Morgunblaðið - 12.12.2003, Blaðsíða 39
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 39
2
4
6
57
R
Æ
S
IR
Við erum hér
BORGART
ÚN
S
K
Ú
LA
T
Ú
N
SKÚLAGATAHúsgögn Listmunir
Antiksalan
Skúlatúni 6 • Sími 553 0755 • www.antiksalan.is
Opið virkadaga frá kl. 10-18, laugard. kl. 11-18
Antikhúsgögn og gjafavörur
Glæslegt úrval af antikhúsgögnum,
borðlömpum, kertastjökum,
kertum og borðdúkum.
Fjölbreitt og fallegt jólaskraut.
gef›u
fiA‹ veitir flér Yl
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
3x
xx
12
/2
00
3
Sælla er að gefa en þiggja
og hvert sem tilefnið er þá finnurðu réttu gjöfina hjá okkur
á verði sem kemur þér skemmtilega á óvart.
Styrkjum SOS-barnaþorpin.
Þú kaupir tvær jólakúlur á 990 kr. og hengir aðra þeirra a jólatré fyrir utan
Debenhams á 1. hæð í Smáralind. Allur ágóði af sölunni rennur til SOS-barnaþorpa.
B
orgarholtsskóli hefur í
tilefni af ári fatlaðra
gefið út myndbandið
Mennt er máttur. Í
myndbandinu er fylgst
með þeim Ástrósu og Auðuni frá
því þau hefja nám við sérnámsdeild
Borgarholtsskóla árið 1998.
Þegar Ástrós og Auðun hófu
námið tók nám í sérnámsdeild að-
eins tvö ár en á þeim tíma sem þau
voru í skólanum lengdist það í fullt
fjögurra ára framhaldsskólanám. Í
lok myndarinnar er fylgst með þeg-
ar þau útskrifast og fá grænar húf-
ur, en stúdentarnir eru með hvítar
og iðnnemar með rauðar.
Bryndís Sigurjónsdóttir, aðstoð-
arskólameistari í Borgarholtsskóla,
sagði að myndin væri hugsuð sem
kynning á framhaldsnámi fyrir fatl-
aða og hvernig því væri háttað í
sérnámsdeild Borgarholtsskóla en
þar stunda nám seinfærir nem-
endur sem sumir eru þroskaheftir.
En forsendan er að þau geta öll
lært hvert á sinn hátt. Myndbandið
endurspeglaði líka siðferðilegan
boðskap um að ekki væru allir eins,
en þrátt fyrir það gætu allir átt
heima í sama skóla. Fram kæmi
hversu vel fatlaðir og ófatlaðir
blönduðust og hversu ánægðir
nemendurnir væru. Einnig að með
því að blanda saman fötluðum og
ófötluðum í skóla væru meiri líkur
á að þeim ófötluðu, sem margir
yrðu eflaust yfirmenn fyrirtækja í
framtíðinni, þyki sjálfsagt að ráða
fatlaða einstaklinga til starfa í fyr-
irtækjum sínum.
„Þegar sérnámsdeildin byrjaði
létum við gera myndband, en þá tók
námið aðeins tvö ár og nemendur
sérnámsbrautarinnar voru svolítið
einangraðir. Margt hefur breyst
síðan,“ sagði Bryndís, „og þess
vegna var gamla myndbandið orðið
úrelt. Okkur var farið að vanta nýtt
efni til að taka með okkur og kynna
starfsemina hér. Það kemur mörg-
um á óvart, sem hingað koma, að
þetta skuli ganga svona vel. Við
sem vinnum hérna erum hætt að
taka eftir hverjir eru fatlaðir og
hverjir ekki. Á göngunum sjáum
við ungt fólk, sem klæðist allt á
svipaðan hátt og er líkt í háttum.
Nemendur sérnámsbrautar eru
hættir að vera einangraðir eins og
var í fyrstu.“
Myndina gerði Þorgeir Guð-
mundsson og er hún 26 mínútur að
lengd. Menntamálaráðuneytið hef-
ur dreift myndinni í alla grunn- og
framhaldsskóla, einnig verður
hægt að nálgast hana á Náms-
gagnastofnun. Skólinn hefur óskað
eftir því við RÚV að myndbandið
verði sýnt í sjónvarpinu nú á ári
fatlaðra og vonandi verður RÚV
við því. Bryndís sagði að auk þess
að vera kynningarefni væri myndin
kjörin sem umræðugrundvöllur um
nám fatlaðra, möguleika þeirra á
vinnumarkaðnum og hvernig skóla-
menn og atvinnurekendur geta lagt
sitt lóð á vogarskálarnar til að sam-
félag okkar verði fyrir alla.
NÁM
Mennt er máttur fatlaðra