Morgunblaðið - 27.11.2003, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 2003 51
DAGBÓK
HJÓNAVERS
Fátæktin var mín fylgju-kona
frá því ég kom í þennan heim;
við höfum lafað saman svona
sjötigi vetur, fátt í tveim; –
hvort við skiljum nú héðan af
hann veit, er okkur saman gaf.
*
Kvíði’ eg fyrir kvöl og hungri,
kastar að mér hugraun þungri;
sjálfur þó ég velti’ í hel
skaði nokkur skeður eigi, –
skelfing er að hinir deyi,
sem lifað gæti lengi’ og vel!
---
Jón Þorláksson.
LJÓÐABROT
FJÓRIR spaðar eru góður
samningur á NS-hendurnar,
en fór þó niður á þremur
borðum af fjórum í undan-
úrslitum HM:
Norður
♠ ÁD93
♥ ÁDG8
♦ D943
♣4
Suður
♠ G872
♥ 102
♦ ÁG105
♣ÁD2
Útspilið er hagstætt –
laufgosinn, beint upp í gaff-
alinn. Hvernig á að spila?
Spilið er því aðeins í
hættu að kóngarnir í tígli og
hjarta liggi vitlaust og að
trompið sé 4-1. Rauðu svín-
ingarnar geta beðið og það
hlýtur að vera fyrsta verkið
að fara í spaðann. En hvern-
ig á að gera það? Á að spila
litlu á drottninguna eða taka
fyrst á ásinn?
Spil 20. Suður gefur; allir
á hættu. (Áttum snúið.)
Norður
♠ ÁD93
♥ ÁDG8
♦ D943
♣4
Vestur Austur
♠ 10654 ♠ K
♥ 765 ♥ K943
♦ K8 ♦ 762
♣KG107 ♣98653
Suður
♠ G872
♥ 102
♦ ÁG105
♣ÁD2
Þeir sagnhafar sem töp-
uðu spilinu fengu ýmist út
hjarta eða lauf. Allir þrír
spiluðu strax trompi á
drottninguna og gáfu á
blankan kóng. Síðar meir
var spaðaásinn tekinn á
undan gosanum og þar með
var vestur kominn með ann-
an slag á tromp. Og þar eð
hvorugur rauði kóngurinn lá
fyrir svíningu, hlaut geimið
að tapast.
Var þetta rétt spilað?
Reyndar. Það hefði virkað í
þessari legu að leggja niður
trompásinn, en ekki ef sami
mótherji hefði byrjað með
K10xx. Í því tilfelli verður
að ramba á að spila að réttu
háspili næst ef ásinn er tek-
inn fyrst. Slíkur „hittingur“
er ekki til staðar ef drottn-
ingunni er svínað.
Norðmaðurinn Erik Sæ-
lensminde var sá eini sem
vann fjóra spaða, en hann
fékk út tromp frá fjórlit-
unum, sem hann hleypti
auðvitað heim á gosann.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarsson
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kraftmikil/l og hvat-
vís. Þú þarft mikið frelsi á
sama tíma og þú vilt vera í
góðu sambandi við fjöl-
skyldu þína og vini. Kom-
andi ár getur orðið kraft-
mesta ár ævi þinnar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Á næstu vikum ættu aðstæður
að vera þér hagstæðar bæði í
vinnunni og í einkalífinu. Þú
ert í góðu sambandi við yf-
irmenn þína.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ástvinir þínir ættu að geta
kennt þér nýja lífsspeki eða
eitthvað áhugavert um fram-
andi menningu á næstu vik-
um.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt fá alls kyns gjafir og
góðar sendingar á næstunni.
Alheimurinn virðist svo sann-
arlega vera þér hliðhollur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það eru nokkrar plánetur á
móti merkinu þínu. Þetta
bendir til þess að þú munir
læra eitthvað nýtt um sjálfa/n
þig í samskiptum þínum við
aðra á næsta mánuði.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Heilsa þín er að batna en þú
ert þó enn veik/ur fyrir sæt-
indum. Þér gengur vel í
vinnunni og því þarftu ekki að
leita huggunar í mat.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það eru ást og rómantík í
hjarta þínu. Þú gætir annað
hvort eignast nýjan ástvin eða
fundið ást þína til maka þíns
endurnýjast og blómstra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur mikla löngun til að
fegra heimili þitt. Sinntu þess-
ari þörf þinni. Umhverfið hef-
ur meiri áhrif á vogina en önn-
ur stjörnumerki.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að falla ekki í þá
gryfju að líta á þá sem standa
þér næst sem sjálfsagða.
Segðu ástvinum þínum hve
miklu máli þeir skipta þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það ætti að verða mikið pen-
ingaflæði hjá þér næsta mán-
uðinn. Reyndu að kaupa
gagnlega hluti og forðast að
eyða í óþarfa.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú færð tækifæri til að leysa
úr gömlu deilumáli á næstu
vikum. Sanngirni þín og já-
kvætt hugarfar ættu að skapa
jafnvægi í kring um þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt auðvelt með að láta
þarfir annarra ganga fyrir
þínum eigin. Þetta þýðir ekki
að þú sért í sjálfsafneitun
heldur bara það að þú viljir
rétta öðrum hjálparhönd.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gerðu ráð fyrir því að það
verði mikið að gera félagslíf-
inu hjá þér á næstu vikum.
Það ætti einnig að færast
meira líf í ástarmálin hjá þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
1. Rf3 g6 2. c4 Bg7 3. e4 e5 4.
d4 exd4 5. Rxd4 Rf6 6. Rc3
0-0 7. Bg5 He8 8. Df3 h6 9.
Be3 d6 10. h3 Rbd7 11. 0-0-0
De7 12. Rd5 Rxd5 13. exd5
c5 14. dxc6 Re5 15. De2 bxc6
16. Dd2 Ba6 17. Bxh6 Bh8
18. Bg5 Db7 19. Dc2 Hab8
20. b3 d5 21. c5 Bxf1 22.
Hhxf1 Db4 23. Hd2 Rd7 24.
Rxc6 Da3+ 25.
Kb1 Rxc5 26.
Rxb8 Hxb8 27.
Be7
Staðan kom
upp í tveggja
skáka einvígi
táningsins tékk-
neska David
Navarra (2.607)
og Viktors
Kortsnoj (2.580)
hins grimma sem
lauk fyrir
skömmu í Prag í
Tékklandi. Eftir
að unglingurinn
bjargaði sér í
fyrri skák einvígisins gaf
hann andstæðingi sínum
engin grið í þeirri síðari. 27.
... Hxb3+! 28. Dxb3 Rxb3
29. Bxa3 Rxd2+ svartur
verður núna manni yfir án
þess að hvítur hafi fyrir
hann nægar bætur. 30. Kc2
Rxf1 31. Kd3 Be5 32. Ke2
Rh2 33. Bc1 f6 34. Be3 d4
35. Bd2 Kf7 36. Bb4 a6 37.
Bc5 Ke6 38. f4 Bxf4 39.
Bxd4 Bg3 40. Bc3 f5 41.
Bd2 f4 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Skugginn – Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 19. júlí sl. í Garðakirkju af
sr. Bolla Pétri Bollasyni þau Hanna Dögg Þórðardóttir og
Guðjón Már Halldórsson.
Skugginn – Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 21. júní sl. í Garðakirkju af
sr. Friðriki Hjartarsyni þau Hulda Sif Þorsteinsdóttir og
Erlendur Þór Gunnarsson.
Hverafold 1-3
Torgið Grafarvogi
Sími 577 4949
Opnunartími:
Frá kl. 11-18 mánud.-föstud.
og frá kl. 12-16 laugard.
SJÚKRAVÖRUR EHF. Verslunin Remedia
í bláu húsi v. Fákafen, sími 553 6511.
Sendum í
póstkröfu
Tilboðsverð á handunnum
þýskum og amerískum
heilsuskóm - Tilvalin jólagjöf
Hefðbundnir sjúkraskór,
mokkasínur og reimaðir
ásamt nokkrum nýjum teg-
undum. 10% afsláttur
Breiðir og sparilegir
10% afsláttur
Heilsuskór fyrir mjög
breiða og bólgna fætur.
Opnast alveg.
10% afsláttur
Mikið úrval af stuðnings- og
flugsokkum frá Samson og
Delilah
15% afsláttur
af öllum flug-
og sjúkra-
sokkum
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostn-
aðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast
með tveggja daga
fyrirvara virka daga
og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf
að fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer. Fólk getur
hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
Í KJÖLFAR umræðna um kauprétt-
arsamninga o.fl. vill Frjálshyggju-
félagið koma eftirfarandi á framfæri:
„Frjálshyggjufélagið telur afar
varasamt að setja lög um kjör starfs-
manna einkafyrirtækja. Farsælla sé
að eigendur fyrirtækjanna ákveði
sjálfir kaup og kjör starfsmanna
sinna. Ef viðskiptavinir eru ósáttir við
framferði stjórnenda fyrirtækja, geta
þeir látið skoðun sína í ljós, t.d. með
því að fara með viðskipti sín annað.
Ennfremur varar Frjálshyggjufélag-
ið við auknu íþyngjandi regluverki
varðandi samþykki hluthafafunda við
gerð starfssamninga við lykilstarfs-
menn. Ef þörf er á slíkum reglum
geta fyrirtæki sett sér þær sjálf.
Frjálshyggjufélgið telur að allir
ríkisstyrkir til fjölmiðlaútgáfu séu
ranglátir. Fjölmiðlafyrirtæki geta
keppt um hylli sinna viðskiptavina
rétt eins og önnur fyrirtæki þrátt fyr-
ir að nú sé tímabundinn öldudalur í
rekstri nokkurra fjölmiðlafyrir-
tækja.“
Lagasetning varasöm