundust 22 þrávirk efni, þar á meðal DDT sem hefur t.d. verið bannað í Sví- þjóð síðan á áttunda áratugnum. Þetta eru þrávirk efni sem hverfa ekki svo auðveldlega úr umhverf- inu. Þessi efni berast á milli móð- ur og barns með móðurmjólk- inni.“ Hver eru gæði vistvænna vara? „Umhverfisvænar vörur eru eins og allar aðrar vörur mjög mismunandi að gæðum. Vöruþró- un hefur oft barnasjúkdóma í för með sér, sama gildir um um- hverfisvænar vörur. Á tímabili höfðu vistvænar vörur það orð- spor að þær væru lélegri en aðr- ar vörur. Þetta orðspor er sem betur fer á undanhaldi, þökk sé bæði framleiðendum og fyrir- tækjum sem vinna með umhverf- ismerkingu. Þessir aðilar gerðu sér grein fyrir þeirri hættu sem þessi orðrómur hafði í för með sér og hafa unnið mjög markvisst að því að uppræta hann. Sem dæmi má nefna að í umhverf- ismerkingum eru gæðaskilyrði ekki síður en umhverfisskilyrði.“ – Ef innleiða á vistvæn inn- kaup á Íslandi, hvar á að byrja? „Reynslan erlendis frá sýnir að vistvæn innkaup snúast um við- horf og að það er mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni saman að vistvænum innkaupum. Það er einnig mikilvægt að undirbúa markaðinn vel, kynna fyrir stofn- unum og ekki síður birgjum hvað vistvæn innkaup snúast um. Til að virkja birgja verður þeim að gefast einhver tími til undirbún- ings áður en farið verður út í vistvæn innkaup.“ – Hvernig er dagskrá ráð- stefnunnar að öðru leyti? „Ríkiskaup hafa fengið fjölda fræðimanna til að fjalla um ýmsa þætti innkaupa. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Svíinn Björn Axelsson, prófessor við Handel- högskolan í Stokkhólmi. Hann segir m.a. frá hagnýtum aðferð- um við kaup á þjón- ustu en sá þáttur inn- kaupa hefur reynst afar flókið viðfangs- efni. Fleiri sérfræðing- ar fjalla um ýmsa þætti innkaupa; fjallað verður um framkvæmd innkaupastefna hjá tveimur af stærstu stofnunum ríkisins, Landspítala - háskóla- sjúkrahúsi og Háskóla Íslands, kynnt verður ný handbók um op- inber innkaup, sagt frá pappírs- lausum rammasamningum og nýjum klúbbi innkaupafólks. Dagskráin er kynnt ítarlega á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.“ Finnur Sveinsson  Finnur Sveinsson er fæddur 11. september 1966 í Reykjavík. Stúdent frá VÍ 1986 og viðskipta- fræðingur frá HÍ 1991. Umhverf- isfræðingur frá Gautaborgarhá- skóla 1999. Starfaði eftir viðskiptafræðinámið í þjónustu- og síðan markaðsdeild Íslands- banka til 1995. Frá 1997, að- allega unnið sem stjórnunar- og umhverfisráðgjafi í Svíþjóð. Vinnur þar hjá Naturekonomi- huset. Eiginkona Finns er Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, læknir á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. Þau eiga tvö börn, Svein og Arndísi Evu. Að velja þá vöru sem er síður skaðleg SURTSEYJARFÉLAGIÐ hélt há- tíðarfund sinn á fertugsafmæli Surtseyjar hinn 14. nóvember sl. Við það tilefni afhenti Steingrímur Hermannsson, formaður félagsins, sem er lengst til vinstri á myndinni, sex vísindamönnum heiðursskjöl fyrir að hafa stundað rannsóknir á Surtsey árum saman. Þeir sem fengu viðurkenningu eru frá vinstri á myndinni: Dr. Guðmundur E. Sig- valdason jarðefnafræðingur, prof. John O. Norrman landmót- unarfræðingur, frá Svíþjóð, dr. Sturla Friðriksson plöntuerfða- fræðingur, Aðalsteinn Sigurðsson sjávarlíffræðingur og Eyþór Ein- arsson grasafræðingur. Dr. Sigurður Jónsson þörunga- fræðingur hlaut jafnframt heið- ursskjal en hann gat ekki verið við- staddur athöfnina þar sem hann býr í París. Stofnun Surteyjarfélagsins má rekja aftur til gossins árið 1973. Þegar ljóst var að Surtsey yrði var- anleg eyja var stofnuð nefnd, og síðar félag, áhugamanna um rann- sóknir á eyjunni. Eitt aðalmarkmið Surteyjarfélagsins er að stuðla að jarðfræði- og líffræðirannsóknum á Surtsey og á Íslandi almennt. Fé- lagið hefur m.a. reist tvö hús á eynni, byggt þyrlupall, haldið utan um rannsóknir varðandi eyjuna og sent frá sér 11 skýrslur. Morgunblaðið/Þorkell Heiðraðir á afmæli Surtseyjar Augnablik, hvernig vill herrann hafa kjötið kryddað? FRÉTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.