Morgunblaðið - 09.12.2003, Qupperneq 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þið rifjið upp í bókinni gamalt
mál, Kallsberg sá árin 1977–
1982 um bókhald fyrir frysti-
húsið Frostvirki, stýrði einnig út-
gerð tveggja báta og flutti án
leyfis fé frá Frostvirki til útgerð-
anna. Hann hafði áður við-
urkennt að hafa stundað vafa-
sama viðskiptahætti en funduð
þið eitthvað nýtt?
Málið var aftur rifjað upp í júlí
2002, þá sakaði einn af þingmönn-
um Þjóðveldisflokksins Kallsberg
nánast um þjófnað. Lögmaðurinn
hótaði að boða nýjar kosningar ef
hann tæki ummælin ekki aftur. Það
gerði þingmaðurinn en við fórum að
spyrja okkur: Hvað er það sem
Kallsberg finnst svo mikilvægt að
fela áfram?
Fyrir nokkrum árum varð sjáv-
arútvegsráðherra úr Fólkaflokki
Kallsbergs að hætta vegna dóms
fyrir nauðgun. Þá höfðu sumir
fréttamenn og stjórnmálamenn
grun um að Kallsberg þyrði ekki að
taka á málinu og reka ráðherrann
af ótta við að vera sjálfur sakaður
um gamlar syndir.
Upprunalega átti bókin okkar að
fjalla almennt um fréttaöflun og
pólitík, vera eins konar fagrit fyrir
fréttamenn þar sem tekin væru
þrjú dæmi. Eitt dæmanna óx í höndunum á okkur af
því að við fengum með leynd nýjar upplýsingar og
gögn. En við viljum ekki skýra frá því hverjir heimild-
armennirnir eru.
Er ljóst að hann vissi hvað hann var að gera, að
ekki var um mistök að ræða?
Alveg augljóst, þetta voru engin mistök hjá honum.
Enginn vafi leikur á því að bókhaldið var falsað. Eitt
dæmi: hann gaf upp birgðir af ýsu sem væru 1.260
tonn. En hann hafði bætt við tölunni 1 fyrir framan
svo að birgðirnar urðu 11.260 tonn! Þetta er svo sann-
arlega „skapandi bókhald“ eins og það er kallað og
þetta eru ekki mistök við færslur.
Fenguð þið nokkra hjálp hjá Kallsberg?
Nei við sáum strax að það myndi aldrei ganga. Ég
var búinn að taka tvisvar viðtal við hann í sjónvarpinu
áður en við byrjuðum á bókinni, ég tók hann hálfpart-
inn af lífi. Samstarf við hann var þess vegna útilokað.
Kallsberg náði samkomulagi við Frostvirki um að
flytja peningana sem hann fékk „að láni“, alls um
10 milljónir ísl. kr., aftur til Frostvirkis frá útgerð-
unum tveim og ekki kom til málshöfðunar gegn
honum. Hagnaðist hann ekkert sjálfur á svindlinu?
Við getum ekki sannað að hann
hafi grætt sjálfur á þessu. En Kalls-
berg stýrði útgerð tveggja skipa,
Rivkolli og Sundaenni, og sá um
bókhald þeirra. Við göngum út frá
því að hann hafi fengið laun fyrir að
stjórna útgerðunum svo að hann
hefur fengið eitthvað út úr þessu
með óbeinum hætti. Hann átti ann-
an bátinn og hvað hefði gerst ef út-
gerðin hans hefði ekki fengið þessa
peninga? Hún hefði kannski farið á
hausinn.
Er hugsanlegt að málið verði tek-
ið upp og lögmaðurinn fái dóm
fyrir þetta gamla mál? Hvað með
pólitíska framtíð hans?
Nei það er útilokað að hann verði
dæmdur, það er allt of langt síðan
þetta gerðist. Hann er mjög vinsæll
í Færeyjum en sjálfur held ég að
hann verði aldrei oftar lögmaður.
Það held ég að gerist ekki. En svo
er ekki víst að hann bjóði sig fram í
næstu kosningum.
Er mikil spilling í Færeyjum? Er
mál Kallsbergs einsdæmi eða
einvörðungu gott dæmi um skap-
andi bókhald?
Nú veit ég svei mér ekki hvað ég
á segja. En ég geri ráð fyrir að
spilling sé ekki síður hér en á Ís-
landi, í Danmörku eða Noregi. Meira vil ég ekki segja.
Fullyrt er að bókin hafi fellt samsteypustjórn Kalls-
bergs áður en hún var komin út. Hvernig hefur hún
selst?
Hún kom út fyrir réttri viku og var prentuð í 3.500
eintökum og hún er þegar uppseld hjá forlaginu. Við
erum afskaplega þakklátir Óla Breckmann, formanni
þingflokks Fólkaflokks Kallsbergs, fyrir að auglýsa
bókina. Hann sakaði Þjóðveldisflokkinn [einn stjórn-
arflokkanna] um að standa á bak við bókina og þetta
gerði hann áður en hún kom út, hann var ekki búinn
að lesa hana. Það var frábær auglýsing!
Hvað fannst yfirmönnum ykkar Winthereigs á sjón-
varpinu um þetta framtak ykkar tveggja?
Ráðamenn þar vissu að við vorum að skrifa bók en
við skiptum eiginlega um efni og auðvitað hefði ég get-
að sagt frá því. Winthereig var í leyfi þegar hann vann
að bókinni en ég ákvað sjálfur að segja upp starfi
fréttastjóra til að forðast ásakanir um að við værum
að misnota aðstöðuna. En ég byrja aftur sem frétta-
maður á sjónvarpinu innan skamms.
Spurt og svarað | Grækaris D. Magnussen
Enginn vafi að Kalls-
berg falsaði bókhaldið
Grækaris Djurhuus Magnussen er fréttamaður í Færeyjum og ritaði
ásamt kollega sínum, Øssur Winthereig, bókina Skjótið fréttamanninn.
Hún fjallar um gamlar syndir Anfinns Kallsbergs, lögmanns (forsætis-
ráðherra) Færeyja. Magnussen svaraði nokkrum spurningum Morg-
unblaðsins.
Grækaris D. Magnussen
’ Við göngum útfrá því að hann hafi
fengið laun fyrir að
stjórna útgerðunum
svo að hann hefur
fengið eitthvað út úr
þessu með óbeinum
hætti. ‘
Kristján Jónsson | kjon@mbl.is
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um upplýsingasamfélagið hefst í Genf í Sviss á
morgun og í tilefni af því setti svissneski listamaðurinn Johannes Gees upp
þetta listaverk. Felst það í því að láta leysigeisla endurkastast af vatnssúl-
unni frá hinum fræga Genfar-gosbrunni. Er hún um 140 metra há. Mynda
geislarnir meðal annars orðin „Helloworld“ á vatnssúlunni og er það jafn-
framt heiti listaverksins.
AP
„Halló heimur“
GRÍSKUR dómstóll fann í gær 15
manns, félaga í hryðjuverkasamtök-
unum 17. nóvember, seka um morð
og margvíslega glæpi. Meðal þeirra
var leiðtogi hópsins, Alexandros
Yiotopoulos, en hann var dæmdur
fyrir að hafa skipulagt öll glæpa-
verkin, um 2.000 talsins.
Dómur yfir mönnunum verður
kveðinn upp í næstu viku en búist er
við, að Yiotopoulos verði dæmdur í
lífstíðarfangelsi. Hann er tæplega
sextugur hagfræðingur, fæddur í
Frakklandi. Í 27 ára sögu 17. nóv-
ember hafa samtökin myrt 23 menn,
herforingja, stjórnmálamenn, kaup-
sýslumenn og dómara og að auki
bandarískan, breskan og tyrkneskan
sendimann. Sprengjutilræði samtak-
anna eru miklu fleiri og þau hafa orð-
ið sér úti um fé með ótal ránum.
17. nóvember heitir eftir þeim
degi 1973 er stúdentar risu upp gegn
herforingjastjórninni í Grikklandi,
sem fór með völd í landinu frá 1967
til 1974 og hefur það vakið furðu hve
lengi samtökunum tókst að fara
huldu höfði. Vegna þess taldi Banda-
ríkjastjórn Grikki vera einn veikasta
hlekkinn í baráttunni gegn hryðju-
verkum.
Hugmyndafræði samtakanna hef-
ur verið hrærigrautur af marxisma,
þjóðernishyggju og andúð á Banda-
ríkjunum og markmiðið að reka
fleyg á milli Grikklands og kapital-
ískra stofnana á Vesturlöndum.
Fjórir sakborninganna höfðu sam-
starf við lögregluna og átti það mik-
inn þátt í að greiða fyrir saksókninni.
Eiga þeir að njóta þess við dóms-
uppkvaðninguna.
Félagar í 17. nóvember sekir
AP
Leiðtogi 17. nóvember, Alexandros Yiotopoulos, er hér fyrir miðri mynd
en í forgrunni er Dimitris Koufodinas, helsti morðingi samtakanna.
Aþenu. AFP.
NORÐMENN hafa í ár aukið
neyslu á sterkum vínum og léttum
en dregið úr bjórdrykkju. Á þriðja
ársfjórðungi jókst drykkja þeirra á
brenndum vínum um tæplega
500.000 lítra miðað við sama tíma í
fyrra, að því er fram kom í Aften-
posten í gær.
Alls nemur aukningin á drykkju
brenndra drykkja í Noregi á þriðja
fjórðungi 22,3% milli ára eða sem
svarar til 477.000 lítra. Fyrstu níu
mánuði ársins er aukningin 14,6%
eða um 946.000 lítrar, samkvæmt
upplýsingum norsku hagstofunnar.
Neysla áfengisblandaðra gos-
drykkja jókst um 2,4 milljónir lítra á
þriðja fjórðungi miðað við sama
tímabil í fyrra. Fyrstu níu mánuðina
neyttu Norðmenn 39,9 milljóna lítra
af borðvínum sem er 4,3% aukning
frá í fyrra.
Bjórdrykkja á þriðja ársfjórðungi
dróst saman um 972.000 lítra miðað
við sama tímabil í fyrra eða sem
svarar til 1,5% samdráttar. Fyrstu
níu mánuðina drukku Norðmenn
5,5% minna af bjór miðað við í fyrra.
Þegar öllu er á botninn hvolft hafa
Norðmenn heldur bætt í drykkjuna
en hitt. Því sé tekið tillit til hreins
vínandamagns nemur drykkja hvers
Norðmanns yfir 14 ára aldri 4,36
lítrum fyrstu níu mánuðina í ár. Er
það 3,8% aukning miðað við sama
tímabil í fyrra.
Norðmenn herða
áfengisdrykkjuna
HARALDUR Noregskonungur var
í gær skorinn upp vegna krabba-
meins í gallblöðru. Læknar kon-
ungs sögðu síðdegis í gær að að-
gerðin hefði tekist vel.
Aðgerðin hófst klukkan 8.35 að
íslenskum tíma í gærmorgun og tók
rúmlega fimm klukkustundir.
Sögðu læknar konungs að aðgerðin
hefði gengið eins og í sögu. Ekkert
benti til þess að krabbameinið hefði
sáð sér. Mætti því ætla að Haraldur
konungur myndi ná fullri heilsu á
ný.
Haraldur konungur var í gær á
gjörgæsludeild en búist er við að
hann verði í tvær til þrjár vikur á
sjúkrahúsi.
Haraldur
konungur
skorinn upp