Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 11 ÚTSALA - ÚTSALA Dæmi um verð: Áður: Nú: Jakkapeysa 7.900 3.900 Yrjótt peysa 4.600 2.300 Jakki m. satíni 4.900 1.900 Dömubolur 3.400 1.700 Hettupeysa 5.700 3.500 Mokkavesti 4.100 1.900 Vatteruð úlpa 6.800 2.900 Mokkakápa 9.900 5.900 Kjóll 6.500 3.900 Velúrpils 4.700 2.300 Dömubuxur 4.900 1.900 Satínbuxur 6.700 2.900 ...og margt margt fleira 40—60% afsláttur Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. Opið frá kl.10.00-18.00 Stærðir 34-52 Hefst í dag 440kr. Eitt verð fyrir alla jólapakka! Hámarksþyngd 20 kg, hámarksstærð 0,06 m3 (t.d. 30x40x50 sm) 03 -5 11 FINSENSDAGUR verður haldinn hátíðlegur á Landspítala - háskóla- sjúkrahúsi (LSH) á morgun í tilefni 100 ára afmælis Nóbelsverðlauna Níelsar R. Finsens í læknisfræði, sem afhent voru 10. desember árið 1903. Ráðstefna fer fram í hringsal Barnaspítala Hringsins um krabba- meinslækningar og arfleið Finsens og í tengslum við ráðstefnuna stend- ur til að stofna styrktarsjóð í minn- ingu hans fyrir rannsóknir á sviði krabbameinslækninga. Níels R. Finsen var frumkvöðull í krabbameinslækningum og geisla- meðferð. Á vefsíðu LSH segir að hann hafi verið af íslenskum ættum, kominn í beinan karllegg af Hannesi Finnsyni, síðasta biskupi í Skálholti. Móðurættin var dönsk. Níels ólst upp í Færeyjum en þar var faðir hans landfógeti. Á unglingsárum var hann sendur í skóla til Danmerkur en þar sem það gekk illa var hann sendur til Íslands til ömmu sinnar og frænda í Reykjavík. Hér dvaldi hann í nokkur ár og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum árið 1882. Það sum- ar sigldi hann alfarinn til Danmerk- ur, nam þar læknisfræði og skipaði sér fljótt í fremstu röð varðandi áhrif geislunar við lækningu sjúkdóma. Tæpu ári eftir að Níels R. Finsen hlaut Nóbelsverðlaunin lést hann, aðeins 43 ára að aldri. Danir heiðra minningu hans á ýmsan hátt. Rannsóknastofnun þeirra í krabbameinsfræðum er nefnd eftir honum, Finsens Institut, og Krabbameinssjúkrahúsið í Kaup- mannahöfn var einnig kennt við hann. Finsensdagur á Landspítala 100 ár frá Nóbelsverðlaunum Níelsar R. Finsens læknis Notkun CCA- efna í fúavörn takmörkuð GEFIN hefur verið út reglugerð þar sem sala og notkun timburs með CCA viðarvörn er takmörkuð. Reglugerðin tekur gildi 1. júlí nk. en Umhverfis- stofnun hefur mælst til þess að sölu á timbri sem meðhöndlað hefur verið með CCA verði hætt til almennings í síðasta lagi næsta vor. Að sögn Hauks R. Magnússonar, sérfræðings á Umhverfisstofnun, er talið að í CCA séu krabbameinsvald- andi efni og sú stefna hafi verið mörk- uð að hafa slík efni ekki í sölu til al- mennings. Hættan á heilsutjóni sé þó talin lítil og ekki hafi verið sýnt fram á það með óyggjandi hætti að fólk hafi orðið fyrir heilsutjóni vegna þessara efna. Haukur sagði að þessi efni hefðu talsvert verið notuð hér á landi, en töl- ur um magn lægju ekki fyrir. Þessi CCA-efni eru notuð við að fúaverja timbur með þrýstingi eða lofttæmi. Timbur sem hefur verið fúavarið með þessum hætti er innflutt eða meðhöndlað með þessum sér- staka hætti af innflutningsaðila. Ekki er því um að ræða hefðbundna fúa- vörn sem almenningur notar við að verja timburverk á húsum sínum og borið er á með pensli eða rúllu. Nánari upplýsingar um reglugerð- irnar er hægt að finna á vef Umhverf- isstofnunar www.umhverfisstofnun.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.