Morgunblaðið - 09.12.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 15
UM 750.000 manns fylltu stræti og
torg í London í gær til að fagna
sigurliði Englands í heimsmeist-
arakeppninni í „rugby“ eða ruðn-
ingi. Fór hún fram í Ástralíu og í
úrslitaleiknum vann enska liðið
það ástralska 20-17. Urðu Englend-
ingar þar með fyrsta þjóðin á norð-
urhveli til að sigra í heimsmeist-
arakeppninni.
Elísabet drottning tók á móti lið-
inu í Buckingham-höll í gær og síð-
an lá leiðin í Downing-stræti 10
þar sem Tony Blair forsætisráð-
herra var í hlutverki gestgjafans.
Vitað var, að sigurliðinu yrði vel
fagnað en fagnaðarlætin og fólks-
fjöldinn kom öllum á óvart. Allt
virtist þó fara vel fram undir ár-
vökulum augum 500 lögreglu-
manna.
Reuters
750.000 manns í sigurgöngu
FUNDI leiðtoga Breska samveld-
isins lauk í gær og sögðu frétta-
skýrendur neyðarástand nánast
ríkja innan þessa samstarfsvett-
vangs eftir að Robert Mugabe, for-
seti Zimbabwe, tilkynnti að hann
hefði ákveðið að segja skilið við
hann. Á fundinum sem haldinn var
í Nígeríu hafði verið ákveðið að
framlengja pólitískar refsiaðgerðir
gagnvart stjórnvöldum í Zim-
babwe.
Í yfirlýsingu frá upplýsinga-
málaráðuneyti Zimbabwe sagði að
Mugabe væri nóg boðið og því
segði ríkið sig úr samveldinu.
Sagði þar að Mugabe hefði gefið
þessa yfirlýsingu þegar forsetar
Nígeríu, Suður-Afríku og Jamaíka
hringdu í hann til að skýra honum
frá ákvörðun samveldisríkjanna.
Í sambandi samveldisríkja eru
54 lönd, aðallega fyrrverandi ný-
lendur Bretlands.
Don McKinnon, framkvæmda-
stjóri Samveldisins, sagði í gær að
fundurinn sem stóð í fjóra daga
hefði mistekist með öllu. „Enginn
okkar er ánægður,“ sagði hann.
Fréttaskýrendur sögðu að Mug-
abe væri nú einangraðri en nokk-
urn tíma fyrr.
Klofningur innan
Samveldisins
Evrópusambandið og Bandarík-
in hafa gripið til refsiaðgerða gegn
Mugabe og undirsátum hans vegna
kosningasvika sem viðhöfð voru í
marsmánuði þegar Mugabe var
endurkjörinn forseti Zimbabwe til
sex ára. Í kjölfar kosninganna var
ákveðið á vettvangi Samveldsins
að fresta frekara samstarfi við
Zimbabwe þar til Mugabe hefði
séð að sér. Á fundinum í Nígeríu
var ákveðið að viðhalda refsiað-
gerðum þessum og brást Mugabe
við þeirri ákvörðun með því að
segja Zimbabwe úr Samveldinu.
Mjög var deilt um réttmæti þessa
og héldu leiðtogar nágrannaríkja
Zimbabwe því fram að tímabært
væri að hefja samstarf á ný við
Mugabe. Þeir urðu undir á fund-
inum og klofningur þannig stað-
festur innan Breska samveldisins.
Zimbabwe yfirgefur
Breska samveldið
Abuja. AFP.
ARNOLDO Aleman, fyrrverandi forseti Nicaragua,
var á sunnudag dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir marg-
víslega spillingu. Var honum meðal annars gefið að
sök að hafa tekið þátt í því að svíkja út úr ríkinu
milljarða íslenskra króna.
„Doktor Arnoldo Aleman hefur verið dæmdur í 20
ára fangelsi fyrir að þvo illa fengið fé, fyrir að hafa
misfarið með opinbert fé, fyrir svik, kosningasvindl
og glæpastarfsemi,“ sagði dómarinn Juana Mendez
þegar hún kvað upp dóminn. Sektaði hún einnig
Aleman, sem var forseti Nicaragua 1997 til 2002, um
helmingi hærri upphæð en hann hafði svikið út.
Aleman verður í stofufangelsi til að byrja með
vegna þess, að hann er næstum ósjálfbjarga af offitu.
Þjáist hann af sykursýki og allt of háum blóðþrýst-
ingi.
Rakaði saman fé
Aleman var sakaður um að hafa stolið um 7,4 millj-
örðum ísl. kr. í forsetatíð sinni og hans eigin flokks-
bræður í Frjálslynda stjórnarskrárflokknum segja, að
eignir hans hafi aukist úr 3,7 millj. króna 1989 í um
18,5 milljarða kr. 2001. Bíður hans raunar enn ein
ákæra um fjárdrátt upp á tæplega 100 millj. kr.
Um 40 aðrir menn tengjast málinu, þar á meðal
nokkrir úr fjölskyldu Alemans og 16 fyrrverandi
starfsmenn hans. Nicaragua er eitt af fátækustu ríkj-
um Rómönsku Ameríku.
Stal milljörðum
króna af opinberu fé
Managua. AFP.
Aleman, fyrrverandi forseti Nicaragua, í 20 ára fangelsi
Arnoldo Aleman, fyrrverandi forseti, í ágúst í fyrra.
Nú er hann sagður næstum ósjálfbjarga vegna offitu.
Reuters