Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 30
AUSTURLAND
30 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
! " # $%!! & '" # #$$% ()* (+ ( , ()* (+ ( -.
!"
#$
%
&
"
(. /0 12 / 3 45 6.7
Munið
að slökkva
á kertunum
Fyrir börn hefur
kertaljós sérstakt
aðdráttarafl. Brýnið
fyrir þeim að fara ætíð
varlega með eld og
gætið þess að þau
leiki sér ekki án
umsjónar nálægt
logandi kertum.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þotugrín
Kárahnjúkavirkjun | Ítölsku börnin í Laug-
arásþorpinu, meginbúðum Impregilo S.p.A. í
Kárahnjúkavirkjun, dunda eftir skólann við
að renna sér á snjóþotum niður hverja brekk-
una á fætur annarri. Milli gáma og vinnu-
skúra, íbúðaeininga og mötuneytis, alls stað-
ar eru snjóugir malarhraukar og brekkur
sem bruna má niður.
Kárahnjúkavirkjun | Þetta er ekki
óalgeng sjón á Kárahnjúkavegi síð-
an færð tók að þyngja. Þessi hafði
runnið snyrtilega út af í fyrradag og
svo á hliðina, en til allrar gæfu slas-
aðist enginn í veltunni. Á veginum
inn að virkjun mátti einnig sjá
nokkrar hvítfjaðra rjúpur og hundr-
uð snjótittlinga þrátt fyrir jarðbönn
í efra.
Bílar og fuglar
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Slys | Maður slasaðist um borð í
Ásgrími Halldórssyni SF frá Horna-
firði í fyrradag, þegar skipið var á
síldveiðum á Vopnafjarðargrunni.
Að sögn skipstjórans voru skipverj-
ar að taka pokann fram á síðuna,
þegar svokallaður leiðari slitnaði og
slóst í höfuð mannsins. Hlaut mað-
urinn töluverða áverka á höfði og
beinbrot og var strax siglt með hann
til Vopnafjarðar og var skipið þar
um kl. 22.30. Send var eftir honum
flugvél frá Akureyri, sem flutti hann
á gjörgæsludeild Landspítala - há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi. Hann
var í gær fluttur á almenna deild og
líðan hans mun vera eftir atvikum.
Karfan | Karlalið Hattar í körfu-
knattleik, fyrstu deild, mætir á
sunnudag kl. 16.30 liði Njarðvíkinga.
Leikurinn fer fram í Íþróttamiðstöð-
inni á Egilsstöðum. Lið Hattar er í 9.
sæti deildarinnar, með tvö stig eftir
átta leiki.
Hangikjöt brann | Illa fór á Borg-
arfirði eystra á dögunum þegar
reykkofi fullur af jólahangikjöti
brann til kaldra kola. Missti þar
hálfur annar tugur Borgfirðinga
hangikjötið sitt og þykir að vonum
súrt í brotið að sjá á eftir tugum
góðra hangikjötsbita í eldskjaft.
Neskaupstaður | Á dögunum voru
ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu
í Neskaupstað við hátíðlega athöfn í
miðbænum. Í ár kom jólatréð frá
Stavanger í Noregi, en vinabæir
Fjarðabyggðar hafa skipst á að
gefa sveitarfélaginu jólatré. Að
sama skapi hefur skapast hefð fyrir
því að Fjarðabyggð gefið vinabæ
sínum í Færeyjum, Sandavogi,
jólatré.
Ýmsar uppákomur voru við at-
höfnina, en hæst bar komu jólasvein-
anna sem að þessu sinni komu með
blikkandi ljósum í slökkviliðsbíl og
með lögreglufylgd. Flestir voru
spenntastir fyrir sveinunum, en
nokkrir bílaáhugamenn höfðu þó
meiri áhuga á glæsilegum slökkvi-
liðsbílnum. Sveinarnir tóku lagið
með börnunum og gaukuðu svo að
þeim ávöxtum áður en þeir kvöddu
samkomuna og héldu aftur til fjalla,
enda eiga þeir ýmislegt eftir að sýsla
áður en þeir fara að tínast til byggða
og færa stilltum börnum glaðning í
skóinn.
Jólasveinar fá far með slökkviliði
Kárahnjúkavirkjun | Kristín Sævars-
dóttir, sölumaður hjá Icestart ehf.,
mátaði sig við þessa gröfu sem hafði
í gær verið lagt ofan við stíflustæði
Kárahnjúkavirkjunar og gröfumað-
urinn sjálfsagt í kaffi. Á meðan graf-
an, sem er engin smásmíði, tekur 30
tonn í skófluna, selur Kristín verk-
tökunum í Kárahnjúkum voðfellda
vinnugalla í stórum stíl.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þrjátíu tonn og vinnugallar
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Stakir sófar • Stakir stólar
Sófasett