Morgunblaðið - 17.11.2003, Síða 25
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 25
Óhætt er að segja að Reyn-ir Aðalsteinsson sé fyrstialvöru atvinnumaðurinn íhestamennskunni og sá
er stærstan þátt á í því sem kalla
má nútímareiðmennsku á íslenskum
hestum og hann vel að því kominn
að hljóta sérstök heiðursverðlaun
sem nú voru veitt í fyrsta sinn. Fer-
ill Reynis er einstæður. Um og upp
úr 1970 fór hann að láta verulega að
sér kveða á hestamótum bæði á
gæðingum og í sýningu gæðinga
víða um land. Hann þótti snemma
afar næmur og laginn við hesta og
fljótur að tileinka sér þá nýju
strauma sem á þessum tíma fóru að
streyma inn í íslenska hesta-
mennsku við misjafnar undirtektir.
Þegar Feldmann-feðgar fóru að
halda hér námskeið á áttunda ára-
tugnum sáu þeir fljótt að þessi ungi,
efnilegi tamningamaður virtist öðr-
um líklegri til að geta numið og
miðlað þeim aðferðum sem þeir
kynntu fyrir íslenskum hestamönn-
um. Fór Reynir að stunda reið-
kennslu af miklu kappi víða um land
og lengi vel var hann svo gott sem
einn um hituna þótt ekki liðu mörg
ár þar til bættist liðsauki. Á þessum
árum þótti enginn maður með
mönnum í hestamennskunni nema
hafa farið á námskeið hjá Reyni.
Hann hefur verið afkastamikill í
reiðkennslunni alla tíð síðan og ekki
síður víða í Evrópu en hér heima.
Glæstur keppnisferill
Keppnisferill Reynis er afar
glæsilegur og var hann á ferðum
sínum um Evrópu ötull að kynna
sér það sem voru nýjungar í augum
Íslendinga og koma með þær heim
og vinna úr þeim ásamt fleirum. Á
þessum gullaldarárum var ávallt
mikill spenningur fyrir hvítasunnu-
mót að sjá hvaða snillinga Reynir
kæmi með ofan úr Borgarfirði og
sýndi. Hann hefur keppt á tíu
heimsmeistaramótum eða Evrópu-
mótum eins og þau hétu áður. Þar
hefur hann orðið Evrópu- eða
heimsmeistari á þremur mótum;
1970 á Stjarna frá Svignaskarði í
fjórgangi, 1975 á Degi frá Núpum í
tölti, árið 1987 varð hann svo þre-
faldur evrópumeistari á Spóa frá
Geirshlíð, sigraði í samanlögðu, 250
metra skeiði og gæðingaskeiði. Ís-
landsmeistari hefur hann orðið
nokkrum sinnum og meðal annars
sigraði hann á fyrsta Íslandsmótinu
1978 á Penna frá Skollagróf í fimm-
gangi og samanlögðu.
Ótölulegur fjöldi hrossa hefur far-
ið í gegnum hendur Reynis í áranna
rás og hefur hann aflað sér mikillar
reynslu og þekkingar af starfi sínu
með hrossum og hestamönnum.
Framlag hans til hestamennskunn-
ar er ómetanlegt og við hæfi að slík-
um mönnum sé sýndur heiðurs- og
þakklætisvottur. Allir þeir sem að
valinu stóðu voru einhuga um að við
hæfi væri að veita Reyni þessa við-
urkenningu fyrstum manna, raunar
hefði enginn annar komið til greina.
Hófsemi í heiðurs-
viðurkenningum
Í samþykkt um þessa heiðursvið-
urkenningu sem hófapressan gerði
á fundum sínum í haust kemur fram
að ekki er skylda að veita þau ár-
lega og verður farið sparlega í þeim
efnum. Lögð er áhersla á að heið-
ursviðurkenningin hafi mikið vægi
og því þykir við hæfi að gæta hófs í
veitingu hennar.
En það voru fleiri viðurkenningar
veittar og ber þar hæst að sjálf-
sögðu knapi ársins sem valinn var
Jóhann R. Skúlason sem sigraði svo
eftirminnilega í töltkeppni heims-
meistaramótsins á Snarpi frá Kjart-
ansstöðum. Einnig reið hann stóð-
hestinum Pósti frá Dal í efsta sæti
fimm vetra stóðhesta á mótinu. Þá
átti Jóhann mjög gott keppnistíma-
bil í Danmörku þar sem hann býr og
starfar við tamningu og þjálfun
hrossa, sýndi fjölda kynbótahrossa í
ár eins og undanfarin ár. Jóhann
þykir afar snjall reiðmaður, út-
færslur hans á vellinum vekja oftar
en ekki mikla athygli, hann er ná-
kvæmur og afar vel skipulagður og
það ásamt næmri tilfinningu fyrir
hestinum, getu hans og takmörk-
unum hefur fleytt honum í þær
hæðir sem hann er kominn í. Jó-
hann er því vel að titlinum kominn.
Tveir íþróttaknapar
Sæmdarheitið íþróttaknapi ársins
féll að þessu sinni í skaut tveimur
knöpum, þeim Sigurði V. Matthías-
syni og Berglindi Ragnarsdóttur en
þau eins og Jóhann færðu Íslend-
ingum hvort sinn HM-titilinn, Sig-
urður í fimmgangi á Fálka frá Sauð-
árkróki og Berglind í fjórgangi á
Bassa frá Möðruvöllum.
Sigurður kom víða við á árinu því
auk þess að sigra í fimmgangi á HM
var hann mjög afkastamikill á öðr-
um sviðum og má þar nefna kapp-
reiða skeiði þar sem hann á besta
tíma ársins í flugskeiði. Þá hefur
Sigurður sýnt fjölda kynbótahrossa
á árinu og að sjálfsögðu tekið þátt í
fjölda íþróttamóta. Hápunktur
keppnistímabilsins var að sjálfsögðu
sigurinn í Herning þar sem staðan
var ekki mjög vænleg að lokinni for-
keppni en Sigurður sem er mikill
keppnismaður sýndi mikla festu og
ákveðni í úrslitunum og tókst að ná
sínu setta marki.
Berglind Ragnarsdóttir var í
mjög svipuðum sporum og Sigurð-
ur, var í þriðja sæti eftir forkeppni
fjórgangs og vafalaust hægt að full-
yrða að enginn hafi haft trú á því að
hún og Bassi gætu sigrað nema hún
sjálf. Hún mætti með einurð og
festu í farteskinu í úrslitin og vakti
það nokkra athygli hversu afslöppuð
hún mætti til leiks, ætlaði greinilega
að sætta sig við fenginn hlut og
njóta stundarinnar. En svo var það
nú aldeilis ekki og eftir því sem
lengra leið á úrslitin varð lýðum
ljóst að Berglind og Bassi voru í
bullandi baráttu um sigursætið. Sig-
ur þeirra var án efa eftirminnileg-
asta stund heimsmeistaramótsins.
Hófapressan var í talsverðum vand-
ræðum þegar kom að vali á þeim er
skipa skyldi sæti íþróttaknapa árs-
ins og varð niðurstaðan sú að ekki
væri hægt að ganga framhjá hvorki
Sigurði né Berglindi og því deila
þau þessu sæti þetta árið.
Gæðingaknapi ársins var valinn
Sigurður Sigurðarson en frammi-
staða hans á árinu var alveg einstök.
Nú annað árið í röð sigrar hann í
bæði A og B-flokki á Meistaramóti
Andvara, hann er með efsta hest í
A-flokki á fjórðungsmóti á Horna-
firði, Ríður Skuggabaldri frá Litla-
dal í sigursæti á opnu móti hjá Fáki.
Ríður Muggi frá Hafsteinsstöðum
til sigurs í B-flokki á opnu vormóti
hjá Fáki og Íshestamóti Sörla á
miðju sumri.
Kóngurinn Þórður
Kynbótaknapi ársins var valinn
Þórður Þorgeirsson og kemur eng-
um á óvart. Hann hefur borið æg-
ishjálm yfir aðra knapa á þessum
vettvangi í áratug og á því varð eng-
in breyting í ár. Þórður var með
flest hrossa allra knapa í kynbóta-
sýningum en þótt hófapressan geri
lítið með magnið eitt og sér þá var
gott samræmi milli magns og gæða
á sýningunum hjá honum. Þórður er
enn ókrýndur konungur kynbóta-
sýninganna, á því leikur enginn vafi
þótt ætla megi að harðar verði sótt
að honum á þeim stalli á næstu ár-
um.
Ekki var vandvalið í sæti skeið-
knapa ársins. Sigurbjörn Bárðarson
var sjálfkjörinn í þann sess með
nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 250
metra skeiði sem hann setti á Óðni
frá Búðardal á Íslandsmótinu á Sel-
fossi í sumar. Á því móti sigraði Sig-
urbjörn í öllum skeiðgreinum og var
þar fyrir utan með góða sigra á
mörgum kappreiðum eins og til
dæmis fjórðungsmótinu á Horna-
firði.
Efnilegasti knapi ársins var svo
valinn Eyjólfur Þorsteinsson en
hann átti mjög gott ár. Hæst hjá
honum ber án efa Íslandsmeistara-
titill í meistaraflokki í fimmgangi á
Súlu frá Hóli og svo að sjálfsögðu
þátttaka hans í ungmennaflokki á
heimsmeistaramótinu í Herning í
Danmörku í sumar þangað sem
Eyjólfur gerði góða ferð með Súlu
og stóðu sig bæði með mikilli prýði.
Það eru einkum þessi tvö atriði sem
þyngst vega en auk þess tók Eyjólf-
ur þátt í fjölmörgum mótum í ár.
Hestamenn fjölmenntu á Broadway á laugardagskvöldið til að fagna vel heppnuðu keppnistímabili og heiðra þá
sem best þóttu standa sig. Sú kunna kempa Reynir Aðalsteinsson var heiðruð fyrir framlag sitt til reiðmennsk-
unnar. Valdimar Kristinsson brá sér á uppskeruna og fylgdist með herlegheitunum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þau sköruðu fram úr á árinu hvert á sínu sviði: Frá vinstri talið Eyjólfur Þorsteinsson, Sigurbjörn Bárðarson, Sigurður Sigurðarson, Berglind Ragn-
arsdóttir, Sigurður Matthíasson, Jóhann R. Skúlason, Þórður Þorgeirsson og heiðursjaxlinn Reynir Aðalsteinsson.
Hestamenn fögnuðu vel heppnuðu keppnistímabili á Broadway um helgina
Reynir Aðalsteinsson og
Jóhann R. menn kvöldsins
Morgunblaðið/Hannes Sigurjónsson
Hrossaræktarbúið Auðsholtshjáleiga var nú í annað skiptið valið ræktunarbú ársins. Frá vinstri talið Kristinn
Guðnason, formaður Félags hrossabænda, Sólveig Ásgeirsdóttir, Kristbjörg Eyvindsdóttir og Gunnar Arnarson,
eigendur Auðsholtshjáleigu, og Ágúst Sigurðsson hrossaræktarráðunautur.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Reynir Aðalsteinsson veitir viðtöku hinni nýtilkomnu heiðursviðurkenn-
ingu úr hendi Sólveigar Ásgeirsdóttur, starfsmanns LH, og formaður sam-
takanna, Jón Albert Sigurbjörnsson, fylgist með.