Morgunblaðið - 17.11.2003, Qupperneq 16
LISTIR
16 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
28
39
11
/2
00
3
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
480.000.000 kr.
1. flokkur 2003
Nafnverð útgáfu
Heildarnafnverð flokksins er 480.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa
Skuldabréf 1. flokks 2003 eru til 15 ára og greiðist með 15 jöfnum afborgunum á 12 mánaða
fresti, í fyrsta skipti 10. júlí 2004. Vextir greiðast á sömu dögum og afborganir.
Lokagjalddagi afborgana og vaxta er 10. júlí 2018. Útgáfudagur bréfsins er 10. júlí 2003.
Skuldabréfið ber 4,95% fasta ársvexti. Auðkenni flokksins í Kauphöll Íslands
verður GARD 03 1
Skráningardagur
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 21. nóvember 2003.
Upplýsingar og gögn
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Landsbanki Íslands
hf., Laugavegi 77, 155 Reykjavík. Skráningarlýsing og önnur gögn sem vitnað er til í
lýsingunni er hægt að nálgast hjá Landsbanka Íslands.
Sveitarfélagið Garðabær
ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt, að það rykti sem
fer af söngkonunni Kiri Te Kanawa, nálgist að
vera hreint ævintýri, og þá jafnt fyrir þá sem
vandlátastir eru um túlkun og eða glæsileika radd-
ar og tækni, því þar fer allt saman með ævintýra-
legum hætti. Það má því segja að tónleikar Kiri Te
Kanawa og Julian Reynolds séu einn stærsti tón-
listarviðburður ársins. Mörgum hefði þótt við hæfi
að Sinfóníuhljómsveit Íslands, hefði átt þarna hlut
að, svo sem flogið hefur fyrir, en af einhverjum or-
sökum varð ekki af, því frægð söngkonunnar er að
miklu leyti tengd glæsilegum flutningi hennar á
sviði óperutónlistar.
Allt um það, þá tengjast þessir tónleikar ferð
Kiri Te Kanawa um Norðurlönd og með henni lék
frábær píanóleikari, Julian Reynolds, sem felldi
handtak sitt einstaklega vel að agaðri, fíngerðri og
fallegri túlkun söngkonunnar.
Tónleikarnir hófust á fjórum söngvum eftir
Mozart, fyrst kansónettunni Ridente la calma, Kv.
152, og þar eftir komu lögin Wenn die Lieb’aus
deinen blauen, Kv. 524, Abendempfindung,
(Abend ist’s), Kv. 523 og síðast sópranarían Un
moto di gioia, Kv. 579, við texta eftir da Ponte. Í
þessum lögum meistarans var söngurinn einstak-
lega fallega mótaður og þar sló Reynolds sínar
kordur af slíkum klassískum hreinleika og fimi, að
unun var á að hlýða.
Á vængjum söngsins, eftir Mendelssohn, var
ekki síður fallega flutt en það var í tveimur lögum
eftir Schubert, Nacht und Träume og Gretchen
am Spinnrade, sem þau fluttu einstaklega fallega
en sérstaklega þó Nacht und Träume, sem er ein-
staklega viðkvæmt og fallegt lag. Næstu fjögur
lögin eru eftir Richard Strauss Die Nacht, All-
erseelen, All’ mein Gedanken og Cäcilie, sem öll
eru í flokki meistaraverka eftir Strauss, op. 10,
samið er 1885, op. 21, 1888 og op. 27, 1894. Sagn-
fræðingar hafa bent á að Strauss hafi flest samið
sín bestu sönglög fyrir aldamótin 1900. Flutning-
urinn var aldeilis frábær, þar sem saman var flétt-
að á hrífandi máta yndislegum tónhendingum
sögvanna og snjallri útfærslu Strauss fyrir píanó-
ið, sem báðir flytjendur náðu að sameina í sam-
fellda listræna heild.
Í söngvum eftir Berlioz var fínlegur söngur Kiri
Te Kanawa ótrúlega fallega mótaður, þar sem hún
lék sér með veikan söng, svo að tónleikagestir
gleymdu hljómdeyfðinni í Háskólabíóinu, sérstak-
lega í Le Spectre de la Rose. Í þremur lögum eftir
Poulenc var mesta bragð af söngvalsinum Le
shemin de l’Armour en í Voyage á Paris og Hotel
var tónaleikurinn glæsilega mótaður. Lokavið-
fangsefni tónleika voru þrjú söngatriði eftir Pucc-
ini, Morire?, Sole amore, og Canto d’anime og gat
þar að heyra raddlega meiri átök en í fyrri verk-
efnunum. Eftir nokkur aukalög söng Kiri Te Kan-
awa án undirleiks lag úr átthögum sínum og var
það sérlega hrífandi flutningur.
Tónleikar Kiri Te Kanawa og Julian Reynolds
voru fyrir listfengi sakir, einstæðir tónleikar, þar
sem allt hið fínlegasta var glitrandi fagurt og eins
og í lögum eftir Puccini og í Cecilie, eftir Strauss,
mátti heyra, að undir fínleikanum býr stórkostleg
hljóman þeirrar glæsilegu raddar sem Kiri Te
Kanawa er sérstaklega fræg fyrir. Þessir tón-
leikar voru einstaklega fallegir ljóðatónleikar og
sem ljóðasöngkona er Kiri Te Kanawa ekki síðri
en í átakshlutverkum óperubókmenntanna, sem
segir nokkuð um hversu frábær listakona Kiri Te
Kanawa er. Þá var hlutur Julian Reynolds ekki
síðri og ekki oft sem getur að heyra svona frábær-
an túlkanda ljóðatónlistar.
Einn stærsti tónlistar-
viðburður ársins
TÓNLIST
Háskólabíó
Kiri Te Kanawa og Julian Reynolds fluttu
ljóðasöngva eftir Mozart, Mendelssohn,
Schubert, R. Strauss, Berlioz, Poulenc og Puccini.
Laugardagurinn 15. nóvember 2003.
LJÓÐATÓNLEIKAR
Morgunblaðið/Kristinn
„Fínlegur söngur Kiri Te Kanawa ótrúlega fal-
lega mótaður,“ segir Jón Ásgeirsson.
Jón Ásgeirsson
VINIR Indlands halda sína árlegu
styrktartónleika í Salnum, Tónlist-
arhúsi Kópavogs, kl. 20 annað
kvöld, þriðjudagskvöld.
Meðal listamanna sem fram
koma eru Elísabet Waage, hörpu-
leikari, Graduale
kór Langholts-
kirkju undir
stjórn Jóns Stef-
ánssonar ásamt
Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur,
Áshildur Har-
aldsdóttir flautu-
leikari, Gunnar
Eyjólfsson leik-
ari, Kristján Kristjánsson (KK) og
Tríó Reykjavíkur skipað þeim
Guðnýju Guðmundsdóttur, fiðlu-
leikara, Gunnari Kvaran, sellóleik-
ara og Peter Máté, píanóleikara.
Vinir Indlands er félag sjálf-
boðaliða sem hefur það að mark-
miði að að styðja fátæk börn og
munaðarlaus í suður Indlandi til
náms. Allt starf félagsins fer fram
í sjálfboðavinnu og er unnið í
nánu samstarfi við indverska sjálf-
boðaliða og húmanista. Á síðasta
ári styrkti félagið rúmlega 1000
börn til náms. Ágóði tónleikanna
rennur óskiptur til skóla á Ind-
landi.
Morgunblaðið/Þorkell
Flytjendur á tónleikunum til styrktar Vinum Indlands.
Styrktartónleikar í Salnum
Gunnar Eyjólfsson
Hvað er málið? er
eftir Berglindi Sig-
marsdóttur og
Sigríði Birnu Vals-
dóttur. Bókin er
ætluð ungu fólki
og fjallar um sam-
bönd, útlit, kynlíf,
heilsu, sjálfsmynd
og annað sem
skiptir máli. Fjallað er um nám og
vinnu, hamingju og óhamingju, vin-
áttu og kærleik en einnig einmana-
leika og ofbeldi og bent á hvað er til
ráða. Um 200 tilvitnanir í ungt fólk og
þekkta Íslendinga eru í bókinni.
Fjölmargir sérfræðingar á ýmsum
sviðum komu að vinnslu bókarinnar
og m.a. Landlæknisembættið og
Doktor.is, þar verður sérstök vefsíða í
tengslum við bókina.
Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin er
208 bls., prentuð í Odda. Hún er öll
litprentuð. Þórarinn Leifsson hannaði
bókina og skreytti. Verð:3.980 kr.
Unglingar
Þykkskinna er eftir Helga Hannesson
(1896 - 1989) fyrrverandi kaupfélags-
stjóra frá Sumarliðabæ í Holtum. For-
mála ritar Þórður Tómasson safnvörð-
ur í Skógum.
Í bókinni, sem skipt er í fjóra þætti,
er úrval sagnaþátta og ljósmynda.
Hér er sagt frá kunnum héraðs-
draugum Rangæinga, kynntir til sög-
unnar álfar og skrímsli og fjöldi Rang-
æinga fyrri tíðar er leiddur fram á
sjónarsviðið.
Í bókinni eru um 170 ljósmyndir
sem Helgi tók um og fyrir miðja 20.
öld og varpa einstöku ljósi á horfinn
aldarhátt. Þáttum og myndum er hér
fléttað saman auk þess sem mikið af
stökum myndum prýðir bókina milli
þátta.
Útgefandi: Sunnlenska bókaútgáf-
an. Bókin er 224 bls. Verð: 3.900 kr.
Sagnaþættir