Morgunblaðið - 12.12.2003, Blaðsíða 18
ERLENT
18 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍBÚAR jarðarinnar verða níu
milljarðar þegar árið 2300 geng-
ur í garð, samkvæmt langdræg-
ustu mannfjöldaspá sem mann-
fjöldadeild Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) hefur gert til þessa.
Segja fulltrúar deildarinnar að
þeir hafi unnið tölfræðilegt
„tímamótaafrek“ sem geri þeim
kleift að spá fyrir um fjölda jarð-
arbúa svona langt fram í tímann,
en hingað til hafa spár þeirra ein-
ungis náð til 2150.
Samkvæmt nýju spánni, sem
svonefnt „meðalfrjósemisskema“
er lagt til grundvallar, verður
fæðingartíðnin lægri en dánar-
tíðnin í um eina öld áður en þetta
tvennt jafnast út. Þannig er
fengin út sú niðurstaða að jarð-
arbúar verði níu milljarðar eftir
300 ár. Þeir eru nú um 6.1 millj-
arður.
En verði fæðingartíðnin einum
fjórða úr barni hærri verða jarð-
arbúar 36,7 milljarðar eftir 300
ár.
Verði hún fjórðungi úr barni
lægri mun íbúum jarðarinnar
fækka í 2,3 milljarða.
„Áreiðanlega óhugsandi“ að
sama tímgunartíðni haldist
Í spá Sameinuðu þjóðanna er
tekinn af allur vafi um eitt atriði.
Verði tímgunartíðnin í löndum
heims áfram sú sama og hún var
1995–2000 verði jarðarbúar 134
trilljónir, eða 134.000 milljarðar.
Í spánni segir að það sé „alveg
áreiðanlega óhugsandi“ að svo
fari.
!
"
#
!
$ #%
&
'(
!" #
$ %
"
%
&'#(
&)
*
'
+
,
* "
+
+
*
,! (%
-
*#".,/
-
,
-
-
0
-
,
,-
-
&
&-
*
1
2
3
& *
"
.4 " 0
-
*
'
6. *
"
0
*
* "
& *
"
6. *
"
,! (%
*#".
,/
Ný spá Sameinuðu þjóðanna
Níu milljarð-
ar jarðarbúa
árið 2300
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
BRETINN Phil Shaw ætlar að feta í fót-
spor bandaríska sjónhverfingamannsins
Davids Blaine og hafast við í glerbúri fyrir
ofan verslunarmiðstöð í borginni Leicest-
er. Shaw ætlar þó raunar aðeins að hafast
við í búrinu í einn sólarhring en hann ætl-
ar á hinn bóginn að nýta tímann betur en
Blaine gerði: Shaw ætlar að hafa með sér
straujárn og fimmtán metra langan klæð-
isstranga sem hann hyggst strauja vel og
rækilega.
„Ég verð að játa að mér finnst ekki
gaman að strauja heima hjá mér, mér
finnst það svolítið leiðinlegt. Þess vegna
reyni ég jafnan að hafa strauþvottinn
minn með mér á skrýtna staði, t.d. strauja
ég oft uppi í fjöllum,“ segir Shaw.
Gott að eiga
góða granna
MIÐALDRA japönsk húsmóðir hefur verið
handtekin fyrir að halda vöku fyrir ná-
grannanum á hverju kvöldi með því að stilla
nokkur útvarpstæki afar hátt og láta vekj-
araklukkurnar sínar hringja stöðugt. Kon-
an, Kayoko Deguchi, er í varðhaldi grunuð
um að hafa valdið nágrannanum, 53 ára
gamalli konu, heilsutjóni en nágranninn
þjáist af krónískum höfuðverk og svefn-
leysi. Lögreglan lagði hald á sex útvarps-
tæki og níu vekjaraklukkur úr íbúð De-
guchi er hún var handtekin sl. þriðjudag.
Lögreglan segir hugsanlegt að háttalag
Deguchi, sem er 47 ára og búsett í borginni
Nara, megi rekja til atburðar sem átti sér
stað fyrir áratug. Þá var fjölskylda ná-
grannans í boltaleik fyrir framan húsið og
mun boltinn hafa lent í bíl Deguchi.
Hreindýrahirðar
í áhættuhópi
SUM störf eru áhættusamari en önnur. Ný
rannsókn í Svíþjóð bendir til dæmis til þess
að ekkert starf sé hættulegra en það að
vera hreindýrahirðir.
Ef marka má Per Sjölander, sem unnið
hefur skýrslu sem ber heitið Banvæn slys
og sjálfsvíg meðal hreindýrahirða í röðum
sænskra Sama, dóu 150 hreindýrahirðar við
skyldustörf á tímabilinu 1961 til 2000. Þetta
eru tvöfalt fleiri dauðsföll en hjá bændum á
sama tíma og þrisvar sinnum fleiri dauðs-
föll en hjá byggingaverkamönnum.
Stálu stolti norsks
nashyrnings
BÍRÆFNIR þjófar stálu á dögunum horn-
inu af uppstoppuðum nashyrningshaus,
sem hangið hafði á safni í Björgvin í Nor-
egi í meira en öld. Er óttazt að nú sé búið
að mala hornið í duft til sölu í Austur-Asíu,
þar sem það er eftirsótt sem frjósemislyf.
Þjófarnir reyndu að villa um fyrir starfs-
mönnum safnsins og settu illa gerða plast-
afsteypu af horninu í staðinn fyrir það af-
sagaða. Starfsmennirnir létu þó ekki
blekkjast, að því er Trond Andersen, for-
stöðumaður safnsins, tjáði Bergensavisen.
ÞETTA GERÐIST LÍKA
Straujar helst
utandyra
Reuters
Halda mætti að þessi hæna og
Cathay, tíu mánaða gamalt tígrisdýr,
væru í eltingaleik eins og hæfir ung-
viðinu, hvort sem það er mennskt eða
úr dýraríkinu. En svo er vitanlega
ekki og auðvitað náði Cathay, sem er
af ætt kínverskra tígrisdýra í útrým-
ingarhættu, bráð sinni á endanum.
Raunar varð hænan fyrsta bráðin
sem Cathay veiddi, en verið er að
kenna því að veiða sér til matar.
Þú nærð mér aldrei!
RÍKISSTJÓRN George W. Bush Bandaríkja-
forseta hefur kynt á ný undir ágreiningnum við
Evrópuríkin um Íraksstríðið með ákvörðun
sinni um að banna fyrirtækjum í löndum, sem
voru andvíg því, að gera tilboð í verk í Írak. Það
gerir hún á sama tíma og svo
virtist sem nokkur sátt væri
að takast með þeim. Eru
fréttaskýrendur fjölmiðla al-
mennt sammála um það
enda hafa viðbrögð við
ákvörðuninni verið mjög
hörð í Þýskalandi, Frakk-
landi, Rússlandi og Kanada.
Bush og ríkisstjórn hans
voru búin að samþykkja
ákvörðunina en samt kom
það Hvíta húsinu á óvart hve Paul Wolfowitz,
aðstoðarvarnarmálaráðherra, brást hart og
fljótt við. Finnst mörgum tónninn í yfirlýsingu
hans óþolandi og tímasetningin gat ekki verið
verri. Wolfowitz setti yfirlýsinguna inn á vef
varnarmálaráðuneytisins aðeins nokkrum
klukkustundum áður en Bush hafði ráðgert að
hringja í leiðtoga Þýskalands, Frakklands og
Rússlands og biðja þá að gefa eftir útistandandi
skuldir Íraka við ríkin, um 9.000 milljarða ísl.
kr.
Sagt að Bush hafi „liðið illa“
Eftir sem áður ræddi Bush þetta mál við leið-
togana í fyrradag en fréttaskýrendur segja, að
málflutningur hans hljóti að hafa verið hálf-
kjánalegur við þessar nýju aðstæður. Haft er
eftir ónefndum embættismanni í Hvíta húsinu,
að Bush hafi beinlínis „liðið illa“ í samtölunum
við leiðtogana, sem þá voru nýbúnir að fá yfir-
lýsingu Wolfowitz í hendur.
Sumir nánir aðstoðarmenn Bush eru sagðir
furða sig á því, að ríkisstjórnin skuli ekki hafa
tekið þá stefnu, að bestu verksamningarnir í
Írak skyldu renna til „hinna staðföstu“, banda-
manna Bandaríkjamanna í Íraksinnrásinni, en
enginn skyldi þó útilokaður.
„Það, sem við gerðum, var að eyðileggja okk-
annars af því, að í yfirlýsingu Wolfowitz er
ákvörðunin um útilokun rökstudd með því „að
verið sé að verja mikilvæga öryggishagsmuni
Bandaríkjanna“. Segja bandarískir embættis-
menn, að vegna þess falli verksamningar í Írak
undir undanþáguákvæði Heimsviðskiptastofn-
unarinnar, WTO, um útboð. Bandaríska við-
skiptaráðuneytið hefur hins vegar lýst því yfir,
að bandarísk hermálayfirvöld í Írak séu undan-
þegin alþjóðlegum útboðsskilmálum. Ef svo er,
þá er það líka út í hött að vísa til undanþáguá-
kvæða Heimsviðskiptastofnunarinnar.
Sergei Ívanov, varnarmálaráðherra Rúss-
lands, brást við með því að lýsa yfir, að ekki
kæmi lengur til greina að afskrifa skuldir Íraka
við Rússa en þær eru um 590 milljarðar ísl. kr.
„Kenjóttur krakki“
„Bandaríkin eru eins og kenjóttur krakki í
samskiptum sínum við Evrópuríkin,“ sagði
Eberhard Sandschneider, sem sæti á í þýsku
Alþjóðasamskiptastofnuninni, um ákvörðun
bandaríska varnarmálaráðuneytisins. „Ef þú
eyðileggur sandkastalann minn, þá eyðilegg ég
sandkastalann þinn. Ef Bandaríkjastjórn vildi í
raun bæta samskiptin, þá hafa henni orðið á
mikil mistök. Hún hefur rifið upp sárin eftir
margra mánaða vinnu við að reyna að græða
þau.“
Heimildir: AP, New York Times, Wash. Post.
ar eigin samningsstöðu,“ sagði háttsettur,
bandarískur sendimaður. „Við hefðum getað
sagt: „Því meira, sem þið lögðuð af mörkum, því
meira fáið þið,“ en þess í stað fundum við nýja
leið til að hrekja frá okkur okkar eigin banda-
menn.“
„Spyrjið Jim Baker“
Á fréttamannafundi í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu í fyrradag var háttsettur embætt-
ismaður spurður hver hann héldi, að yrðu við-
brögð Þjóðverja, Frakka og Rússa við
ákvörðuninni. Svarið var stutt og laggott:
„Spyrjið Jim Baker. Hann mun finna út úr því.“
Í síðustu viku fól Bush James A. Baker, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, að annast samninga
um eftirgjöf á skuldum Íraks og mun hann
ræða um það mál við ríkisstjórnir Evrópuríkj-
anna í næstu viku.
Hörð viðbrögð Evrópuríkjanna og Kanada
við ákvörðun Bandaríkjastjórnar hafa augljós-
lega komið henni á óvart. John Manley,
aðstoðarforsætisráðherra Kanada, benti á, að
stjórn sín hefði nú þegar lagt fram meira en 14
milljarða ísl. kr. til uppbyggingarinnar í Írak en
nú væri erfitt að forsvara áframhald á því.
Þýska stjórnin sagði ákvörðunina „óásættan-
lega“ og Frakkar ætla að kanna hvort hún
stenst alþjóðalög. Það ætlar Evrópusambandið
einnig að gera.
Hörð viðbrögð Evrópuríkjanna stafa meðal
Sáttatilraunir síðustu
mánaða að engu gerðar
Sú ákvörðun Bandaríkja-
stjórnar að útiloka sum ríki
frá uppbyggingarstarfinu í
Írak hefur hleypt illu blóði í
þau, sem fyrir henni verða.
Eru raunar sumir ráðgjafa
Bush forseta sagðir furða sig
á henni og telja hana mistök.
Reuters
Barist við olíueld í Írak. Stór hluti uppbyggingarstarfs í landinu verður að endurreisa olíu-
iðnaðinn. Frá falli Saddam Husseins hafa leiðslurnar verið sprengdar upp í 83 skipti.
Paul Wolfowitz