Morgunblaðið - 17.11.2003, Side 20
MINNINGAR
20 MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Júlíus JósepSteingrímsson
fæddist í Reykjavík
29. ágúst 1910. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Skjóli í
Reykjavík 8. nóvem-
ber síðastliðinn, eftir
langvarandi veikindi.
Foreldrar hans voru
Steingrímur Jó-
hannsson útvegs-
bóndi, f. 3. september
1880 í Götu í Land-
sveit í Rangárvalla-
sýslu, d. 20. júní 1949,
og Sigríður Eiríks-
dóttir, f. 20. mars 1875 í Flekkuvík
í Vatnsleysustrandarhreppi í Gull-
bringusýslu, d. 17. apríl 1970.
Júlíus stundaði nám í rafiðn við
Iðnskólann í Reykjavík. Hann
lauk sveinsprófi undir leiðsögn
Júlíusar Björnssonar rafvirkja-
meistara 1934. Hann stundaði
nám við Rafmagnsdeild Vélskóla
Íslands 1935-6 og
öðlaðist meistara-
próf í rafvirkjun
1941. Júlíus vann við
uppsetningu á
tækja- og rafbúnaði
við Ljósafossvirkjun
1936-7 en auk þess
starfaði hann hjá
Rafmagni h/f í
Reykjavík 1938-
1942.
Árið 1948 stofnaði
Júlíus rafmagns-
vinnustofuna Geisla
ásamt Pétri Geirdal.
Hann var einnig um
árabil rafveitustjóri í Keflavík.
Frá árinu 1958 var hann raf-
magnseftirlitsmaður og hafði um-
sjón um Suðurland hjá Rafveitu
Selfoss uns hann hætti vegna ald-
urs.
Útför Júlíusar verður gerð frá
Áskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Kynni okkar Júlla hófust þegar
hann hóf nám í rafvirkjun 1931
ásamt átta öðrum. Þessi níu manna
hópur var undir handleiðslu og
stjórn Júlíusar Björnssonar raf-
virkjameistara. Hélt þessi hópur
saman eftir einstaklingum frá því
um og eftir 1930. Júlli hafði lokið
skólagöngu frá Flensborgarskóla í
Hafnarfirði, en með veganesti þaðan
lýkur hann námi við Iðnskólann í
Reykjavík á tveimur vetrum, en við
hinir á fjórum vetrum.
Eftir námstímann dreifðist hópur-
inn út og suður en þrátt fyrir það
héldum við alltaf sambandi hvor við
annan.
Júlli var ógiftur og barnlaus en
hélt heimili með móður sinni eftir
andlát föður. Lengst af voru þau bú-
sett á Selfossi en þar byggði hann
hús með góðum garði og útbjó að-
stöðu til hvers kyns ræktunar ávaxta
og blóma, en sú flóra spannaði mörg
villt svið, en auk þess hafði hann
mikinn áhuga á trjárækt.
Júlli ferðaðist mikið, bæði innan-
lands og utan, var talandi á nokkrum
tungumálum, m.a. þýsku og rúss-
nesku.
Hann fékk aðkenningu af heila-
blóðfalli og dvaldi fyrst á sjúkrahúsi,
en síðustu árin var hann á umönn-
unar og hjúkrunarheimilinu Skjóli
þar sem hann naut frábærrar
umönnunar.
Júlli var drengur góður og mikið
ljúfmenni í hvívetna.
Ég vil að lokum þakka af alhug
gott viðmót hans gagnvart mér og
fjölskyldu minni.
Elías Valgeirsson.
Ég kynntist Júlla snemma á mín-
um unglingsárum gegn um foreldra
mína. Eitt sinn heimsóttum við hann
á heimili hans á Selfossi. Mér fannst
mikið til koma, heill frumskógur við
hlið hússins og allt þetta rúðugler yf-
ir. Eftir á að hyggja tel ég að þarna
hljóti að hafa verið nær öll blóma-
flóran sem til er.
Um tíma lagði hann stund á rúss-
nesku hjá MÍR. Til þess að stunda
þetta framandi tungumál þurfti hann
að keyra á milli í rútu og gekk þá frá
Umferðarmiðstöðinni niður á Vatns-
stíg. Þurfti ég stundum allt að því að
beita hann hörðu til þess að fá að
keyra hann í rútuna.
Dag nokkurn er ég heimsótti hann
á Skjól og talaði til hans á rússnesku
þá brosti hann góðlátlega eins og oft
áður og sagði bara Æ, það er svo
langt síðan. Hann flíkaði aldrei sín-
um hæfileikum og hélt öllu fyrir sig.
Skömmu fyrir andlátið var hann
greinilega farinn að þrá hvíldina og
saddur lífdaga. Á þeirri stundu
greindi ég smáviðbrögð í andlitinu
þegar ég ávarpaði hann á því tungu-
máli sem hann hafði lagt svo mikið á
sig til að læra.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Valdimar Elíasson.
Fyrir hönd Skógræktarfélags Sel-
foss langar mig til að minnast vel-
gjörðarmanns félagsins, Júlíusar J.
Steingrímssonar.
Félagið naut krafta, velgjörða og
hugsjóna Júlíusar um árabil, sér-
staklega við uppbyggingu á svæði fé-
lagsins í Hellisskógi við Selfoss. Júl-
íus var hugsjónamaður og mikill
áhugamaður um trjárækt. Á ferðum
sínum til Rússlands sótti hann m.a.
efnivið sem hann prófaði hér heima
og miðlaði gjarnan af reynslu sinni
og þekkingu. Auk þess að taka virk-
an þátt í hinu almenna ræktunar- og
uppbyggingarstarfi skógræktar-
félagsins ræktaði hann upp á svæð-
inu sinn eigin trjálund með ýmsum
trjátegundum, auk gróskumikils
garðs við heimili sitt, Lyngheiði 10 á
Selfossi.
Skógræktarfélag Selfoss kann
Júlíusi innilegustu þakkir fyrir sitt
ötula og óeigingjarna starf og stuðn-
ing við félagið. Framlag hans mun
verða félaginu máttarstólpi um
ókomna tíð og minnig hans mun lifa í
skóginum í Hellismýri.
Aðstandendum sendum við sam-
úðarkveðjur.
F.h. Skógræktarfélags Selfoss,
Hermann Ólafsson, formaður.
JÚLÍUS JÓSEP
STEINGRÍMSSON
UMRÆÐAN
ÞEGAR ég minnist á sykursýki
fæ ég oft þessa spurningu. Eins er
ég oft spurð að því, þegar ég segi
frá því að sonur
minn sé með syk-
ursýki, á hversu
háu stigi sjúkdóm-
urinn sé hjá honum.
Staðreyndin virðist
vera sú að fólk veit
almennt mjög lítið
um sykursýki, þrátt fyrir að sjúk-
dómurinn verði sífellt algengari.
Raunin er sú að það eru ekki til
mismunandi stig sykursýki, ann-
aðhvort eru menn með sykursýki
eða ekki. Annað er það, að til eru
tvær tegundir sykursýki og í eðli
sínu mjög ólíkir sjúkdómar. Þessir
sjúkdómar hafa einhver fræðileg
nöfn, illskiljanleg leikmönnum, en
eru í daglegu tali bara nefndir
sykursýki tegund 1 og tegund 2.
Sykursýki tegund 1 er svokall-
aður sjálfsofnæmissjúkdómur, þ.e.
ónæmiskerfi líkamans ræðst á þær
frumur í briskirtlinum sem fram-
leiða insúlín og drepur þær flestar
eða allar. Orsakirnar eru enn að
mestu ókunnar. Orkan úr fæðunni
breytist í meltingarkerfinu í sykur
sem fer svo um blóðrásina til
frumna líkamans. Insúlínið virkar
svo eins og hlið á milli blóðrás-
arinnar og frumnanna, þannig að
frumurnar geti nýtt sér sykurinn
sem orkulind. Þegar insúlínið
vantar safnast sykurinn fyrir í
blóðinu og frumur líkamans fá
ekki orku til sinna eðlilegu starfa.
Afleiðingin verður næring-
arskortur í frumunum og svo eitr-
un af völdum of mikils syk-
urinnihalds blóðsins. Algengasti
aldur við greiningu er 8-14 ára,
þótt vissulega séu dæmi um fólk
allt upp á fertugsaldur og allt nið-
ur í ungbörn sem fær sjúkdóminn.
Fái sjúklingurinn ekki viðhlítandi
meðferð leiðir sjúkdómurinn á
skömmum tíma til næringarskorts,
heilabilunar og dauða.
Sonur minn, sem nú er á tutt-
ugasta ári, greindist með syk-
ursýki tegund 1 þegar hann var 10
ára gamall. Ekki þarf að fjölyrða
um það hvílíkt áfall það er, bæði
fyrir barn og foreldra, þegar barn
greinist með alvarlegan ólæknandi
sjúkdóm. Þegar um sykursýki er
að ræða hefur það í för með sér
umfangsmiklar breytingar á dag-
legu lífi fjölskyldunnar. Taka þarf
mataræði til endurskoðunar og
læra að áætla lyfjaskammta í sam-
ræmi við fæðið. Insúlín er gefið í
sprautuformi og svo þarf að taka
blóðsýni til mælingar á blóðsykri
svo hægt sé að fylgjast með að
hann haldist nokkurn veginn stöð-
ugur. Það getur verið erfitt þegar
maður er bara 10 ára að þurfa að
stinga sig mörgum sinnum á dag.
Svo koma unglingsárin, en þau
reynast mörgum mjög erfið. Þá er
hormónabúskapur líkamans í upp-
námi og menn fá líka þörf til að
sýna ýmsa sjálfstæðistilburði. Þá
vill jafnvægi í meðferðinni oft fara
fyrir ofan garð og neðan. Gildir
þá, bæði fyrir unglinginn og for-
eldra, að draga djúpt andann og
sýna sanngirni og svo er bara að
vona að menn komist stór-
áfallalaust í gegnum þetta tímabil
og verði fullorðnir sem fyrst. Í dag
notar sonur minn 6 sprautur á
dag, auk þess að taka blóðsýni til
mælinga á blóðsykri. Undanfarin
ár hafa verið okkur erfið, en nú
eru teikn á lofti um að storm-
sveipir unglingsáranna séu að
mestu að baki. Við getum aðeins
vonað að þetta tímabil hafi ekki
skaðað líkama hans óafturkall-
anlega. Því má bæta við að syk-
ursjúk börn eru stærsti hópur
langveikra barna á Íslandi í dag.
Sykursýki tegund 2 er sá sjúk-
dómur sem áður fyrr var nefndur
öldrunarsykursýki eða gam-
almennasykursýki. Insúlínfram-
leiðsla er í flestum tilfellum næg
en frumurnar hafa glatað hæfi-
leika sínum til að nýta sér það.
Þessi hrörnun fylgdi áður ein-
göngu ellinni en á síðustu áratug-
um hefur meðalaldur við greiningu
farið sífellt lækkandi og fjöldi
þeirra sem greinast með sykursýki
tegund 2 fer líka stöðugt vaxandi.
Þessu veldur hin vestræna velferð.
Flestir sem fá sykursýki tegund 2
í dag þjást af offitu og virðist sem
álagið af ofþyngdinni valdi sams
konar hrörnun og ellin. Mjög al-
gengt er orðið að fólk á fertugs-
og fimmtugsaldri greinist með
sykursýki tegund 2 og aldurinn
lækkar stöðugt, þannig erum við
farin að sjá fólk á þrítugsaldri og
jafnvel unglinga með þessi ein-
kenni. Einkennin af sykursýki teg-
und 2 geta oft og tíðum verið væg
í byrjun og auðvelt að sjást yfir
þau.
Fylgikvillar sykursýki tegund 2
sem er ekki meðhöndluð geta ver-
ið mjög alvarlegir. Uppsöfnun syk-
urs í blóðinu til lengri tíma veldur
æða- og taugaskemmdum, sem
fyrst koma fram í augum og útlim-
um, og síðan stóraukinni hættu á
blóðtappa og nýrnabilun. Nýlegar
norrænar rannsóknir sýna að
fjöldi manna gengur um með
ógreinda sykursýki tegund 2.
Þetta fólk greinist oft með syk-
ursýki þegar það kemur á sjúkra-
hús vegna afleiðinga hennar, svo
sem kransæðastíflu, blóðtappa,
augnskemmda, æðaskemmda í fót-
um eða nýrnabilunar. Þá eru menn
orðnir sjúklingar sem þurfa dýra
og sérhæfða meðferð og mikla að-
stoð og kosta samfélagið miklu
meiri peninga en hefðu farið í
meðferð sykursýkinnar ef hún
hefði greinst fyrr.
Af framansögðu má vera ljóst að
allir ættu að kynna sér sjúkdóm-
inn og starfsemi samtaka syk-
ursjúkra á Íslandi. Bendi ég fólki
þar á heimasíðu samtakanna
www.diabetes.is.
Sykursýki – hvað er nú það?
Eftir Fríðu Bragadóttur
Höfundur er varaformaður
Samtaka sykursjúkra og móðir
sykursjúks drengs.
SAMÞYKKT landsfundar Samfylkingarinnar um
að fella beri niður tekjutengingu á barnabótum
var kröftuglega gagnrýnd í leiðara Morgunblaðs-
ins 4. nóvember sl. Leiðarahöfundur
spyr, hvort það sé sanngjarnt og
réttlátt að allir sem rétt hafi á
barnabótum fái fullar bætur óháð
tekjum og hvort Samfylkingin hafi
gleymt því að tekjutenging sé að-
ferð til þess að beina almannafé til
þeirra sem minnst mega sín.
Ég skil vel að leiðarahöfundi
Morgunblaðsins sé misboðið því það hefur verið
meginsjónarmið íhaldsmanna að almannabætur
séu fyrst og fremst öryggisnet fyrir fátækt fólk til
þess að tryggja lágmarks framfærslu þess. Jafn-
aðarmenn hafa hins vegar litið á almanntrygg-
ingar sem réttindakerfi. Rétturinn til lífeyrisbóta,
barnabóta eða sjúkratrygginga verður til að upp-
fylltum skilyrðum svo sem um aldur, örorku eða
sjúkleika en óháður tekjum. Þessi skipting er þó
ekki einhlýt og margt hefur haft áhrif á það
hvernig almannatryggingakerfið hefur þróast. Á
Íslandi var t.d. bætt við tekjutryggingu lífeyr-
isbóta árið 1972 sem er tekjutengd. Það sem hefur
gerst sl. tvo áratugi er að efnahagslegar þreng-
ingar hafa kallað á niðurskurð á opinberu fram-
lagi til almannatrygginga. Flokkar jafnaðarmanna
hafa tekið þátt í þessum niðurskurði þar sem þeir
hafa verið við völd og gripið m.a. til tekjutenginga
bóta. Stefán Ólafsson, prófessor, fjallar ítarlega
um þetta í bók sinni, Íslenska leiðin. Á Íslandi
gekk tekjutenging lífeyrisbóta almannatrygginga
svo langt að segja má að frá árinu 1992 hafi
tryggingakerfið sjálft verið afnumið og því breytt
í framfærslukerfi. Þetta kann að hafa ruglað leið-
arahöfund Morgunblaðsins í rýminu svo að hann
heldur að Samfylkingin sé að svíkja jafnaðarhug-
sjónina með því að hverfa frá tekjutengingu
barnabóta, en svo er alls ekki.
Barnabætur eru í grundvallaratriðum til að
tryggja réttindi barna fremur en foreldra þeirra
og eiga því að vera óháðar tekjum þeirra. Sjón-
armið íhaldsmanna, að það sé ósanngjarnt að
greiða barnabætur til foreldra með háar tekjur
eru því ekki réttlætismál en geta haft annan til-
gang eins og t.d. að spara almannafé sem er í
sjálfu sér virðingarvert. En horfum nú frá þessum
almennu sjónarmiðum og skoðum áhrif tekjuteng-
ingar barnabóta á Íslandi sem tillaga Samfylking-
arinnar snýst um.
Fyrir það fyrsta get ég tekið undir það með
leiðarahöfundi að skerðingin byrjar of snemma
eða við 1,4 millj. árstekjur hjóna. Með þessu er
ríkissjóður að nískast með almannafé á kostnað
barna og það þykir ekki góð latína hjá réttsýnum
íhaldsmönnum og almenningi öllum. En það er
annað við tekjutengina sem er óréttlátt og það eru
jaðarskattaáhrifin svokölluðu. Tökum dæmi: Hjón
sem voru í námi, vinna úti, hafa keypt sér íbúð og
greiða í séreignasjóð af tekjum sínum lenda í 57%
jaðarsköttum með einu barni, 60% með tveimur
börnum og 62% með þremur börnum eða fleirum.
Þetta er ekki réttlæti heldur barnafjandsamleg
fjölskyldustefna.
Þessi óréttláta tekjutenging barnabóta er einnig
afskaplega óviturleg í ljósi þess að barnsfæðingum
fer fækkandi, eru 1,9 barn á konu, og eru komnar
undir það sem talið er að þurfi til þess að viðhalda
íbúafjölda á Íslandi sem eru 2,1 barn á konu. Þjóð-
in er einnig að eldast svo í framtíðinni munu færri
vinnandi hendur en í dag þurfa að bera uppi al-
mannatryggingakerfið. Álögur munu því aukast á
hvern vinnandi mann sem dregur enn frekar úr
barneignum og velferð fjölskyldunnar. Þetta er
íhugunarefni og sterk rök fyrir því að styrkja beri
barnafjölskyldur fremur en að skerða tekjur
þeirra. Þetta á við um allar barnafjölskyldur og
ekki síður millistéttar- og efristéttarfjölskyldur en
þær fátæku.
Er réttlætið fólgið í tekjutengingu?
Eftir Ingólf Hrafnkel Ingólfsson
Höfundur er félagsfræðingur og
rekstrarstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins.
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
MORGUNBLAÐIÐ birtir minningargreinar endurgjaldslaust. Grein-
unum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent
sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun
þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minn-
ingargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík,
og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er
tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja for-
máli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fædd-
ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa
greinarnar að berast fyrir hádegi á föstudegi.
Birting afmælis- og
minningargreina