Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 6
FYRRVERANDI aðalgjaldkeri Landssímans, sem grunaður er um að hafa svikið 261 milljón króna út úr fyrirtækinu, notaði samtals um 10 þúsund færslur til að hylja slóð sína. Rannsókn Símans á málinu er lokið. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Sím- ans, segir að rannsókn á svikunum hafi verið flóknari og tímafrekari en menn óraði fyrir. Fyrirtækið hefur gripið til aðgerða sem eiga að draga verulega úr líkum á að svona mál komi upp aftur. Mál aðalgjaldkerans kom upp í maí í vor, en þá var talað um að grunur léki á um allt að 150 milljóna króna fjársvik. Um miðjan júní hélt forstjóri Símans blaðamannafund þar sem fram kom að fjárdrátturinn næmi a.m.k. 250 milljónum króna. Í gær upplýsti Bryjólfur Bjarnason á blaðamannafundi að upphæðin væri 261 milljón og um væri að ræða 137 tilvik sem næðu allt aftur til ársins 1999. Hann sagði að umfangsmikil og ítarleg lögreglurannsókn vegna þessa máls hefði farið fram og ekk- ert benti til þess að upphæðin væri hærri. Málið teldist því upplýst og færi sína eðlilegu leið innan dóms- kerfisins. Flóknar aðgerðir Brynjólfur sagði að á bak við þessi fjársvik lægju flóknar aðgerðir sem gjaldkerinn notaði til að hylja slóð sína. Notaðar hefðu verið nokkrar aðferðir, en gjaldkerinn hefði haft bæði heimild til að taka ákvörðun um fjárskuldbindingar og heimild til að bókfæra færslur. Brynjólfur nefndi sem dæmi að á bak við ein til- tekin fjársvik væru um 50 færslur í bókhaldi. Þegar allt væri talið léti nærri að þessi 137 meintu fjársvik tengdust um 10 þúsund færslum í bókhaldi Símans á þessum fjórum árum. Það hefði kostað gríðarlega mikla vinnu að fara í gegnum þessar færslur allar. Að þessari vinnu hefðu komið Ríkisendurskoðun, Ólafur Nilsson endurskoðandi, starfsfólk Símans og starfsmenn ríkislögreglu- stjóra. Starfsreglum Símans breytt Brynjólfur sagði að í kjölfar þessa máls hefðu stjórnendur Símans grip- ið til ráðstafana sem miðuðust að því að koma í veg fyrir að svona mál kæmu upp aftur. Farið hefði verið yfir verkferla og vinnulag innan fé- lagsins með það að markmiði að bæta innra eftirlit og auka öryggi í viðskiptum. Heimildir starfsmanna um aðgang að upplýsingakerfum fé- lagsins hefðu verið þrengdar og mun færri hefðu þessar heimildir í dag en áður. Í öðru lagi hefði verið skerpt á verkaskiptingu innan deilda og milli deilda og ábyrgðasvið starfsmanna hefði verið skýrt. Þeir sem hefðu heimild til að taka ákvörðun um fjár- reiður hefðu ekki lengur aðgang að bókunum á gjalda- og tekjuhlið. Í þriðja lagi hefðu reglur um meðferð fjármuna verið endurskoðaðar. Stefnt væri að því að fækka aðferð- um sem notaðar væru við greiðslur til viðskiptamanna í þeim tilgangi að auka öryggi í meðferð fjármuna. Eftirlit með viðskiptum stærri við- skiptamanna Símans yrði stórhert. Í fjórða lagi sagði Brynjólfur að innri endurskoðun fyrirtækisins yrði styrkt m.a. með aukinni sérþekkingu í tölvuendurskoðun. Í fjórða lagi hefðu starfsmannareglur Símans verið endurskoðaðar. Starfsmönnum félagsins yrði m.a. óheimilt að taka að sér launað starf utan fyrirtæk- isins nema með leyfi framkvæmda- stjóra viðkomandi sviðs. Starfsmenn mættu ekki sitja í stjórnum fyrir- tækja nema með leyfi forstjóra. Settar yrðu sérstakar reglur um sumarleyfi þeirra sem hefðu með fjárumsýslu að gera, en þær fælu m.a. í sér að þeir yrðu að taka sér a.m.k. þrjár vikur í samfellt orlof í senn og yfir mánaðamót. Jafnframt yrði stefnt að því að starfsmenn yrðu færðir reglulega milli starfa. Brynjólfur sagði að þrátt fyrir breytt vinnubrögð og hertar reglur væri aldrei hægt að útiloka að fjár- svik kæmu upp innan fyrirtækisins. Það væri hins vegar ljóst að líkur á svikum væru miklu minni en áður. Hann sagðist ekki sjá fyrir sér að svona stórt mál sem tengdist svona langvarandi fjársvikum gæti komið upp eftir að vinnubrögðum hefði ver- ið breytt. Fram hefur komið að fyrrum aðal- gjaldkeri vann heima hálfan daginn í sumarfríi á síðasta ári, en talið er að það hafi hann gert til að tryggja að hann gæti haldið áfram að fela þau fjársvik sem hann er sakaður um. Það hefur jafnframt komið fram að gjaldkerinn hafði í janúar sl. gefið skriflega yfirlýsingu um að hann hefði hætt afskiptum af þeim einka- fyrirtækjum sem hann tengdist. Við þessa yfirlýsingu hefði hann hins vegar ekki staðið. Brynjólfur sagði í gær að starfsmenn Símans myndu áfram fá heimild til að sitja í stjórn- um einkafyrirtækja sem þeir ættu eða tengdust. Það lægi hins vegar í augum uppi að menn myndu gera strangari kröfur í þeim efnum en áð- ur. Rannsókn Símans á meintum fjársvikum fyrrverandi aðalgjaldkera fyrirtækisins er lokið Um 10 þúsund bókhaldsfærslur til að hylja slóðina Morgunblaðið/Sverrir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, sagði á blaðamannafundi að Síminn mundi leggja fram bótakröfu á hendur fyrrverandi aðalgjaldkera fyrirtæk- isins, sem er grunaður um að hafa svikið út úr félaginu 261 milljón króna.          " !!! %&&      (  )**+, !- -' & ' %! %-  #   #   #   #   #   # FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans, frú Dorrit Moussaieff, heimsóttu starfsstöðvar Samherja á Dalvík og Akureyri í gær og fóru auk þess um borð í Ak- ureyrina EA, togara félagsins í Dal- víkurhöfn. Samherji hlaut Útflutn- ingsverðlaun Forseta Íslands fyrr á árinu og hefur forsetinn leitast við að sækja þau fyrirtæki heim sem verðlaunin hljóta. „Við erum að sýna starfsfólki og stjórnendum að það er mikið þakk- læti sem fylgir þessum verðlaunum og erum að heiðra framlag fólksins hér á Dalvík og annars staðar sem vinnur á vettvangi Samherja fyrir þann árangur sem það hefur skilað. Það fær ekkert fyrirtæki úflutnings- verðlaun forseta Íslands bara af því að forstjórarnir séu góðir. Heldur eru þau veitt vegna mikils og ein- stæðs árangurs sem starfsheildin hefur skapað. Við höfum einmitt kynnst því hér á Dalvík að verðlaun- in voru og eru svo sannarlega verð- skulduð,“ sagði Ólafur Ragnar í samtali við Morgunblaðið. Forsetinn sagði að vinnsla Sam- herja á Dalvík væri í efsta gæða- flokki fyrirtækja á þessu sviði í ver- öldinni, ekki aðeins hvað snerti framleiðslu, heldur líka varðandi að- búnað starfsfólks og vinnuanda. Það hefðu fulltrúar alþjóðlegra eftirlits- stofnana staðfest. Í fylgd forseta- hjónanna voru fulltrúar úr úthlut- unarnefnd verðlaunanna, fulltrúar frá Útflutningsráði og forsetaritari. Þorsteinn Már lýsti mikilli ánægju með heimsókn forseta- hjónanna og fylgdarliðs, og vonaðist til að hún hefði verið þeim ánægju- leg. Sjávarútvegsráðherrann hefur aldrei komið í heimsókn „Ég fullyrði að fiskvinnslan hér á Dalvík er ein fremsta sinnar teg- undar í heiminum. Hér er tæknivæð- ing og gæðastjórnun í hávegum höfð, með það að leiðarljósi að há- marka verð þess hráefnis sem okkur er trúað fyrir.“ Þorsteinn Már sá jafnframt ástæðu til að vekja athygli á því að núverandi sjávarútvegsráðherra, sem hefði setið á þeim stóli í á fimmta ár, hefði aldrei séð ástæðu til að heimsækja fyrirtækið. „Þá eru orðin afskaplega mörg ár síðan að þeir sem eru í sjávarútvegsnefnd Al- þingis hafa séð einhverja ástæðu til koma hingað, skoða hvað við erum að gera og ræða við fólkið.“ Forsetinn í starfsstöðvum Samherja á Dalvík og Akureyri Fyrirtækið í efsta gæða- flokki á sínu sviði í heiminum Morgunblaðið/Kristján Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og fylgdarlið heilsuðu upp á starfsfólk Samherja á Dalvík. Við hlið hans stendur Þorsteinn Már Bald- vinsson, forstjóri Samherja, og á milli þeirra Aðalsteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri landvinnslu félagsins. BRYNJÓLFUR Bjarnason, for- stjóri Símans, segir að Síminn muni gera bótakröfur á hendur aðalgjaldkeranum, en hún komi ekki fram fyrr en ákæran hefði verið gefin út. Aðspurður sagði hann að bótakrafan myndi nema á þriðja hundrað milljónum króna. Brynjólfur upplýsti ennfremur að ríkislögreglustjóri hefði kyrr- sett eignir og því stæðu vonir til þess að eitthvað af því tjóni sem Síminn hefði orðið fyrir yrði bætt. Rannsókn Símans leiddi í ljós að 130 milljónir af þessum 260 milljónum sem talið væri að gjaldkerinn fyrrverandi hefði svikið út úr félaginu hefðu farið til fyrirtækisins Alvöru lífsins ehf., en það er í eigu tveggja fyrr- verandi eigenda sjónvarpsstöðv- arinnar Skjás eins. Brynjólfur sagði að vegna rannsóknarhags- muna gæti Síminn ekki upplýst nákvæmlega hvað hefði orðið um hinn helming fjárins. Það myndi koma fram þegar ákværuvaldið tæki málið til meðferðar. Bótakrafa á þriðja hundrað milljónir ÞORSTEINN Már Baldvinsson for- stjóri Samherja hf. gagnrýndi ís- lenska stjórnmálamenn í ávarpi sem hann flutti til starfsfólks og gesta í landvinnslu félagsins á Dalvík í gær, í tengslum við heimsókn forseta Ís- lands, Ólafs Ragnars Grímssonar og fylgdarliðs. Samherji fékk útflutningsverðlaun forseta Íslands fyrr á þessu ári og Þorsteinn Már sagðist hafa sagt við það tækifæri að verðlaunin væru ákaflega kærkomin og að hann liti á þau öðru fremur sem viðurkenningu til starfsfólks Samherja fyrir sérlega vel unnin störf á liðnum árum. Jafn- framt að starfsfólk Samherja væri vel að þeim komið. Þorsteinn Már sagðist einnig hafa sagt við þetta tækifæri að umfjöllun um það starf sem unnið er af starfs- fólki Samherja væri oft ósanngjörn og að stjórnendum Samherja hefði greinilega ekki tekist að koma því nægilega vel á framfæri við þjóðina hversu gott starf væri unnið innan fé- lagsins. „Ég bað starfsfólk mitt afsökunar á því og þá afsökunarbeiðni vil ég nú endurtaka. Við eigum undir högg að sækja, hvað varðar sanngjarna um- fjöllun um störf okkar og sjávarútveg í heild sinni og ef eitthvað er hefur heldur hallað undan fæti,“ sagði Þor- steinn Már. Förum að tapa forystunni Þorsteinn Már sagði að þegar Samherji fékk Útflutningsverðlaun forseta Íslands hefði kosningabar- átta til Alþingis verið í algleymingi og að hún hefði verið býsna óvægin í garð þeirra sem starfa í sjávarútvegi. „Nú á m.a. að fara að skerða afla- heimildir þeirra sem byggja á því skipulagi sem við höfum byggt, þ.e. að líta á veiðar, vinnslu og markaðs- starf sem eina held. Íslendingar hafa verið í forystu meðal sjávarútvegs- þjóða heims á allra síðustu árum en mér sýnist stefna í þá átt að við mun- um ekki verða í því hlutverki sem við höfum verið í á síðustu árum.“ Fiskvinnslufólk búi við sama starfsöryggi og aðrir Þorsteinn Már gerði einnig að um- talsefni að þessa dagana væri verið að fjalla um lög um atvinnuleysis- tryggingasjóð. Hann sagði að fisk- vinnslufólk þyrfti að búa við sama starfsöryggi og aðrir, það væri eina leiðin til að halda hæfu fólki og til að fá nýtt fólk inn í greinina. „Þess vegna styð ég þær breyting- ar sem verið er að tala um á Alþingi núna og fyrirtækin sjálf verða að bera ábyrgð á starfsfólki sínu 360 daga á ári á sama hátt og við þurfum að bera ábyrgð á viðskiptavinum okk- ar 360 daga á ári. Ég tel að þetta hafi verið misnotað og þess vegna vekur það enn meiri furðu mína, að það á að verðlauna þá sem hafa notað þennan sjóð mest, þá sem byggja á afla hrað- fiskibáta og hafa getað sent fólkið heim, vegna þess að það er ekki róið alla daga vegna veðurs.“ Þorsteinn Már, forstjóri Samherja Eigum undir högg að sækja varðandi sanngjarna umfjöllun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.