Morgunblaðið - 12.12.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.12.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BUSH HVIKAR EKKI George W. Bush Bandaríkja- forseti varði í gær þá ákvörðun varn- armálaráðuneytisins í Washington að banna fyrirtækjum í Frakklandi, Þýskalandi og Rússlandi að bjóða í verk í Írak. Hann sagði að pening- arnir ættu að fara til ríkja sem lögðu til hermenn er „hættu lífi sínu“ í Íraksstríðinu. Blæjurnar verði bannaðar Sérstök sérfræðinganefnd í Frakklandi mælir með því að bann- að verði að vera með íslamskar höf- uðblæjur og gyðingahettur í skólum landsins. Gert er ráð fyrir því að Frakklandsforseti tilkynni í næstu viku hvort farið verði eftir tillögu nefndarinnar. Kjaraviðræður í uppnámi Frumvarp um eftirlaun æðstu ráðamanna hefur sett kjaraviðræður í uppnám. Nokkur hundruð manns söfnuðust saman á Austurvelli í gær til að mótmæla frumvarpinu. Voru margir óánægðir með framgöngu þingmanna og sögðu þetta koma í kjölfar annarra mála þar sem skerða átti réttindi láglaunafólks, atvinnu- lausra og öryrkja. Tillögur um 200 uppsagnir Í tillögum stjórnarnefndar Land- spítalans vegna minni fjárveitinga er gert ráð fyrir uppsögnum hátt í 200 starfsmanna í öllum stéttum, ýmsum breytingum á starfsskipulagi og að dregið verði úr margs konar starf- semi. Þannig er m.a. útlit fyrir sam- drátt í starfi félagsráðgjafa, í sjúkra- þjálfun, prestsþjónustu og hjá rannsóknarfólki, einnig hjá ýmsum deildum er sinna tækniþjónustu og ráðgjöf. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 48 Erlent 18/21 Umræðan 48/54 Heima 24 Kirkjustarf 55 Höfuðborgin 26 Minningar 56/63 Akureyri 28 Bréf 72/73 Austurland 30 Dagbók 74/75 Suðurnes 31 Brids 75 Landið 32 Sport 76/79 Listir 33/35 Fólk 80/85 Daglegt líf 36/39 Bíó 82/85 Forystugrein 44 Ljósvakamiðlar 86 Þjónusta 47 Veður 87 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir Dagskrá vikunnar. Blaðinu er dreift á landsbyggðinni. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@- mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@- mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is TÍMARIT MORGUNBLAÐSINS FYLGIR MORGUNBLAÐINU Á SUNNUDAGINN Karllægir krankleikar SJÓVÁ-Almennar hafa ekki reynt að leita sátta við Samkeppnisstofnun vegna rannsóknar stofnunarinnar á meintu samráði tryggingafélaganna, og Einar Sveinsson, forstjóri Sjóvár- Almennra, segist ekki vita til þess að hin félögin hafi leitað slíkra sátta. „Við höfum ekki verið að leita neinna sátta í þessu máli. Við höfum hinsvegar haft uppi fyrirspurnir um hvenær niðurstöðu er að vænta, því þetta hefur dregist úr hófi,“ segir Einar. Hann segir að Sjóvá-Almennar hafi borið af sér allar sakir í þessu máli í svörum við frumskýrslu Sam- keppnisstofnunar, og nú verði beðið eftir niðurstöðu stofnunarinnar. Ein- ar segir þessarar niðurstöðu hafa verið að vænta í lok október, og hafi málið allt nú dregist allt of lengi. „Rannsóknin hófst eins og kunnugt er haustið 1997, og er því komið á sjöunda ár síðan,“ segir Einar. SÍT ekki lagt fram sáttatilboð „Samkeppnisstofnun hefur haft til athugunar í meira en sex ár meint ólöglegt samráð á íslenskum vá- tryggingamarkaði,“ segir Sigmar Ármannsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra trygginga- félaga. „Að því marki sem sú rann- sókn hefur beinst gegn Sambandi ís- lenskra tryggingafélaga hefur SÍT ætíð og algerlega hafnað því að hafa átt þátt í ólöglegu samráði, og skýrt þá afstöðu sína skilmerkilega. Sú af- staða er enn óbreytt. Því hefur ekki, af hálfu SÍT, verið lagt fram eitt- hvert sáttaboð í þessu máli. Ég veit ekki betur en að áþekk afstaða sé hjá tryggingafélögunum sjálfum.“ Sigmar segir SÍT nú bíða átekta eftir framhaldi málsins. Tryggingafélögin bíða niðurstöðu vegna meints samráðs Hafa ekki leitað sátta við Samkeppnisstofnun 84 ÁRA karlmaður lést í umferðar- slysi í Fossvogi á miðvikudag, þegar hann varð fyrir bifreið á Bústaðavegi við Eyrarland. Maðurinn var fluttur á Landspítalann með mikla höfuð- áverka og lést hann á gjörgæsludeild skömmu eftir innlögn. Hinn látni hét Haukur Pétursson til heimilis í Aðallandi 1 í Reykjavík. Hann var fæddur 17. mars árið 1919 og lætur eftir sig eiginkonu. Lést í um- ferðarslysi SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands, og Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, afhentu Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra í gær skrif- leg mótmæli hátt í 100 áhafna á ís- lenskum fiskiskipum gegn frum- varpi um línuívilnun. Að sögn Helga Laxdal má gera ráð fyrir að vel yfir 1.000 sjómenn hafi þannig á aðeins tveimur dög- um ákveðið að mótmæla frumvarp- inu með þessum hætti. „Við erum með þessu að leggja okkar af mörk- unum til að reyna að stöðva frum- varpið. Okkur reiknast til að ef línuívilnun verður komið á lagg- irnar verði veidd í skjóli hennar hátt í 5.000 þorskígildistonn. Og það er aðeins byrjunin því þegar búið er að opna fyrir þessar dyr munu fleiri nýta sér hana. Það þýð- ir að verið er að færa um 350 millj- ónir króna frá sjómönnum til trillu- karla og það getum við ekki liðið,“ segir Helgi Laxdal. Árni M. Mathisen sjávarútvegs- ráðherra segist hafa skilning á sjónarmiðum sjómanna, enda orki það ætíð tvímælis þegar tekið sé af einum til að færa öðrum. „Niður- staðan varð samt þessi eftir mikla yfirlegu. Þessi sjónarmið sjómanna koma því nokkuð seint fram, frum- varpið er komið til nefndar eftir fyrstu umræður og samþykktir landsfundar og flokksþings liggja fyrir. Ég hef því ekki mikið svig- rúm til að gera grundvallarbreyt- ingar á málinu,“ segir Árni. Morgunblaðið/Árni Sæberg 100 áhafnir mótmæla TVEIR karlmenn á miðjum aldri sem fæddir eru í Kongó og Kamerún að því er talið er, voru úrskurðaðir í gæsluvarð- hald til 22. desember á mið- vikudagskvöld að kröfu lög- reglunnar á Keflavíkurflug- velli. Sakarefnið varðar meint fjársvik, sem grunur er um að mennirnir hafi ætlað að stunda hér með fölsuðum kreditkort- um. Stöðvaðir í Leifsstöð Þeir voru stöðvaðir af óein- kennisklæddum lögreglumönn- um í Leifsstöð á þriðjudag er þeir komu til landsins frá Kaupmannahöfn. Í fórum þeirra fannst á annan tug fals- aðra kreditkorta sem stemmdu við fjölda falsaðra persónuskil- ríkja sem þeir höfðu meðferðis. Fyrir liggur að þeir höfðu valið sér Ísland sem áfangastað og benda líkur til þess að ferð þeirra hafi verið vandlega und- irbúin og er þetta ekki í fyrsta skipti sem þeir koma hingað til lands. Lögreglan á Keflavíkurflug- velli annast rannsókn málsins. Tveir menn handteknir með fölsuð kreditkort
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.