Morgunblaðið - 10.12.2003, Síða 7
Stykkishólmsbók er afar forvitnilegt rit og spennandi þar
sem heilt samfélag er tekið undir smásjána. Bókin er að
hluta til endurminningar frá uppvaxtarárum höfundarins,
Braga Straumfjörð Jósepssonar, í Stykkishólmi. Sagan er
sögð frá sjónarhóli drengs sem fylgist með öllu því sem í
bænum gerist, skyggnist inn á hvert heimili og þekkir alla.
Það er þó fullorðinn maður, skáldið og fræðimaðurinn,
sem heldur um pennann og fyllir út í myndina með
ógleymanlegri umfjöllun sinni um fólkið í Stykkishólmi.
Sögupersónur Stykkishólmsbókar eru fólkið í bænum og
sveitunum í kring undir miðbik tuttugustu aldar: alþýðu-
fólk, athafnamenn, embættismenn, verkamenn, vinnukonur
og fínar frúr.
• Þrjár glæsilegar bækur í fallegri gjafaöskju
• 1.500 bls. í stóru broti
• 1.700 ljósmyndir úr bæjarlífinu
• Fjallað er um hverja götu og hvert hús í bænum
og fólkið sem þar bjó
• Húsaskrá, yfir hundrað ára tímabil með
140 teikningum
• Skrá yfir auknefni og hin ýmsu tilbrigði við
mannanöfn
• Sérstakur kafli er um vatnsból í bænum
• Ítarlegt yfirlit, þar sem fjallað er um tæplega 5.000
einstaklinga sem koma við sögu í bókinni
Stykkishólmsbók
Stykkishólmur og nágrenni í máli og myndum
Stykkishólmsbók er gefin út í takmörkuðu upplagi og er seld
á kostnaðarverði, 29.900 kr., öll þrjú bindin. Aðeins hjá
sölumönnum en ekki í verslunum. Greiðslukort og afborganir.
M Mostrarskegg / Reykjavík og Stykkishólmi / Sími 568 4448 / Netfang m.skegg@simnet.is
Stykkishólmsbók er gefin út með styrk úr Menningarsjóði.
Pöntunarsímar:
581-2727 og 553-0403 fyrir höfuðborgarsvæðið
438-1223 og 438-1147 fyrir landsbyggðina
®
®