Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 4

Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 1 0 3 LANDSBANKINN hyggst efna til hugmyndasamkeppni um breyt- ingar á húseignum bankans á reitn- um milli Austurstrætis, Hafn- arstrætis og Pósthússtrætis og nýtingu þessa svæðis til að hleypa auknu lífi í miðborgina. Öllum er heimil þátttaka í samkeppninni. Björgólfur Guðmundsson, for- maður bankaráðs Landsbankans, segir að þessar hugmyndir tengist hugsanlegum breytingum á aðal- stöðvum bankans, en sótt hafi verið um lóð undir nýjar aðalstöðvar við Reykjavíkurhöfn. Það kalli á flutn- ing úr gamla bankanum í Austur- stræti, sem verið hafi eitt helsta kennileitið í Reykjavík í gegnum árin. Að vísu sé gert ráð fyrir að áfram verði þar starfrækt útibú eða eitthvað slíkt, en húsið hafi verið byggt 1923 og verið eitt glæsileg- asta húsið í borginni alla tíð síðan. „Þegar við fórum að hugsa þetta mál sem gamlir Reykvíkingar fannst okkur að það væri alveg tími til kominn að sameina þessa flutn- inga og byggingu því hvort ekki væri hægt að gera eitthvað fyrir miðbæinn,“ sagði Björgólfur í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagði að í framhaldinu hefði verið ákveðið að efna til hug- myndasamkeppni og kalla þannig eftir hugmyndum hjá almenningi um það hvað hægt væri að gera til að lífga upp á miðbæinn, gera hann skemmtilegri og að miðdepli mann- lífsins í borginni, hvort sem um væri að ræða menningarlíf, at- hafnalíf eða annað. Allir geta tekið þátt Björgólfur sagði að allir gætu tekið þátt í hugmyndasamkeppn- inni. Ekki þyrfti að vera um mikið útfærðar tillögur að ræða, heldur væri aðalatriðið að um væri að ræða einfaldar, skemmtilegar og framkvæmanlegar hugmyndir sem miðuðu að því að ná markmiðinu um að lífga upp á miðborgina með breytingum á húsnæði eða starf- semi á svæðinu. Þeir væru mjög opnir fyrir öllum tillögum um breytta nýtingu á svæðinu, breyt- ingar á byggingum og umhverfi, hvað varðaði íbúðarbyggð, starf- semi fyrirtækja, þjónustu, menn- ingarstarfsemi og hvað eina sem fólki dytti í hug og vildi upplifa í miðborginni. Björgólfur sagði að lóð undir nýj- ar aðalstöðvar Landsbankans væri við Geirsgötuna og unnið væri að þeim málum í mikilli sátt við borgaryfirvöld. Bankinn yrði 120 ára árið 2006 og það væri gaman ef um einhverja áfanga yrði þá að ræða í þessum efnum. „Ef borgararnir tækju sig nú saman um að koma sér saman um að koma sér upp virkilega skemmti- legri og lifandi miðborg væri það mjög gaman,“ sagði Björgólfur Guðmundsson ennfremur. Auknu lífi hleypt í miðbæinn Hugmyndasam- keppni um nýt- ingu Lands- bankahússins í Austurstræti Ein hugmynd um það hvernig reiturinn gæti litið út ef viðbygging út að Pósthússtræti hyrfi og Landsbankahúsið yrði fært í sitt upprunalega horf. Að margra mati er húsið með glæsilegustu byggingum í miðborg Reykjavíkur. Til samanburðar er mynd af Landsbankanum eins og hann lítur út í dag. HÆSTIRÉTTUR þyngdi í gær fangelsisdóma yfir fimm Kínverjum og einum Singapúrbúa sem sakfelld- ir voru af ákæru fyrir að nota fölsuð vegabréf er þeir komu til landsins í nóvember sl. Í héraðsdómi hafði fólkið verið dæmt í 30 daga skilorðsbundið fang- elsi að einum undanskildum sem hlaut 45 daga fangelsi á skilorði. Hæstiréttur áleit hins vegar að ekki væri hægt að skilorðsbinda refs- inguna vegna alvarleika brotsins. Við úrlausn málsins var litið til þess að vegabréf væru opinber skilríki sem miklu skipti að treysta mætti í samskiptum manna og þjóða. Þegar litið væri til þess hversu alvarlegt brotið væri, og litið til almennra varnaðaráhrifa refsinga, var ekki til- efni til að skilorðsbinda refsingu fólksins. Málin voru dæmd af hæstaréttar- dómurunum Gunnlaugi Claessen, Ingibjörgu Benediktsdóttur og Ólafi Berki Þorvaldssyni. Sækjandi var Bogi Nilsson ríkissaksóknari. Verj- andi ákærðu var Jóhannes Albert Sævarsson hrl. Refsing þyngd fyrir notkun falsaðra vegabréfa FJÖLMENNI var við vígslu nýrrar Þjórsárbrúar um miðjan dag í gær. Samgönguráðherra Sturla Böðv- arsson klippti á borða Rangárvalla- sýslumegin og naut aðstoðar Jóns Rögnvaldssonar vegamálastjóra. „Allir stórir og eftirminnilegir hlutir gerast í Rangárþingi,“ sagði einn af þingmönnum Suður- kjördæmis við þetta tækifæri. Sýslumaður Árnesinga svaraði hins vegar þannig að allra leiðir lægju í Árnesþing. Nýja brúin er mikið mannvirki, 170 metra löng og 11 metra breið. Er hún í 9 höfum og borin uppi af 78 metra löngum boga úr stáli og steinsteypu. Hönnunardeild Vega- gerðarinnar sá um þann þátt. Vél- smiðjan Normi í Vogum sá um smíði brúarinnar. Verktakafyr- irtækið Háfell sá um vegagerð beggja vegna alls um 4 km leið. Að sögn Valgeirs Þórðarsonar, yfirverkstjóra hjá brúarflokki Norma, var flókið verkefni að koma boganum yfir ána vegna þyngdar hans. Einnig var mikið rennsli í Þjórsá allan júlí og ágúst sl. veru- legt vandamál. Brúin er 5 km frá upptökum Suð- urlandsskjálftans sem varð 21. júní árið 2000. Steyptar eru 6 metra bergfestur niður í klöppina. Getur miðja brúarinnar þolað svignun um 17 cm í sambærilegum skjálfta. Gamla brúin var einbreið og er nú aðeins ein slík eftir á leiðinni frá Reykjavík til Kirkjubæjarklaust- urs. Að sögn Svans Bjarnasonar umdæmisstjóra var óhappatíðni við gömlu brúna veruleg, eða 1,65 á hverja milljón ekna km. Landsmeð- altal væri hins vegar 1.01. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra sagði næsta stórverkefni sunnanlands vera endurbætur á Hellisheiði auk margra annarra verkefna í héraðinu. Sævar Svavarsson hjá Norma ehf. þakkaði Vegagerðinni og hönnuðum náið samstarf. Hann benti á að brúin væri alíslensk hönnun og ekkert flutt inn nema hráefnið. Heildarkostnaður við mannvirkin er um 550 milljónir króna. Ný Þjórs- árbrú tek- in í notkun Framkvæmdir við nýja Þjórsárbrú kostuðu um 550 milljónir. Ljósmynd/Jón Aron Óskarsson Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Jón Rögnvaldsson vegamála- stjóri opnuðu Þjórsárbrú með formlegum hætti síðdegis í gær. HALLDÓR Björnsson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, seg- ist ganga úr Samfylkingunni styðji flokkurinn frumvarpið sem fjallar m.a. um eftirlaun ráðherra. „Ég tel að flokkurinn geti ekki staðið að þessu frumvarpi, sem er að mestu leyti eftirlaunafrumvarp fyrir for- sætisráðherra og fleiri aðila. Það kemur bara ekki til greina að við stöndum að slíku frumvarpi, a.m.k. styð ég ekki þann flokk sem stendur að slíku frumvarpi,“ segir Halldór. Hann segir einfaldlega enga skyn- semi í að leggja slíkt frumvarp fram á sama tíma og verkalýðshreyfingin setji fram skynsamlegar kröfur fyrir komandi kjarasamninga. „Hvernig í veröldinni á maður að styðja þá aðila sem standa að svona frumvarpi og taka svo út úr þessu 220 þúsund krónur í mánaðarlaun til hækkunar hjá sjálfum sér, eins og formenn flokkanna. Þetta bara gengur ekki upp.“ Að sögn Halldórs er þetta persónuleg ákvörðun hans og snertir ekki Starfsgreinasam- bandið á neinn hátt. Í fréttum Ríkisútvarpsins í gær- kvöldi kom fram að Kristján Gunn- arsson, formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur, ætlar einnig að segja sig úr Samfylking- unni ef flokkurinn styður frumvarp- ið. Aðastienn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, hvatti fólk til að segja sig úr stjórnmála- flokkum verði frumvarpið að lögum. Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins Úrsögn ef Samfylking- in styður frumvarpið GISTINÆTUR á hótelum í október síðastliðnum voru 74 þúsund en töldust 58 þúsund árið 2002, samkvæmt upplýs- ingum Hagstofunnar. Sam- svarar þetta 27% aukningu milli ára. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem fækkunin var um 3%. Mest fjölgaði gistinóttum á Norðurlandi, en þar tvöfaldað- ist fjöldinn og fór úr 3 þúsund- um í 6 þúsund milli ára. Á höf- uðborgarsvæðinu voru gisti- næturnar 55 þúsund í októ- bermánuði síðastliðnum en voru 44 þúsund árið á undan, sem telst vera 26% aukning. Gistinætur á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fóru úr 4.700 í 5.800 milli ára. Gistinóttum fjölgaði í október

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.