Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 41
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 41 Minni vinna! w w w . b e s t a . i s Nýbýlavegi 18 • 200 Kópavogi • Sími: 510 0000 Brekkustíg 39 • 260 Njarðvík • Sími: 420 0000 Miðási 7 • 700 Egilsstöðum • Sími: 470 0000 Labbakúturinn! •Enginn burður •Hleður sig sjálfur Jólavörur frá Danmörku Aðventukrans með kertum Verð kr. 4.800 Klapparstíg 44, sími 562 3614 Gátlisti fyrir fjallafer›ir fylgir Jólagjöf jeppamannsins Dreifing. Hönnun og umbrot • S. 577 1888 Fæst í næstu bókabú› STÓRMEISTARINN Þröstur Þórhallsson sigraði á sterku og vel heppnuðu móti sem haldið var í Ólafsvík um helgina. Alls tók 61 skákmaður þátt í mótinu, þar af sex stórmeistarar. Mótið var haldið til minning- ar um Ottó Árnason, frumkvöðul í skáklífi á Snæfellsnesi. Röð efstu manna varð þessi: 1. Þröstur Þórhalls- son, 7 v. 2. Sigurbjörn Björnsson, 6½ v. 3.–6. Jóhann Hjart- arson, Jón Viktor Gunnarsson, Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson, 6 v. 7.–11. Jón L. Árna- son, Stefán Kristjáns- son, Gunnar Björns- son, Magnús Sigurjónsson, Jóhann Ingvason, 5½ v. 12.–19. Regina Pokorna, Arngrím- ur Gunnhallsson, Ingvar Þór Jó- hannesson, Sævar Bjarnason, Sig- urður Daði Sigfússon, Jón Steinn Elíasson, Guðfríður Lilja Grétars- dóttir, Jón Magnússon, 5 v. 20.–27. Hilmar Viggósson, Dagur Arngrímsson, Sæbjörn Guðfinnsson, Rafn Jónsson, Hrafn Jökulsson, Halldór Pálsson, Guðfinnur Kjart- ansson, Hjörvar Steinn Grétarsson, 4½ v. 28.–35. Svanberg Pálsson, Páll Sigurðsson, Arnar Ingólfsson, Gísli Bogason, Viðar Gylfason, Rafn Guð- laugsson, John Ontiveros, Grímur Ársælsson, 4 v. o.s.frv. Aukaverðlaun fengu: Stigalausir: Jón Magnússon. Undir 1900: Jón Steinn Elíasson. Kvennaverðlaun: Regina Pokorna og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. Unglingaverðalaun: Dagur Arn- grímsson og Hjörvar Steinn Grét- arsson. Umgjörð mótsins var mjög vönd- uð líkt og í fyrra og heimamönnum til mikils sóma. Hannes tapaði í lokaumferðinni Hannes Hlífar Stefánsson (2.567) tapaði fyrir kúbanska stórmeistar- anum Neuris Delgado (2.530) í tí- undu og síðustu umferð Santo Dom- ingo Open sem fram fór í Dóminíska lýðveldinu. Hannes hlaut 6½ vinning og endaði í 15.–26. sæti eftir að hafa verið í toppbaráttunni allt mótið. Haraldur Baldursson (2.054) sigraði heimamanninn Fausto Puntier (2.243) í lokaumferðinni, hlaut alls 5½ vinning og hafnaði í 47.–61. sæti. Sigurvegarar mótsins með sjö vinninga urðu Vadim Milov (2.574), Liviu- Dieter Nisipeanu (2.675), Alexander Moi- seenko (2.618), Petr Kiriakov (2.555), Neur- is Delgado (2.530), Daniel H. Campora (2.503), Alejandro Ramirez (2.503), Denn- is De Vreugt (2.451) og Bartosz Socko (2.551). Alls tóku um 150 skákmenn þátt í mótinu sem var opið og meðal þátttakenda voru u.þ.b. 50 stór- meistarar. Stigahæst- ur keppenda var rúmenski stór- meistarinn Liviu-Dieter Nisipeanu (2675). Næstyngsti stórmeistari í heimi Mótið í Santo Domingo var sögu- legt að því leyti, að þar náði Alej- andro Ramirez frá Kosta Ríka loka- áfanga sínum að stórmeistaratitli og komst jafnframt yfir 2.500 stiga múrinn. Alejandro er einungis 15 ára gamall og verður því líklega næstyngsti stórmeistari í heimi. Þröstur sigraði á sterku móti í Ólafsvík Þröstur Þórhallsson SKÁK Ólafsvík 6.-7. des. 2003 MINNINGARMÓT UM OTTÓ ÁRNASON Daði Örn Jónsson dadi@vks.is ATVINNA mbl.is Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa milli kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunn- ar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður að lokinni bænastund. Allir velkomnir. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður á sanngjörnu verði að helgistund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Opið hús á morgun, miðvikudag, kl. 14. Sig- urjón Magnússon les úr bók sinni Borgir og eyðimerkur, hugvekju flytur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Kaffiveitingar, allir velkomnir. Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju kl. 20. Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl. 13. Brids aðstoð á föstudögum kl. 13. Þátt- taka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405. Laugarneskirkja. TTT-starfið kl. 16.15. (5.–7. bekkur). Jólafundur. Umsjón Þorkell Sigurbjörnsson, Sigurbjörn Þorkelsson og Andri Bjarnason. Fullorðinsfræðsla Laugar- neskirkju kl. 19.30. Í kvöld mun sr. Bjarni Karlsson ljúka haustönn fullorðinsfræðsl- unnar og fjalla um sorgina og reynslu trú- arinnar í tengslum við hana. Gott að koma. Gengið inn um dyr bakatil á austurgafli kirkjunnar. Aðgangur ókeypis og allir vel- komnir. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 20.30. Þorvaldur Halldórsson leiðir lof- gjörðina við undirleik Gunnars Gunnarsson- ar á flygilinn og Hannesar Guðrúnarsonar sem leikur á klassískan gítar. Gengið er inn um aðaldyr kirkju, eða komið beint inn úr Fullorðinsfræðslunni. Kl. 21 fyrirbænaþjón- usta við altarið í umsjá bænahóps kirkjunn- ar. Neskirkja. Fermingarfræðsla kl. 15.00. Vetrarnámskeið. Litli kórinn - kór eldri borg- ara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir velkomnir. Seltjarnarneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16.00. Starf fyr- ir 10–12 ára kl. 17.30. Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börn- um í Ártúnsskóla. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund á aðventu kl. 12. Tónlist, ritningarlestur og bæn. Allir velkomnir. Bænaguðsþjónusta með altaris- göngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra kl. 12.. Léttur málsverður. Helgistund í umsjón sr. Gunnars Sigurjónssonar. Jóhanna Linnet kemur og gleður okkur með söng, jólahapp- drætti og kaffi. Engin leikfimi. Síðasta sam- vera fyrir jól. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–19. (Sjá nánar www.digraneskirkja.is) Grafarvogskirkja. Eldri borgarar. Opið hús kl. 13.30. Helgistund, handavinna, spil og spjall. Kaffiveitingar, alltaf eitthvað gott með kaffinu. Kirkjukrakkar með börn á aldr- inum 7–9 ára kl. 17.30–18.30. Æskulýðs- félag fyrir unglinga í 9. og 10. bekk í Graf- arvogskirkju kl. 20. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur prestar kl. 9.15 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfs- sonar. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgnar í safnað- arheimilinu Borgum kl. 10–12. Samveru- stund kl. 14.30–16. Fræðandi innlegg í hverri samveru. Lagið tekið undir stjórn Sig- rúnar Þorgeirsdóttur. Kaffi og stutt helgi- stund. Allir hjartanlega velkomnir. Starf með 8–9 ára börnum í borgum kl. 17–18 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar. Starf með 10–12 ára börnum á sama stað kl. 18–19 í umsjón Dóru Guðrúnar og Bóasar. Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum 3, kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12. SELA yngri deild kl. 20–22. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðsfélagið (Meg- as) heldur vikulegan fund kl. 19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi þessara hópa hafa Anna Hulda Einarsdóttir og Sigríður Rún Tryggvadóttir. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Kl. 16.30–18 er op- ið hús fyrir 7–9 ára krakka. Kl. 20–22 er op- ið hús fyrir unglinga 13–15 ára. Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16. Spilað og spjallað. Nanna Guðrún mætt aftur eftir frí, galvösk að vanda. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30–19. Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 kirkjuprakkarar komnir í jólaskap, 6–8 ára krakkar í kirkjunni. Mikil dagskrá þar sem söngur, leikir og ný biblíumynd er uppistað- an. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir. Kl. 16 Litlir lærisveinar Landakirkju. Kóræf- ing hjá yngri hóp 1.–4. bekkur. Kl. 17. Litlir lærisveinar Landakirkju. Kóræfing eldri hóps, 5. bekkur og eldri. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upp- lýsingar á www.kefas.is AD KFUM, Holtavegi 28. Enginn fundur í kvöld. Sameiginlegur fundur á fimmtudag- inn, sjá auglýsingu þá. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15. Hópur 1 (Oddeyr- arskóli og 8. C Brekkuskóla). Glerárkirkja. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl. 18.10. Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 17.30 Mannakorn fyrir 6. og 7. bekk. Safnaðarstarf EFTIR kyrrðarstund miðvikudag- inn 10. desember, sem hefst kl.12 og lýkur um 12.30, verður jólastund Opna hússins, starf heldri borgara, í Árbæjar- og Grafarholtssöfn- uðum. Þessu starfi stjórna Vilborg Edda Lárusdóttir og Margrét Snorra- dóttir. Jólasaga verður lesin og jólasöngvar sungnir. Það er alveg víst að glatt verður á hjalla og jól fyrri ára rifjuð upp. Þær Vilborg og Margrét halda ennfremur úti vinaheimsóknum á vegum Árbæjarkirkju sem ætlað er að rjúfa einangrun eldri borgara í söfnuðinum. Er þetta þarft og mik- ilis metið starf þótt ekki fari hátt sem Árbæjarkirkja hefur innt af hendi um árabil. Margur er sá sem finnur sig í einsemd og einangrun ellinar. Viljum við hvetja allt safn- aðarfólk í Árbæ og Grafarholti, 67 ára og eldri, sem treystir sér til að koma og eiga góða og uppbyggj- andi aðventu og jólastund miðviku- daginn 10. desember. Morgunblaðið/Jim Smart Jólastund opna hússins í Árbæjarkirkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.