Morgunblaðið - 09.12.2003, Síða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
edda.is
Spenna frá upphafi til enda!
„Ótrúleg endalok sem
er ómögulegt a› sjá
fyrir fyrr en í bláendann
koma rosalega á óvart og
er ég byrju› á bókinni í
anna› sinn. ... Vi› höfum
spennu, húmor,
skemmtilegar persónur,
flott umhverfi og gó›a
"‡›ingu. $arf eitthva›
meira?!“
– rú›ur Gu›mundsdóttir, 13 ára,
Kistan.is
9. sæti
Mbl.
4. des.
Skáldverk
því fram að bílastæðaskortur og um-
ferðarálag myndi aukast. Í svari
skipulagsyfirvalda í Reykjavík segir
að Ingólfsstræti sé ekki skilgreint
sem íbúðasvæði eða íbúðagata milli
Bankastrætis og Amtmannsstígs
heldur sem hliðarverslunarsvæði.
Samkvæmt skilgreiningu aðalskipu-
lags sé rekstur vetingastaða leyfður í
hliðarverslunargötum í miðborginni.
Engar takmarkanir gildi þar um
fjölda veitingastaða eða aðra starf-
semi. „Umsóknin fellur því bæði að
ákvæðum aðalskipulags og gildandi
deiliskipulags,“ segir í svarinu.
Engin ábyrgð á
hávaða utanhúss
Þá kemur fram að í umfjöllun um
leyfisveitingar segi ekkert um um-
gengni og hegðun þeirra sem sæki
staði af þessu tagi þegar þeir séu ut-
anhúss. Rekstraraðilar beri ekki
ábyrgð á hegðun gesta utan veggja
veitinga- eða skemmtistaða. Það
ástand sem nágrannar óttist falli und-
ir almennar reglur um hegðun borg-
aranna á almannafæri og sé fjallað
um í lögreglusamþykkt. Ekki sé hægt
að leggjast gegn umsókninni á þess-
um forsendum en hægt sé að svipta
rekstraraðila áfengisveitingaleyfi
verði ónæði af staðnum um of.
Hvað varðar áhyggjur íbúa af
hljóðmengun frá þessari starfsemi
segir í bréfi skipulagsyfirvalda að
krafist sé greinargerðar um hljóðvist.
Þar sé farið yfir hljóðvist hússins sem
tryggja eigi að hljóð ofan skilgreindra
marka berist ekki út fyrir veggi þess.
SKIPULAGS- og byggingarnefnd
Reykjavíkur hefur gefið Eldhuga ehf.
leyfi til að innrétta kaffi- og vínveit-
ingastað á fyrstu hæð og í kjallara
hússins við Ingólfsstræti 5. Margar
athugasemdir nágranna sem vöruðu
við þessum fyrirætlunum höfðu borist
nefndinni.
Nágrannarnir segja í athugasemd-
um að ástandið í götunni sé óviðun-
andi í dag, sérstaklega á nóttunni um
helgar. Með tilkomu enn eins veit-
ingahússins muni háreysti og sóða-
skapur versna til muna. Nú þegar
þurfi þeir að þola hávaða á nóttunni
og á morgnana taki á móti þeim ælur
og glerbrot á götunni með tilheyrandi
hlandlykt. Umferð drukkinna ein-
staklinga muni aukast um götuna og í
nálægum görðum. Einnig héldu þeir
Íbúar við Ingólfsstræti
ósáttir við nýjan veitingastað
FIMM stofnbrautarleiðir verða á
höfuðborgarsvæðinu er nýtt leiða-
kerfi Strætó bs. verður tekið í
notkun á næsta ári. Vagnar á
þeim leiðum munu ganga á tíu eða
jafnvel fimm mínútna fresti á
álagstímum. Ökuleiðum verður
fækkað úr 36 í 18, gönguvega-
lengd að næstu biðstöð lengist en
biðtíminn styttist. Nýja kerfið á
að flytja fólk frá stærstu íbúðar-
hverfunum beint til helstu vinnu-
staða á höfuðborgarsvæðinu og
byggist útfærsla kerfisins m.a. á
ferðavenjukönnun sem gerð var
meðal höfuðborgarbúa árið 2002.
Nýja kerfið gerir ráð fyrir að
endastöð stofnbrautanna verði í
Vatnsmýrinni þar sem BSÍ er með
höfuðstöðvar og þar sem miðstöð
almenningssamgangna á landsvísu
er fyrirhuguð. T.d. mun flugrútan
aka þaðan frá áramótum. Þetta
kom m.a. fram á ársfundi Strætó
bs. í gær.
Nýja kerfið er skipulagt með
hliðsjón af umfangsmikilli könnun
á ferðavenjum fólks sem gerð var
árið 2002 auk þess sem tekið er
mið af atvinnu- og búsetuskipt-
ingu samkvæmt svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins. Erlendir
ráðgjafar voru fengnir til að for-
hanna kerfið í samvinnu við ís-
lensk fyrirtæki.
Rafrænt greiðslukerfi
í febrúar
Fleiri breytinga er að vænta hjá
Strætó bs. því í febrúar á næsta
ári verður nýtt rafrænt greiðslu-
kerfi, sem er samstarfsverkefni
Strætó bs., ÍTR og Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur, tekið í
gagnið í tilraunaskyni en það
verður væntanlega komið í fulla
notkun síðla næsta sumar. Kerfið
felur í sér að hægt verði að greiða
fyrir fargjöld með svokölluðu
smart-korti.
Þegar er búið að útfæra stofn-
leiðakerfið að mestu og hverfa-
leiðakerfið er einnig vel á veg
komið. Á næstunni verður nýja
leiðakerfið kynnt fyrir íbúum og
hverfaráðum.
Leiðakerfið er fyrsta samræmda
kerfið fyrir allt höfuðborg-
arsvæðið.
Markmiðið með því er að bæta
þjónustuna og fjölga farþegum.
Vonast er til að viðskiptavinum
Strætó bs. fjölgi um 50% á næstu
fimm árum, fari úr 4% upp í 6%.
Árið 2024 er vonast til að fjöldi
viðskiptavina hafi tvöfaldast, verði
orðinn um 8% af öllum íbúum höf-
uðborgarsvæðisins.
Ásgeir Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Strætó bs., segir að nýja
leiðakerfið byggist á annarri hugs-
un en það kerfi sem fyrir er, það
verði einfaldara og meira tillit
verði tekið til álagstíma. Áþreif-
anlegasta breytingin felst að hans
sögn í því að laga framboð ferða
að þeirri eftirspurn sem raunveru-
lega er fyrir hendi. Ferðatíðni á
álagstímum, fyrst á morgnana og
síðdegis, verður aukin þannig að
ferðir verða á tíu mínútna fresti
en lengra verði milli ferða utan
álagstíma og á einstökum leiðum
inni í íbúðarhverfum.
Stofnbrautir skipulagðar
eins og lestarkerfi
Hugmyndafræðin að baki stofn-
brautaleiðunum hefur verið kölluð
„think train, drive bus“ á ensku,
þ.e. að stofnbrautinrar eru skipu-
lagðar eins og um lestarkerfi væri
að ræða. Þannig á að nást hærri
meðalhraði og ferðatími á að stytt-
ast.
Til að þetta geti orðið að veru-
leika þarf að leggja aukna áherslu
á aukinn og samræmdan forgang
fyrir strætó í umferðinni til að
tryggja sem minnstar tafir. Þetta
mætti t.d. gera með forgangi við
umferðarljós og sérstökum akrein-
um fyrir strætisvagnana, að sögn
Péturs U. Fenger, aðstoð-
arframkvæmdastjóra Strætó bs.,
sem kynnti drögin að nýja leiða-
kerfinu í gær. Pétur sagði að líkt
og með lagningu járnbrautarteina
væri hugsunin sú að stofnbraut-
irnar yrðu til frambúðar, þeim
yrði ekki breytt. Fólk myndi þá
venjast því hvar og hvenær vagn-
arnir kæmu og gætu gengið að því
vísu.
Ekki er endanlega búið að
ganga frá hverfisleiðunum, þ.e.
ökuleiðum þeirra vagna sem aka
um einstök hverfi borgarinnar og
tengjast svo stofnbrautunum.
Pétur sagði að gönguvegalengd
að næstu biðstöð myndi lengjast í
mörgum tilfellum með tilkomu
nýja kerfisins en að hún ætti
ekki að verða meiri en 300–400
metrar í mesta lagi í fjölbýlis-
húsahverfum og ekki miklu
lengri í dreifðari byggðum. Í ein-
földu máli væri stærsta breyt-
ingin með tilkomu nýja kerfisins
sú að leiðir yrðu færri en ferð-
irnar fleiri.
Farþegar fáir en ánægðir
Árið 1960 voru farþegar strætó
20 milljónir, í ár eru þeir 8 millj-
ónir. „Farþegafjöldi strætó er
samfelld sorgarsaga,“ segir Ás-
geir. „Það er þó huggun harmi
gegn að farþegum hefur ekki
fækkað frá því í fyrra.“
„Ætlunin er að kynna almenn-
ingssamgöngur sem raunhæfan
og góðan kost andspænis einka-
bílnum,“ segir Ásgeir.
„Meðal farþega Strætó bs. rík-
ir almenn ánægja með þjón-
ustuna. Viðhorf viðskiptavinanna
er mælt reglulega og hefur sú
mæling leitt í ljos að um það bil
80% viðskiptavina fyrirtækisins
eru ýmist ánægð eða mjög ánægð
með þjónustu Strætó. Þetta vilj-
um við efla og endurskoðað leiða-
kerfi er þáttur í þeirri viðleitni.“
Fimm stofnbrautir verða í nýja leiðakerfi Strætó bs. og þeim tengjast svo 13 safnleiðir úr ólíkum hverfum höfuðborgarsvæðisins.
Ferðum fjölgað en leiðum fækkað
Nýtt leiðakerfi Strætó verður tekið í notkun næsta sumar. Frá vinstri: Pét-
ur U. Fenger, aðstoðarframkvæmdastjóri Strætó bs., Guðjón Ólafur Jóns-
son stjórnarformaður og Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjóri.
Drög að nýju leiðakerfi Strætó bs. fyrir höfuðborgarsvæðið kynnt á ársfundi fyrirtækisins
Í REKSTRARÁÆTLUN Strætó bs.
fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að
framlög sveitarfélaganna á höf-
uðborgarsvæðinu sem að byggða-
samlaginu standa hækki um 4,5%
milli ára. Gert er ráð fyrir að 38%
kostnaðarins verði greidd með
tekjum af fargjöldum, eða um 813
milljónir króna, en 1.329 milljónir
króna eða 62% kostnaðarins komi
frá sveitarfélögunum. Ekki er gert
ráð fyrir að fargjöld hækki á næsta
ári að sögn Ásgeirs Eiríkssonar,
framkvæmdastjóra Strætó bs.,
þrátt fyrir að fyrirtækið standi í
kostnaðarsömum umbótum á starf-
semi sinni. Ásgeir segir að með
nýju leiðakerfi breytist vinnufyr-
irkomulag vagnstjóra. Á næstunni
verður farið yfir málin með for-
svarsmönnum þeirra. Ekki er gert
ráð fyrir í rekstraráætlun fyrir
næsta ár að farþegum gæti fjölgað
með tilkomu nýja leiðakerfisins.
Fargjöld hækka ekki