Morgunblaðið - 17.11.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 29
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hlý/r og ábyrg/ur og
ert oft sú/sá sem heldur fjöl-
skyldunni saman.
Gerðu ráð fyrir aukinni ein-
veru á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú tekur sjálfa/n þig og skoð-
anir þínar mjög alvarlega í
dag. Reyndu að slaka svolítið
á.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það eru mestar líkur á að ein-
hver heilli þig upp úr skónum
í dag. Taktu hrifningu þinni
með fyrirvara. Það er ekki
víst að hún vari.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Varastu að nota afbrýðisemi,
sektarkennd eða aðrar nei-
kvæðar tilfinningar til að
stjórna öðrum. Þú veist að þú
þarft ekki á því að halda.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur ákveðnar hug-
myndir um það hvernig þú
getur bætt heilsu þína og
vinnuaðstæður. Haltu þínu
striki. Þú veist best sjálf/ur
hvað þér er fyrir bestu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er hugsanlegt að þú upp-
lifir ást við fyrstu sýn í dag.
Þú ert ákveðin/n og ástríðu-
full/ur og getur hugsanlega
nýtt þessar tilfinningar til
listsköpunar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fylgdu hugboði þínu varð-
andi umbætur á heimilinu.
Þú ert tilbúin/n í breytingar
og þær breytingar sem þú
gerir verða örugglega til
bóta.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það skiptir þig miklu máli að
sannfæra einhvern um eitt-
hvað í dag. Spurðu sjálfa/n
þig að því hvort það sem um
ræðir skipti raunverulega svo
miklu máli.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér hættir til þráhyggju í
tengslum við peninga og inn-
kaup í dag. Þér finnst þú
hreinlega verða að ná samn-
ingum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú vilt flýja raunveruleikann
og hverfa á vit ástar og róm-
antíkur. Hafðu í huga að
raunveruleg ást á yfirleitt lít-
ið skylt við það sem við sjáum
í Hollywood-kvikmyndum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þrátt fyrir yfirvegað fas ólga
ástríðurnar innra með þér.
Það hreyfir eitthvað við þér í
dag og það getur kallað
ástríður þínar upp á yfirborð-
ið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er hugsanlegt að vina-
sambönd breytist í ástarsam-
bönd í dag. Þú gætir líka
fundið til öfundar í garð ein-
hvers en það líður þó fljótt
hjá.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki horfa öfundaraugum á
þá sem eiga meira en þú. Það
gerir þig bara óánægða/n.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TIL UNU
Þegar inni er eyðihljótt,
en úti svellin duna,
geta að mér svipir sótt.
Sumt er kvöl að muna.
Þá kalla eg út í kalda nótt,
kalla til þín, Una.
Svo dreymir mig og dreymir mig,
að daggir ljómi á stráum,
heiðarsvanir hefji sig
mót himni sumarbláum,
og eg fljúgi frjáls með þig
til fjallanna, sem við þráum.
Þar sem eg návist þína finn,
þar á andinn heima.
Gegnum heiðinn huga minn
heitar bænir streyma.
Svo er hann fagur, söngur þinn,
að sorginni má gleyma.
- - -
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
LESANDINN er nú í sæti
Lorenzo Lauria og verk-
efnið er að spila út gegn
þremur gröndum:
Norður
♠ 103
♥ K1032
♦ 4
♣Á86542
Vestur Norður Austur Suður
Sælensm-
ind
Lauria Brogeland Versace
Pass Pass 1 tígull Pass
1 grand Pass 2 spaðar Pass
3 tíglar Pass 3 grönd Pass
Pass Pass
Spilið er frá leik Ítala og
Norðmanna í undan-
úrslitum HM í síðustu viku.
Sagnir AV eru eðilegar;
austur hefur sýnt sterk spil
með löngum tígli og fjórlit í
spaða, en vestur á veikt
grandsvar. Hvert er út-
spilið?
Sú regla að spila út fjórða
hæsta í lengsta lit hefði ekki
gefið góða uppskeru í þetta
sinn:
Norður
♠ 103
♥ K103
♦ 4
♣Á86542
Vestur Austur
♠ G52 ♠ ÁKD6
♥ D76 ♥ G95
♦ D10983 ♦ ÁKG52
♣G9 ♣K
Suður
♠ 9874
♥ Á84
♦ 76
♣D1073
Sagnhafi hefði fengið á
blankan laufkóng og tekið
tíu slagi.
Lauria lætur reglur ekki
trufla sig. Hann kom út með
lítið hjarta og vörnin tók 8
fyrstu slagina. Í móts-
blaðinu segir ekkert um
ástæður útspilsins, en vafa-
lítið hefur Lauria hugsað
sem svo að AV ættu næga
slagi í tígli og spaða, og því
yrði vörnin að taka sína
slagi strax. Og þá leit hjart-
að betur út.
Á hinu borðinu fengu
Nunes og Fantoni töluna í
óvenjulegum bút:
Vestur Norður Austur Suður
Fantoni Helness Nunes Helgemo
Pass Pass 1 tígull Pass
3 tíglar Pass 3 spaðar Pass
4 tíglar Allir pass
Spilið lá þægilega fyrir
sagnhafa og Fantoni fékk 10
slagi: 130 og 8 IMPar til
Ítala.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6
4. Rc3 dxc4 5. a4 Bf5 6. Re5
Rbd7 7. Rxc4 Dc7 8. g3 e5
9. dxe5 Rxe5 10. Bf4 Rfd7
11. Bg2 f6 12. O-O Rc5 13.
e4 Bg6 14. Rxe5 fxe5 15.
Be3 Hd8 16. Dc2 Bf7 17. f4
Be7 18. Re2 Ra6 19. fxe5
Rb4 20. Dc3 Hd3
Staðan kom upp í Áskor-
endaflokki Mjólk-
urskákmótsins sem
lauk fyrir skömmu á
Hótel Selfossi. Tóm-
as Björnsson (2238)
hafði hvítt gegn Jóni
Árna Halldórssyni
(2200). 21. e6! Hxc3
22. exf7+ Kf8 22...
Kd8 hefði verið
mjög slæmt eftir 23.
bxc3 Rc2 24. Had1+
Kc8 25. Bh3+. Í
framhaldinu varð
svarta staðan mjög
erfið enda samvinna
hvítu mannanna
mjög góð. 23. bxc3
Rc2 24. Rd4 Rxd4 25. cxd4
h5 26. e5 h4 27. g4 h3 28.
Bf3 Kxf7 29. Bxc6+ Kg8
30. Bd5+ Kh7 31. Hf3 Hf8
32. Hxh3+ Kg6 33. Be4+
Kf7 34. Hf1+ Ke8 35. Bg6+
Kd8 36. Hxf8+ Bxf8 37.
Hh8 De7 38. d5 Da3 39.
Kf2 Kc7 40. d6+ Bxd6 41.
exd6+ Kxd6 42. Hd8+ Ke5
43. Bxa7 Dxa4 44. Bd4+
Kf4 45. Be3+ Ke5 46. Kf3
Da3 47. Hd3 Df8+ 48. Bf5
Df7 49. Bd2 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Skugginn – Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 23. ágúst sl. í Há-
teigskirkju af sr. Bjarna Þór
Bjarnasyni þau Andrea Ol-
sen og Einar Örn Æv-
arsson.
Skugginn - Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 30. ágúst sl. í Há-
teigskirkju af sr. Pálma
Matthíassyni þau Guðrún
Mjöll Ólafsdóttir og Guð-
mundur J. Oddsson.
Skugginn - Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. ágúst sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Hirti Magna
Jóhannssyni þau Rebekka
Sif Kaaber og Guðjón Vil-
hjálmsson.
Skugginn – Barbara Birgis
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 5. júlí þau Unnur
Símonardóttir og Páll Sig-
urjónsson. Sr. Jeremy
Grasham gaf þau saman og
fór athöfnin fram í Gildru-
holti í Kjós.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
KIRKJUSTARF
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk kl.
20.
Langholtskirkja. Ævintýraklúbbur kl. 16-
17. Starf fyrir 7-9 ára börn í umsjón Þóru
Guðbjargar og Ólafs Jóhanns. Fjölbreytt
dagskrá og eru allir krakkar á þessum aldri
velkomin.
Laugarneskirkja. Góðar mömmur, kl. 12.
María Íris Guðmundsdóttir, BA í sálarfræði,
og Kristjana Þorgeirsdóttir Heiðdal, líkams-
ræktarþjálfari bjóða til fræðslu, íhugunar
og hollrar hreyfingar með mæðrum ung-
barna, þar sem unnið er með fæðingar-
þunglyndi. Gengið inn um aðaldyr safnaðar-
heimilis. Opinn 12 sporafundur kl. 18 í
safnaðarheimilinu. Allt fólk velkomið. Vinir í
bata. Tólf spora hópar koma saman kl. 20.
Gengið inn um aðaldyr safnaðarheimilis-
ins. Umsjón hafa Gunnlaugur Ólafsson og
Hafdís Fjeldsted. Fundur Kvenfélags Laug-
arneskirkju kl. 20. (Gengið inn um aðaldyr
safnaðarheimilisins).
Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.40. Sögur,
söngur, leikir og föndur.Uppl. og skráning í
síma 511 1560. TTT-starf kl. 16.30. Starf
fyrir 10-12 ára börn. Amazing Race-ratleik-
ur. Umsjón Munda og Sigfús. 12 sporin
andlegt ferðalag kl. 20.
Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN -
starf með sjö til níu ára börnum í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full-
orðna í safnaðarheimilinu kl. 13-15.30 í
umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur, djákna.
Þar verður fræðsla, föndur, spilað, spjallað
og kaffiveitingar verða í boði. Þeir sem
óska eftir akstri láti vita í síma 557 3280
fyrir hádegi. Fyrirbænastund í kapellu kirkj-
unnar kl. 15.30-15.45. Bænaefnum má
koma til djákna, presta eða annarra starfs-
manna kirkjunnar. Stelpustarf fyrir stelpur í
6. og 7. bekk kl. 16.30. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga í 8., 9. og 10. bekk kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakkar fyrir börn á
aldrinum 7-9 ára kl. 17.30-18.30 í Engja-
skóla. KFUK fyrir stúlkur á aldrinum 9-12
ára kl. 17.30-18.30. Fyrirlestur kl. 20,
Sorgin og minnistap. Sr. Sigurður Arnarson
lauk ársframhaldsnámi í sálgæslu (CPE)
við Meriter sjúkrahúsið í Madison, Wis-
consin haustið 2002. Starfaði hann þar
meðal annars á deildum fyrir fólk með alz-
heimer og minnistap. Í ellefu mánuði frá
2002-2003 leysti sr. Sigurður af sem
sendiráðsprestur í London.
Seljakirkja. KFUK 9-12 ára kl. 17.30. Alfa
námskeið kl. 19-22.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 16
ára og eldri kl. 20-22.
Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf ætlað
árg. 1990 og upp úr) á mánudögum kl. 20-
22.
Lágafellskirkja. Bænastund í Lágafells-
kirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar og tekur
við bænarefnum í síma 691-8041 alla
daga frá kl. 9-16. Al-Anon fundur í Lága-
fellskirkju kl. 21. Barnastarf kirkjunnar,
Kirkjukrakkar, fyrir 6 og 7 ára börn er í Var-
márskóla kl. 13.150-14.40. Umsjón hefur
Þórdís djákni.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17.30
Æskulýðsstarf fatlaðra, eldri hópur. Hulda
Líney Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi og sr.
Þorvaldur Víðisson. Kl. 20:00 Kvenfélag
Landakirkju undirbýr árlegan jólabasar.
Kvenfélagskonur hvattar til að mæta.
Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30-
16.30.
Glerárkirkja. 12 spora starf í kvöld kl. 20.
Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15 heim-
ilasamband fyrir alla konur. Kl. 17 Örkin
hans Nóa, fyrir 1., 2. og 3. bekk. Kl. 18 KK
fyrir 4. og 5. bekk.
Fyrirlestur í Landakoti. Í votta viðurvist -
heilög messa í vitnisburði helgra manna.
Sr. Jürgen Jamin heldur áfram fyrirlestri sín-
um 17. nóvember kl. 20 í safnaðarheim-
ilinu. Að þessu sinni fjallar erindið um
Frans frá Assisi: Evangelíum eða guðspjall-
ið - Að heyra ekki daufum eyrum.
Safnaðarstarf
Sorgin og minnistap
Morgunblaðið/SverrirGrafarvogskirkja.
ERINDI verða flutt í Grafarvogskirkju á mánudagskvöldum í nóv-
ember og hefjast þau klukkan 20:00 og lýkur klukkan 22:00 og eru
þau öllum opin.
Mánudaginn 17. nóvember flytur séra Sigurður Arnarson erindi
sem nefnist „Sorgin og minnistap“. Sr. Sigurður Arnarson lauk árs-
framhaldsnámi í sálgæslu (CPE) við Meriter sjúkrahúsið í Madison,
Wisconsin haustið 2002. Starfaði hann þar meðal annars á deildum
fyrir fólk með alzheimer og minnistap. Í ellefu mánuði frá 2002-2003
leysti sr. Sigurður af sem sendiráðsprestur í London.
Geisli - samtök um sorg og sorgarviðbrögð
SAMTÖKIN gangast fyrir fræðslufundum um mál sem tengjast sorg
og líðan syrgjenda í tengslum við missi eða erfiðleika af ýmsu tagi.
Alltaf er prestur og eða djákni á fundunum og gefst þá fólki tækifæri
til að ræða einslega við sálusorgara ef á þarf að halda.
Fundirnir eru öllum opnir, byrjað er á fræðsluerindi og síðan fara
fram umræður yfir kaffibolla um efni erindisins eða annað sem fund-
argestum kann að liggja á hjarta um efni sem tengd eru sorg og sorg-
arviðbrögðum.
Fyrsti fundur hjá Geisla á þessu hausti verður þriðjudaginn 18.
nóvember kl. 20:00 í Safnaðarheimili Selfosskirkju (efri hæð). Fyr-
irlesari verður sr. Bernharður Guðmundsson, rektor í Skálholti. Er-
indið nefnir hann
„Er það sorgarferli að eldast“? Það er spurningin, það verður fróð-
legt að heyra hvernig hann fjallar um það.
Allar nánari upplýsingar veitir formaður félagsins, Eygló J. Gunn-
arsdóttir, djákni í síma 482 3575 eða 694 4875.