Morgunblaðið - 12.12.2003, Side 58
MINNINGAR
58 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Atli Thor Birgis-son fæddist í
Reykjavík 15. októ-
ber 1984. Hann lést
af slysförum í Kaup-
mannahöfn laugar-
daginn 29. nóvember
síðastliðinn. Foreldr-
ar Atla Thors eru
Birgir Þór Bragason
og Maríanna Frið-
jónsdóttir. Bræður
Atla eru Árni Heiðar
Pálmason, Arnar
Birgisson og Andri
Thor Birgisson.
Atli Thor bjó
fyrstu ár ævi sinnar á Sogaveg-
inum í Reykjavík, en fluttist til
Danmerkur árið 1990 og hóf þar
skólagöngu í Stavnsholtsskólan-
um í Farum. Hann var í skáta-
hreyfingunni frá unga aldri, spil-
aði á hljóðfæri og gekk í
tónlistarskóla, spilaði badminton
og æfði júdó. Árið 1997 fluttist
Atli Thor til Íslands og bjó hjá föð-
ur sínum og gekk
fyrst í Hlíðaskóla og
síðan í Álftamýrar-
skóla. Hann bjó síð-
an tímabundið í
Kaupmannahöfn og
gekk í Langelinje-
skolen á Austurbrú.
Aftur hélt hann til
Íslands og þá tók
seinna við nám í Iðn-
skólanum. Atli Thor
kom mikið við sögu í
íslensku mótorsporti
þann tíma, sem hann
var á Íslandi. Bæði
sem keppandi, sem
starfsmaður og við upptökur á
mótorsportþáttum með föður sín-
um og bróður. Undanfarin tvö ár
hefur Atli Thor búið í Danmörku
hjá móður sinni. Hann lauk námi
frá Designskólanum í Nyköbing
sl. vor.
Útför Atla Thors fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Nýr frændi. Aðeins nokkrar merk-
ur við fæðingu og vart hugað líf.
Barðist og hafði betur. Ljóst lokka-
flóð og tindrandi augu. Lúmskt bros
og stríðnin mátuleg. Glettinn og í sí-
felldri stöðubaráttu við árinu eldri
bróður. Fyrirferðarmikill á sína vísu
en lét frændur, á annan tuginn, um
stóru prakkarastrikin þegar stórfjöl-
skyldan hittist. Passaði stóra bróður
þegar við átti og átti sama skjól hjá
honum. Gekk glaður til lífs og
þroska. Örlítið feiminn en fór það
sem hann ætlaði sér. Flutti ungur til
útlanda og tók nýjum áskorunum og
umhverfi. Hneigðist til skapandi
hluta. Honum leið vel.
Leiðir foreldra skildi og Atli kom
aftur til náms og lífsþroska á Íslandi.
Erfiðir tímar fóru í hönd og ekki
sjálfgefið að velja rétta veginn. Hann
fetaði hann þó, óx og dafnaði, prófaði
margt, það reyndi á tilfinningarnar
samhliða ölduróti unglingsáranna.
Hann valdi sjálfan sig, sínar þrár,
sínar óskir. Flutti aftur til Danmerk-
ur til náms og starfa. Honum leið vel.
Lífsreynslan meiri en meðal-
mannsins og lífið blasti við. Hugur-
inn stóð til hönnunar, sköpunar og
lista. Gekk áfram glaður til frekari
lífs og þroska.
Foreldrar og bræður í sárum.
Huggunar í harmi er best að leita til
þeirra sem reynt hafa. Einar Bene-
diktsson orti í sínum harmi:
Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum,
sem himnaarf skulum taka?
Oss dreymir í leiðslu lífsins draum,
en látumst þó allir vaka,
og hryllir við dauðans dökkum straum,
þó dauðinn oss megi’ ei saka.
Til moldar oss vígði hið mikla vald,
hvert mannslíf, sem jörðin elur.
Sem hafsjór, er rís með fald við fald,
þau falla, en guð þau telur,
því heiðloftið sjálft er huliðstjald,
sem hæðanna dýrð oss felur.
En ástin er björt sem barnsins trú,
hún blikar í ljóssins geimi,
og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú,
oss finnst þar í eining streymi.
Frá heli til lífs hún byggir brú
og bindur oss öðrum heimi.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
Bragi Bragason og fjölskylda.
Ég veit ekki hvernig á að byrja
þegar maður er að minnast eins frá-
bærs manns og Atla. Þetta var mað-
ur með endalausa möguleika sem er
ekki hægt að setja allt á blað. Hann
var tónlistarmaður og hafði með ein-
dæmum góða teiknigáfu. Held ég
hafi aldrei séð hann nema með blöð
og blýant við hönd að teikna, og ef
hann hafði það ekki þá var hann í
tölvunni eða bara hálfutan við sig og
vissi ekki hvað hann átti að gera við
hendurnar og reddaði sér blaði.
Teikningarnar sem hann gerði voru
frábærari en orð fá lýst, það var ekk-
ert sem hann gat ekki teiknað, gerði
allt fyrir alla án þess svo mikið sem
biðja um krónu þó svo að snilligáfa
hans í teikningu væri einstök.
Tónlistin sem hann gerði var engu
síðri, hann get setið við tölvuna og
samið tónlist tímunum saman og
gerði alveg einstaka tónlist á tölvuna
hjá sér. Sama gilti með tónlistina og
teikningarnar; hann var ekkert að
hafa áhyggjur af tímanum þegar
hann sat og samdi tónlist. Þegar ann-
ar félagi okkar dó, Lalli hét hann, var
Atli kominn fyrir framan tölvuna
nokkrum dögum seinna og bjó til lag
sem hét „Minning til Lalla“ sem var
mjög tilfinningaríkt og æðislegt,
snerti mann mjög að hlusta á það og
ég minnist Lalla alltaf þegar ég heyri
það.
Atli var einnig meðlimur í stjórn
Smells, sem er tölvuleikjamót. Þar
áttum við frábæran tíma saman sem
ég gleymi aldrei, sátum þar hlið við
hlið og spiluðum leiki saman eða
hann samdi tónlist og tók upp teikni-
blokkina nokkrum sinnum og teikn-
aði, hannaði meðal annars Smells-
vörumerkið sem er notað enn í dag
og verður notað um ókomna framtíð.
Einnig gat hann teiknað í tölvunni
og var frábær í Photoshop og þar
fékk hann að njóta hönnunarhæfi-
leika sinna, sem voru óendanlegir
vegna fjörugs ímyndunarafls hans.
Man alltaf eftir því þegar við vorum í
Iðnskólanum saman í nokkur ár að
ég var einmitt í áfanga í þessu forriti,
Photoshop. Svo þegar kom að loka-
verkefninu komst ég að því að ég
kunni nú svo gott sem ekki neitt í
þessu og fór til Atla, sem átti nú ekki
í vandræðum með að hjálpa mér og
kom mér í gegnum þennan áfanga
með 9 í lokaeinkunn.
Það var ekki til betri tími en þegar
við þrír vorum saman, ég, Tandri og
Atli, í Iðnskólanum og vorum saman
alla daga og gerðum eitthvað
skemmtilegt af okkur. Vorum allir
saman í stjórn skólafélagsins og
sáum um hinar ýmsu gleðisamkomur
fyrir skólann, og að sjálfsögðu hann-
aði Atli allt sem þurfti að teikna eða
hanna fyrir félagið og gerði það alltaf
jafn vel.
Það var ekkert sem Atli var
hræddur við að gera, hann var aldrei
hræddur við að vera með einhver
skrípalæti í skólanum fyrir auglýs-
ingu eða skólann. Man eitt skipti
þegar við vorum að auglýsa eitt
gleðikvöldið hjá Iðnskólanum að ein-
hver fékk þá hugmynd að klæða okk-
ur strákana í nunnubúninga og stelp-
urnar í munkabúninga og af okkur
strákunum var Atli fyrstur til að
bjóða sig fram. Sýnir það vel að hann
var ekki hræddur við að vera til,
hann lifði fyrir augnablikið og var
ekkert að stressa sig yfir framtíðinni.
Ég kynntist Atla fyrst þegar hann
kom í gæslu á menntaskólaballi.
Okkar kynni voru nú ekki sem best
svona fyrst en það leið ekki á löngu
þar til við vorum orðnir óaðskiljan-
legir. Kynntist ég mörgum vinum
hans og hann vinum mínum og núna
undir lokin átti hann ógrynni af vin-
um sem elskuðu hann og eiga eftir að
sakna hans um ókomna tíð.
Lokatíminn sem við áttum saman
var æðislegur, hann kom til Íslands í
þrjár vikur og var í stjórn á Smelli í
síðasta skipti, sem mér þótti vænt
um. Þarna rifjaðist upp allur sá tími
sem við höfðum átt saman á Smelli
því langt var síðan við höfðum verið
þarna saman vegna búsetu hans í
Danmörku, en þar bjó hann með ást-
kærri móður sinni og vini okkar,
Tandra.
Í Danmörku ætlaði hann að fara í
grafískan hönnunarskóla (og var bú-
inn að vera í öðrum þar) og þróa
teiknigáfu sína enn frekar og vinna
þá við hana í framtíðinni, en ætlunin
hjá honum var alltaf, sagði hann mér,
að koma aftur heim og búa hér þó svo
að hann hafi elskað að búa úti í Dan-
mörku.
Ég fékk þann heiður að vera með
honum síðustu áramót, 2002–2003,
úti í Danmörku og áttum við frábær-
ar þrjár vikur saman þar sem ég
eyddi með honum og Tandra jólum
og áramótum og aldrei sé ég eftir
þeim tíma sem við eyddum þarna í að
gera allt og ekki neitt. Ætlunin var
alltaf að koma næsta sumar og end-
urtaka leikinn en þetta sá náttúru-
lega enginn fyrir og fæ ég því miður
aldrei að sjá hann aftur, en í hjarta
mínu geymi ég ávallt minningu hans
og mun hún aldrei hverfa.
Þetta var í síðasta skipti sem við
vorum allir þrír saman.
Atli, ég veit ekki hvernig við eigum
öll að komast yfir þetta, þetta var
hræðilegt slys og ég sakna þín enda-
laust.
Þetta er búið að vera erfiðasta
tímabil lífs míns og ég vildi ekkert
frekar en þetta hefði bara verið
vondur draumur og við værum að
fara að hittast bráðum aftur og
skemmta okkur.
En það sem heldur manni gang-
andi er hvað þú peppaðir alltaf upp
hjá manni lífið með jákvæðni þinni og
orku – þú sagðir að mamma þín hefði
skemmt þig með of mikilli jákvæðni
og hressleika – og maður verður bara
að reyna að halda áfram með lífið.
Við hittumst hinum megin er ég viss
um, og þá verður gaman, en það er
langt í það og það mun ekki líða sá
dagur sem ég hugsa ekki til þín og
sakna þín.
Atli, þú varst besti vinur sem ég
hefði getað eignast og ég þakka þér
fyrir að við kynntumst og náðum
svona vel saman og ég mun aldrei
gleyma öllum þessum tíma sem við
skemmtum okkur saman.
Atli, takk fyrir allt og við sjáumst
seinna.
Björn Finnbogason.
Elsku Atli minn, það hefur ekki
liðið sá dagur síðan ég frétti þetta að
ég hugsi ekki um það hvað lífið sé
ósanngjarnt. Það er ólýsanlega sárt
að missa einn af sínum bestu vinum.
Ég bíð eftir því að vakna upp af
hræðilegum draumi. Það er svo stutt
síðan þú varst hér heima og við töl-
uðum um lífið og tilveruna. Þú sagðir
mér frá skólanum sem þú ætlaðir í og
ýmis framtíðarplön, sem voru svo
spennandi. Ég á svo margar góðar
minningar um þig sem munu fylgja
mér í gegnum lífið og ég veit að þú
fylgist með okkur öllum. Þú munt
alltaf eiga stað í hjarta mínu. Ég
votta fjölskyldu og aðstandendum
samúð mína.
Þinn vinur að eilífu,
Steingrímur.
Ég trúi því ekki að þú sért farinn
yfir móðuna miklu Atli minn. Það er
ekki nema tæpur mánuður síðan þú
varst hér á Íslandi hjá okkur síðast
og við strákarnir vorum að skemmta
okkur saman. Ég á eftir að sakna þín
mjög mikið með mikla sorg í hjarta
en ég get nú samt ekki gert neitt
annað en brosað þegar ég hugsa til
þín af því að allar þær minningar sem
ég á um þig eru svo góðar. Þú varst
alltaf svo ánægður með lífið og áttir
mjög erfitt með að fara í fýlu. Ég
man svo vel eftir því þegar þú varst
hér síðast þá varstu að segja mér þín
stóru framtíðarplön, þau hljómuðu
svo vel og ég var alveg viss um að
þetta mundi allt ganga upp hjá þér af
því að þú hafðir alveg hæfileikana og
gott betur en það. Þú varst líka alltaf
tilbúinn að hlusta ef eitthvað var að
og komst mér alltaf í gott skap af því
að það var ekki hægt að vera í vondu
skapi í meira en tvær mínútur þegar
maður var með þér.
Ég trúi þessu ekki ennþá að þú
sért farinn Atli minn og er búinn að
vera í sjokki alveg síðan ég fékk
fréttirnar, af því að þetta var eitt af
því síðasta sem ég átti von á að
heyra. Þú varst einn af mínum bestu
vinum og ég á eftir að sakna þín og
geyma minningu þína í hjarta mínu
þangað til við hittumst aftur handan
móðunnar miklu.
Ég vona bara að þú hafir nóg að
gera hvar sem þú ert og að hæfileik-
ar þínir nýtist þér vel.
Þinn vinur,
Eiríkur.
Þegar ég loka augunum sé ég Atla
fyrir mér brosandi með tindrandi
augu og opinn faðm. Þannig var Atli.
Alltaf tilbúinn að koma fólki í gott
skap með nærveru sinni. Hann kom
alltaf til dyranna eins og hann var
klæddur og sá aðeins það góða í fólki.
Það var ekki vottur af hatri í hans
stóra og fallega hjarta. Frá því að ég
sá Atla fyrst vissi ég að hann var sér-
stakur. Hann var svo brosmildur,
hlýr og hafði svo mikið að gefa og
hann varð fljótt einn af mínum bestu
vinum. Hann er nú kominn á æðra
tilverustig en við sem elskum hann
skiljum ekki hvers vegna hann var
tekinn svona snöggt frá okkur. En
þeir deyja víst ungir sem guðirnir
elska og honum hefur verið ætlað
eitthvað miklu meira annars staðar,
enda var hann mjög hæfileikaríkur,
og í mínum huga sannur listamaður.
Ég á margar góðar minningar um
Atla, sumarbústaðaferðir, kaffihúsa-
spjöll, faðmlög, bros og skemmtileg-
ar umræður, en þó er mér sérstak-
lega minnisstætt þegar Ég og Eiki
fórum að heimsækja hann og Tandra
til Danmerkur í maí sl. Það var frá-
bær ferð og þaðan á ég margar fal-
legar minningar um Atla. Einnig var
frábært að hann skyldi koma til Ís-
lands fyrir stuttu, og ég þakka Guði
fyrir að hafa fengið að eyða þessum
tíma með honum og segja honum enn
og aftur hvað hann væri mér mikils
virði. Ég er án efa betri manneskja
eftir að hafa átt Atla sem vin í þessi
ár, en þó hefði ég viljað hafa þau
miklu fleiri.
Ég vil votta fjölskyldu Atla mína
dýpstu samúð og megi minningin um
yndislegan dreng lifa í hjörtum okk-
ar þangað til við hittum hann á ný.
Sofðu rótt engillinn minn, þín vin-
kona,
Anna Rut.
Atli minn, mikið er það skrítið að
vita af því að þú sért farinn frá okkur.
Á mánudaginn vaknaði ég við sím-
hringingu frá Fanneyju og lét hún
mig vita hvað hafði komið fyrir, svo
kvöddumst við. Ég sat uppi í rúminu
mínu í smástund, fór svo að símanum
og hringdi til baka í Fanneyju því ég
gat ekki trúað því sem hún hafði ver-
ið að segja.
Við sem vorum öll saman laugar-
daginn 22. nóv. og var svo gaman að
sjá þig.
Það sem mér fannst svo gaman við
þig var hversu hugmyndaríkur þú
varst og fór það ekki framhjá neinum
þetta kvöld. Þú fórst fram á bað og
komst strax aftur og hélst á bart-
skera (rakvél), horfðir á mig og sagð-
ir: „Langar þig ekki að losa mig við
allt þetta hár … ertu ekki í hár-
greiðslu?“ Ég byrjaði að raka þig en
það gekk ekki alveg, klukkan var að
verða þrjú og flestir að fara í bæinn.
Það endaði á því að mér var skutl-
að heim að ná í skærin mín og var
hafist handa. Ég klippi fólk og það
verður jú ánægt en þú varst svo feg-
inn að losna við allt þetta hár að ekk-
ert annað kom upp úr þér en takk,
koss á kinn og faðmlag. Það sem ég
lærði af þér er það að innra með okk-
ur öllum situr lítil Pollýanna.
Þakklætið var allt hjá þér og á ég
aldrei eftir að gleyma þér minn kæri
vinur, þú verður ávallt í mínu hjarta.
Stórt knús og þakkir frá mér fyrir að
hafa fengið að kynnast þér og ég bið
guð að fylgja þér svo og þínum nán-
ustu í gegnum þennan missi.
Ef ég væri beðin að lýsa þér væri
ég sko ekki í vanda, en hér er ég með
ljóð svo að allir hinir skilji hvernig þú
varst.
„Einstakur“ er orð
sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt,
faðmlagi
eða sólarlagi
eða manni sem veitir ástúð
með brosi eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki
sem stjórnast af rödd síns hjarta
og hefur í huga hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá
sem eru dáðir og dýrmætir
og hverra skarð verður aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orð sem best lýsir þér.
(Terri Fernandez.)
Þín
Stefanía Hjaltested.
Þegar sorgin kveður dyra á svo
óvæginn og harðneskjulegan hátt
vaknar sú áleitna spurning hver sé
tilgangurinn. Þegar ungur og efni-
legur drengur er hrifsaður frá ást-
vinum sínum á morgni lífsins vakna
efasemdir um sanngirni almættisins.
Atli Thor Birgisson var gleði- og
kærleiksgjafi þann stutta tíma sem
við fengum notið hans og því spyrj-
um við í vanmætti okkar hvort e.t.v.
hafi verið meiri þörf fyrir mannkosti
þessa unga drengs annars staðar.
Við verðum að trúa því að einhver til-
gangur hafi verið með skyndilegri
burtköllun hans. „Skærasta birtan
framkallar dimmustu skuggana,“
stendur einhvers staðar og víst er að
það er huggun harmi gegn að minn-
ing Atla Thors er sveipuð mikilli
birtu og kærleika. Sú birta og þær
yndislegu minningar sem við eigum
um þennan unga mann eru það hald-
reipi sem við höfum þegar við lútum
höfði í vanmætti og sorg.
Vinkonu minni, Maríönnu, Birgi
Þór, bræðrum hans og öðrum ástvin-
um sendi ég samúðarkveðjur og bið
góðan Guð að styrkja þau.
Minning Atla Thors mun lifa.
Og þennan vetur varstu oft á ferð,
þó væri kalt og jörðin snævi þakin.
Af fótum þínum var sú gata gerð,
sem gleymist seinast, verður oftast rakin.
Því alltaf, þegar syrtir yfir sjónum,
sé ég þau blika – sporin þín í snjónum.
(Davíð Stefánsson.)
Ragnheiður Davíðsdóttir.
ATLI THOR
BIRGISSON
MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds-
laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist)
eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til-
greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi
Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgun-
blaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrif-
uðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýs-
ingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan
útförin verður gerð og klukkan hvað.
Birting afmælis- og
minningargreina