Morgunblaðið - 09.12.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir miklum krafti
og auðugu ímyndunarafli og
vilt lifa lífinu til fullnustu. Á
komandi ári muntu ganga
frá lausum endum í lífi þínu
til að skapa rúm fyrir eitt-
hvað nýtt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tunglið er ekki lengur fullt og
því líður þér betur en í gær.
Það er alltaf gott þegar það
slaknar á spennunni sem
myndast þegar tunglið er
fullt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú sérð líf þitt í skýrara ljósi í
dag. Sýndu þolinmæði fram
eftir degi og gerðu ráð fyrir
einhverju óvæntu í eftirmið-
daginn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér mun hugsanlega takast
að leysa ágreining við maka
þinn eða náinn vin í dag. Nú
er rétti tíminn til að fram-
kvæma hugmyndir sem komu
upp í huga þinn í gær.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hlutirnir ættu að ganga vel í
vinnunni í dag. Þú ert bjart-
sýn/n á framtíðina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft að endurskoða hug-
myndir þínar sem tengjast
listsköpun og vinnu með börn-
um. Það er farið að draga úr
spennunni í ástarmálunum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú fannst fyrir mikilli spennu
í gær en hún er nú að minnka.
Þú ættir að einbeita þér að
málum sem snerta heimilið og
fjölskylduna. Leitaðu ráða hjá
foreldrum þínum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur mikla þörf fyrir að
tjá þig í dag. Þér finnst þú
hafa eitthvað að segja og þú
vilt koma því á framfæri.
Hafðu ekki áhyggjur af við-
brögðum annarra. Álit þitt
skiptir líka máli.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Fjármálin líta betur út en þau
hafa gert að undanförnu. Þú
ættir þó ekki að taka neinar
stórar ákvarðanir fyrr en á
fimmtudag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Spennan í samskiptum þínum
við maka þinn fer minnkandi.
Þér finnst aðrir vera tilbúnir
að hlusta á það sem þú hefur
að segja.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Taktu af skarið og komdu
óskum þínum á framfæri í
dag. Það mun koma þér á
óvart hvað það fellur í góðan
jarðveg.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ættir að biðja vin þinn um
að hitta þig í mat eða kaffi í
dag. Þú þarft á örvandi sam-
ræðum að halda.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gerðu ráð fyrir breytingum í
lífi þínu því Mars er loksins
kominn á hreyfingu. Það sem
yfirleitt gengur yfir á sjö vik-
um hefur tekið sex mánuði og
því hefur reynt á þolrifin.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
JÓLAFASTA
Hægt silast skammdegið áfram
með grýlukerti sín
hangandi í ufsum myrkursins.
Þegar búið er að kveikja
vitrast mér tvennskonar stórmerki:
gestaspjót kattarins
og hringsól gestaflugunnar.
Ég hlusta og bíð í ofvæni
en það kemur enginn …
Jóhannes úr Kötlum
LJÓÐABROT
60 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 9. des-
ember, er sextug Agnes
Árnadóttir frá Húsavík.
Agnes er stödd erlendis á
afmælisdegi sínum ásamt
sambýlismanni sínum, Ósk-
ari Þórhallssyni. Agnes
býður vinum og vanda-
mönnum að koma og gleðj-
ast með sér föstudaginn 19.
desember í félagsheimili
Þróttar í Laugardal á milli
kl. 19.30 og 21.30.
50 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 9. des-
ember, verður fimmtugur
Vignir Jón Jónasson, sölu-
maður, Bergsmára 1,
Kópavogi. Af því tilefni býð-
ur hann, ásamt konu sinni
Kristínu Ingólfsdóttur, ætt-
ingjum og vinum að sam-
gleðjast sér milli kl. 18 og 21
í SEM-salnum á Sléttuvegi
1–3, Reykjavík.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1
b5 7. Bb3 d6 8. c3 O-O 9. h3
h6 10. d4 He8 11. Rbd2 Bf8
12. a4 Bd7 13. d5 Re7 14.
Rf1 Rg6 15. R3h2 c6 16.
dxc6 Bxc6 17. Rg4 Rd7 18.
Df3 He7 19. Df5 Rh8
Hannes Hlífar Stef-
ánsson (2567) og
Haraldur Bald-
ursson brugðu sér
alla leið til Dóm-
íníska lýðveld-
isins til að taka
þátt í alþjóðlegu
skákmóti sem
lauk fyrir stuttu.
Sá fyrrnefndi
hafði hvítt í stöð-
unni gegn finnska
stórmeistaranum
Heikki Kallio
(2493). 20.
Rxh6+! gxh6 21.
He3 d5 21... Bg7
yrði svarað með 22. Hg3 og
svartur gæti ekki varist með
góðu móti. Svarta staðan er
einnig hrunin til grunna eft-
ir textaleikinn enda gafst
hann upp eftir 22. exd5.
Hannes var á meðal efstu
manna allt mótið en tap í
síðustu umferð gerði það að
verkum að hann endaði í 15.
sæti. Haraldur tók mikinn
endasprett og lauk keppni í
47.–61. sæti.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HM í Monte Carlo lauk 15.
nóvember og fimm dögum
síðar hófust haustleikar
Bandaríkjamanna í New
Orleans. Drjúgur hluti
þeirra spilara sem mest var
áberandi í Monte Carlo var
sestur við spilaborð í New
Orleans á réttum tíma og
sömu andlit atvinnumanna
hófu aðra orustu á nýjum
vígvelli. Ástæðulaust að slá
slöku við.
Norður
♠ 1073
♥ Á
♦ G105
♣ÁDG764
Vestur Austur
♠ 82 ♠ K4
♥ 974 ♥ DG10865
♦ 742 ♦ KD963
♣K10532 ♣--
Suður
♠ ÁDG965
♥ K32
♦ Á8
♣98
Haustleikarnir eru mikil
„Board-a-match“ hátíð, en
það er sveitakeppni þar
sem aðeins tvö stig eru í
boði í hverju spili – eins
konar tvímenningur milli
tveggja borða. Tvö slík mót
eru haldin, annað öllum op-
ið og hitt er hin virðulega
Reisingerkeppni. Ítalska
fjórmenningaklíkan
(Lauria, Versace, Bocchi,
Duboin) vann í opnu keppn-
inni í sveit með Georege
Jacobs og Ralph Katz, en
sveit Malcoms Brachmans
vann Reisingermótið (Pass-
ell, Greco, Hampson,
Wold).
Spilið að ofan er frá opna
mótinu og það er Zia
Mahmood sem er í aðal-
hlutverki. Hann varð sagn-
hafi í fjórum spöðum í suð-
ur eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 hjarta 1 spaði
Pass 2 hjörtu * 3 tíglar 3 hjörtu *
Pass 4 spaðar Allir pass
Zia fékk óþægilegt útspil
– tígultvist. Hann lét lítið
úr borði og tók níu austurs
með ás. Fór svo inn í borð
á hjartaásinn og svínaði
spaðadrottningu. Zia taldi
líklegt að austur ætti 6-5
skiptingu fyrir sögnum sín-
um og lagði því niður
spaðaásinn. Svo var það
laufið. Það var vont að
missa strax innkomuna á
tígulás, en Zia fann lausn á
þeim vanda. Hann spilaði
laufáttu og lét hana svífa
yfir þegar vestur fylgdi
með hundi! Þar með var
hann heima til að svína aft-
ur og tryggði sér þannig 13
slagi.
En það dugði aðeins til
að jafna spilið (1-1), því á
hinu borðinu fékk suður út
hjarta gegn sama samningi.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Af hverju ekki? Svona fer hann pabbi þinn að því að koma
traktornum í gang á köldum vetrarmorgnum!
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-
1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
MEÐ MORGUNKAFFINU
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
H
á
tí
ð
a
rf
a
tn
a
ð
u
r
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
Jólatilboð
Flíspeysur,
& flísteppi
Sendum í póstkröfu
Grímsbæ, sími 588 8488, við Bústaðaveg
Eldri konur
Rauðir jólakjólar með löngum ermum 9.600
Jakki og pils svart 8.300
Peysujakki og pils gulbrúnt og svart 12.500
Úlpur 4.900
OREGON
sjónvarps-
skápur úr eik
Lengd: 149 sm
Hæð: 61/83 sm
Dýpt: 52 sm
Verð kr. 71. 800
Kringlunni 8-12, sími 553 3600,
www.olympia.is
DÖMU OG HERRA
flannel náttbuxur
Fást aðeins
hjá okkur