Morgunblaðið - 12.12.2003, Síða 49
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 49
MERKILEGT er það hve orða-
skipti í dagsins önn geta sagt mikla
sögu.
Ég var í Kringlunni í síðasta mán-
uði og þeir sonarsynir mínir tveir
voru í Ótrúlegu búðinni svokölluðu
og er svo sem ekki í
frásögur færandi nema
þar sem ég reikaði um
þarna fyrir utan komu
þar að feðgar og dreng-
urinn litli bað um að fá
að kaupa eitthvað í
búðinni og faðirinn lét
hann hafa einhverja
smápeninga, sagði hon-
um samt að eyða ekki
öllu.
Enn ítrekaði faðirinn
að hann mætti bara
kaupa eitthvað ódýrt
og sagði svo: „Bíddu
svo bara hérna, ég er að
fara í vínbúðina.“ Ég sá
hann svo koma til baka
með a.m.k. þrjár flösk-
ur í poka og drengur
sagði honum hvað hann
hefði keypt og hvað það
hefði kostað. „Uss, allt-
of dýrt – 300 krónur,
maður á að fara vel með
peningana sína,!!“ og
með þessi spekiorð sín
gekk maðurinn keikur burt með sín-
ar flöskur.
Undarleg var þessi orðræða öll,
enn undarlegra hugarfarið að baki
hjá föðurnum, hvoru tveggja sem
keypt var raunar óþarft, ólíku saman
að jafna þó, svo saklaust sem leikfang
drengsins var á meðan alls var óvíst
um afleiðingar innkaupa föðurins og
á meðan faðirinn eyddi þúsundum í
sinn óþarfa var drengurinn snupr-
aður fyrir einhverjar þrjú hundruð
krónur.
Samt þótti mér þetta lýsandi dæmi
um það undarlega gildismat sem svo
margir hafa, þá brengluðu sjálfs-
mynd sem þarna kom fram og skyldu
ekki mýmörg slík dæmi vera að finna
í samfélagi okkar, ekki gjörist það af
sjálfu sér að aukning áfengisneyzlu
er svo gífurleg ár eftir ár, þannig að
áfengisframleiðendur og seljendur
geta brátt farið að telja okkur Íslend-
inga í „fremstu röð“ neyzluþjóða.
Það er nefnilega svo einfalt að
virkasta og bezta forvörnin í þessu
sambandi sem svo ótalmörgu öðru
gjörist heima, fjölskyldan gegnir svo
þýðingarmiklu hlutverki þarna eins
og í öllu, ef sú forvörn brestur er illt í
efni.
Við höfum nú um nokkur ár viljað
vekja á þessu sérstaka athygli með
sérstökum Bindindisdegi fjölskyld-
unnar þar sem megináherzla hefur
verið á hlutverk fjöl-
skyldunnar til að vinna
að því í raun sjálfsagða
lífsmunstri að hafa holla
og heilbrigða lífshætti í
öndvegi æðst.
Að þessum degi
standa ýmis mann-
heillasamtök og vel vit-
um við það, að rödd
okkar er ekki nógu
sterk í æranda áfeng-
isáróðursins sem alls
staðar gellur í eyrum og
blasir við augum, en
uppgjöf er ekki til í okk-
ar orðabók, því ef við
látum merki heilbrigðis
niður falla hver annar
ætti þá að hefja það á
loft.
Bindindisdagur fjöl-
skyldunnar var nú 29.
nóvember rétt fyrir
upphaf aðventu og eins
og jafnan áður var aðal-
áherzlan lögð á jólin og
það að spilla ekki gleði
barnanna um jól, áfengislaus jól hin
sjálfsagða meginkrafa til foreldra.
Því miður eru áskoranir um annað
hvarvetna í fjölmiðlum, enda græðgi
áfengisauðvaldsins þar á bak við og
vitað að vel er fyrir borgað.
Því meiri ástæða er til að halda
vörð um börnin þannig að áfengið fái
í engu spillt jólagleði þeirra eins og
svo alltof mörg sorgleg dæmi eru um.
Vonandi eru orðaskiptin sem vitn-
að var til í upphafi og viðhorf föðurins
þar ekki lýsandi dæmi um manngild-
isviðhorf almennt, hvað þá jólatengd,
enda skal því í engu trúað að svo sé,
en víða munu þó finnast áþekk dæm-
in deginum ljósari, því miður.
Vinnum þannig að heilbrigðri af-
stöðu, heilbrigðri hugsun í raun; að
þeim dæmum fari ört fækkandi og
þau verði sem fyrst útlæg gjörð.
Áfengislaus jól barnanna vegna er
okkar áskorun. Verðið við henni.
Undarleg
orðaskipti
Helgi Seljan skrifar
um bindindismál
’Því meiriástæða er til að
halda vörð um
börnin þannig
að áfengið fái í
engu spillt jóla-
gleði þeirra.‘
Helgi Seljan
Höfundur er form. fjölmiðlanefndar
IOGT.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
31
31
12
/2
00
3
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
1.500.000.000 kr.
3. flokkur 2003
Nafnverð útgáfu
Heildarnafnverð flokksins er 1.500.000.000 kr.
Skilmálar skuldabréfa
Skuldabréf 3. flokks 2003 eru til 10 ára og greiðist höfuðstóll með einni afborgun þann
1. september 2013. Vextir greiðast á sex mánaða fresti, þann 1. mars og 1. september ár hvert
í fyrsta skipti 1. mars 2004. Lokagjalddagi afborgana og vaxta 1. september 2013. Útgáfu-
dagur bréfsins er 1. september 2003. Skuldabréfið ber 5,60% fasta ársvexti. Frá 1. september
2008 hækka vextir bréfsins í 6,60%. Frá og með 1. mars 2008 er útgefanda heimilt að segja
upp skuldabréfaflokki þessum með minnst tveggja mánaða fyrirvara. Uppsögnin tekur gildi á
næsta vaxtagjalddaga. Skuldabréfin eru gefin út samkvæmt heimild í 84 gr. laga nr. 161/2002
um fjármálafyrirtæki, um víkjandi lán samkvæmt eiginfjárþætti B. Auðkenni flokksins í
Kauphöll Íslands verður LAIS 03 3
Skráningardagur
Kauphöll Íslands mun taka bréfin á skrá þann 17. desember 2003.
Upplýsingar og gögn
Umsjón með sölu skuldabréfanna og skráningu í Kauphöll Íslands hefur Landsbanki Íslands hf.,
Laugavegi 77, 155 Reykjavík. Skráningarlýsingu og önnur gögn sem vitnað er til í henni er hægt
að nálgast hjá Landsbanka Íslands.
vefsíða www.landsbanki.is
Ágætu viðskiptavinir
19. og 20. desember eru síðustu dagarnir, sem við bjóðum upp á jólahlaðborð
á þessu ári.
Okkur þykir leitt að hafa ekki getað tekið á móti öllum sem vildu koma til okkar,
en bendum viðskiptavinum okkar á að við tökum nú þegar við forpöntunum fyrir
jólahlaðborð á árinu 2004.
Við óskum viðskiptavinum okkar öllum farsæls jólaundirbúnings og
gleðilegra jóla.
Starfsfólk Hótels Rangár