Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞETTA verk á það sameiginlegt með Áfram, sólóskífu Ásgeirs Ósk- arssonar sem út kom fyrir stuttu, að eiga sterkar rætur í hljóðheimi átt- unda áratugarins. Þessir fyrrum gömlu spilafélagar (þeir voru m.a. saman í Pelican og Póker) starfa reyndar dáldið saman á þessari plötu en Ásgeir sér nærfellt um allan trommuleik. Þá léði Björg- vin Ásgeiri smávegis sítarleik á plötu þess síðarnefnda. Púnktur er hálft í hvoru samansafn laga, og er þar með ólík plötu Ásgeirs, sem innihélt einungis ný lög. Hér er t.d. eitt lag frá 1971, tvö eru frá sóló- plötu Björgvins frá 1977 í breyttri út- setningu og þá eru líka lög frá Frakkaárum Björgvins, en þá sveit leiddi Mike Pollock eftir að sveitirnar Utangarðsmenn og svo Bodies voru hættar störfum. Björgvin tók nokk- urn þátt í síðpönkinu og lék t.a.m. með Das Kapital í blábyrjun. Mörg laganna hér eru ansi „progg- uð“, eða í anda „progressive“ rokk- tónlistar áttunda áratugarins. T.d. „Brotið...“ og „Reimleikar“. Sum hver, eins og „Kóngurinn“, sem er frábærlega furðulegt og grípandi, er hins vegar í anda síðpönksins og hlýt- ur því að vera gömul Frakkastemma. „Öræfarokk“ og „Fenderinn“, lögin af sólóplötunni frá 1977, eru þá ansi Þursaleg, þó að ár hafi verið í að sú eðla sveit gæfi út plötu! Nýju lögin snerta svo á öllum þess- um flokkum. Smíðarnar eru síst hefð- bundnar, eiginlega frekar sérkenni- legar. Allur bingurinn stendur þó teinréttur sem heild, þar sem einhver auðþekkjanlegur „Björgvins“-þráður heldur öllu, gömlu sem nýju, saman. Björgvin er satt að segja skrambi góður lagahöfundur og með afar áhugaverða nálgun við það fróma fag. Margt má aukinheldur til taka sem styrkir verkið enn frekar. Trommu- leikur Ásgeirs er firnagóður, þar sem minna er alltaf meira. Hljómur plöt- unnar er mjög góður og Björgvin skeytir smekklega inn aukahljóðum hér og hvar. Rödd Björgvins kryddar þá líka skemmtilega, er hrá og rafta- leg – en um leið mjög persónuleg og viðkunnanleg þar sem hún kemur hálfpartinn hvíslandi upp að þér. Síðasta lagið, „Hlustað á þögnina“, er eins og dæmi um að Björgvin geti samið „hefðbundin“ og falleg lög, sýn- ist honum svo. En að megninu til lýt- ur platan reglum þess sem skeytir lít- ið um viðteknar venjur í dægurtónlistarsmíð. Sem er einmitt það sem gerir þessa plötu svo spenn- andi og þess virði að leggja sig eftir. Góður púnktur. …og basta Morgunblaðið/Jim Smart „Björgvin er satt að segja skrambi góður lagahöfundur og með afar áhugaverða nálgun við það fróma fag,“ segir m.a. í dómi um nýja sóló- plötu Björgvins Gíslasonar. Björgvin Gíslason Púnktur Púnktur, fimmta sólóskífa Björgvins Gísla. Björgvin syngur og flytur. Þorkell Símonarson á texta. Björgvini til að- stoðar eru Ásgeir Óskarsson (trommur), Hjörleifur Valsson (fiðla), Sif Björnsdóttir (selló), Jens Hansson (saxófónn). Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á www.keli.is/bjoggi/. Þar er einnig hægt að ná í plötuna Bio (2001) ókeypis á mp3 sniði. Smákóngur Arnar Eggert Thoroddsen DANIEL Mille er einna fremstur ungra Frakka er fæst við þá tegund tónlistar sem stundum er nefnd heimsdjass. Tónlist sem byggist á þjóðlegri hefð og blandar hana áhrif- um djassins. Margir af fremstu stíl- sköpurum í tónlist nútímans hafa farið þessa leið og nægir að nefna Jan Garbarek í norðri og Astor Piaz- zolla í suðri. Mille byggir á hefð hnappanikk- arans Richards Gallianos, sem segja má að hafi endurnýjað frönsku mus- ett-tónlistina. Það var Astor Piaz- zolla sem sagði eitt sinn við Galliano: ,,Þú ert orðinn allt of ameríkanser- aður. Þú ættir að leita hins franska uppruna þíns. Drekktu í þig tónlist þjóðar þinnar og endurnýjaðu hana eins og ég gerði við tangóinn.“ Það gerði Galliano og Mille hefur fetað í fótspor hans og er einna fremstur franskra heimsdjasssista um þessar mundir. Tónlist hans er seiðandi og kynngimögnuð og fljót- lega nær hann valdi á áheyrandan- um – manni finnst maður þekkja tón- mál hans hvort sem lögin eru frumsamin eður ei. Tónleikar hans í NASA voru mikil skemmtun og félagar hans í tríóinu frábærir, félagi hans til margra ára, Jean Christophe Maillard, lék aðal- lega á gítar, þótt hann gripi stundum í píanóið og syngi og trommarinn Pascals, sem er nýliði í hópnum, var snilldarlegur á trommusettið og slagverkið, hvort sem hann notaði hefðbundna kjuða eða sósujafnara til að slá með. Flest lögin fyrir hlé voru af nýrri skífu Daniels: Entre chien et loup. Fyrst hið grípandi Les minots þar sem Jean-Christophe lék langan grípandi sóló á gítarinn. Mille var fínn á nikkuna, en greinilegt var á þessum tónleikum að röddin var ekki í fullkomnu lagi, trúlega hálsbólga, og söng hann því minna í falsettu en heyra má á plötum hans. Les err- ansces d’une valse eftir Jean-Christ- ophe er einnig hrífandi verk í svít- ustíl þar sem hann lék m.a. á píanó og var nokkuð sambabragð af söng hans. Það var feikigaman að trommuleik Pascals, ekki síst er hann upphóf að tromma á líkama sinn og félagarnir tóku undir, hann barði svo slagverkið hraustlega og náði hápunkti í miklum trommusóló þar sem hann notaði sósupískara í stað kjuða. Í lokaverkinu, Harmatt- an, mátti halda að harmonikka Dani- els væri gædd mannsrödd og svo var aukalagið – eini ópusinn sem flestir í salnum þekktu – Estate eftir Arg- entínumanninn Bruno Martini, sem hann lék gjarnan með hljómsveit sinn á Scala í Kaupmannahöfn. Þessir tónleikar voru mikið ævin- týri og sýndu vel hversu franskir djassleikarar sækja áhrif til ólíkra átta – hvort sem er í eigin tónlist, spænskt flamenco, afrískan hryn eða amerískan djass. Þökk sé Alliance Française og franska sendiráðinu fyrir tónaveisluna. Seiður Mille Vernharður Linnet DJASS NASA Daniel Mille, takkaharmonikka, rödd; Jean Christophe Maillard, gítar, píanó og rödd og Pascal Rey trommur, slagverk og rödd. NASA, laugardagurinn 29. nóv- ember kl. 17. TRÍÓ DANIEL MILLE Í HEITI þessa disks Indigo er gef- ið til kynna að fyrri hluti sé þegar kominn út, en engin deili veit ég á honum, hef hvort heyrt né séð Escap- ism I. Ekki hef ég heldur heyrt til Ind- igo áður en það var vel þess virði að gefa sér tíma til að kynnast því sem hann (þeir?) hefur fram að færa. Útsetningar laga á disknum eru naumhyggjulegar í meira lagi, oft varla nema útlínur að laglínum, brot- hættur hikandi söngur og lágstemmd rafeindahljóð. Fyrir vikið þarfnast þau nokkurrar hlustunar þar til þau tínast saman í höfði áheyranda, fín- legur hljómavefur. Textarnir eru þunglyndislegir, eða það sem skilst af þeim í það minnsta, þegar sungið er svo hægt með íslenskum framburði er stundum erfitt að skilja hvað verið er að syngja, en það sem skilst er í góðu lagi. Hljóðfæraleikur er einfaldur í takt við útsetningarnar, yfirleitt píanó með stroknum kassagítar, daufum bassa og ýmislegum tölvugerðum hljóðum undir; mjög smekklega gert. Í einu lagi leikur selló stórt hlutverk, en hugsanlega er það komið úr hljóð- smala. Bestu lögin eru Losing You, þar sem teygt er úr laglínunni á skemmti- legan hátt, píanó og gítar kallast á í laglínunni. Í Drive it Down er heldur meira í gangi, meira skraut þó gítar og píanó beri lagið uppi. Í Stay for Laughter er vel farið með klingjandi bjölluhljóm og TV Sky er líka gott lag. Það lag, og fleiri á plötunni, er reyndar svo traust að myndi þola meiri útsetningu, meiri hljóðfæraleik og hljóðstyrk. Þessi plata Indigo krefst nokkurr- ar yfirlegu eins og nefnt er að ofan, en hún er vel þess virði, mjög skemmti- leg skífa með bráðgóðum lagasmíðum og flutningi. Bestu meðmæli. Tónlist Fínlegur hljómavefur Indigo Escapism Part II (Her Shoulder) Slátur Escapism Part II (Her Shoulder), geisla- diskur Ingólfs Þórs Arnarsonar sem kall- ar sig Indigo. Ingólfur semur öll lög einn nema tvö, annað þeirra semur hann með Oddi M. Rúnarssyni og annað með Oddi og Jasmin. Ingólfur og Daníel Ágúst Har- aldsson flytja lögin, Gabríela leikur á bað- kar og einhver leikur á selló. Slátur gefur út. Árni Matthíasson JÓLAMYND Kvikmyndasafns Ís- lands er sænska kvikmyndin Fanny och Alexander frá 1982 eftir Ingmar Bergman. Þessi marg- verðlaunaða mynd sem margir telja meðal þeirra bestu sem Berg- man gerði spann- ar ár hjá Ekdahl- fjölskyldunni og er séð með augum Alexanders litla sem er leiður yfir því að hafa misst föður sinn og að móðir hans hafi gifst biskupi sem á stórt kuldalegt hús sem þau flytja í. Bergman tekur á tilfinningum fjöl- skyldunnar við umskiptin. Sagt hef- ur verið að í myndinni dragi Berg- man saman í eitt alla þá þræði sem hann hefur spunnið á löngum og gæfuríkum ferli. Myndin er 188 mín. löng, í lit og með íslenskum texta. Jólamyndin í Bæjarbíói Fanný og Alexander Fanný og Alexand- er: Ekkert gaman að eiga biskupinn fyrir stjúpföður. Fanný og Alexander er sýnd kl. 20 í kvöld og kl. 16 á laugardag. Stóra svið Nýja svið og Litla svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Lau 13/12 kl 14 - UPPSELT, Su 14/12 kl 14 - UPPSELT Lau 27/12 kl 14 - UPPSELT, Su 28/12 kl 14 - UPPSELT Lau 3/1 kl 14, Su 4/1 kl 14, Lau 10/1 kl 14, Su 11/1 kl 14 Su 18/1 kl 14, Lau 24/1 kl 14 Su 25/1 kl 14 - UPPSELT, Lau 31/1 kl 14 ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Fö 9/1 kl 20 Miðasala: 568 8000 Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00 miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00 laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00 KVETCH e. Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Fö 12/12 kl 20 AUKASÝNING Allra síðasta sýning SAUNA UNDER MY SKIN Gestasýning Inclusive Dance Company - Noregi Su 14/12 kl 20 www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is Meira (en) leikhús! TIL SÖLU ALLA DAGA: LÍNU-BOLIR, LÍNU-DÚKKUR **************************************************************** LÍNU-LYKLAKIPPUR, HERRA NÍELS, HESTURINN **************************************************************** GJAFAKORT Á LÍNU LANGSOKK KR. 1.900 BROT AF ÞVÍ BESTA í samstarfi við KRINGLUSAFN BORGARGÓKASAFNSINS og KRINGLUNA Höfundar lesa úr nýútkomnum bókum: Hallgrímur Helgason, Hlín Agnarsdóttir, Flosi Ólafsson, Guðmundur Steingrímsson, Ævar Örn Jósepsson og Sigurður Pálsson Jóladjass: Davíð Þór Jónsson, Óskar Guðjónsson Fi 11/12 kl 20:30 - Aðgangur ókeypis SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams Forsýning fö 26/12 kl 20 - kr. 1.500 FRUMSÝNING lau 27/12 kl 20 - UPPSELT Su 28/12 kl 20, Fö 2/1 kl 20, Lau 3/1 kl 20 LAU. 13/12 - KL. 18 UPPSELT LAU. 13/12 - KL. 22 ÖRFÁ SÆTI LAUS SUN. 14/12 - KL. 19 UPPSELT LAU. 20/12 - KL. 15 LAUS SÆTI SUN. 21/12 - KL. 15 LAUS SÆTI ATH! SÝNINGAR HÆTTA UM ÁRAMÓTIN ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Leikhópurinn Á senunni nýtt barnaleikrit eftir Felix Bergsson Sun. 14. des. kl. 14. Sun. 21. des. kl. 14. Miðasala í síma 866 0011 www.senan.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.