Morgunblaðið - 17.11.2003, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 33
lifun
Frítt til áskrifenda!
tímarit um heimili og lífsstíl
Tímaritið Lifun fylgir Morgunblaðinu
miðvikudaginn 26. nóvember
Helgi Rafn og Tinna
Marína hlutskörpust
Helgi Rafn Ingvarsson og Tinna Marína
Jónsdóttir urðu hlutskörpust í síðustu
umferð þrjátíu og tveggja manna úrslita
Idol – stjörnuleitar á föstudagskvöldið.
Að lokinni símakosningu stóð Helgi Rafn
með pálmann í höndunum með 52% at-
kvæða en Tinna kom á hæla honum með 23%. Nú er aðeins
eftir ein „wildcard“-keppni, þar sem einn keppandi af þeim
sem urðu eftir fær lokatækifæri til að komast áfram.
TINNA Marína Jónsdóttir, átján
ára Reykjavíkurmær, söng lagið
„Next train out“ með Celine Dion á
föstudagskvöldið og tryggði sér
með því áframhaldandi þátttöku í
stjörnuleitinni. „Þetta er nátt-
úrulega rosaleg upplifun, þetta er
eins mikil spenna og mögulegt er,
get ég sagt, en þetta er líka rosa-
lega gaman, að kynnast svona
skemmtilegu fólki og fá svona stórt
tækifæri.
Ég hef verið að syngja síðan ég
man eftir mér. Ég hef samt ekki
verið að læra söng að neinu ráði,
fyrir utan að ég var í barnakór
Grensáskirkju þegar ég var lítil. Ég
vann í söngkeppni SAMFÉS 15 ára
og hef verið að syngja á tónleikum
með Gunnari Þórðar. Ég er búin að
vera mjög dugleg
að syngja und-
anfarin ár og
stefni að því að fá
plötusamning.
Tinna er ekki
viss um hvað sé
framundan hjá
henni í tónlistini.
„Það fer eftir
hvort ég fer í
hljómsveit eða
verð ein. Ef ég finn mér hljómsveit
verð ég mun rokkaðri heldur en ef
ég er ein. Ég fíla „Drum’n’base“,
rokk og líka rólega tónlist. Ég er í
raun algjör alæta á tónlist. Mér
finnst samt langskemmtilegast að
syngja rokktónlist. Ég fæ mikla út-
rás í því að syngja, það er það
skemmtilegasta sem ég geri fyrir
utan að kaupa föt.“
Tinna Marína, sem starfar á Sól-
on Íslandus þessa dagana, segir
framtíðarplönin enn ómótuð. „Söng-
urinn er númer eitt tvö og þrjú, en
plan B er að verða snyrtifræð-
ingur,“ segir Tinna og segist vilja
koma sérstökum þökkum á fram-
færi til Hemma og Freysa í eldhús-
inu á Sóloni, „fyrir að peppa mig
upp í þessa keppni, og líka til nán-
ustu aðstandenda minna. Það eru
allir rosalega stoltir af mér í fjöl-
skyldunni og þau taka þessu mjög
vel. Þau sýna mér mjög mikinn
stuðning. Meira að segja fólk sem
ég þekki ekki neitt kemur til mín og
óskar mér góðs gengis. Það er mjög
góð tilfinning.“
Gaman að syngja rokktónlist
Tinna Marína
Jónsdóttir
HELGI Rafn Ingvarsson, átján ára
MH-ingur, söng sig inn í hug og
hjörtu íslenskra sjónvarpsáhorfenda
á föstudagskvöldið með laginu
Wonderful Tonight eftir Eric Clapt-
on. Helgi hefur aldrei lært söng en
sungið mikið um ævina, til dæmis
með hljómsveitum. „Ég var þrjú ár í
hljómsveitinni Soap factory, sem
spilaði mest á böllum hjá grunn-
skólum, en nú er ég í sveitinni Gaur,
sem spilar meira frumsamið efni.“
Helgi er nú á þriðja ári í MH og er
farinn að ná að samhæfa tónlist og
nám vel.
Úrslitin komu Helga þægilega á
óvart, en honum þykir mjög gaman
að taka þátt í keppninni. „Mér finnst
það rosalega skemmtilegt tækifæri
að komast áfram, þetta eykur við
reynsluna og svo er þetta búið að
vera svo gaman að maður er kominn
með Idolið í blóðið. Ef ég myndi
detta út núna fengi ég mikil frá-
hvarfseinkenni, því þetta er svo gam-
an. Ég veit ekki hvort ég stefni á at-
vinnumennsku í söng, en mig langar
alltaf að hafa sönginn hjá mér, hvort
það verður atvinnumennska eða ekki
verður tíminn að
leiða í ljós. Ég er
ekki búinn að
plana neitt fyrir
framtíðina hvað
varðar tónlistina,
en ætli maður
byrji ekki bara á
því að gera plötu
með Þorvaldi eins
og stendur í
samningnum.“
Framtíðaráform Helga Rafns eru
fjölbreytt og óvenjuleg af ungri
söngstjörnu að vera. „Mig langar til
þess að verða slökkviliðsmaður, en
söngferill og slökkvimennska fara
kannski ekkert of vel saman af því að
slökkviliðsmenn eru oft á vöktum,
það gæti verið hálfneyðarlegt að
þurfa að hlaupa niður af sviði í miðju
setti til að fara að slökkva eld ein-
hvers staðar.“
Fjölskylda Helga er að sögn afar
ánægð með árangur hans. „Þau eru
búin að vera frábær og styðja mjög
við bakið á mér. Til dæmis kaupa þau
diska með lögum sem ég er að hugsa
um að syngja.“
Vill verða syngjandi
slökkviliðsmaður
Helgi Rafn
Ingvarsson
JÓLABÓKAFLÓÐIÐ er farið af
stað og höfundar byrjaðir að kynna
verk sín og árita og þeirra á meðal
er Linda Pétursdóttir sem heim-
sótti fæðingarbæ sinn Húsavík sl.
laugardag í þeim tilgangi að kynna
lífssögu sína „Ljós & skuggar“. Með
Lindu í för var höfundur bók-
arinnar, Reynir Traustason, og
árituðu þau bókina í Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar.
Það er skemmst frá því að segja
að þeim var mjög vel tekið og seld-
ist bókin upp á skömmum tíma, það
gerðist reyndar einnig daginn áður
á Vopnafirði þar sem þau voru í
sömu erindagjörðum. Um kvöldið
var Linda síðan gestur á fjölmennu
konukvöldi sem haldið var á veit-
ingastaðnum Sölku.
Linda Péturs-
dóttir áritaði
Ljós og skugga
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Reynir og Linda árita bækur í
heimabyggð Lindu.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8.
Empire
Kvikmyndir.is
SV MBL
“Fyndnasta barátta
kynjanna á tjaldinu
um langa hríð.”
SG DV
„Ein besta
gamanmynd ársins-
fyrir fullorðna“
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin!
Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!
i lli i i i !
j i íl i i i !
ÁLFABAKKI
Kl. 4,6, 8 og 10. B.i. 12.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
kl. 4. Ísl. tal.
AKUREYRI
kl. 6. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.40. B.i.10.
PIRATES OF
THE CARIBBEAN
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.com
Yfir 200 M
US$ á
5 dögum!.
SG DV
Tristan og Ísold
Miðaverð 500 kr.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.30.
ÁLFABAKKI
Kl. 6, 8 og 10.10
KRINGLAN
Kl. 6, 8 og 10.05
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Beint á
toppinn
í USA
KVIKMYNDIR.IS
ROGER EBERT
Mögnuð og yfirnáttúrleg spenna
sem fær hárin til að rísa.
Með hinum unga og efnilega
Jamie Bell úr „Billy Elliot.“
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16.