Morgunblaðið - 09.12.2003, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 21
AUSTURLANDAKUREYRI
Njarðvík | Endur og svanir sem
halda til á tjörnunum á Fitjum eru
komnir á opinbert framfæri. Starfs-
menn þjónustumiðstöðvar Reykja-
nesbæjar, svokallaðir Hverfisvinir,
gefa fuglunum á Fitjatjörnum
reglulega brauð.
Reykjanesbær hefur verið að láta
leggja göngustíga um Fitjasvæðið
og fegra umhverfið í þeim tilgangi
að gera það að útivistarsvæði.
Fleiri framkvæmdir í þá veru eru
fyrirhugaðar. Markmiðið er að
standa þannig að málum að svæðið
geti státað af umhverfisviðurkenn-
ingunni Bláfánanum, að sögn Við-
ars Más Aðalsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra umhverfis- og
skipulagssviðs bæjarins.
Liður í þessu er að laða fugla að
tjörnunum. Í sumar þegar fuglarnir
hurfu voru settir nokkrir plast-
fuglar á flot og nú hafa nokkrir
starfsmenn bæjarins fengið það
hlutverk að sækja brauðafganga í
bakaríin og fóðra fuglana reglu-
lega.
Óskar Ívarsson tók þetta verk að
sér dag einn í vikunni. Veður var
slæmt og höfðu flestir fuglarnir
komið sér í skjól. Nokkrar endur
syntu þó að tanganum þar sem Ósk-
ar losaði sig við brauðið þótt hann
og félagar hans í Hverfisvinum
héldu því fram að þetta væri þriðja
máltíðin þann daginn og líklegt tal-
ið að fuglarnir væru saddir.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fuglinn fóðraður: Sótt í brauðið sem Óskar Ívarsson henti út á tjörnina.
Fuglar á framfæri
hins opinbera
Kárahnjúkavirkjun | Nú er verið að
að ljúka framkvæmdum við hjá-
veitugöng Jöklu í meginstíflustæði
Kárahnjúkavirkjunar og gert ráð
fyrir að ánni verði veitt hjá 18.
desember. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Roberto Velo og Giov-
anni Matta hjá Impregilo S.p.A.
verður dagana fyrir 18. desember
smám saman þrengt að ánni til
beggja hliða með stórgrýti og
jarðvegi, uns hún leitar í göngin.
Þannig verður ekki um stór-
sprengingar eða mikið sjónarspil
að ræða þennan tiltekna dag, enda
áin vatnslítil á þessum tíma og bú-
ist við að hún leiti í sinn nýja far-
veg í mestu rólegheitum.
Engar stórsprengingar þegar
Jökla fer í hjáveitugöngin
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Jökla fer brátt í göngin: Unnið að styrkingu munna hjáveituganga Jöklu í meginstíflustæði Kárahnjúkavirkjunar.
Vopnafjörður | Maður var tekinn á
rjúpnaveiðum á Vopnafjarðarheiði í
fyrradag. Var um að ræða sölumann
úr Reykjavík sem hafði ekki staðist
hinar fögru veiðilendur Vopnfirðinga.
Að sögn lögreglu á Vopnafirði var
hann með 3 rjúpur og má búast við
sekt og veiðileyfissviptingu ásamt því
að bæði afli og veiðarfæri verði gerð
upptæk.
Hefur lögreglan á Vopnafirði verið
með mikið eftirlit með heiðum nálægt
Vopnafirði og ekki orðið vör við að
Vopnfirðingar hafi farið til rjúpna.
Tekinn á
rjúpnaveiðum
Fljótsdalur | Nú undirbúa menn
jólahátíð til láðs og lagar og lætur
skáldbóndinn Hákon Aðalsteinsson
í Húsum í Fljótsdal ekki deigan
síga.
Hér athugar hann hvort jóla-
hangiketið sé til þess bært að taka
það af króknum í reykkofanum, þar
sem ketið hefur hangið um nokkra
hríð í kófinu.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Rýnt í reykta lærið: Hákon Aðalsteinsson reykir hangikjöt til jólanna.
Hangiketið tilbúið
Vegagerð | Hafin er vinna við
vegagerð að Fáskrúðsfjarð-
argöngum, en vegstæðismælingar
hófust í síðasta mánuði. Um er að
ræða 6,6 km langan veg Fáskrúðs-
fjarðarmegin og tæplega 2 km veg
Reyðarfjarðarmegin og er efni sem
til fellur úr göngunum nýtt til vega-
gerðarinnar. Þessir aðliggjandi veg-
ir eiga að verða fullgerðir á svip-
uðum tíma og göngin eða fyrri hluta
árs 2005. Myllan á Egilsstöðum hef-
ur vegagerðina með höndum.
Óperan | Óperustúdíó Austurlands
mun ekki setja upp óperu á næsta ári,
en stúdíóið hefur undanfarin fimm ár
flutt óperur Mozarts á Eiðum á hátíð-
inni Björtum nóttum í júní, auk þess að
standa fyrir fjölbreyttu tónleikahaldi.
Er talið nauðsynlegt að end-
urskipuleggja starfsemi Óperustúdíós-
ins og gefa innri málefnum betri gaum.
Óperuuppfærslur eru afar kostn-
aðarsamar og þrátt fyrir styrki og
aðgöngumiðasölu hefur staðið í járnum
að uppfærslur stæðu undir sér. Stefnt
er að flutningi næstu óperu vorið 2005.
ÓPERUDEILD Tónlistarskólans á
Akureyri flytur um þessar mundir
óperuna Hans og Grétu eftir Eng-
ilbert Humperdinck í Ketilhúsinu á
Akureyri en frumsýning var á laug-
ardag. Flytjendur eru nemendur
óperudeildar ásamt kór tónlistar-
skólans og píanóleikara. Leikstjóri
er Sigríður Aðalsteinsdóttir og
undirleik annast Daníel Þor-
steinsson.
Óperan er byggð á ævintýrinu
um Hans og Grétu og er jafnan
sýnd um jólaleytið í þýskumælandi
löndum. Hún var frumflutt í Weim-
ar 23. desember árið 1893, en ári
síðar höfðu 50 óperuhús sýnt verkið
og á næstu tveimur áratugum náði
það mikilum vinsældum um allan
heim.Óperan verður flutt á íslensku
í þýðingu Jakobs Jóhanns Smára og
er ætluð áheyrendum á öllum aldri,
ekki síst grunnskólanemum sem fá
ókeypis inn en almennt miðaverð er
kr. 500.
Sýning verður í kvöld, þriðjudag-
inn 9. desember, og einnig annað-
kvöld, miðvikudaginn 10. desem-
ber, og hefjast sýningar kl. 18.30 í
Ketilhúsinu.
Morgunblaðið/Kristján
Nornin vonda hefur náð taki á Hans og Grétu. Unnur Helga Möller t.v.,
Ingimar Guðmundsson og Harpa Björk Birgisdóttir í hlutverkum sínum.
Ævintýrið um
Hans og Grétu
Nýr vefur HSS | Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja hefur opnað nýj-
an vef, www.hss.is. Á vefnum er að
finna upplýsingar
um stofnunina og
starfsfólk hennar.
Stefnt er að því
að halda úti lif-
andi vef sem geti
nýst sem upplýs-
ingabrunnur fyrir
skjólstæðinga og
starfsfólk HSS,
segir í frétta-
tilkynningu frá stofnuninni.
Í byrjun nóvember var einnig
opnaður innrivefur HSS sem er
sameiglegur gagnagrunnur starfs-
manna. Í ávarpi Sigríðar Snæ-
björnsdóttur framkvæmdastjóra
kemur meðal annars fram að miklir
breytingatímar eru fram undan og
því muni vefurinn nýtast vel til upp-
lýsingagjafar fyrir stofnunina.
520 7901 og 520 7900
kr. 15.580
Leki | Starfsmenn í búðum Impregilo
S.p.A. við Kárahnjúkavirkjun hafa
sætt óþægindum vegna þakleka í her-
berjum sínum. Hafa menn brugðist
við með því að strengja segl eða bygg-
ingarplast í loftin til að rigndi ekki of-
an í rúmin hjá þeim þegar frostleysa
er. Nú eru menn frá framleiðanda
húsanna komnir á virkjunarsvæðið og
vinna að úrbótum. Verkalýðsforystan
á staðnum ætlast til að þeim verði lok-
ið á allra næstu vikum.