Morgunblaðið - 17.11.2003, Side 11

Morgunblaðið - 17.11.2003, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 11 #30 SNÆFELLSJÖKULL OG BÚ‹IR ICELAND REVIEW ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517 askrift@icelandreview.com HVERS VEGNA ÍSLAND? 40 ÁSTÆ‹UR Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900 www.ef.is • Hagstætt verð FRÁBÆRT VERÐ ! OSRAM flúrperur Lumilux Daylight, Lumilux Cool White Lumilux Warm White Lumilux Interna Kaupbætir fy lg i r hver jum 100 stk af perum. Jóhann Ólafsson & Co Johan Rönning Reykjavík/Akureyri Rekstrarvörur Reykjavík Rafbúðin Álfask. Hfj. Rafbúð R.Ó. Keflavík Árvirkinn Selfoss Faxi Vestmannaeyjar Rafás Höfn S.G. Raftv. Egilsstaðir Víkurraf Húsavík Ljósgjafinn Akureyri Tengill Sauðárkrókur Straumur Ísafjörður Glitnir Borgarnes Rafþj.Sigurdórs Akranes Það birtir til með OSRAM 520 7901 og 520 7900 kr. 15.580 UNDANFARIN þrjú ár hafa reynst rúmlega þrí- tugum Reykvíkingi erfið vegna sjaldgæfrar geð- röskunar sem nefnist stelsýki, eða kleptomania. Hann hefur stolið hlutum úr verslunum fyrir um eina milljón króna, oftast hlutum frá nokkur hundruð krónum upp í 200 þúsund. Hver einasti þjófnaður hefur verið framinn um hábjartan dag á opnunartíma verslana og í flestum tilvikum hefur hann tekið hluti sem hann hefur ekki sérstaka þörf fyrir og hugsar sér þaðan af síður að koma í verð. Samt viðurkennir hann að nokkra þjófnaði hafi hann framið í hagnaðarskyni en fæsta þó. Hann bíður nú dóms í héraðsdómi fyrir þjófnaði og skil- orðsrof, játar allar sakargiftir skýlaust og vill taka út refsingu hver sem hún verður, en umfram allt losna undan stelsýkinni. Fór að nota tækifærið Hann stal einstaka sinnum frá því hann var 18 ára fram til þrítugs en þá fór hann að verða stór- tækur. „Vinnu minnar vegna var ég mikið á ferðinni sem gerði það að verkum að ég heimsótti við- skiptavini sem oft voru með aðsetur í kringum verslanir,“ segir hann. „Málin þróuðust á þann veg að ég fór að nota tækifærið til að fara í þessar verslanir þótt ég ætti ekkert erindi þangað út af fyrir sig. Mig langaði til að kanna aðstæður þar og athuga hvað ég gæti komist upp með. Ég hafði það á tilfinningunni að fullorðinn maður eins og ég myndi ekki vekja grunsemdir starfsfólksins. Maður var snyrtilega til fara, bauð góðan daginn og brosti. Þá fannst mér ég vera búinn að yfirstíga fyrsta hjallann í þjófnaðarferlinu. Ýmist setti ég hluti inn á mig eða í poka og oftast leitaði ég að smáum en dýrum hlutum. Ég stal hlutum sem ég taldi mig e.t.v. þurfa að nota síðar svo sem tölvubúnað og slíkt. Ég átti í velflestum tilvikum peninga fyrir þessu, en það var spennan sem rak mig áfram. Mér fannst ég vera áræðinn en í sjálfu sér var þetta bara fífldirfska og það er hún sem náttúrlega kom mér í vanda. Mesta spennan fólst í því að koma hlutnum út úr versluninni og síðan út í bíl og heim. Ég vissi alveg muninn á réttu og röngu og fann fyrir smásamviskubiti fyrst eftir þjófnaðinn en síðan helltist vellíðanin yfir mig. Stundum horfði ég inn í eftirlitsmyndavélar á stöðunum, svona eins og til að ögra þeim. Hins vegar hef ég aldrei stolið frá vinum eða kunningjum eða framið innbrot að næturlagi. Það myndi ég og mun aldrei í framtíðinni gera.“ Fann að ekki var allt með felldu Hann segir stelsýkina að hluta til eiga rót í æsku hans og uppeldi, en hann missti föður sinn mjög ungur og ólst upp hjá móður sinni sem hann segist hafa haft á tilfinningunni að væri þunglynd af og til og hafi því ekki sinnt uppeldishlutverkinu sem skyldi. „Í sjálfu sér hafði ég það bara gott sem unglingur og mér gekk vel í skóla og var góður í íþróttum. En síðan fór ég að loka mig af og sjálfs- myndin var í molum. Um 18 ára aldur fór ég að finna að ekki var allt með felldu og hóf áfengisneyslu, sem ég hefði aldr- ei átt að byrja á. Þegar ég komst á fullorðinsár ágerðist drykkjan og ég tel að áfengið hafi átt stóran þátt í því að ég fór að stela.“ Í dag er honum meinað að fara í nokkrar versl- anir á höfuðborgarsvæðinu vegna fyrri þjófnaða og hann reynir eftir fremsta megni að forðast aðr- ar verslanir vegna óttans við að falla í freistni. Þannig segist hann myndi reyna að breyta stefnu- móti ef einhver bæði hann um að hitta sig á kaffi- húsi í nágrenni verslana. „Ég þyrfti að búa mér til einhverja afsökun til að hitta viðkomandi á öðrum stað,“ segir hann. „Mig langar og verð að hætta þessu, annars er þetta einungis leið til glötunar. Mig langar til að verða eðlilegur þátttakandi í samfélaginu þar sem ég finn ekki fyrir ótta og kvíða, sem leiðir af sér að ég get komið heiðarlega fram. Þetta er sjúkdómur, ekki ólíkur alkóhólisma og spilafíkn, sem dregur fólk neðar og neðar. Ég er alkóhólisti en hef ekki drukkið í 18 mánuði, en stelsýkin er miklu verri vegna þess að hérlendis eru engin meðferð- arúrræði til eins og er. Ég hef heimildir fyrir því að í Bandaríkjunum sé til meðferð við stelsýki svipað upp byggð og AA meðferð. Ég hef gengið til sálfræðinga og geðlækna án þess að það hafi borið mikinn árangur.“ Nokkrum sinnum hefur lögreglan verið kölluð til þegar upp um hann kemst og segir hann sam- skipti sín við lögregluna hafa versnað í seinni tíð, ekki síst þegar ítrekuð brot er um að ræða. Hann segist aldrei bera fyrir sig stelsýki þegar lög- reglan nær honum, enda hafi það ekkert upp á sig. Honum yrði ekki sleppt fyrir vikið. „Ég hef heyrt að hérlendis séu allmargir sem kljást við stelsýki og það er erfitt að segja frá þessu. En ég hyggst í samráði við forstöðumann Geðhjálpar setja á fót stuðningshóp stelsjúkra þar sem fólk með þessa geðröskun gæti hist reglulega og talað saman. Ég ætla mér að læknast af þessu með sjálfsaga. Þetta er lítið samfélag og mann- orðið er svo svakalega dýrt.“ Stelsjúkur maður á bannlista í nokkrum verslunum vegna ítrekaðra þjófnaða „Spennan rak mig áfram“ Morgunblaðið/Eggert BJÖRN Harðarson sálfræðingur hefur á liðnum árum haft til með- ferðar aðstandendur stelsjúkra og segir stelsýkina hafa mikil áhrif á þá sem næst standa hinum stelsjúka. Batahorfur stelsjúkra eru ágætar en mjög bundnar við vilja sjúklingsins sjálfs til að ná bata. „Stelsýki felur, eins og nafnið bendir til, í sér hegðun í þá átt að stela, en munurinn á stelsýki og ann- ars konar þjófnaði felst í því að hinn stelsjúki er ekki knúinn áfram af gróðahyggju,“ sagir Björn. „Þótt um sé að ræða afbrot liggur að baki mik- il þörf til að losa um spennu. Oft ætl- ar fólk sér ekki að halda í þjófnaðar- leiðangur, heldur er statt fyrir utan verslun og fær þá skyndilega mikla þörf fyrir að stela. Síðan er farið inn og einhverju stolið en að því loknu fylgir mikil slökun. Hér er því um að ræða áráttukennda hegðun og hún er flokkuð með spilafíkn og íkveik- juæði.“ Algengara meðal kvenna Rannsóknir sýna að meðalaldur stelsjúkra er 36 ár og helmingi fleiri konur þjást af stelsýki en karlar. Björn veltir upp þeirri spurningu hvort stelsýki sé mun algengari en tölur segja til um en margir telja að aðeins 5% þeirra sem stela flokkist undir það að vera stelsjúkir. Beita má m.a. hugrænni atferlis- meðferð við stelsýki líkt og gert er við spilafíkn, að sögn Björns, en slík meðferð gengur út á það í lengstu lög að stöðva hegðunina. „Fólki er kennt að þekkja í tæka tíð viðbrögð sín og jafnvel hugsanir, sem réttlæta þjófnaðinn. Það hefur þó ekki gengið mjög vel að nota þessa aðferð vegna þess að stelsýkinni fylgir oft svo mik- il skömm að einstaklingar sem þjást af henni láta ekki vita um vanda- málið. Björn segir aðstandendur ekki síður en hinn stelsjúka upplifa skömmina, þegar þeir uppgötva t.d. að einn úr þeirra hópi, sem virðist hafa lifað tiltölulega eðlilegu lífi, stundar allt að því tilefnislausa þjófnaði. Ættingjarnir spyrji þá gjarnan að því hverju hafi verið stol- ið og þegar í ljós kemur að um næsta gagnslausa hluti var að ræða standa þeir eftir án þess að botna neitt í neinu. „Ættingjar upplifa kannski að ein- staklingurinn hafi farið á bak við þá í mörg ár og finnst sem þeir þekki ekki viðkomandi. Áfallið er meira ef um stelsjúkan maka er að ræða og dæmi eru um að aðstandendur þurfi að endurskoða allt sitt líf og túlka marga hluti upp á nýtt.“ Björn segir stelsýkina alls ekki ólæknanlega og batahorfur eru ágætar. Þær byggjast þó einkum á því hversu tilbúinn einstaklingurinn er til að takast á við vandann og við- urkenna hann. „Ef þeir leita sér að- stoðar er ekki svo flókið að vinna með þeim.“ Ágætar batahorfur ef fólk viðurkennir vandann SVEINN Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar, segir fólki velkomið að leita til Geðhjálpar ef það á við stelsýki að stríða og að Geðhjálp geti veitt milligöngu um sérfræðiþjónustu. „Þetta er einn erf- iðasti hópurinn til að nálgast þegar fjallað er um geðraskanir. Fólk get- ur haft samband við Geðhjálp, þess vegna nafnlaust, til að kynna sér málið.“ Sveinn segir að ef fleiri ein- staklingar hafi samband við Geð- hjálp komi vel til greina að byggja upp sjálfshjálparhóp fyrir stelsjúka. Geðhjálp að- stoðar stelsjúka Síðumúla 34 - sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.