Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Arn-
arfell kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Cielo di Londra kemur
í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg 5.
Fatamóttaka og fataút-
hlutun þriðjudaga kl.
13–18 og fimmtudaga
kl. 15–18, sími 867 7251.
Bókatíðindi 2003.
Númer þriðjudagsins
9. desember er 087844.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–11.30
sund.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðsla, kl. 10
samverustund, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16
vinnustofa, tréskurður,
postulín, kl. 10–11 leik-
fimi, kl. 12.40 versl-
unarferð, kl. 9–12 hár-
greiðsla, kl. 13.15–13.45
bókabíll.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna. Kl. 15
söng og harmoniku-
stund í borðsal.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, frjáls prjóna-
stund, leikfimi í Bjark-
arhúsi kl. 11.30, brids
og saumur kl. 13, bilj-
ard kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Skák kl. 13, alkort spil-
að kl. 13.30. Miðviku-
dagur: Göngu-Hrólfar
ganga frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 10.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellssveit. Opið
kl. 13–16.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf.Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10 „gleðin léttir lim-
ina“, létt ganga og fl.
Kl. 13 boccia. S.
757 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
línsmálun, kl. 9.05 og
kl. 9.55 leikfimi, kl.
10.50 róleg leikfimi, kl.
14 ganga, kl. 14.45
boccia, kl. 19 brids. Kl.
20 menningarvaka
„skapandi skrifa“ og
myndlistarhópsins.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinna.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín og glerskurður,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 mynd-
list, línudans og
hárgreiðsla. Kl. 15 línu-
dans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–10 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju- og
föstudaga.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun, miðvikudag
10. desember, spilað í
Fjölnissal kl.13.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
skinnasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl.
9.15–16 postulín, kl.
10.15–11. 45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leik-
fimi, kl. 13 handmennt,
og postulín, kl. 14 fé-
lagsvist.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
almennt föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði kl. 20, í
kvöld svarað í s.
552 6644 á fundartíma.
Öldungaráð Hauka.
Munið jólafundinn í
annað kvöld, miðviku-
dag, kl. 20 á Ásvöllum.
Í dag er þriðjudagur 9. desem-
ber, 343. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Verðið heldur
sjálfir heilagir í allri hegðun,
eins og sá er heilagur, sem
yður hefur kallað.
(1Pt. 1, 15)
Hinrik M. Ásgeirssonsegir í pistli á vefriti
Ungra jafnaðarmanna að
fjármál stjórnmálaflokka
eigi að vera opinber.
Hinrik segir að ýmsiralþingismenn, þar á
meðal úr röðum sjálf-
stæðismanna, telji mik-
ilvægt fyrir lýðræði í
landinu að eignarhald á
fjölmiðlum sé ljóst. Hins
vegar séu sömu þing-
menn gjarnan mótfallnir
því að fjármál stjórn-
málaflokka skuli gerð
opinber. „Hvernig má
það vera að sjálfstæð-
ismenn telji ríka al-
mannahagsmuni felast í
því að vita hverjir séu
eigendur fjölmiðla en á
sama tíma enga al-
mannahagsmuni felast í
því að borgarar geti haft
eftirlit með fjármálum
stjórnmálaflokka?“ spyr
Hinrik.
Almenningur hefur réttá því að vita hverjir
styðja stjórnmálaflokka
fjárhagslega og enn-
fremur hverjir styrkja
einstaka stjórnmálamenn
í prófkjörum. Tökum
dæmi: Gefum okkur að
frumvarp sé lagt fyrir Al-
þingi sem kveður á um
takmörkun á eign ein-
staklinga í fjölmiðlum.
Undir þeim kringum-
stæðum myndi það skipta
öllu máli ef að aðili á fjöl-
miðlamarkaði sem stæði
illa í samkeppni væri að
styrkja stjórnmálaflokka
um stórar upphæðir eða
hefði kostað miklu til við
prófkjör þingmanns sem
lagði fram frumvarpið.
Hagsmunir almennings
til að vita af þessu eru
klárlega ríkari en hags-
munir fyrirtækisins um
leynd yfir framlagi sínu.
En Sjálfstæðisflokk-urinn er ekki einn
um að vera gagn-
rýniverður. Forsvars-
menn Samfylkingarinnar
hafa ítrekað lofað því að
birta bókhald flokksins
opinberlega. Með því að
birta ekki bókhald sitt
hafa þeir dregið veru-
lega úr málefnalegu gildi
eigin stefnu. Almenn-
ingur hlýtur að spyrja sig
hve mikið hjartans mál
þetta er fyrir Samfylk-
inguna þar sem ekki er
enn búið að birta bókhald
flokksins, fjórum árum
eftir að því var lofað.
Það er augljóst að ríkiralmannahagsmunir
eru fyrir því að setja
reglur um fjármál stjórn-
málaflokka. Ein-
staklingar væru þá betur
hæfir til að taka ákvörð-
un um hverjum þeir
treysta til að vera fulltrú-
ar sínir á Alþingi eða
sveitarstjórnum auk þess
sem stjórnmálamenn
fengju meira lýðræð-
islegt aðhald. Samfylk-
ingin á efna loforð sitt og
opna sitt bókhald, setja
strangar reglur um próf-
kjör sín og birtingu
styrkja til þeirra sem
taka þátt í prófkjörum,“
segir Hinrik á www.poli-
tik.is.
STAKSTEINAR
Fjármál
stjórnmálaflokka
Víkverji skrifar...
Illa er komið fyrir íslenska ljóðinu.Það selst ekki. Ef samantekt Fé-
lagsvísindastofnunar fyrir Morg-
unblaðið á bóksölu dagana 25. nóv-
ember til 1. desember er skoðuð, en
hún birtist hér í blaðinu sl. fimmtu-
dag, kemur í ljós að aðeins þrjár
ljóðabækur náðu lágmarkssölu –
sem er fimm eintök – þessa daga.
Þar af aðeins ein ný bók, Ljóð-
tímavagn eftir Sigurð Pálsson. Hin-
ar eru Jólin koma eftir Jóhannes úr
Kötlum og Hávamál. Víkverji ber
mikla virðingu fyrir ljóðinu og telur
ástæðu til að hafa áhyggjur af þess-
ari staðreynd. Hvernig getur þjóð,
sem alin er upp við skáldskap í
bundnu máli, sýnt þessu góða formi
slíkt tómlæti?
x x x
Á sama lista vekur líka athygli aðaðeins eitt íslenskt skáldverk er
í hópi tíu söluhæstu bókanna, Bettý
eftir Arnald Indriðason. Fimm bæk-
ur heyra til flokknum ævisögur og
endurminningar og þrjár flokknum
almennt efni og handbækur. Tíunda
bókin og raunar sú mest selda er
svo Harry Potter og Fönixreglan.
Gott hjá bókaþjóðinni!
x x x
Talandi um bækur. Víkverji var ádögunum að fletta bókinni Ís-
lendingar á Ólympíuleikum eftir
Gísla Halldórsson sem Íþrótta- og
Ólympíusamband Íslands gaf út á
dögunum. Merk heimild þar á ferð.
Við það rifjaðist upp fyrir honum
tilvist mikils afreksmanns, Einars
Vilhjálmssonar spjótkastara. Hann
var á sínum tíma einn ástsælasti
keppnismaður þjóðarinnar enda
náði hann árangri á heimsmæli-
kvarða í grein sinni, setti fjölmörg
Íslands- og Norðurlandamet og var
ítrekað valinn Íþróttamaður ársins
hér heima.
En Einar var ekki síðri í orði en á
borði. Víkverji man ekki eftir skel-
eggari íþróttamanni í annan tíma.
Honum gekk upp og ofan á stórmót-
um, eins og algengt er á löngum
ferli, en aldrei rak kappann í vörð-
urnar – allra síst þegar árangur
stóð ekki undir væntingum. Víkverji
lætur hér fljóta með ummæli sem
höfð eru eftir Einari í téðri bók:
„Ég gerði mér snemma grein fyr-
ir því að spjótkastinu fylgir meira
dagsfrávik hvað árangur varðar en í
flestum öðrum íþróttagreinum.
Hvað þá fyrir örvhenta kastara ef
aðstæður í lofti eru ekki eins fyrir
vinstri- og hægrihandar kastara en
spjótin snúast um lengdaröxul sinn í
gagnstæða átt hjá vinstri- og hægri-
handar kösturum.“
Víkverji saknar þess tíma er Ein-
ar Vilhjálmsson stóð í eldlínunni
með spjótið.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Bókaþjóðin lætur ekki að sér hæða.
Reynslusaga
NOKKUÐ er um liðið síðan
ég fann það út að ég þyrfti
að fá mér sterkari lesgler-
augu. Ég fór til Gunnars
Sveinbjörnssonar augn-
læknis, sá ágæti maður
skoðaði mig vel og sagði
mér að ég væri með byrj-
andi gláku, augnsjúkdóm
sem leiðir til blindu sé ekk-
ert að gert. Með sinni þekk-
ingu stöðvaði hann frekari
þróun glákunnar.
Hefði ég hinsvegar lent
hjá sjóntækjafræðingi hefði
ég að sjálfsögðu fengið rétt
gleraugu miðað við þáver-
andi sjón. En hann hefði
hvorki haft þekkingu né
tækni til að sjá út glákuna.
Semsagt, ég hefði ómeð-
vitað þróað með mér glák-
una, blinduvaldinn.
Eru þessi rök ekki nóg til
að fólk sjái að augnlæknar
einir eiga að mæla sjón
fólks?
Sjálfur er ég skipasmiður
en aldrei hefir hvarflað að
mér að fá stýrimannsrétt-
indi þótt ég smíði skipið.
Sigurður Sigurðarson.
1. desember
ERU allir búnir að gleyma
því að 1. desember í ár eru
85 ár liðin síðan Ísland varð
fullvalda ríki?
Ég sá ekki einu einasta
orði minnst á það í Morg-
unblaðinu þann dag, heyrði
ekki heldur á það minnst í
útvarpi (sem þó kynni að
hafa farið fram hjá mér; ég
hlusta ekki mikið á það).
Fréttablaðið taldi upp ýmsa
merkilega atburði – að þess
mati – sem gerst hefðu
þennan dag, svo sem fæð-
ingu Bette Midler 1945,
morðið á Sergei Kirov 1934,
útkomu fyrstu ævintýra-
bókar H.C. Andersens
1835, opnun fyrstu innan-
húss bílaviðgerðaþjónustu í
Pittsburgh 1913, tilkynn-
ingu um fyrstu kynskipta-
aðgerðina í Danmörku
1952, og samning tólf landa
um Suðurskautslandið 1959
– allt mögulegt nema full-
veldi Íslands 1918.
Skammist ykkar, öll upp
til hópa!
Hallberg Hallmundsson,
Álftamýri 14, R.
Kynlífsþjónusta
til kaups og sölu
MIG langar aðeins að biðja
Val Einarsson, verkfræð-
ing og stjórnarmann í
Frjálshyggjufélaginu, og
aðra sama sinnis og hann,
að velta fyrir sér hvernig
honum þætti ef kona hans,
dóttir, sonur, systir, bróðir
eða annar honum kær
stundaði vinnu við kynlífs-
þjónustu.
Á meðan við getum ekki
sagt að okkur þætti það hið
besta mál þar sem um væri
að ræða fullkomlega eðli-
lega og heiðarlega vinnu,
getum við ekki talað um
kynlífsþjónustu sem eðli-
legan og sjálfsagðan sölu-
varning.
Þórey Einarsdóttir,
Mávahlíð 23, R.
Óánægður áskrifandi
ÉG er áskrifandi að Stöð 2
og borgaði fyrir september
kr. 4.326. Hins vegar hækk-
aði gjaldið í október upp í
5.091 en þá bættist við eitt-
hvert tryggingargjald. Er
ég ekki sáttur við þetta.
Svo langar mig að minn-
ast á breytinguna á útsend-
ingartíma fréttanna hjá
Stöð 2. Ég er einn af þeim
sem horfði alltaf á fréttirn-
ar á báðum stöðvum, eftir
breytinguna horfi ég aðeins
á fréttatímann hjá Ríkis-
sjónvarpinu. Finnst mér
furðulegt að ekki sé hægt
að hafa fréttatímann á öðr-
um tíma en hjá ríkissjón-
varpinu svo hægt sé að
njóta þess að horfa á báðar
stöðvarnar.
Eldri borgari.
Sammála óánægðum
MIG langar til að taka und-
ir með óánægðum lesanda
sem skrifar í Velvakanda sl.
föstudag um að Fréttablað-
ið og Dagblaðið komi ekki
reglulega. Þetta hefur verið
svona hjá mér en ég bý í
Grafarvogi.
Önnur óánægð.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Hjálpsemi
LÁRÉTT
1 samþykk, 4 uppgerð-
arveiki, 7 sjúga, 8 suð, 9
eyktamark, 11 eyðimörk,
13 vaxa, 14 kynið, 15
hryggð, 17 fiskurinn, 20
bókstafur, 22 hnappur,
23 spottum, 24 skilja eft-
ir, 25 meðvindur.
LÓÐRÉTT
1 ætlast á um, 2 ástríki, 3
spilið, 4 bráðum, 5 tölur,
6 falla í dropum, 10
mannsnafn, 12 fljót að
læra, 13 hávaða, 15 gisti-
hús, 16 hundur, 18 reg-
nýra, 19 góðgæti, 20
hlífa, 21 þrábeiðni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 frekjudós, 8 álfur, 9 græða, 10 aða, 11 mælir,
13 reist, 15 brons, 18 skart, 21 nýt, 22 renna, 23 artin, 24
gróðafíkn.
Lóðrétt: 2 ræfil, 3 kórar, 4 ungar, 5 ókæti, 6 sálm, 7
hatt, 12 inn, 14 eik, 15 bara, 16 ofnar, 17 snauð, 18 starf,
19 aftók, 20 tonn.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16