Morgunblaðið - 12.12.2003, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 12.12.2003, Qupperneq 36
U ppáhaldsjólaskrautið mitt er lítið fuglahús úr gljáandi þunnu gleri með litlum gler- fugli í. Húsið er silfrað með blágrænu þaki og því stilli ég alltaf upp ár eftir ár á sama stað, svo ofarlega á jólatréð að enginn nái í það. Segja má að litla fuglahúsið hafi verið hálfgerður heiman- mundur þar sem foreldrar mínir gáfu mér það þegar ég flutti að heim- an. Pabbi og mamma keyptu sér þetta litla hús í KEA fyrstu jólin sín á Akureyri, en þangað fluttu þau frá Nesjavöllum upp úr seinna stríði,“ segir Ragnheiður Hreiðarsdóttir, sem ásamt eiginmanni sínum, Bene- dikt Grétarssyni, hefur undanfarin átta ár rekið Jólagarðinn í Eyjafirði með dyggri aðstoð fjögurra barna þeirra. Segja má að jólaáhuginn sé Ragnheiði í blóð borinn því þegar foreldrar hennar, þau Ragn- heiður Pétursdóttir og Hreiðar heitinn Eiríks- son, fluttu norður yfir heiðar var lítið um jóla- skraut í verslunum. „Þá brugðu þau á það ráð að fara að gera jólaskreytingar, sem þau seldu úti á Akureyri til að nýta dauðann tíma á vet- urna, en þeirra aðalatvinna var rekstur garð- yrkjustöðvarinnar Laugarbrekku í Eyjafirði. Þau voru því í garðyrkjunni á sumrin og í jólabransanum á veturna.“ Skreytt á Þorláksmessu Þó nú sé orðið í mörg horn að líta í Jóla- garðinum, finnst Ragnheiði reksturinn vera skemmtilegt fjölskylduhobbí. Sín persónulegu jól segist hún halda hefðbundin heima. Blátt bann sé hins vegar við öllum jólaskreyting- um á heimilinu fyrr en á Þorláks- messukvöld, en þá sé skreytt svolítið hressilega. „Stundum höfum við ætl- að að breyta út af venjunni og skreyta fyrr en ella vegna anna í versluninni, en börnin okkar vilja ekki hafa það. Þau vilja bara sjá jólin heima þegar þau stíga fram úr rúminu á aðfangadagsmorgun. Ég er alls ekki búin að fá nóg af jólum þegar jólin renna loksins upp enda er allt jólastússið í kringum okkur ekki bara atvinna, heldur ekki síður áhugamál, sem er auðvitað kostur. Mig hefur aldrei langað til að stökkva til útlanda yfir jólin, en fer til Kanarí um leið og þau eru búin. Öfugt við marga Ís- lendinga, finnst mér dimmasti tími ársins rosa- lega stuttur og svo er bara strax komin sól. Ég er í það minnsta ekki haldin neinu skammdeg- isþunglyndi. Það gerir jólastemningin.“ Morgunblaðið/Kristján Ragnheiður Hreiðarsdóttir og Benedikt Grétarsson: Uppáhaldsjólaskrautið er lítið fuglahús úr gljáandi þunnu gleri sem hengt er á jólatréð á um hver jól. Fuglahúsið fylgir mér  JÓLAGARÐURINN|Ragnheiður Hreiðarsdóttir DAGLEGT LÍF 36 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ L itla rauða keramikkertastjakann, sem mamma gaf mér þegar ég var eins árs, set ég alltaf á nátt- borðið mitt fyrir jólin þó hann sé orðinn alveg svakalega sjúskaður. Þessi litli stjaki stendur í mínum huga fyrir allt það sem mér finnst jólin tákna. Það tengist ekki síst minningum mínum um það sem mamma mín gerði fyrir mig sem barn, en ég held að í hugarfylgsnum mannanna leynist ein- mitt svolítið margar minningar um undirbún- ing mæðranna fyrir jólin og allt stressið, sem oftar en ekki reyndist nauðsynlegur fylgi- fiskur,“ segir Þóra Gunnarsdóttir, eigandi Jólahússins, sem opnað var í nóvember 1998 við Smiðjuveg í Kópavogi en hefur nú flutt á Skólavörðustíg í Reykjavík. Þóra, sem er einkabarn, segir að upplifun sín af jólunum hafi verið mjög sterk í æsku og ávallt hafi hún þurft að gera mikið úr öllum jólaundirbúningi til þess að fá notið sem best. „Ég var t.d. lengi að undirbúa mig fyrir að- fangadagskvöldin og lagði mikið upp úr huggulegheitum í kringum mig, eins og ég reyndar geri enn, en þó ég reki jólabúð er ég alltaf heima á Þorláksmessu frá kl. 12.00 til 18.00 og hef svo bara opið á aðfangadag til kl. 13.00.“ Þrátt fyrir að hafa alist upp við þá hefð að alls ekki mætti skreyta heima fyrir fyrr en á Þorláksmessu, segist hún hefja sinn eigin jóla- undirbúning í nóvemberlok. „Þá stilli ég uppá- halds hlutunum mínum upp, svo sem spiladós- unum mínum níu, öllu jólasveinasafninu, gömlu krosssaumuðu löberunum frá mömmu og tveimur antik jólatrjám. Aðaljólatréð er hins vegar aldrei skreytt fyrr en á Þorláks- messu. Á því er svo sem ekkert gegnumgang- andi þema, en mér finnst jólatré eiga að vera dálítið persónuleg og hef ég haldið mig helst við gyllt og natur.“ Grenjandi í London Þóra segist hafa safnað sínu persónulega jólaskrauti á löngum tíma og heima sé hún yf- irleitt með fínni og dýrari hluti. „Ég á mikið af handgerðum hlutum og antik og safna frum- myndum eftir listamenn. Dýrasti jólasveinn- inn minn kostaði mig t.d. 50 þúsund krónur í Ameríku. Búðarvinnan er eins og hver önnur vinna í tískubúð. Afgreiðslufólkið á ekki fötin sem það er að selja. Á heimilinu er aftur á móti mitt líf. Þar er mitt skraut, mín jólatónlist og mín lykt. Hún segist aldrei hafa reynt að troða þessu áhugamáli sínu upp á eiginmanninn eða dæt- urnar tvær, sem eru nú 8 og 11 ára gamlar. „Ég gef þeim algjörlega lausan tauminn í sam- bandi við jólaundirbúninginn. Þær eiga sitt eigið jólaskraut og skreyta herbergin sín eftir eigin höfði þegar þeim hentar. Við höfum á hinn bóginn haft þann sið að reyna að gera eitthvað skemmtilegt saman á aðventunni og tek ég mér þá frí frá rekstrinum.“ Þóru hefur aldrei dottið í hug að eyða jól- unum á erlendri grundu eftir að hún guggnaði einu sinni á námsárum í Bretlandi. „Ég ætlaði að spara pening með því að fara ekki heim um jólin, en hringdi svo grenjandi í mömmu tveim- ur dögum fyrir jól og bað hana vinsamlegast um að senda mér flugmiða á þeim forsendum að Bretar kynnu ekki að halda jól. Ég þoli það hins vegar vel að vera í útlöndum um áramótin og það er svo hreint og klárt markmið hjá mér að vera alls ekki heima um páskana enda þoli ég þá ekki með nokkru móti.“ Skreytir yfir skítinn Á heimili Þóru er bara ein hefð og hún er sú að á borðum á aðfangadagskvöld skuli vera rjúpur. „Þessi hefð virðist ætla að bresta í ár, en það er alveg ónauðsynlegt að leggjast í kör út af því. Við borðum bara eitthvað annað. Jól- in koma þrátt fyrir rjúpnaskortinn. Það þarf enginn að stressa sig á þessu. Mér finnst nefnilega svo sorglegt að horfa upp á sumar konur koma inn í búðina viku fyrir jól og verða vitlausar yfir því að hafa ekki náð að gera allt, sem þær halda að til sé ætlast af þeim. Þennan pirring taka þær svo út á starfsfólki verslana og stundum óska ég þess að ég gæti boðið upp á valíum og sérrí. Ég sé aldrei stressað fólk nema rétt fyrir jólin í Jólahúsinu. Maður sníður sér bara stakk eftir vexti og framkvæmir eingöngu það, sem maður kemst yfir,“ segir Þóra og trúir blaðamanni svo að lokum fyrir litlu leyndarmáli. „Veistu það, ég þríf aldrei fyrir jólin. Ég bara skreyti yfir skít- inn. Ég eyði ekki skemmtilegasta tíma ársins í að taka loft og veggi fyrir utan það að skít- urinn sést svo illa í skammdeginu. Ef mér er bent á ryk í gluggakistunni minni næ ég í grenigrein og legg yfir. Dóttir mín spurði mig rétt fyrir jólin í fyrra hvort ég ætlaði ekki að ryksuga lóna sem myndast hafði undir stofu- sófanum. Ég þverneitaði og sagði henni að þetta væri bara svona sniðugur stofusnjór.“  JÓLAHÚSIÐ|Þóra Gunnarsdóttir Kertastjakinn á náttborðinu Morgunblaðið/Þorkell Þóra Gunnarsdóttir: Með keramikkertastjak- ann góða sem hún hefur alltaf á náttborðinu. Þ að er bara einn hlutur sem kemur til greina ef ég er spurð um uppáhalds jóla- skrautið og það er lítil kirkja úr járni, máluð hvít með rauðu þaki, sem hefur fylgt mér í tæpa hálfa öld. Hún kom fyrst inn á heimilið þegar ég var tíu ára gömul og ég man hvað það var spennandi að fá að setja hana saman fyrir jólin. Svo eftir að ég giftist og varð móðir þriggja drengja, rifust þeir alltaf um að fá að setja kirkjuna saman,“ segir Anne Helen Lindsay, sem á og rekur Litlu jólabúðina í bakhúsi við heimili sitt að Grundarstíg 7 í Reykjavík, ásamt eig- inmanni sínum, Gunnari Hafsteinssyni. „Pabbi minn, John Lindsay, rak á sínum tíma heildverslun hér í borg og keypti þá m.a. þessa kirkju í Bretlandi, hugðist flytja fleiri svona kirkjur inn, en einhverra hluta vegna varð ekkert úr því. Hægt er að setja rafmagnsljós í kirkjuna, en sjálf nota ég sprittkerti og stilli henni því gjarnan upp á stofu- skenk, þangað sem litlar hendur ná ekki til.“ Skrautið fljótt að hverfa Anne Helen opnaði verslunina sína fyrir tæpum tveimur árum og segist nú orðið hafa þann háttinn á að skreyta heimilið sitt áður en aðventan gengur í garð enda nóg að gera í búð- inni á þessum árstíma. Hún segist svo sannarlega ekki búin að fá nóg af jól- unum enda sé hún algjört jólabarn. „En þegar ég skreyti heima hjá mér er ég eingöngu með mitt jóladót, sem ég hef safnað á löngum tíma, snertir mig persónulega og hefur ýmsar sögur á bak við sig. Ég gerði t.d. smáskyssu um síð- ustu jól þegar ég tók með mér heim styttu, sem mér fannst svo falleg, úr búðinni og setti inn í stofu. Þegar ég horfði svo á hana þar, fannst mér ég vera komin í vinnuna og því skilaði ég henni fljótlega aftur. Nú hef ég ákveðið að það fer aldrei neitt úr minni búð inn á mitt heimili,“ segir Anne Helen, sem segist heima fyrir vera mikið inni á róm- antískri jólalínu í anda Viktoríutímans. „Jóla- tréð í stofunni er stórt og ofboðslega hlaðið og nú ætla ég að bæta öðru litlu jólatré við í sjón- varpsherbergið. Það hef ég aldrei gert áður. Minn maður er reyndar ekkert rosalega hrif- inn af öllu jóladúlleríinu í mér, en hann umber mig í blíðu og stríðu, en er svo mjög snöggur að taka allt jólaskrautið niður daginn eftir þrettándann.“  LITLA JÓLABÚÐIN|Anne Helen Lindsay Morgunblaðið/Ásdís Anne Helen Lindsay: Með kirkjuna sem kom á heimili foreldra hennar þegar hún var tíu ára. Litla kirkjan með rauða þakinu Þrjár jólabúðir eru nú starfræktar hér á landi árið um kring og þar er hægt að komast í jólastemningu hvort sem sól Jól allan ársins hring er hátt á lofti eða ekki. Jóhanna Ingvarsdóttir forvitnaðist um það hjá eigendum jólabúðanna þriggja hvert væri þeirra persónulega uppáhalds jólaskraut sem aldrei mætti vanta heima fyrir þegar hátíð gengi í bæ.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.