Morgunblaðið - 12.12.2003, Blaðsíða 32
LANDIÐ
32 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍRSKA fyrirtækið Celtic Sea
Minerals hefur ákveðið að stofna
kalkþörungaverksmiðju á Bíldu-
dal og er von á forsvarsmönnum
fyrirtækisins í næstu viku til þess
að ganga að mestu leyti frá samn-
ingum. Reiknað er með að 12–14
varanleg störf skapist þegar verk-
smiðjan hefur starfsemi.
Töf varð á undirbúningi verk-
efnisins í haust en þá ákváðu Ír-
arnir að halda að sér höndum
vegna versnandi markaðsað-
stæðna vestan hafs.
Brynjólfur Gíslason, bæjar-
stjóri Vesturbyggðar, segir ekki
liggja alveg fyrir hvað sé hægt
skrifa undir mikið nú en ljóst sé að
hægt verði að ganga frá viljayfir-
lýsingu um að ráðist verði í verkið
og væntanlega einnig um námal-
eyfi í Arnarfirði. Hann segir að
einnig þurfi að koma til samning-
ar við samgöngu- og bæjaryfir-
völd um mannvirkjagerð og svo
samningur milli bæjaryfirvalda og
írska félagsins um hafnaraðstöðu
og land.
Brynjólfur tekur þó fram að
mestu máli skipti að verið sé að
staðfesta að ráðist verði í verkið.
Ef allt gangi að óskum geti fram-
kvæmdir hafist næsta vor.
Nýr aðili að hefja fiskverkun
Aðspurður segir Brynjólfur at-
vinnuástand á Bíldudal hafa verið
slæmt en nú séu horfur gjör-
breyttar, bæði vegna ákvörðunar
Íranna en eins vegna þess að nýr
aðili sé að hefja fiskverkun á
Bíldudal og sá aðili hyggist jafnvel
ætla að vera með meiri umsvif en
sá sem fyrir var. „Síðan er rækju-
verksmiðjan að fara af stað aftur
einhvern tíma rétt eftir áramótin.
Á miðju þessu ári var tilkynnt að
bolfiskvinnslan, Þórður Jónsson
ehf., hefði sótt um greiðslustöðv-
un vegna erfiðleika og eins um
lokun rækjuvinnslunnar um tíma.
Skömmu síðar hafi Írarnir ákveð-
ið að kippa að sér höndum.
Nú gerist það hálfu ári síðar að
allt snýst þetta við. Áður vorum
með eyrun í feninu en nú eru ilj-
arnar komnar fet upp fyrir. Ég
held því að það sé óhætt að full-
yrða að menn séu nokkuð bjart-
sýnir,“ segir Brynjólfur.
Vilji til að reisa kalkþör-
ungaverksmiðju á Bíldudal
Umskipti í atvinnulífi fyrirsjáan-
leg eftir deyfð síðustu mánuði
Strandanornir | Galdra- og þjóðtrúardagur
verður á bókasafninu á Hólmavík í samvinnu við
Strandagaldur og Leikfélag Hólmavíkur laug-
ardaginn 13. desember kl. 14.
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur les
upp úr bók sinni Strandanornir. Jón Jónsson jóla-
sveinafræðingur leiðir gesti í allan sannleika um
gömlu jólafólin og illvirki þeirra og félagar í Leik-
félagi Hólmavíkur lesa þjóðsögur og skemmta sér
og öðrum.
Allir velkomnir, boðið upp á kaffi og piparkökur.
Almannaskarð |Vegagerðin hefur boðið út gerð
jarðganga undir Almannaskarð ásamt vegskálum
og vegagerð. Jarðgöngin verða tvíbreið, 1.146 m
löng, vegskálarnir verða 162 m og vegagerð um 4,1
km. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. júní 2005.
Vegagerðin mun standa fyrir vettvangsskoðun 8.
janúar nk. Það styttist því í að framkvæmdir hefj-
ist við gangagerðina og segir á heimasíðu Horna-
fjarðar að spennandi verði að aka undir en ekki yf-
ir Almannaskarð.
Göngin koma til með að verða mikil og góð sam-
göngubót enda vegurinn yfir Almannaskarð bratt-
ur og oft erfiður að vetri til. Reynir Gunnarsson
hjá Vegagerðinni segir að veginum upp Skarðdal-
inn verði haldið við og því geti fólk áfram notið út-
sýnisins yfir Hornafjörð af Almannaskarði.
Reykholt | Sparisjóður Mýrasýslu bauð til
aðventutónleika í Reykholtskirkju á
fimmtudagskvöldið í tilefni af 90 ára af-
mæli sínu á þessu ári. Á annað hundrað
manns söng í fimm kórum og einum kvart-
ett og gestir voru á fjórða hundraðið.
Í tilefni afmælis Sparisjóðs Mýrasýslu var
valin sértök afmælisnefnd sem tók að sér
að skipuleggja ýmsar uppákomur á árinu.
Meðal þess sem gert hefur verið er að einn
laugardag var öllum boðið frítt í sund í
Sundlauginni í Borgarnesi. Þá hefur verið
haldin myndlistarsýning barna og hafa
myndir barna úr grunnskólum í Borg-
arfirði og Snæfellsnesi skipst á að skreyta
sal Sparisjóðsins við Borgarbraut í Borg-
arnesi.
Steinunn Ása Guðmundsdóttir skrif-
stofustjóri sagði í samtali við Morgunblaðið
að hugmyndin um að halda tónleika með
öllum kórunum sem Sparisjóðurinn hefur
styrkt í héraðinu hafi komið frá nefndinni.
Ákveðið var að halda aðventutónleika og
sagðist hún vera mjög ánægð með hvernig
til tókst. Fullt var út úr dyrum og greini-
lega ánægja meðal gesta með framtakið.
Ekki spillti fyrir að í hléi var gestum boð-
ið upp á kaffi og heimabakaðar smákökur
sem starfsfólk Sparisjóðsins bakaði sjálft.
Hver kór söng þrjú lög, en þeir voru
Kirkjukór Borgarneskirkju, Kammerkór
Vesturlands, Freyjukórinn, Samkór Mýra-
manna og Karlakórinn Söngbræður auk
kvartettsins Spaðafjarka. Í lok tónleikana
sungu allir kórarnir saman auk þess sem
þau Theodóra Þorsteinsdóttir og Snorri
Hjálmarsson sungu Ó helga nótt og samein-
aður kór tóku undir. Að síðustu sungu allir,
bæði kórar og tónleikagestir, eitt jólalag.
Söngglaðir Borgfirðingar á aðventu
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Jólastemmning: Starfsfólk Sparisjóðs Mýrasýslu bauð upp á kaffi og heimabakaðar smákökur í hléi á aðventutónleikum í Reykholtskirkju.
Kórar sem sparisjóðurinn hefur styrkt sungu saman í Reykholti
Þórshöfn | Dvalarheimilið Naust á Þórshöfn á sér
marga velunnara og segir eldra fólkið í byggð-
arlaginu að gott sé að vita af þessu notalega
heimili í heimabyggðinni þegar þörf verður á að-
hlynningu í ellinni.
Stjórn Nausts tók við myndarlegri gjöf nýverið
en það var sjóður stofnaður til minningar um
Maríu Jóhannsdóttur frá Syðra-Álandi í Þist-
ilfirði sem lést á þessu ári. Sjóðurinn var stofn-
aður á afmælisdegi Maríu með sparisjóðsinn-
istæðu Leikfélags Þistilfjarðar ásamt fleiri
framlögum en María var einstök driffjöður með-
an félagið starfaði og vann mikið og gott starf.
Félagið hefur ekki starfað um árabil og því var
ákvörðun félaga að helga eignir Leikfélagsins
minningu Maríu. Kristín Sigfúsdóttir frá Gunn-
arsstöðum, bróðurdóttir Maríu, afhenti Birni
Ingimarssyni sveitarstjóra minningargjöfina og
sagði við það tækifæri að ekki væri það verra að
sjóðurinn yrði notaður til menningar- og tóm-
stundaiðju heimilisfólksins á Nausti en kvaða-
laust af hálfu gefendanna.
Björn sveitarstjóri þakkaði hlýhug í garð dval-
arheimilisins og stundinni lauk með rausn-
arlegum kaffiveitingum að hætti Brynhildar,
matráðskonu Naustsins.
Morgunblaðið/Líney
Margir velunnarar: Kristín Sigfúsdóttir frá
Gunnarsstöðum í Þistilfirði afhenti Birni Ingi-
marssyni sveitarstjóra minningargjöfina.
Minningarsjóður
afhentur Nausti
Grundarfjörður | Skólanefnd fyrir
Fjölbrautaskóla Snæfellinga kom
saman til síns fyrsta fundar í Grund-
arfirði þriðjudaginn 9. desember.
Nefndina skipa tveir fulltrúar sveitar-
félaga á Snæfellsnesi, þau Björg
Ágústsdóttir, Grundarfirði, og Eyþór
Benediktsson, Stykkishólmi. Þrír
fulltrúar nefndarinnar eru skipaðir af
menntamálaráðherra en þeir eru
Sveinn Elínbergsson, Ólafsvík, Sig-
ríður Finsen, Grundarfirði og Kjart-
an Páll Einarsson, Stykkishólmi.
Það verkefni bíður nefndarinnar að
fara yfir umsóknir um stöðu skóla-
meistara Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga en átta aðilar sóttu um stöðuna.
Nefndin mun kalla umsækjendur til
viðtals og síðan gera tillögu um ráðn-
ingu til menntamálaráðherra sem
skipar í stöðuna frá 1. janúar 2004.
Teikningar að hinum nýja fjölbrauta-
skóla sem rísa á í Grundarfirði eru nú
til umfjöllunar hjá umhverfisnefnd
Grundarfjarðar. Skoða má þessar
teikningar á heimasíðu Grundarfjarð-
ar á slóðinni http://www.grundarfjor-
dur.is
Fyrsti fundur Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Fyrsti fundur: Nýskipuð skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grund-
arfirði, frá vinstri: Björg Ágústsdóttir, Eyþór Benediktsson, Sveinn Þ. El-
inbergsson, Sigríður Finsen og Kjartan Páll Einarsson.
FYRSTU jólatónleikar Friðriks Ómars og hjómsveitar í þrennra tónleika
röð norðanlands voru haldnir í Félagsheimilinu Múla í Grímsey. Félags-
heimilið hafði Kvenfélagið Baugur klætt í jólabúning og ljómuðu jólaljós í
hverjum glugga. Ekki voru þetta einungis fyrstu tónleikar listamannanna,
heldur jafnframt fyrstu jólatónleikar að því er menn telja, sem haldnir
hafa verið á heimskautsbaug. Jólalög einkenndu að sjálfsögðu dagskrána
og Friðrik fór sannarlega á kostum ásamt sínum mönnum. Það er mikils
virði fyrir jaðarbyggð „Jólasveinalandsins“ að fá slíka gesti sem gefa jafn
fallega og vel tóninn inn í jólastemmninguna..
Morgunblaðið/Helga Mattína
Jólatónleikar á heimskautsbaug