Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 7 UMHVERFISSAMTÖK óttast að löggjöf um kemísk efni, sem Evrópu- sambandsins er með í undirbúningi, nái ekki þeim markmiðum sem að var stefnt, að sögn Tryggva Felix- sonar, framkvæmdastjóra Land- verndar. Markmiðið með löggjöfinni var að tryggja meiri varfærni og ör- yggi í framleiðslu og meðferð þess- ara efna. Sidsel Dyekjær frá Det ökologiske råd og Sigurbjörg Gísladóttir, for- stöðumaður stjórnsýslusviðs Um- hverfisstofnunar, ræddu þessi mál á fundi hjá Umhverfisstofnun en Sids- el Dyekjær leggur áherslu á að at- vinnulífið á Norðurlöndunum og frjáls félagasamtök á sviði umhverf- ismála taki þessi mál til umræðu og reyni að hafa áhrif á löggjöf ESB. Landvernd, sem tók þátt í fund- inum, bendir á að mörg þúsund kem- ísk efni sem eru í almennri notkun hafa aldrei verið prófuð m.t.t. þess hvort þau hafi áhrif á heilsufar manna eða á umhverfið. Notkun kemískra efna hafi margfaldast und- anfarna áratugi. Árið 1930 sé áætlað að notkun kemískra efna í heiminum hafi verið um ein milljón tonna á ári. Í dag sé árleg notkun um 400 millj- ónir tonn. Kemísk efni séu notuð í margskonar framleiðsluvörur, til að leysa vandamál og til að auka þæg- indi okkar. En við vitum ekki hvaða verði þau séu keypt vegna neikvæðra umhverfisáhrifa og verri heilsu. Segir lög ekki fullnægjandi Tryggvi segir að lög og reglur sem gilda um notkun efna sem hafa verið í umferð frá því fyrir 1981 séu á engan hátt fullnægjandi. Um markaðssetn- ingu nýrri efni hafa hins vegar gilt mjög strangar reglur sem hafi að vissu marki staðið framþróun fyrir þrifum. Evrópusambandið hafi við- urkennt vandann og hafi nú gert til- lögu að nýrri löggjöf sem eigi að tryggja meiri varfærni og öryggi í þessum málum. Tillögurnar hafi hins vegar tekið breytingum vegna mikils þrýstings frá efnaframleiðendum. Þær vonir sem umhverfisverndar- sinnar hafi bundið við tillögurnar hafi því dvínað. Tryggvi segir að í gegnum tíðina hafi menn uppgötvað ókosti við ýmis efni sem notuð hafa verið. Það hafi síðan kostað mikla fyrirhöfn að losna við efnin og bæta þann skaða sem þau hafi valdið. Eðlilegra sé að setja eins konar forvarnarreglur sem komi í veg fyrir að menn setji á markað efni sem valdi skaða. Þessi nýja lög- gjöf gengur undir nafninu REACH. Tillögurnar fela í sér að efnafram- leiðendur verða ábyrgir fyrir því að efni séu skráð og metin og undir strangara eftirliti en verið hefur fram að þessu. ESB undirbýr nýja löggjöf um kemísk efni Eitt prests- embætti bætist við í Grafarvogi BISKUP Íslands hefur auglýst laus til umsóknar tvö embætti prests í Grafarvogsprestakalli, fjölmennasta prestakalli landsins. Annað embætt- ið er auglýst þar sem sr. Sigurður Arnarson hefur verið skipaður prestur í London en hitt embættið er nýtt. Verður prestum þjóðkirkjunn- ar í Grafarvogi því fjölgað úr þremur í fjóra. Sr. Bjarni Þór Bjarnason hefur leyst sr. Sigurð af í Grafarvogi og fastlega er búist við að hann sæki um embætti nú. Fyrir eru í Grafarvogs- prestakalli sr. Vigfús Þór Árnason sóknarprestur og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Senn skýrist hver tekur við starfi sóknarprests í Nesprestakalli af sr. Frank M. Halldórssyni en umsókn- arfrestur rennur út um miðjan mán- uðinn. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er sr. Örn Bárður Jónsson, prestur í sömu sókn, meðal umsækjenda. ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.