Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
ÍS – Keflavík .........................................68:56
Gangur leiksins: 4:0, 5:5, 9:7, 11:9, 16:11,
18:19, 23:22, 35:25, 38:27, 53:31, 53:40,
56:43, 61:50, 68:56.
Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 27, Stella Rún
Kristjánsdóttir 21, Hafdís Helgadóttir 10,
Lovísa Guðmundsdóttir 7, Guðrún S. Bald-
ursdóttir 3.
Fráköst: 29 í vörn – 4 í sókn.
Stig Keflavíkur: Anna María Sveinsdóttir
18, Bryndís Guðmundsdóttir 13, Marín Rós
Karlsdóttir 5, Svava Stefánsdóttir 5, Rann-
veig Randversdóttir 4, María Berg Er-
lingsdóttir 4, Erla Reynisdóttir 3, Halldóra
Andrésdóttir 2.
Fráköst: 33 í vörn – 13 í sókn.
Villur: ÍS 15 – Keflavík 13.
Dómarar: Lárus Magnússon og Rögnvald-
ur Hreiðarsson. Góðir.
Áhorfendur: Um 20.
Staðan:
ÍS 9 7 2 572:508 14
Keflavík 9 6 3 749:603 12
Njarðvík 9 5 4 574:583 10
KR 9 5 4 583:583 10
ÍR 9 2 7 547:642 4
Grindavík 9 2 7 500:606 4
NBA-deildin:
Úrslit í fyrrinótt:
LA Clippers – Minnesota .................... 94:96
Toronto – Seattle................................ 108:98
Memphis – Portland............................. 93:79
Denver – Boston ............................... 111:116
Sacramento – Indiana.......................... 91:88
LA Lakers – Utah ................................ 94:92
KNATTSPYRNA
HM U20 í Sameinuðu
furstadæmunum
16 liða úrslit:
Argentína – Egyptaland...........................2:1
Japan – Suður-Kórea................................2:1
Burkina Faso – Kanada............................0:1
Bandaríkin – Fílabeinsströndin...............2:0
England
1. deild:
Coventry – Sunderland............................1:1
Gary McAllister 22. – vítasp. – Stewart
Downing 8. – 12.913.
Staðan:
WBA 21 12 5 4 32:18 41
Norwich 22 11 7 4 30:20 40
Ipswich 22 11 5 6 43:32 38
Sheff. Utd 21 11 4 6 33:24 37
Reading 22 11 4 7 29:23 37
Sunderland 22 9 8 5 25:18 35
Wigan 22 9 8 5 29:23 35
Cardiff 21 9 7 5 37:23 34
West Ham 21 8 10 3 29:17 34
Preston 21 9 4 8 30:24 31
Millwall 22 7 8 7 24:23 29
Nottingham F. 22 7 7 8 34:31 28
Crewe 21 8 4 9 22:25 28
Burnley 22 7 7 8 32:36 28
Walsall 21 7 6 8 24:23 27
Gillingham 22 7 6 9 28:36 27
Coventry 22 5 11 6 27:29 26
Rotherham 22 6 8 8 20:29 26
Watford 22 6 7 9 23:27 25
Cr. Palace 21 5 7 9 24:35 22
Derby 22 5 7 10 24:36 22
Stoke City 21 5 5 11 24:32 20
Bradford 21 4 5 12 19:32 17
Wimbledon 22 4 2 16 23:49 14
GOLF
Evrópska mótaröðin
Fyrsta mót tímabilsins, Hong Kong:
Padraig Harrington, Írlandi ...................–11
(67–69–67–66)
Hennie Otto, S–Afríku.............................–10
(68–68–69–65)
Thomas Björn, Danmörku ........................–7
Darren Clarke, N-Írlandi..........................–7
Chris Gane, Englandi ................................–7
Fredrik Jacobson, Svíþjóð ........................–7
Christopher Hanell, Svíþjóð .....................–6
James Kingston, S-Afríku.........................–6
Prayad Marksaeng, Taílandi ....................–6
Michael Campbell, N-Sjálandi..................–5
David Carter, Englandi .............................–5
José Maria Olazabal, Spáni .......................–5
Rob Rashell, Bandar..................................–5
Gary Rusnak, Bandar. ...............................–5
Stephen Dodd, Wales.................................–4
Nick Faldo, Englandi.................................–4
Steven Jeppesen, Svíþjóð..........................–4
Richard McEvoy, Englandi ......................–4
Henrik Nyström, Svíþjóð ..........................–4
Marc Pendaries, Frakklandi.....................–4
Nobuhito Sato, Japan ................................–4
Richard Mcevoy, Engl ...............................–4
Kim Felton, Ástr. .......................................–3
Wang Ter-Chang, Taí ................................–3
Anthony Kang, Bandar..............................–3
Kyi Hla Han, Mala. ....................................–2
Derek Fung, Hong K. ................................–2
Choi Kyung-ju, Kór....................................–2
Barry Lane, Engl. ......................................–2
Shaun Webster, Engl.................................–2
Gary Emerson, Engl..................................–2
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Kennaraháskóli: ÍS - ÍG........................19.30
Í KVÖLD
ERLA Dögg Haraldsdóttir, ÍRB,
fékk silfurverðlaun í 200 m bringu-
sundi á Norðurlandameistaramóti
unglinga í sundi, sem fór fram í Ósló
í Noregi um sl. helgi. Hún kom í
mark 2.35,93 mín. Hún varð í fjórða
sæti í 50 m bringusundi og 100 m
flugsundi.
ODDUR Örnólfsson, Ægi, fékk
bronsverðlaun í 400 m fjórsundi –
kom í mark á 4.38,77 mín.
CHRIS Turner, knattspyrnustjóri
Sheffield Wednesday, hefur boðið
Paul Gascoigne að ganga til liðs við
félagið, sem leikur í ensku 2. deild-
inni. Turner segir að þó Gascoigne
hafi ekki þótt nægilega góður til að
leika á ný í ensku úrvalsdeildinni
ætti hann að geta spjarað sig í 2.
deild, ekki síst vegna þess að hann
hefði æft af krafti með Wolves og
spilað með varaliði félagsins undan-
farnar vikur.
PETER Pacult, fyrrverandi lands-
liðsmaður Austurríkis í knatt-
spyrnu, hefur verið ráðinn þjálfari
Kärnten, liðs Helga Kolviðssonar,
sem er neðst í austurrísku úrvals-
deildinni. Pacult hefur þjálfað 1860
München í Þýskalandi undanfarin
ár. Hannes Haubitz hætti með lið
Kärnten í lok október.
FULLYRT var í brasilísku tíma-
riti í gær að knattspyrnustjarnan
Ronaldo vildi komast burt frá Real
Madrid á Spáni og ganga á ný til liðs
við Inter Mílanó á Ítalíu. Þetta er
niðurstaðan úr samtölum blaða-
manns tímaritsins Veja við 27 félaga
og vini Ronaldos.
BLAÐAMAÐURINN dvaldi hjá
Ronaldo í Madríd í eina viku og birti
í kjölfarið úttekt og viðtöl um hann á
tíu blaðsíðum í gær. Meðal þess sem
þar er haft eftir félögum hans er að á
Spáni hverfi Ronaldo í skuggann af
félögum sínum, Raúl, Zidane og
Beckham, sem séu vinsælli meðal
stuðningsmanna Real Madrid. Um-
boðsmenn Ronaldos segja að ekki
komi til greina að hann fari aftur til
Inter. Stefna hans sé sú að leika
nokkur ár með liði í Englandi og
ljúka síðan ferlinum með liði í
Bandaríkjunum.
FÓLK
ZINEDINE Zidane, leikmaður Real Madrid og franska lands-
liðsins í knattspyrnu, hefur verið kallaður fyrir rétt á Ítalíu,
sem vitni í málshöfðun gegn tveimur stjórnarmönnum
Juventus. Þeir Antonio Giraudo, framkvæmdastjóri, og lækn-
ir félagsins, Riccardo Agricola, eru sakaðir um að hafa stýrt
ólöglegri lyfjagjöf til leikmanna Juventus á árunum 1994 til
1998. Zidane lék með félaginu frá 1996 til 2001. Saksóknarinn
Raffaele Guariniello, sem hefur haft lyfjamál í ítölsku knatt-
spyrnunni til rannsóknar í þrjú ár, vonast til þess að geta
kallað fyrir fleiri leikmenn sem hafa spilað með Juventus.
„Ég óskaði eftir því við Zidane að hann kæmi í vitnaleiðslur
þann 19. desember, og ég vonast eftir því að frá honum og
öðrum leikmönnum fái ég sannleikann í málinu. Þeir verða
eiðsvarin vitni og verða að segja satt og rétt frá,“ sagði
Guariniello við franska blaðið Le Monde í gær.
Ítalskur prófessor í lyfjafræði, Gianmartino Benzi, upplýsti
í haust að í herbúðum Juventus hefði verið að finna 281 teg-
und af lyfjum og þar af hefðu að minnsta kosti fimm verið á
bannlista.
Zidane kallaður
fyrir rétt á Ítalíu
Zinedine Zidane
JANICA Kostelic frá Króatíu, hinn þre-
faldi Ólympíumeistari í alpagreinum á
síðasta ári, steig um helgina á skíði í
fyrsta skipti í tvo mánuði. Hún veiktist
alvarlega í haust af skjaldkirtilssjúkdómi
og varð að taka sér algjört hlé frá íþrótt-
inni. Að öðrum kosti hefði hún stofnað
lífi og heilsu í mikla hættu og jafnvel var
talið að ferill hennar væri á enda.
Ante Kostelic, faðir hennar og þjálfari,
sagði við dagblaðið Novi List í heima-
landi sínu að Janica hefði æft í tvo tíma á
laugardaginn og liði vel. Það væri hins-
vegar alveg óvíst hvenær hún yrði tilbú-
in til keppni í heimsbikarnum á nýjan
leik.
Janica Kostelic sigraði í svigi, stórsvigi
og alpatvíkeppni á Ólympíuleikunum í
Salt Lake City á síðasta ári.
Kostelic
aftur á kreik
„STJARNA David Beckhams á eftir
að skína skært á Spáni,“ segir þjálf-
ari Real Madrid, Carlos Queiroz, en
fyrirliði enska landsliðsins hefur átt
góðu gengi að fagna á Spáni með
stjörnuliði Real Madrid. Það heyrð-
ust margar efasemdarraddir þegar
Beckham ákvað að segja skilið við
Manchester United og ganga til liðs
við spænska stórliðið. Menn höfðu á
orði að Beckham myndi týnast í stjö
rnu prýddu liði Madridinga og hann
fengi ekki að njóta sín. En annað
hefur komið á daginn. Fyrirliði
enska landsliðsins hefur smollið eins
og flís við rass í lið þeirra hvít-
klæddu og samvinna hans, Luiz
Figo, Zinedine Zidane, Ronaldo og
Raúls hefur verið rómuð. Beckham
hefur skorað glæsimörk ásamt því
að leggja þau upp og um nýliðna
helgi sýndi Beckham hvað í hann er
spunnið þegar Real Madrid tókst að
leggja erkifjendur sína í liði Barce-
lona, í fyrsta skipti á Nou Camp í 20
ár.
„Beckham hefur komið sérlega
vel út í nýrri stöðu á miðjunni og í
hvert sinn sem hann spilar tekur
hann skref fram á við. Hann er afar
klókur spilari og hefur þroskast
mjög mikið á nokkrum mánuðum,“
segir Carlos Queiroz.
„Beckham er búinn að átta sig á
því hvenær hann á að hreyfa sig án
boltans, hvenær hann á að bíða og á
hvaða tímapunkti hann á að senda
boltann. Það er komið jafnvægi hjá
honum í stuttum sendingum og
löngum og við sem að liðinu koma
erum afar ánægðir með Beckham og
ég veit að hann er mjög ánægður
með veruna hjá okkur. Það tekur
sinn tíma hjá fólki að aðlagast nýjum
aðstæðum. Ronaldo tókst það sem
og Zinedine Zidane og Luis Figo og
af hverju ættu enskir leikmenn ekki
að geta það líka?“ segir Queiroz.
Þjálfari Real Madrid hrósar Beckham
Það verður gaman að fá aðspreyta sig með landsliðið og
ég hlakka mikið til starfans,“ sagði
Ívar í samtali við Morgunblaðið
skömmu eftir að hafa handsalað
samninginn við Ólaf Rafnsson, for-
mann KKÍ, í gær. „Mér finnst hafa
orðið miklar framfarir í kvenna-
körfuboltanum og ég veit að hóp-
urinn er góður sem hefur verið við-
loðandi landsliðið. Ég ætla að gera
mitt besta til að bæta liðið og
byggja ofan á það sem hefur verið
gert. Efniviðurinn er fyrir hendi og
eftir að hafa þjálfað kvennalið í
nokkur ár veit ég hvað þessar stelp-
ur sem stunda íþróttina geta,“ sagði
Ívar.
Ívar er öllum hnútum kunnugur í
körfuboltanum, bæði sem þjálfari
og leikmaður. Hann hóf að þjálfa
árið 1989 og hefur þjálfað óslitið
síðan, karlalið Snæfells, ÍA og
Hauka og kvennalið Hauka og ÍS
sem hann stýrir nú þriðja árið í röð.
Þá þjálfaði Ívar unglingalandslið
karla tímabilið 1997-98
Ívar hefur leikið 305 leiki í úr-
valsdeild, með Haukum, Snæfelli og
ÍA og hann á að baki 15 leiki með
A-landsliðinu.
Kvennalandsliðið tekur þátt í
tveimur verkefnum á næsta ári.
Liðið keppir í Evrópukeppni
smærri þjóða, Promotion Cup, sem
haldið verður í Andorra í júlí og í
ágúst tekur það þátt í Norðurlanda-
mótinu sem fram fer í Svíþjóð. Ívar
hyggst fljótlega velja æfingahóp en
stefnt er að því að útvega liðinu æf-
ingaleiki næsta vor til undirbúnings
fyrir stóru verkefnin næsta sumar.
Ívar þjálfar
kvennalandsliðið
ÍVAR Ásgrímsson var í gær ráð-
inn þjálfari kvennalandsliðsins í
körfuknattleik til næstu tveggja
ára og tekur hann við starfi
Hjartar Harðarsonar sem þjálf-
aði landsliðið í eitt ár. Ívar er nú-
verandi þjálfari Stúdína og
gegnir því starfi til loka tíma-
bilsins en þá mun hann kveðja
ÍS-liðið og einbeita sér alfarið
að þjálfun kvennalandsliðsins.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, býður Ívari Ásgrímssyni, landsliðsþjálfara, velkominn til starfa.