Morgunblaðið - 09.12.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Garðar ætlar að lesa upp úr Passíusálmunum fyrir ráðherrann.
Ný Nordplus-menntaáætlun
Mótandi og
styrkjandi
Nordplus, nýmenntaáætlunnorrænu ráð-
herranefndarinnar, tekur
gildi í ársbyrjun 2004.
Karítas Kvaran, forstöðu-
maður Alþjóðaskrifstofu
háskólasviðsins, sem ann-
ast rekstur áætlunarinnar
hér á landi og mun veita
upplýsingar og ráðgjöf
þeim sem áhuga hafa á að
sækja um styrki, svaraði
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins um mál-
efnið á dögunum.
Segðu okkur fyrst að-
eins meira frá þessari
nýju menntaáætlun.
„Fyrr í þessari viku var
ný Nordplus-menntaáætl-
un kynnt í Norræna hús-
inu, en hún tekur gildi í
janúarbyrjun næstkomandi.
Nordplus-áætlunin styrkir marg-
víslegt samstarf á sviði mennta-
mála frá grunnskólum til há-
skólastigs, einnig til
fullorðinsfræðslu, samstarf við
Eystrasaltsríkin og Norðvestur-
Rússland, auk styrkja sem lúta
að verkefnum er snerta norræn
tungumál. Nýja Nordplus-áætl-
unin leysir af hólmi ýmsar aðrar
eldri menntaáætlanir norrænu
ráðherranefndarinnar sem verða
með breyttu sniði undir heiti
Nordplus.“
Hvaða breytta snið er það?
„Það hefur verið gerð talsverð
samþjöppun og einföldun á þessu
sviði. Nýja Nordplus-áætlunin
skiptist í fimm undiráætlanir, en
var áður í mun fleiri áætlunum.
Þá færast ýmis stjórnunarstörf,
eins og skrifstofuhald, upplýs-
ingagjöf og umsóknarferli, yfir á
einn og sama aðilann, en var vítt
og breitt áður. Undiráætlanirnar
fimm eru Nordplus fyrir háskóla-
stigið, Nordplus junior fyrir
grunn- og framhaldsskóla, Nord-
plus sprog fyrir tungumál, Nord-
plus voksen fyrir fullorðins-
fræðslu og Nordplus nabo fyrir
samstarf við Eystrasaltsríkin og
Norðvestur-Rússland.“
Hér er um styrki að ræða ekki
satt?
„Alls mun norræna ráðherra-
nefndin veita liðlega 997 milljónir
króna til Nordplus-áætlunarinn-
ar árið 2004.“
Hverjir eru það sem hafa að-
gang að þessum peningum?
„Þetta er upphæð sem dreifist
yfir öll Norðurlöndin og þetta
eru talsverðir fjármunir. Það er
þó ekki regla hvernig upphæðin
skiptist á milli landa. Það fer
nokkuð eftir því hversu duglegir
menn eru að sækja um hvernig
fjármunirnir skiptast. Algengast
er að styrkir séu veittir vegna
samnorrænna verkefna, en ein-
staklingar geta einnig fengið
styrki, t.d. geta fræðimenn sem
vinna að verkefnum sem lúta að
norrænum tungumálum, sem
falla að markmiðum áætlunarinn-
ar, fengið styrki. Mest er um að
samnorræn verkefni fái styrkina.
Á háskólastiginu eru
styrkt samstarfsnet á
flestum fræðasviðum
og eitt mjög stórt
þverfaglegt net. Alls
voru um 300 Nord-
plus-samstarfsnet háskóla styrkt
á þessu ári. Íslenskir háskóla-
kennarar hafa verið mjög dug-
legir að taka þátt í þessu nor-
ræna netsamstarfi, sem dæmi má
nefna að kennarar og starfsmenn
Háskóla Íslands taka þátt í um
20 norrænum samstarfsnetum á
flestum fræðasviðum. Þá eru
stúdentaskipti innan Nordplus-
kerfisins mjög vinsæl og taka um
100 íslenskir háskólastúdentar
þátt í þeim árlega. Stúdentarnir
geta tekið eitt til tvö misseri á
Norðurlöndunum og fá það nám
metið sem hluta af námi sínu hér
heima. Í grunn- og framhalds-
skólum eru sambærileg norræn
samverkefni og hafa sumir skólar
verið afar duglegir að taka þátt í
slíku, jafnvel verið með bekkjar-
heimsóknir inni í námskránni og
farið á hverju ári utan. Hins veg-
ar hafa aðrir skólar aldrei farið,
e.t.v. af því að erfitt hefur verið
að nálgast upplýsingar um þá
möguleika sem eru í boði. Von-
andi breytist það með tilkomu
þessa nýja fyrirkomulags.“
Í hverju er þessi breyting fólg-
in?
„Um er að ræða breytt skipu-
lag. Aðstoð og upplýsingar verða
nú á einum stað, en voru áður á
mörgum stöðum. Hægt verður að
sækja um í tölvutæku formi og
verða allar upplýsingar varðandi
umsóknir aðgengilegar á heima-
síðu okkar en slóðin er www.ask-
ur.hi.is. Það á sem sagt að vera
auðveldara að nálgast upplýsing-
ar.“
Hver er umsóknarfresturinn
um styrki?
„Nordplus fyrir háskólastigið
og Nordplus sprog fyrir tungu-
málaverkefni eru með umsókn-
arfrest til 1. febrúar, Nordplus
junior fyrir grunn- og framhalds-
skóla til 15. mars og Nordplus
voksen, fullorðinsfræðsla, og
Nordplus nabo, samstarf við
Eystrasaltsríkin og NV-Rúss-
land, eru með umsókn-
arfrest til 1. mars.“
Hver eru yfirlýst
markmið Nordplus?
„Meginmarkmið með
Nordplus-áætluninni
eru í fyrsta lagi að stuðla að
framgangi sameiginlegrar nor-
rænnar stefnu á sviði mennta- og
menningarmála, tungumála og
gildismats. Í öðru lagi að styrkja
þróun þekkingar, hæfni og sí-
menntunar og í þriðja lagi að
stuðla að aukinni efnahsglegri
þróun og samkeppnishæfni á
Norðurlöndunum og grannsvæð-
um þeirra.“
Karítas Kvaran
Karítas Kvaran fæddist í
Reykjavík. Stúdent frá MH, BA-
próf í þjóðfélagsfræðum og við-
bótarnám í bókasafns- og upplýs-
ingafræðum frá HÍ, meist-
arapróf í stjórnun frá University
of Wales. Hún hefur unnið við
ráðgjöf, kennslu og alþjóða-
samskipti. Hefur starfað við HÍ
við erlend samskipti frá 1988 og
sem forstöðumaður Alþjóða-
skrifstofu háskólastigsins frá
1997. Maki Baldur Guðlaugsson
ráðuneytisstjóri og eiga þau
fjögur börn.
Þá eru
stúdenta-
skipti algeng
ar greinar og fréttir af rann-
sóknum í raunvísindum og stærð-
fræði og vísindagreinar á
viðkomandi fræðasviðum.
Tímaritið er ætlað áhugamönn-
um og sérfræðingum á þessum
NÝTT tímarit hefur hafið göngu
sína en það nefnist Tímarit um
raunvísindi og stærðfræði og er
gefið út af fjórum fræðafélögum;
Íslenska stærðfræðafélaginu, Eðl-
isfræðifélagi Íslands, Efnafræði-
félagi Íslands og Stjarnvísinda-
félagi Íslands. Að sögn útgefenda
er markmið tímaritsins að efla
áhuga á raunvísindum og stærð-
fræði á Íslandi.
Ritið er bæði vefrit,
www.raust.is, og hefðbundið
prentað tímarit. Fyrst um sinn
verður prentaða útgáfan send fé-
lagsmönnum allra félaganna, öll-
um skólum og bókasöfnum lands-
ins og vefútgáfan verður öllum
opin.
Í ritinu mun birtast blandað
efni og verður því skipt í nokkra
meginflokka; vísindagreinar fyrir
fjölfróða og forvitna skrifaðar
fyrir þá sem eru læsir á vísindi en
eru ekki sérfræðingar á viðkom-
andi sviði, samantektir á greinum
um vísindi fyrir almenning, stutt-
fræðasviðum, ekki síst kennurum
og nemendum í þessum greinum.
Tímaritinu er jafnframt ætlað að
örva umræðu um stöðu þessara
greina í skólakerfinu og auka
áhuga á þeim hér á landi.
Morgunblaðið/Sverrir
Ritstjórn tímaritsins skipa Sigmundur Guðbjarnason frá Efnafræðifélag-
inu, Ragnar Sigurðsson frá Stærðfræðafélaginu, Ari Ólafsson frá Eðl-
isfræðifélaginu og Gunnlaugur Björnsson frá Stjarnvísindafélaginu.
Nýtt tímarit um raunvísindi
og stærðfræði hefur göngu sína