Morgunblaðið - 17.11.2003, Side 23
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 23
RAÐAUGLÝSINGAR
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtalin bifreið verður boðin upp á Gránugötu 4-6, Siglufirði,
mánudaginn 24. nóvember 2003 kl. 14:00:
KP-248
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
14. nóvember 2003.
Guðgeir Eyjólfsson
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 10 18411178 Et.T./kk
I.O.O.F. 19 18411178 Kk.
GIMLI 6003111719 I
HEKLA 6003111719 IV/V
HEKLA 6003171119 IV/V
MÍMIR 6003111719 III
BJÖRK Vilhelmsdóttir, formaður
félagsmálaráðs Reykjavíkur, segir
það rangt sem konan, sem bjó um
sig í tjaldi ásamt tveimur börnum
sínum á Arnarhóli á dögunum, hafi
sagt að hún hafi leitað til Fé-
lagsþjónustunnar í Reykjavík en
ekki fengið nein úrræði. Samkvæmt
fréttum Stöðvar 2 á fimmtudag
hafði konan komið með búslóð sína
á Arnarhól og beið þar eftir tjaldi
til að gista í, ásamt tveimur börnum
sínum. Hún hafi sagt að hún ætti
ekki í önnur hús að venda, þar sem
hún hefði enga aðstoð fengið hjá fé-
lagsmálayfirvöldum.
„Það má segja að hún hafi ekki
fengið það sem hún hefur viljað, en
það er búið að bjóða þessari fjöl-
skyldu ráðgjöf, leiðbeiningar um
hvernig hún getur leyst úr sínum
málum á mjög farsælan hátt, en
hún hefur bara ekki viljað fara að
þeim leiðum sem eru færar. Hún
einblínir á eina lausn sem ekki er
fær og gerði þetta í mótmæla-
skyni,“ segir Björk.
Björk segir það að sjálfsögðu
vera sveitarfélagsins að taka á að-
stæðum fólks sem eru óviðunandi,
og þegar börn búi við óviðunandi
aðstæður verði gripið til einhverra
aðgerða, eins og skylt sé að gera
samkvæmt lögum.
„Barnaverndarlög eru mjög skýr
með það að sveitarfélaginu ber að
grípa inn við óviðunandi aðstæður,
og þar eru mörg úrræði. Það fer að
sjálfsögðu eftir aldri barna, þörf
barnanna, hver sé vilji þeirra og
svo framvegis,“ segir Björk.
Hægt er að vista börn hjá ætt-
ingjum, á einkaheimilum eða vist-
heimilum, en einnig sé möguleiki á
að fjölskyldan verði saman á gisti-
heimili. „Við tryggjum að sjálfsögðu
það að það sé farið að lögum í
þessu landi,“ segir Björk. Hún seg-
ir málefni konunnar vera í þeim
farvegi sem þau eiga að vera.
Ekki á ábyrgð
félagsmálaráðuneytisins
Í raun og veru eru húsnæðismál
einstaklinga ekki á ábyrgð félags-
málaráðuneytis heldur er það hlut-
verk félagsþjónustunnar á hverjum
stað, segir Sesselja Árnadóttir,
staðgengill ráðuneytisstjóra í fé-
lagsmálaráðuneytinu, þegar við-
bragða var leitað í ráðuneytinu.
Konan ræddi þó við aðstoðar-
mann ráðherra í vikunni og mun
hann svara einhverju um málið í
byrjun þessarar viku, að sögn Sess-
elju.
Félagsmálayfirvöld um mál konunnar á Arnarhóli
Hægt að leysa málin
á farsælan hátt
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
SKÓGRÆKTARFÉLAG Íslands,
landsamband skógræktarfélag-
anna, gefur út jólakort fyrir þessi
jól. Kortið er prýtt skógarmynd, af
málverkinu „Stillur“ eftir myndlist-
arkonuna Svanborgu Matthías-
dóttur. Mynd þessi er jafnframt á
kápu 2. heftis Skógræktarritsins
2003 sem er væntanlegt fyrir jólin.
Kortið verður ekki í almennri
sölu en verður til sölu í flestum
starfsstöðva skógræktarfélaganna
og á skrifstofu Skógræktarfélags
Íslands á Ránargötu 18, netfang
skog@kog.is. Verð kortsins er kr.
100. Ef ágóði verður af útgáfunni
verður hann notaður til þess að
planta trjám í þágu almennings.
Jólakort
skógrækt-
arfélaganna
komið út
MINNISMERKI um þá sem hafa
horfið en eiga sér engan legstað
verður afhjúpað í Gufunes-
kirkjugarði kl. 18 í dag.
Kirkjugarðar Reykjavík-
urprófastsdæma (KGRP) efndu
seint á árinu 2001 til samkeppni
um tillögu að minnismerki sem
reisa skyldi í Gufuneskirkjugarði
og verða athvarf þeirra sem vilja
minnast aðstandenda og vina sem
hafa horfið, en eiga sér engan
legstað, og einnig fyrir þá ætt-
ingja sem eiga ástvini sem í fjar-
lægð hvíla.
Eftir vandlega skoðun ákvað
stjórn KGRP að velja þrjá mynd-
listarmenn til að gera tillögur að
minnisvarða og síðan var tillaga
eins af þremenningunum valin og
það var tillaga eftir listakonuna
Rúrí.
Dómnefnd samkeppninnar skip-
uðu Björn Th. Björnsson, Guð-
mundur Rafn Sigurðsson og
Steinunn Þórarinsdóttir. Verk
Rúríar, sem hún kallar „Hlið“, er
í senn hlið og opinn skáli sem
stendur í miðju steinstéttar. Stétt-
in er í formi völundarhúss og
snúa bæði hlið og stétt eftir höf-
uðáttum.
Verkið er úr graníti sem er
flutt frá Kína, en meðfram minn-
isvarðanum verða svo settir upp
slípaðir steinar sem á verða letr-
uð nöfn hinna týndu. Mannshvörf,
annarra en þeirra sem farist hafa
við störf á sjó, eru talin vera
fjörutíu og sjö á árabilinu 1945 til
2002.
Listaverkið verður afhjúpað
klukkan 18 í dag af biskupi Ís-
lands og listakonunni Rúrí. Dóms-
og kirkjumálaráðherra leggur því
næst blómsveig á altari minn-
isvarðans í virðingarskyni við
hina fjölmörgu sem fóru af stað
en fundu ekki leið til baka, eins
og segir í fréttatilkynningu.
Minnisvarði afhjúpaður
í Gufuneskirkjugarði
Málþing um samræmd próf við
lok grunnskóla Menntamálaráðu-
neytið stendur fyrir málþingi um
samræmd próf við lok grunnskóla,
föstudaginn 21. nóvember, í sam-
vinnu við Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskóla Íslands og í samráði við
Skólastjórafélag Íslands, Félag
grunnskólakennara, Samband ís-
lenskra sveitarfélaga, Námsmats-
stofnun, Heimili og skóla og Um-
boðsmann barna.
Markmiðið með málþinginu er að
fjalla um reynsluna af samræmdum
prófum við lok grunnskóla út frá
sem flestum sjónarhornum og ræða
um einstök álitamál sem tengjast
framkvæmd prófanna í ljósi laga,
reglugerða og aðalnámskrár grunn-
skóla. Málþingið er einkum ætlað
skólastjórnendum og kennurum á
grunnskólastigi, stefnumótunar-
aðilum í menntamálum, kenn-
aramenntunarstofnunum og fulltrú-
um foreldra og nemenda.
Skráning fer fram á heimasíðu
Rannsóknarstofnunar Kennarahá-
skóla Íslands, rannsokn.khi.is, og
skal hafa borist í síðasta lagi þriðju-
daginn 18. nóvember.
Málþingið fer fram í Kennarahá-
skóla Íslands kl. 13–17 og er öllum
opið og þátttakendum að kostn-
aðarlausu.
Aðalfundur Tilveru, samtök gegn
ófrjósemi, verður haldinn miðviku-
daginn 19. nóvember kl. 20 í Póst-
skólanum að Stórhöfða 29, beint á
móti Vegagerðinni. Á dagskrá eru
venjuleg aðalfundarstörf. Hægt
verður að skrá sig í félagið á fund-
inum.
Á NÆSTUNNI
Opinn félagsfundur hjá MFÍK,
Menningar- og friðarsamtökum ís-
lenskra kvenna, verður á morgun,
þriðjudaginn 18. nóvember kl. 20 í
MÍR-salnum. Aðalbjörg Þóra Árna-
dóttir og Alfífa Ketilsdóttir, félagar í
MFÍK, segja frá könnun sem þær
unnu sl. sumar í rannsóknarleikhús-
inu Júlía og Júlía. Hrönn Pálmadótt-
ir, lektor KHÍ, Margrét Schram,
kennari á eftirlaunum, Margrét
Tryggvadóttir, bókmenntafræð-
ingur, og Unnur Jónsdóttir, leik-
skólastjóri, fjalla um leiki og leik-
föng og hvað muni lenda í pökkum
barna. Bergþóra Gísladóttir, sér-
kennsluráðgjafi, leiðir umræðu.
Á MORGUN
MÓTMÆLT er áformum fé-
lagsmálaráðherra um skerð-
ingu réttinda launafólks til at-
vinnuleysisbóta fyrstu þrjá
daga í atvinnuleysi sem kynnt
eru í fjárlagafrumvarpinu í
ályktun þings Landssambands
íslenskra verslunarmanna sem
lauk um helgina.
„Það áfall sem fylgir starfs-
missi er hverjum launamanni
nógu þungbært þó ekki bætist
við að þær lágu atvinnuleys-
isbætur sem greiddar eru
verði skertar. Hér er ráðist á
garðinn þar sem hann er
lægstur.
Þvert á móti hefur það verið
krafa stéttarfélaganna að unn-
ið sé að auknum rétti og hærri
bótagreiðslum til atvinnu-
lausra sem a.m.k. fylgi lág-
markslaunum. Því er þess
krafist að félagsmálaráðherra
dragi þessi skerðingaráform
til baka,“ segir í ályktuninni.
Skerðing
atvinnuleysisbóta
Ráðist á
garðinn þar
sem hann
er lægstur
ÖRYRKJABANDALAG Íslands og
World for 2 hafa gert með sér
samning sem veitir handhöfum ör-
orkukorts frá Tryggingastofnun
ríkisins 52% afslátt af verði áskrift-
arkorta fyrirtækisins. Í samn-
ingnum er m.a. gert ráð fyrir því að
Öryrkjabandalag Íslands leiti eftir
staðfestingu á örorku þeirra hand-
hafa örorkukortsins sem sækja um
kort gegnum Netið eða með sím-
tali.
Fyrirtækið World for 2 er í sam-
starfi við rúmlega 250 fyrirtæki hér
á landi um afsláttarkjör fyrir hand-
hafa þjónustukortsins. Öll tilboð
World for 2 eru „2 fyrir 1“ eða 50%
afsláttur. Fyrirtækin eru um allt
land og veita margvíslega þjónustu.
Með þessum samningi World for
2 og Öryrkjabandalags Íslands opn-
ast öryrkjum aðgangur að margs
konar þjónustu hér á landi og er-
lendis, segir í fréttatilkynningu.
Arnar Arnarsson, framkvæmdastjóri World for 2, og Arnþór Helgason,
framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands.
Samningur á milli ÖBÍ
og World for 2