Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 13
ÞESSA dagana eru sauðfjársæð-
ingar í fullum gangi í Mýrdalnum.
Þar af leiðandi fá hrútarnir að
hvíla sig í nokkra daga hvort sem
þeim líkar betur eða verr. Á bæn-
um Kerlingadal í Mýrdal var Ólaf-
ur Þorsteinn Gunnarsson að sæða
á hjá Karli Pálmasyni en sæðið
kemur frá kynbótastöðinni í Laug-
ardælum og er úr sérvöldum hrút-
um. Notfæra bændur sér þennan
möguleika til að bæta ræktun í
fjárstofnum sínum og einnig til að
minnka hættu á skyldleikaræktun.
Í Kerlingadal er bæði hyrnt og
kollótt fé, einnig hafa þar lengi
verið til örfáar ferhyrndar kind-
ur, en ferhyrnt fé er frekar sjald-
gæft. Bræðurnir á myndinni eru
einmitt komnir út af þessum
stofni en faðir þeirra er
ferhyrndur.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ferhyrnt fé fátítt
Fagradal. Morgunblaðið.
TÓNLEIKAFERÐ Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands til Þýskalands lauk
með tónleikum í tónlistarhöllinni í
Osnabrück í gærkvöldi en hljóm-
sveitin heldur heim á leið á morgun.
Sinfóníuhljómsveitin hefur fengið
afar góðar umsagnir í þeim dómum
sem þegar hafa birst í dagblöðum í
Köln og Düsseldorf en þar lék hljóm-
sveitin á sunnudags- og mánudags-
kvöld við góðar undirtektir.
„Strengjaleikararnir leiftruðu fyrir
Jean Sibelius – Sinfóníuhljómsveit
frá Reykjavík lék með miklum glans
í fílharmóníunni,“ sagði í fyrirsögn
Kölner Stadt-Anzeiger, „Leiftr-
andi tónlistarlandslag“, sagði í fyr-
irsögn Düsseldorfer Stadtpost, og
„Tónlist sem gýs eins og goshver“
sagð í fyrirsögn Westdeutsche Zeit-
ung.
Heitur og kröftugur hljómur
„Hljómur íslensku sinfóníunnar er
heitur og kröftugur og hann sýður
og bullar eins og íslenskur goshver.
Þessi tónn var eins og skapaður fyrir
verk Sibelíusar. [fimmta sinfónían],
sagði Westdeutsche Zeitung. „Ekki
var heldur að undra að Íslendingarn-
ir hafi flutt verkið Frón eftir landa
sinn Áskel Másson af næmi og inni-
leika.“
Í Düsseldorfer Stadtpost sagði að
stjórnandi sinfóníunnar, Bretinn
Rumon Gamba, væri áhorfendum í
Þýskalandi vel kunnur og þeir hefðu
þarna fengið að sjá ávöxtinn af til-
tölulega stuttri samvinna hans og
Sinfóníuhljómsveitar Íslands, ávöxt
sem væri allt annað en kaldur hljóm-
ur. „Það sýndi sig við flutninginn á
fimmtu sinfóníu Sibelíusar hversu
vel hljómsveitin þekkir orðið stjórn-
andann, tónlistarmennirnir brugð-
ust skjótt við sérhverri ósk hans um
blæbrigðabreytingu og léku leiftr-
andi „hljómteppin“ í fyrsta hluta af
frábærri nákvæmni. [-] „Í stuttu
máli sagt: hrífandi tónlistarkvöld,“
sagði að síðustu í dómi Düsseldorfer
Stadtpost.
Gagnrýni á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Þýskalandi
„Hrífandi tónlistarkvöld“
„MÉR fannst rosalega gaman á tón-
leikunum og frábært að sjá Sinfón-
íuhljómsveit Íslands á sviðinu hér í
Fílharmóníunni. Ég var mjög stolt.
Andinn í salnum var góður, hljóm-
sveitin spilaði vel, og tónleikagestir
voru augljóslega mjög hrifnir.“
Það er Rannveig Sif Sigurð-
ardóttir söngkona sem búsett er í
Köln í Þýskalandi sem lýsir þannig
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands í Fílharmóníunni í Köln á
sunnudagskvöldið. „Það var gíf-
urlega mikið klapp. Eftir Píanó-
konsert Rakhmaninovs þurfti ein-
leikarinn að spila þrjú aukalög, og
þegar allt var búið spilaði hljóm-
sveitin svo tvö aukalög. Annað
þeirra var Á Sprengisandi í mjög
skemmtilegri útsetningu. Það var
mikill húmor í leik hljómsveit-
arinnar, orka og gleði og þegar
blásararnir voru með sóló, stóðu
þeir upp. Þetta var alveg frábært.“
Rannveig Sif segir að salur Fíl-
harmóníunnar taki um tvö þúsund
manns í sæti og að hún hafi heyrt
einhverja Þjóðverja grínast með
það, að það væru nú allt að því tvö
þúsund Íslendingar í Köln. Þar er
að minnsta kosti starfandi dágóður
hópur tónlistarmanna, sem eins og
Rannveig Sif mætti til að hlusta á
sitt fólk. „Það var uppselt á tón-
leikana. Ég kom á síðustu stundu,
og var sagt að það væri bara laust í
stæði, en ég var svo heppin að fá þó
einn lausan áskrifendamiða.“
Rannveig Sif fór baksviðs eftir
tónleikana með Gerði Gunnars-
dóttur fiðluleikara sem einnig býr
og starfar í Köln, en hefur áður
leikið með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Rannveig Sif segir að hljóm-
sveitarfólkið hafi verið mjög ánægt
með þessa fyrstu tónleika ferð-
arinnar og gríðargóðar viðtökur
tónleikagesta.
Gífurlega mikið klapp
REYKJAVÍKURBORG stendur
fyrir málþingi um hverfaþjón-
ustumiðstöðvar í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur á morgun, laug-
ardag, milli kl. 10 og 12.
Málþingið er ætlað starfsmönn-
umReykjavíkurborgar og verður
borgarstjóri Oslóar meðal gesta.
Þórólfur Árnason borgarstjóri
flytur opnunarávarp og síðan mun
Erling Lae borgarstjóri Oslóar
greina m.a. frá helstu álitaefnum
sem upp hafa komið í Osló eftir
að ráðist var í stofnun þjónustu-
miðstöðva þar í borg.
Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur
verkefnisstjóra á þróunar- og
fjölskyldusviði Reykjavíkurborg-
ar hefur verið unnið að undirbún-
ingi að tillögum um stofnun
þjónustumiðstöðva í hverfum
borgarinnar og líður senn að
ákvarðanatöku í þessum efnum.
„Til þess að heyra sjónarmið
þeirra sem reynsluna hafa, þá
vildum við fá fulltrúa norrænna
borga til að upplýsa starfsmenn
Reykjavíkurborgar um hvaða lær-
dóm megi draga af reynslunni er-
lendis frá og hver hafa verið
helstu álitamálin,“ segir Regína.
Auk borgarstjóra Oslóar flytur
Monika Lindth, fulltrúi borgar-
stjóra Stokkhólms, og formaður
fjárlaganefndar borgarinnar, er-
indi.
Í pallborðsumræðum verða
Regína og Árni Þór Sigurðsson
forseti borgarstjórnar.
Ritað undir sam-
starfsyfirlýsingu
Að loknu málþinginu verður
haldinn sérstakur fundur ein-
göngu ætlaður borgarfulltrúum
og gestum þeirra þar sem málin
verða krufin enn frekar og ritað
undir yfirlýsingu um samstarf
Reykjavíkurborgar viðOsló og
Stokkhólm. Væntanlegtsamstarf
mun fela í sér handleiðslu borg-
anna tveggja við Reykjavíkurborg
í hverfavæðingarferlinu. Framlag
Reykjvíkurborgar til samstarfsins
felst í upplýsingagjöf og aðgangi
að starfsmati borgarinnar.
Að sögn Regínu er þjónustu-
miðstöðvunum einkum ætlað að
vera alhliða þjónustugátt, m.a. á
sviði fjölskyldumála, og er þar
stuðst við fyrirmynd frá Miðgarði
í Grafarvogi.
Málþing um hverfaþjónustumiðstöðvar
Borgarstjóri Osló-
ar verður meðal
gesta á málþinginu
ÍSLENSK erfðagreining greindi í
gær frá tveimur nýjum áföngum í
samstarfi sínu við lyfjafyrirtækið
Merck um þróun nýrra meðferða við
offitu. Hafa vísindamenn fyrirtæk-
isins nú einangrað tvo erfðavísa með
breytileika sem auka á líkurnar á of-
fitu, annars vegar vegna áhrifa á
orkubúskap líkamans og hins vegar
á matarlyst. Fyrirtækin vinna nú að
frekari rannsóknum á erfðavísunum
með það að markmiði að skilgreina
lyfjamörk fyrir þróun nýrra lyfja.
Í tilkynningu frá Íslenskri erfða-
greiningu kemur fram, að upplýs-
ingar um arfgerð og heilsufar 17.000
einstaklinga sem hafi tekið þátt í of-
fiturannsóknum fyrirtækisins liggi
að baki þessum niðurstöðum. Annar
erfðavísirinn fannst með greiningu á
miklum fjölda erfðamarka í 900
karlmönnum sem mælst hafa með
háan líkamsþyngdarstuðul og í
mörg hundruð ættingjum þeirra og
einstaklingum í viðmiðunarhópi.
Einn af hverjum fjórum einstak-
lingum sem voru með háan líkams-
þyngdarstuðul reyndust vera af
áhættuarfgerð, þ.e.a.s. með
ákveðnar gerðir þessa erfðavísis
sem tengjast aukinni hættu á offitu.
Talið er að þessi erfðavísir komi að
stjórnun á orkubúskap líkamans og
hann starfar innan mjög mikilvægs
líffræðilegs ferils sem ekki var áður
vitað að tengdist offitu.
Áhættuarfgerðir hins erfðavísis-
ins voru skilgreindar út frá rann-
sóknum á 125 fjölskyldum kvenna
sem mælst hafa með hátt fituhlut-
fall. Þær valda um fimmfalt aukinni
hættu á offitu og eru til staðar í 22%
þeirra kvenna sem mældust með
hátt fituhlutfall. Þessi erfðavísir
virðist tengjast stjórnun á matar-
lyst.
Haft er eftir Kára Stefánssyni,
forstjóra ÍE, í tilkynningunni að
með því að setja þessar niðurstöður
í samhengi við niðurstöður rann-
sókna Merck á líffræði og erfða-
fræði offitu í músum, sé fyrirtækið
„í ótrúlega sterkri stöðu til að hefja
þróun á nýjum lyfjum gegn offitu.“
ÍE einangrar tvö ný mein-
gen sem tengjast offitu
FÉLAG slysa- og bráðalækna seg-
ir í ályktun að það hljóti öllum að
vera ljóst að ólympískir hnefaleik-
ar séu hættulegri en aðdáendur
þeirra vilja vera láta og tímabært
sé að löggjafinn endurskoði af-
stöðu sína til þessarar íþróttar.
„Félag Slysa- og bráðalækna
harmar þann atburð er ungur
maður hlaut alvarlegan höfuð-
áverka í skipulagðri hnefaleika-
keppni í Vestmannaeyjum nýlega-
.Við vottum samúð okkar ekki
aðeins þeim er fyrir áverkanum
varð heldur einnig þeim sem
áverkann veitti. Við fögnum þeirri
umræðu er orðið hefur í kjölfar
þessa atburðar en undrumst það,
að nokkrum skuli koma á óvart, að
fólk geti meiðst við iðkun íþróttar
sem gengur meðal annars út á að
koma höggi á höfuð andstæðings-
ins.
Þá teljum við, að það séu ekki
fullnægjandi rök að afsaka slysa-
hættuna með því að benda á hættu
á meiðslum við iðkun annarra
íþrótta eða það að hnefaleikar at-
vinnumanna séu enn hættulegri.
Það hlýtur öllum að vera ljóst
núna að ólympískir hnefaleikar
eru hættulegri en aðdáendur
þeirra vilja vera láta og tímabært
að löggjafinn endurskoði afstöðu
sína til þessarar íþróttar. Auk
hættunnar á lífshættulegum heila-
skaða í keppni, þá er ekki síðri
hættan af endurteknum minni
áverkum sem enda í heilasködd-
un,“ segir í ályktuninni.
Félag slysa- og
bráðalækna
Alþingi
endurskoði
afstöðu til
hnefaleika
PÁLL Torfi Önundarson, yfirlæknir
á blóðmeinadeild Landspítala - há-
skólasjúkrahúss, gerir athugasemd-
ir við upplýsingar Hreggviðs Jóns-
sonar, forstjóra PharmaNor, um
verð á lyfinu NovoSeven sem notað
var með góðum árangri í meðferð 14
ára pilts sem lá við drukknun í Breið-
holtslaug fyrr í vetur. Hreggviður
sagði í samtali við Morgunblaðið 3.
desember sl., að einn skammtur af
lyfinu kostaði 71.621 kr. Páll Torfi
segir að þar sé miðað við 1,2 mg og
bendir á að skammtastærð fari aldr-
ei undir 6 mg og algengt sé að gefa
skammta á bilinu 6–9 mg. Þar með sé
ljóst að skammturinn kosti frá á
fjórða hundrað þúsund krónur.
Lyfjaskammt-
ur á mörg
hundruð
þúsund kr.
♦ ♦ ♦
LÖGREGLAN gerði húsleit á
heimili manns á Patreksfirði í
gær, sem grunaður er um kyn-
ferðisofbeldi gegn ungum
drengjum í bænum. Einnig var
leitað í félagsmiðstöð bæjarins.
Leitað var gagna sem hugs-
anlega gætu tengst málinu á
einhvern hátt.
Samkvæmt upplýsingum
Þórólfs Halldórssonar, sýslu-
manns á Patreksfirði sem fer
með rannsókn málsins, var lagt
hald á gögn við húsleitina en
eftir á að rannsaka hvort þau
hafi eitthvað saknæmt að
geyma.
Maðurinn situr í gæsluvarð-
haldi og hefur verið yfirheyrð-
ur af lögreglu vegna málsins.
Húsleit á Patreksfirði