Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 35 ✝ María BergþóraÞorsteinsdóttir fæddist í Stykkis- hólmi 15. október 1931. Hún lést í Reykjavík 2. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Þorsteinn G. Þor- steinsson og Veron- ika Konráðsdóttir. Bræður Maríu eru Pétur, Jóhann og Sveinn (látinn). María eignaðist tvær dætur. Þær eru: 1) Veronika Jóhanns- dóttir, f. 14. febrúar 1951, maki Ólafur Ragnar Ingimarsson. Þau eiga þrjú börn, Jóhönnu, f. 1971, Maríu, f. 1976, maki Smári, f. 1972, þeirra dóttir er Veronika Heba f. 2001, Ásgeir, f. 1978. 2) Ingveldur Gyða Kristinsdóttir, f. 2. september 1958, maki Jón Kristinn Jónsson. Þau eiga tvær dætur, Veron- iku Sól, f. 1989, og Steinunni Selmu, f. 1992. María fluttist með foreldrum sínum frá Stykkishólmi til Reykjavíkur árið 1946 og bjó þar síð- an. Framan af starfsævinni vann María við ýmis störf tengd sjávarútvegi, en síðari hluta starfsævinnar vann hún ým- iss konar framreiðslustörf. Útför Maríu verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku mamma mín. Þú kvaddir þennan heim þriðjudaginn 2. desem- ber síðastliðinn eftir stutta en snarpa sjúkdómslegu. Þú lagðist inn á sjúkrahús 5. nóvember og varst látin 27 dögum síðar. Þú varst nýorðin 72 ára sem þykir ekki hár aldur í dag. Það er sárt að kveðja þig, sérstaklega þar sem það var að birta til í lífi þínu eftir tvö erfið ár. Á þessum tveimur árum hafðir þú þurft að taka þátt í veikindum bróður þíns og móður og fylgja þeim síðan báðum til grafar. Þú hafðir eignast nýtt og fallegt heimili fyrir aðeins fjórum mánuðum og allir samglöddust þér. Ég minnist þín sem glaværrar og kátrar konu sem hafði reynt ýmislegt á lífsleiðinni. Þér var mjög annt um þína nánustu og var fjölskyldan þér mikils virði. Þú sýndir dætrum mín- um mikla ástúð og umhyggju, og það voru ófáar ferðirnar sem þú komst til að passa þær. Þú lagðir ávallt mikla áherslu á að þær fengju góðan mat og á meðan þær borðuðu fengu þær að hlusta á ,,ömmusögur“. Sögurnar voru allar um atburði úr æsku þinni í Stykkishólmi þar sem þú ólst upp hjá ömmu og afa ásamt þremur bræðrum þínum. Alla þína ævi vannst þú mikið, framan af við störf tengd sjávarút- vegi en seinni árin ýmiss konar fram- reiðslustörf, lengst af á Umferðar- miðstöðinni. Þú varst dugleg og ósérhlífin og áttir til að furða þig á því þegar ungt og fullfrískt fólk kvartaði undan þreytu, því aldrei kvartaðir þú. Á vinnustöðum varst þú hrókur alls fagnaðar en lást þó ekki á skoðunum þínum ef þér mislíkaði eitthvað. Ég og fjölskylda mín kveðjum þig með sorg í hjarta. Kallið kom of fljótt og allt of snögglega. Dætur mínar sakna ömmu sinnar sárt. Elsku mamma mín, við munum ætíð varðveita minningu þína í hjarta okkar. Guð geymi þig og blessi minn- ingu þína. Þín dóttir Ingveldur Gyða og fjölskylda. Þegar aðventan hélt innreið sína með ljósadýrð til boðunar fæðing- arhátíðar frelsarans háðir þú þína or- ustu sem var stutt og hörð og þitt ljós flökti og slokknaði síðan. Útkoman fyrirfram gefin eins og hjá öllum en bara með mismunandi hætti og mis- hratt. Þú tókst þessu af æðruleysi eins og öðru í þínu lífi. Glaðværðin og gáskinn sem alltaf fylgdi þér varð þó undan að láta þegar stóridómur féll. Illkynja sjúkdómur sem ekkert mannlegt gat spornað við og þú hlaust að mæta örlögum þínum og skapara eins og við öll þegar komið er að endamarki. Ég er búinn að þekkja þig í 30 ár. Aldrei hefur borið skugga á milli. Þér lét ekki að vera með víl. Tókst hlutunum eins og þeir komu til þín, vannst úr málum á þinn hátt og kvartaðir ekki. Þú mundir tímana tvenna. Stundum þröngt í búi á uppvaxt- arárunum, fjölskyldan stór en for- eldrarnir samheldnir og bjuggu þér og ykkur systkinum heimili sem var til fyrirmyndar. Jafnvel var það svo að ýmsir aðrir áttu hjá ykkur athvarf um lengri eða skemmri tíma og alltaf virtist hægt að bæta við einum eða tveimur munnum að metta. Þetta breyttist ekkert í tímanna rás. Alltaf hægt að bæta við einum eða fleirum hvenær sem komið var inn á heimilið og alltaf nóg til handa öllum og allt velkomið. Þú hófst þitt æviskeið vestur í Stykkishólmi og síðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem þú bjóst til ævi- loka, lengst í Bogahlíð 18 eða tæp 50 ár. Þitt hlutskipti varð ekki löng skólaganga heldur störf við fisk- vinnslu þar sem þú lærðir til fiski- matsmanns, í bakaríi í Starmýri í mörg ár, matráðskona suður með sjó en lengst og síðast afgreiðslustörf og smurbrauðsdama á Umferðarmið- stöðinni. Þú varst forkur dugleg til vinnu og þrátt fyrir að þú varst frem- ur lágvaxin og hnellin þá voru skrefin hröð og afköstin mikil. Þín örlög voru að giftast ekki en áttir tvær dætur sem ólust báðar upp á Bogahlíðar- heimilinu í skjóli afa og ömmu sem ekki sáu sólina fyrir þessum gim- steinum sem þú nú skilur eftir þig ásamt fimm barnabörnum og einu langömmubarni. Sérstakt samband stórfjölskyldu sem skapaði umhverfi sem öllum leið vel í. Gestkvæmt og margir sem sóttust eftir samvistum við þetta heimili. Þitt samband við foreldrana náið og gott og þú leist á það sem heilaga skyldu þína að skila til baka eftir mætti til foreldranna umhyggju sem þau höfðu sýnt þér og dætrunum. Það tókst þér með heiðri og sóma. Áföll hafa þó dunið þétt yfir þessa fjölskyldu. Sveinn bróðir þinn lést fyrir rúmu ári og öldruð móðir í vor. Þetta varð þér þungbært, svo og breyting á þínum högum í sumar. Þú náðir að búa þér fallegt heimili í Þórðarsveig 1 í haust og gamli Boga- hlíðarandinn sveif þar yfir vötnum en þér var ekki ætlað að njóta þess. Ég vil að leiðarlokum þakka þér fyrir allt það sem þú varst okkur og kveðja þig eins og þú kvaddir þína nánustu: „Guð veri með þér.“ Ólafur R. Ingimarsson. Það er einkennilegt að hugsa til þess að hún Maja frænka sé dáin. Það er svo stutt síðan faðir okkar dó, amma og nú Maja. Maja frænka hef- ur alltaf verið órjúfanlegur hluti af Bogahlíðinni. Þegar við heimsóttum ömmu og afa fannst okkur alltaf til- heyra að hitta Maju líka. Ef hún var ekki til staðar spurðum við alltaf um hana. Maja tók alltaf á móti okkur með sitt glettna bros á vörum og bauð manni eitthvað að borða eða drekka. Hún var alltaf svo kát og gat gert óspart grín að sjálfri sér. Það var gaman að hlusta á sögurnar hennar, sögur úr Hólminum af gáskafullu rauðhærðu stúlkunni sem var svo uppátækjasöm. Sögur af því hvernig var að vinna í fiskinum í gamla daga og lífinu í verbúðunum. Maja var afar stolt af dætrum sínum og fjölskyld- um þeirra. Henni fannst gaman að segja frá áhugamálum barna- barnanna sinna en fylgdist líka vel með öðrum börnum í fjölskyldunni. Við systkinin byrjuðum alltaf á því að athuga hvort Maja frænka væri að vinna þegar við áttum leið um Um- ferðarmiðstöðina. Þar vann hún í mörg ár og þegar við vorum á leið heim í Vogana með rútunni var gott að kíkja fyrst til Maju. Föður okkar þótti afar vænt um stóru systur og henni um hann. Það hafði djúpstæð áhrif á hana þegar hann féll frá. Þeg- ar amma dó breyttist líf hennar til muna og hún flutti úr Bogahlíðinni í yndislega íbúð í Grafarholtinu. Hún var búin að koma sér mjög vel fyrir og það var orðið svo heimilislegt og fallegt hjá henni þegar hún skyndi- lega veiktist. Við systkinin eigum eftir að sakna Maju frænku, hún sem kom alltaf ef haldið var upp á afmæli og aðra merkisdaga í fjölskyldunni. Það var alltaf svo skemmtilegt að hafa hana í kringum sig. Megi Guð vera með dætrum henn- ar og fjölskyldum þeirra, styðja þau og styrkja í sorginni. Guðbjörg Málfríður, Þorsteinn Bergþór og Ingólfur Freyr. MARÍA BERGÞÓRA ÞORSTEINSDÓTTIR Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Elsku eiginmaður minn, faðir okkar og fóstur- faðir, STURLA BERG SIGURÐSSON, Torfufelli 48, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítala við Hringbraut þriðjudaginn 2. desember. Jarðarförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 10. desember kl. 13.30. Fyrir hönd systkina, vina og annarra vandamanna, Dagný Gloría Sigurðsson, Sigurður Josef Berg Sturluson, Kristófer Berg Sturluson, Reynir Þór Berg (Jorey) Resgonia, Rodney Berg Resgonia. Öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlý- hug vegna fráfalls og útfarar SIGRÚNAR MARKÚSDÓTTUR MÖLLER, sendum við innilegar þakkir og kveðjur. Markús Möller, Júlía Ingvarsdóttir, Jakob Möller, Sigrún Snævarr, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum aðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, SIGDÓRS HALLSSONAR fyrrum bónda í Grænuhlíð, Löngumýri 8, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheim- ilinu Hlíð. Árnína S. Guðnadóttir, Sóley Sigdórsdóttir, Davíð Þ. Kristjánsson, Rósa Sigdórsdóttir, Sigurveig Davíðsdóttir, Ármann P. Ágústsson, Heiðdís Maitsland, Páll Guðmundsson, Sólveig Davíðsdóttir, Tryggvi Ómarsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir og langafabörn. Okkar kæra, STEINUNN HELGADÓTTIR frá Skutulsey, Efstalandi 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 7. desember. Systkini hinnar látnu, Tómas Rögnvaldsson og fjölskylda. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HELGA KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 4. desember. Hún verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju nk. laugardag, 13. desember, kl. 13.30. Karl Sævaldsson, Árni Finnsson, Jóninna Gunnlaug Karlsdóttir, Guðmundur Áskelsson, Anna Guðný Karlsdóttir, Hörður Hólm Másson, Brynja Karlsdóttir, Ingunn Helga Karlsdóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar, MARÍA JÓHANNSDÓTTIR fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma, Flateyri, sem lést föstudaginn 5. desember, verður kvödd í Flateyrarkirkju þriðjudaginn 9. desem- ber kl. 20.30. Útför verður gerð frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 12. desember kl. 13.30. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, Einar Oddur Kristjánsson. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, STELLA BRYNDÍS PÉTURSDÓTTIR, Skarðshlíð 15C, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 27. nóvember. Útför hennar fór fram í Höfðakapellu föstudaginn 5. desember í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum samúð og hlýhug. Hjördís Petra Jónsdóttir, Helgi Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.