Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 33
Farandsýningin Carnegie ArtAward 2004 verður opnuð íListasafni Kópavogs, Gerð-
arsafni, í dag. Á Carnegie Art
Award-sýningunni í ár eru sýnd
verk eftir 24 listamenn, þeirra á
meðal eru handhafar Carnegie
Art-verðlaunanna, Finninn Nina
Roos sem hlaut fyrstu verðlaun,
Daninn Anette H. Flensburg sem
hlaut önnur verðlaun og Norðmað-
urinn Olav Christopher Jenssen sem
hlaut þriðju verðlaun. Finnski lista-
maðurinn Elina Brotheus hlaut
Carnegie-styrkinn til upprennandi
listamanns. Verðlaunin voru afhent
hinn 14. október sl. í Konstakadem-
ien í Stokkhólmi, en þar var Carneg-
ie Art Award-sýningin árið 2004
upphaflega sýnd. Listasafn Kópa-
vogs, Gerðarsafn, er annar sýning-
arstaðurinn á ferð hennar um Norð-
urlöndin og Bretland fram í
ársbyrjun 2005. Héðan fer sýningin
til Kunstnernes Hus í Osló, síðan til
Charlottenborg í Kaupmannahafn,
þaðan til Victoria Miro Warehouse í
Lundúnum og lýkur loks í Konst-
hallen í Helsinki.
Sýningin framvegis
annað hvert ár
Carnegie Art-verðlaununum var
komið á fót árið 1998 á vegum nor-
ræna fjárfestingarbankans Carneg-
ie, til að styðja framúrskarandi lista-
menn á Norðurlöndum og efla
norræna samtímamálaralist. Við-
burðurinn felur í sér farandsýningu
valinna listaverka, skráningu sýn-
ingarinnar í bókarformi og afhend-
ingu Carnegie Art-verðlaunanna
sem veitt eru þremur listamönnum
er eiga verk á sýningunni ásamt
styrk til yngri listamanns.
Að sögn Ulriku Levén sýningar-
stjóra var í kjölfar fimm ára starfs-
tímabils Carnegie Art Award ráðist í
umfangsmiklar breytingar á fram-
kvæmd þessa myndlistarviðburðar.
„Frá og með þessu hausti verður
Carnegie Art Award-sýningin opnuð
annað hvert ár, en ekki á hverju ári
eins og tíðkast hefur til þessa. Með
því móti er hægt að hafa sýninguna
lengur uppi við í hverju landi. Í stað
þess að sýna aðeins í um þrjár vikur
á hverjum stað, sem er afar stuttur
tími fyrir svona yfirgripsmikla sýn-
ingu, verður hver sýning uppi við í
um tvo mánuði. Það þýðir að mun
fleirum gefst kostur á að sjá sýn-
inguna, auk þess sem aukið svigrúm
gefst til að skipuleggja ýmsar uppá-
komur í tengslum við hana. Hér á Ís-
landi verður t.d. efnt til málþings í
lok janúar í samvinnu við Listasafn
Kópavogs.“
Levén bendir á að samtímis hafi
vinningsupphæðirnar verið tvöfald-
aðar. „Þannig nema fyrstu verðlaun
núna 1.000.000 sænskum krónum í
stað 500.000 Skr. áður, önnur verð-
laun eru núna 600.000 Skr., þriðju
verðlaun 400.000 Skr. og styrkur til
listamanns af yngri kynslóð 100.000
Skr. Þessi breyting er náttúrlega
gríðarlega þýðingarmikil fyrir verð-
launahafana sjálfa.“
Þessu til viðbótar má nefna að frá
því haustið 2003 verður alþjóðlega
þekktum sérfræðingi á sviði nútíma-
myndlistar boðið að taka þátt í síðari
fundi dómnefndar þegar ákveðið er
hverji skuli hljóta myndlistarverð-
launin og styrkinn. „Í ár buðum við
Robert Storr, prófessor hjá New
York-háskólanum, sem áður var
sýningarstjóri hjá MOMA til
margra ára, að sitja í dómnefndinni.
Að mínu mati er afar jákvætt að fá
álit svona utanaðkomandi aðila sem
ekki gjörþekkir norrænt listalíf, en
dómnefndin er að öðru leyti sett
saman af safnstjórum frá öllum
Norðurlöndunum.“ Þess má geta að
fulltrúi Íslands í dómnefndinni er
Halldór Björn Runólfsson, lektor við
Listaháskóla Íslands, en formaður
nefndarinnar er Lars Nittve, safn-
stjóri Moderna Museet í Stokkhólmi
og fyrrverandi forstöðumaður Tate
Modern í Lundúnum.
Nánari umfjöllun verður um sýn-
inguna í Lesbók Morgunblaðsins á
morgun.
Carnegie Art Award-sýningin árið 2004 opnuð í Listasafni Kópavogs
Norræn samtímamálaralist
Morgunblaðið/Ásdís
Starfsmaður Carnegie Art Award-sýningarinnar vinnur að uppsetningu
verksins Passing fancy eftir Norðmanninn Andreas Heuch.
HIN árlega Stjörnumessa
verður haldin í bílverkstæðinu
Bílastjörnunni við Gylfaflöt 10 í
Grafarvogi í dag kl. 18.00–
20.00.
Stjörnumessan er haldin að
frumkvæði Grafarvogsskáld-
anna og eigenda Bílastjörnunn-
ar með stuðningi frá Miðgarði,
fjölskylduþjónustu Reykjavík-
urborgar í Grafarvogi.
Fjölmennur hópur valin-
kunnra listamanna mun koma
þar fram með Grafarvogsskáld-
in í broddi fylkingar.
Grafarvogsskáldin; Sigur-
björg Þrastardóttir, Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson, Ari
Trausti Guðmundsson, Ragnar
Ingi Aðalsteinsson og Einar
Már Guðmundsson lesa úr
verkum sínum.
Hörður Torfason trúbador,
Agnar Már Magnússon píanó-
leikari og Kristjana Stefáns-
dóttir jasssöngkona leika og
syngja.
Starfandi listamenn á Korp-
úlfsstöðum; Anna Eyjólfsdótt-
ir, Ása Ólafsdóttir, Bryndís
Jónsdóttir, Harpa Björnsdótt-
ir, Kristín Geirsdóttir og
Magdalena Margrét Kjartans-
dóttir sýna myndlistarflæði
með skjávarpa.
Einnig kemur fram leyni-
gestur, veitingar verða í boði
Bílanausts og flugeldasýning í
lok dagskrárinnar á vegum
Flugeldaævintýrisins.
Kynnir verður Stefán Jón
Hafstein borgarfulltrúi.
Aðgangur er ókeypis.
Stjörnu-
messa í
Grafarvogi
Langholtskirkja kl. 12 Nemenda-
tónleikar á vegum Tónskóla Þjóð-
kirkjunnar. Nemendur sem fram
koma munu leika á orgel Langholts-
kirkju og einnig verða flutt söng-
atriði. Meðal verka eru sálmforleikir
eftir Johann Sebastian Bach, verk
eftir Buxtehude, trúarleg ljóð eftir
Bach og terzett úr Messu eftir Schu-
bert.
Aðgangur er ókeypis.
Listhús Ófeigs við Skólavörðu-
stíg Ína Salóme sýnir. Ína útskrif-
aðist úr Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og var í framhaldsnámi í Sví-
þjóð og Danmörku. Hennar helsta
svið hefur verið innan textíls og hef-
ur hún haldið fjölda einka- og sam-
sýninga í gegnum árin, hér heima og
erlendis. Meðal helstu verka Ínu eru
klæði Hásala í Safnaðarheimili
Hafnarfjarðarkirkju. Að þessu sinni
leitar Ína fanga í íslenskri náttúru
og leitast við að beisla birtu og form
sem þar eru og koma þeim í mynd.
Ína handmálar verk sín á bómull-
arklæði. Sýningin stendur til 30.
desember og er opin á versl-
unartíma.
Félagsmiðstöð Geðhjálpar, Tún-
götu 7 kl. 20 Haustönn Fjölmennt-
ar, menntunar og starfsendurhæf-
ingar lýkur með menningarkvöldi.
Rithöfundar lesa úr verkum sínum:
Flosi Ólafsson, Elísabet Jökulsdótt-
ir, Einar Már Guðmundsson, Íris
Björg Helgadóttir og Guðný Svava
Strandberg. Tryggvi Ragnarsson
leikur á píanó og Ómar Bergmann
gítarleikari verk eftir Jose Ferrer.
Ólafur Sigurðsson leikur og syngur
frumsamið lag við ljóð Tómasar
Guðmundssonar. Hljómsveitin Sínus
leikur. Kór Fjölmenntar syngur
undir stjórn Laufeyjar Geirlaugs-
dóttur. Undirleikari er Tryggvi
Ragnarsson píanóleikari.
Listaháskóli Íslands í Laugarnesi
kl. 13 Þriðja árs nemendur mynd-
listardeildar Listaháskólans opna
sýningu á verkum sínum.
Sýningin er aðeins opin þennan eina
dag milli kl. 13 og 16.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Tveir tónlistarkennarar frá Guildhall School ofMusic and Drama í London, Sigrún Sæv-arsdóttir og Paul Griffiths, eru nú staddir
hér á landi á vegum Listaháskóla Íslands og halda
námskeið fyrir nemendur kennaradeilda, með þátt-
töku 11 og 15 ára barna úr Smáraskóla, 11 ára
barna í Öskjuhlíðarskóla og hljóðfæranema við
Nýja tónlistarskólann. Í námskeiðinu felst að kenn-
aranemunum er leiðbeint með það hvernig virkja
má grunnskólanemendur jafnt sem tónlistarskóla-
nemendur í sköpun eigin tónlistar og sameiginlegri
tónlistariðkun.
Það var súrrandi fjör í tónlistarstofunni í Smára-
skóla þegar blaðamann bar að garði í gær, en þá
var Sigrún að leiðbeina Ingibjörgu Eyþórsdóttur
og fleiri kennaranemum og krakkarnir í 5. bekk
skólans fylgdu þeim af einbeittum áhuga á alls kyns
hljóðfæri. Hér var heilmikið tónverk í smíðum, tón-
verk í þremur þáttum með flottum millikafla og
sólóum, og bara eftir að búa til „intró“, – til að
skapa rétta umgjörð um verkið.
„Getum við ekki látið hinn kaflann koma aftur
eftir sílófónana?“ segir lítil táta, en félagi hennar
stingur upp á því að hljóðfærin fái öll að heyrast að-
eins alein í verkinu, svo að pabbar og mömmur og
vinirnir í skólanum sem koma á tónleikana á morg-
un heyri vel í öllum hljóðfærunum. Ingibjörg
stjórnar flutningnum af músíkalskri röggsemi, en
Sigrún aðstoðar krakkana við að telja í og koma inn
á réttum stað. Paul Griffiths gefur grúvið á rytm-
agítar og krakkarnir spila listavel.
Þau Paul Griffiths og Sigrún Sævarsdóttir kenna
bæði við tónlistarskólann virta, Guildhall School of
Music and Drama í London, og eru þar með svipuð
námskeið bæði fyrir undergraduate nema og
postgraduate nema. Paul er gítarleikari og hefur
leikið með ýmsum hljómsveitum en fór að sinna
kennslu eftir 20 ára hljómsveitarleik, og hefur beitt
þessum kennsluaðferðum á fólk á öllum aldri og
með mismikla tónlistarkunnáttu. Sigrún hélt til
framhaldsnáms við skólann eftir að hafa útskrifast
úr blásarakennaradeild Tónlistarskólans í Reykja-
vík, en að námi loknu hefur hún sinnt kennslu við
Guildhall. Þau Paul Griffiths leggja áherslu á að
bæði kennaranemarnir og nemendur þeirra vinni
með þeim, en ekki fyrir þau, og hafi sitt að segja um
hvernig tónsmíðinni vindur fram. Allir eru hvattir
til að leggja fram hugmyndir, og þær eru mátaðar
og prófaðar, þar til skemmtilegustu lausnirnar
verða til. „Við biðjum nemana okkar í Listaháskól-
anum jafnt um að leggja til hugmyndir og grunn-
skólakrakkana. Það er mjög mikilvægt að allir geti
fundið sig eiga eitthvað í þessu. Meðan við erum að
semja tónlistina erum við um leið að kenna heil-
mikið um tónlist, án þess að það sé nefnt sér-
staklega. Þau eru til dæmis að vinna með talsvert
flókna rytma og það er margt í gangi í einu, þannig
að þetta getur orðið ansi flókið. Við kennum þetta
allt eftir eyranu, – engin blöð og engar bækur, og
allir þurfa því að kunna strúktúrinn fyrir allt verk-
ið. En við höfum líka verið að kenna þeim lög, og að
semja eigin lög. Það er vel hægt að fá fólk sem ekk-
ert veit um tónlist til að gera ótrúlega flókna hluti –
bara ef efnið er rétt kynnt. Ef maður tekur þetta í
smáum skrefum og byggir þetta á hraða sem
krakkarnir ráða við getur lokatakmarkið orðið
ótrúlegt. Krakkarnir vita ekkert að það er erfitt að
syngja í röddum, eða spila öll þessi „breik“, – en
þau gera það bara, af því að þau hafa raddir og
eyru.“
Námskeiðið í Listaháskólanum stendur í þrjár
vikur, og auk þess að læra hvernig kenna má
krökkum að músísera á þennan hátt læra kenn-
aranemarnir ýmis praktísk undirstöðuatriði, eins
og í stjórn tónlistarhópa af ýmsum gerðum. „Við
erum að reyna að gefa kennaranemunum hug-
myndir um hvað hægt er að gera með ólíkum hóp-
um.“
Paul Griffiths tekur undir þetta og segir jafnvel
hægt að skapa músík á þennan hátt með öldungum
á elliheimili, – aðferðirnar eru þær sömu, en útkom-
an ræðst af getu hvers hóps fyrir sig. Með krökk-
unum í Nýja tónlistarskólanum hafa þau gert tals-
vert flóknari hluti, því þar er um að ræða krakka
með talsverða músíkmenntun að baki.
Krakkarnir í Nýja tónlistarskólanum koma fram
á lokatónleikum námskeiðsins í húsnæði Listahá-
skólans á Sölvhólsgötu í dag kl. 18.00, ásamt kenn-
aranemunum úr Listaháskólanum. Tónleikarnir
eru opnir almenningi og er aðgangur ókeypis.
Aðferð fyrir alla sem
hafa eyra og rödd
Ungur Kópavogsbúi æfir eigið sóló á saxófón
meðan Paul Griffiths skaffar rytmann á gítar.
Einn, tveir…einn, tveir, þrír, fjór… Það þarf mikla einbeitingu við að
leika sóló á xýlafón.
Sigrún Sævarsdóttir gefur réttu innkomurnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
begga@mbl.is