Morgunblaðið - 12.12.2003, Qupperneq 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 21
Fram til 9. janúar 2004 getur þú fundið þægindin í nýrri mynd á einstöku verði.
Natuzzi, fremsti framleiðandi leðursófa á heimsvísu, býður Tahira, 4 sæta hornsófa
í leðri frá 295.000 krónum í stað 350.000. Tahira, sem er frábært dæmi um ítalska
hönnun, gæði og handverk, verður ógleymanlegt stefnumót við þægindi.
Tahira
Þriggja sæta (236 sm) í leðri frá 188.000 krónum
í stað 221.200 króna.
Tveggja sæta (198 sm) í leðri frá 169.000 krónum
í stað 200.800 króna. www.natuzzi.com
Tahira fæst einnig í tauáklæði
og með míkróofurefninu, Dreamfibre.
Heimsending er innifalin á höfuðborgarsvæðinu.
Natuzzi verslunin - SMÁRALIND - 201 Kópavogur - Sími 564 4477 - Verslunin er opin á sunnudögum frá 13 til 18.
It’s how you live
ÞÆGINDIN FINNA SÉR NÝJA MYND
TAHIRA FJÖGURRA SÆTA LEÐURHORNSÓFI FRÁ AÐEINS 295.000 KR.
VOR
2004
Kringlunni & Hamraborg
568 4900 552 3636
Vísa og Euro léttgreiðslur
HÆKKUN hitastigs á jörðinni
ásamt ofveiði hefur komið illa niður
á þorskstofnum í Atlantshafi, sam-
kvæmt niðurstöðum franskrar
rannsóknar er birtar voru í gær í
breska vísindaritinu Nature.
Franskir haffræðingar segja að
niðurstöðurnar leiði í ljós að hækk-
un hitastigs í Norðursjó undanfar-
in 20 ár hafi raskað viðgangi svif-
dýra, helstu fæðu þorskseiða. Á
þessum árum hafi magn svifdýra
sveiflast mikið og því hafi færri
þorskseiði komist á legg.
Í niðurstöðum rannsóknarinnar,
sem stjórnað var af Gregory
Beaugrand við Frönsku vísinda-
rannsóknamiðstöðina (CNRS),
segir að „hækkun hitastigs síðan á
miðjum níunda áratugnum hefur
haft áhrif á svifdýrakerfið þannig
að færri þorskar verða fullvaxta“.
Vöxtur 1963–1983
Aftur á móti megi leiða líkum að
því, að aukning á magni svifdýra
hafi leitt til fjölgunar þorsks á tutt-
ugu ára tímabili frá 1963-83, eins
og mörgum togarasjómönnum sé í
fersku minni.
Gögn um loftslagið á jörðinni
benda til að hækkunar hitastigs
hafi farið að gæta um miðjan átt-
unda áratug síðustu aldar í kjölfar
losunar gróðurhúsalofttegunda –
kolefnissambanda sem myndast
við bruna jarðefnaeldsneytis, s.s.
olíu, kola og jarðgass og hefta end-
urvarp sólarljóssins frá jörðinni út
í geiminn. Bráðabirgðatölur frá
ýmsum löndum benda til að 2003
verð heitasta ár sem sögur fara af.
Þorskurinn geldur hitans
París. AFP.
SÉRSTÖK sérfræðinganefnd í
Frakklandi mælir með því að sett
verði bann við notkun íslamskra höf-
uðklúta og gyðingahettna í skólum
landsins. Með þessu verði hin verald-
legu gildi áfram í heiðri höfð í Frakk-
landi en nefndin telur að nokkuð hafi
fjarað undan þeim að undanförnu.
Málið hefur verið nokkuð í brenni-
depli í Frakklandi undanfarna mán-
uði. Var sérfræðinganefndinni áður-
nefndu falið að fara yfir málin og
leggja fram tillögur. Nefndin – en
fyrir henni fór fyrrverandi ráðherra,
Bernard Stasi – afhenti Jacques
Chirac Frakklandsforseta skýrslu
sína í gær og er gert ráð fyrir að
Chirac tilkynni í næstu viku hvort
hann hyggst fylgja tillögum nefnd-
arinnar eftir með lagasetningu.
Skýrsluhöfundar leggja einnig til
að framvegis verði gefið frí í ríkis-
skólum á árlegum hátíðardegi gyð-
inga, Yom Kippur, og múslimahátíð-
inni Eid el-Kabir.
Veraldleg gildi í hávegum höfð
Sérfræðinganefndin var skipuð til
að ræða mikilvægi veraldlegra gilda
í frönsku þjóðlífi, en áhersla á þau
hefur verið einn af hornsteinum
fransks samfélags. Spurningin um
það hvort múslimar fái að bera höf-
uðklúta í skólum landsins var þó efst
á baugi; en rætt er um þetta mál sem
prófraun á það hvort stjórnvöld geti
framfylgt stefnu sinni um fullan að-
skilnað milli ríkis og kirkju.
Talið er að mörg þúsund unglings-
stúlkur beri nú höfuðklútinn í skól-
um í Frakklandi og hefur það vakið
reiði margra sem telja þetta bæði
merki um vöxt bókstafstrúarmanna
og lítillækkandi fyrir konur.
Nefndin segir að notkun höfuð-
klútsins sé ekki í samræmi við
áhersluna á veraldleg gildi og að
spurningin sé ekki lengur um frelsi
einstaklingsins til orðs og æðis, held-
ur um að grundvallarreglur samfé-
lagsins séu í heiðri hafðar. Nefndin
lagði því til að fólki yrði bannað að
bera öll „áberandi“ tákn um trú við-
komandi – þ.m.t. íslamska höfuðklút-
inn, gyðingahettuna og stóra krossa
– en að heimilt yrði að bera lítil tákn
eins og Davíðsstjörnuna, litla krossa
um hálsinn og annað þess háttar.
Sérstök sérfræðinganefnd kynnir
tillögur sínar fyrir Frakklandsforseta
Mæla með banni á
notkun íslamskra
höfuðklúta
París. AFP.
Reuters
Chirac (t.h.) tekur við skýrslunni úr
höndum Bernards Stasis í gær.