Morgunblaðið - 09.12.2003, Page 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 17
Opnunartími: Mánudaga-föstudaga frá kl. 8:30-18 – Laugardaga frá kl. 10-16
Nóa konfekt í miklu
úrvali á góðu verði
Holda kalkúnn
499 kr/kgSkútuvogi 4
Mikið úrval af sultum frá Den Gamle Fabrik10% afsláttur við kassa á Simplots-stöngum
GYÐINGAR í Banda-
ríkjnum skilja ekki hvað
stjórnvöld í Ísrael eru
raunverulega að gera og
þetta er sá vandi sem við
erum að kljást við,“ segir
séra Mary Lawrence,
bandarískur meþódista-
prestur sem hefur frá
2001 helgað sig friðar-
starfi meðal Palestínu-
manna í Hebron á Vest-
urbakkanum. Hún var
sóknarprestur í
Massachusetts en fékk
lausn frá störfum til að
taka þátt í starfi sam-
kirkjulegrar hreyfingar,
Kristilegra friðarhópa (CPT). Tæp-
ur tugur manna vinnur nú á vegum
þeirra í Hebron. Lawrence predikaði
í Neskirkju í Reykjavík um helgina.
Sjálfboðaliðar CPT hafa frá 1995
veitt palestínskum börnum í Hebron
vernd á leið til og frá skóla auk þess
að heimsækja fjölskyldur, skrá
mannréttindabrot ísraelska her-
námsliðsins og reyna að fá hermenn
til að draga úr hörkunni.
Nokkur hundruð heittrúargyðing-
ar búa í fjórum, afmörkuðum hverf-
um í Hebron en flestir borgarbúar,
alls um 150.000 manns, eru Palest-
ínumenn. Öflugt herlið veitir gyðing-
unum vernd og umhverfis byggðir
þeirra eru múrar og gaddavír.
„,Við göngum einfaldlega með
börnum sem búa í gamla hverfinu í
skólann og fylgjum
þeim aftur heim,“
segir Lawrence. „En
börnin þurfa að fara
yfir veg sem gyðing-
arnir vilja hafa fyrir
sig. Yfirleitt eru ekki
mikil vandræði á
venjulegum, virkum
dögum en þegar gyð-
ingabörnin eru ekki í
skólanum kemur
stundum til slags-
mála. Gyðingabörnin
hrekja þá palestínsk
börn úr götunni,
krakkarnir kasta
grjóti hver í annan.
Þarna hefur fólk kastað grjóti síðan
Davíð skaut steininum í Golíat! Mér
kom á óvart að sjá gyðingabörn
kasta grjóti. Áður en ég kom hélt ég
að það gerðu eingöngu palestínsk
börn, það hafði ég séð í sjónvarpinu.“
Bjagaður fréttaflutningur
Lawrence segir að daglegt líf Pal-
estínumanna muni einkennast af
þjáningum þar til pólitísk lausn finn-
ist. Hún segir að fjölmiðlar í Banda-
ríkjunum gefi almenningi mjög bjag-
aða mynd af veruleikanum og
Ísraelar séu að jafnaði sýndir í mun
betra ljósi en Palestínumenn.
„Stuðningurinn er mjög á tilfinn-
ingalegum nótum. Fjöldi gyðinga
býr í stórborgunum, þannig er þetta
í Boston þar sem ég á heima. Þeir
bregðast ósjálfrátt við þegar eitt-
hvað kemur upp á í Ísrael án þess að
þeir viti allt of mikið um málið eða
velti því fyrir sér. Þeim finnst að
„veslings Ísrael“ sé í vanda.“
Hvernig segir hún við herskáa
Palestínumenn sem segjast aðeins
vera að svara ofbeldi og verjast?
„Við reynum að kenna fólki að
leysa málin friðsamlega og við höfum
hitt nemendur í Betlehem-háskóla
sem biðja okkur um að kenna sér
friðsamleg viðbrögð. Skriðdrekarnir
hafa nú verið í Betlehem í tvö ár og
allir vita að þegar kastað er grjóti í
skriðdreka veldur það engu tjóni á
honum. Fólk er aðeins að lýsa þrá
sinni eftir því að drekarnir sé fjar-
lægðir af götunum.
En við segjum þeim að reynslan
hafi kennt okkur að ofbeldisfull við-
brögð leiði ekki til neins, þau leiði að-
eins til þess að enn fleira fólk særist
eða deyi. Allir tapa því á ofbeldinu
þegar upp er staðið.“
Hún segist fá dvalarleyfi í þrjá
mánuði í senn. Ver hún því ávallt
þrem mánuðum í Bandaríkjunum en
síðan þrem í Palestínu. Þegar hún er
heima predikar hún og vinnur önnur
störf fyrir kirkjuna en reynir einnig
að fræða landa sína um ástandið í
Palestínu. „Þegar almenningsálitið
byggist á raunverulegri vitneskju
eru meiri líkur en ella á að því að
betri ákvarðanir verði teknar af
hálfu stjórnmálamanna,“ segir séra
Mary Lawrence.
Grjót veldur engu
tjóni á skriðdreka
Séra Mary Lawrence
Meþódistaprestur tekur þátt í friðarstarfi í Hebron
LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA
Þegar þú kaupir jólakort Landssamtaka hjartasjúklinga styrkir þú
uppbyggingu samtakanna og auðveldar þeim að styrkja þá sem
haldnir eru hjartasjúkdómum.
Landssamtök hjartasjúklinga hafa, allt frá stofnun, varið miklum
fjármunum til kaupa á tækjum fyrir heilbrigðisstofnanir. Þessar
gjafir bjarga mannslífum, eins og nýlegt dæmi sannar, en samtökin
gáfu nýverið Landspítala-háskólasjúkrahúsi hjarta- og lungnadælu
í tilefni 20 ára afmælis samtakanna.
Þú getur pantað jólakortin á heimasíðu okkar www.lhs.is, hringt
í síma 552 5744 eða komið til okkar í Síðumúla 6. Jólakortin fást
einnig hjá aðildarfélögum.
Gle
ðile
g
Jólakort
ABU Sayyaf-samtökin á Filippseyj-
um, sem eru sögð tengjast al-Qaeda,
hryðjuverkasamtökum Osama bin
Ladens, urðu fyrir miklu áfalli um
helgina er leiðtogi þeirra var hand-
tekinn. Galib Andang, sem einnig er
kallaður Robot, féll í hendur her-
mönnum eftir mikla sókn þeirra
gegn múslímskum óaldarflokkum á
eynni Jolo í suðurhluta landsins.
Andang og menn hans hafa staðið
fyrir mannránum og morðum og
komust í heimsfréttirnar árið 2000
er þeir rændu 21 ferðamanni í Sip-
andan í Malasíu. Fólkinu var loks
sleppt gegn greiðslu lausnargjalds.
Narciso Abaya hershöfðingi sagði
í gær, að græðgin hefði orðið And-
ang að falli. Hann hefði að eigin sögn
fengið í sinn hlut 12-13 millj. ísl. kr.
úr Sipadan-mannráninu en í stað
þess að fara áfram huldu höfði, hefði
hann verið kominn á kreik á ný til að
skipuleggja nýtt mannrán.
Leiðtogi Abu
Sayyaf handtekinn
Jolo. AFP.