Morgunblaðið - 12.12.2003, Page 73
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 2003 73
ÉG RAKST á grein er birtist, að mig
minnir, í Morgunblaðinu fyrir
skömmu, og því langar mig til að
leggja orð í belg. Þegar ég las grein-
ina varð mér hugsað: Jæja, er nú
loksins komið að því að nútímamenn
verða að fara að sjá og kannski við-
urkenna stærstu læknisfræðilegu
mistök sem gerð hafa verið í heim-
inum? En það var þegar flúor fór að
tröllríða heiminum. Greinin var um
leti. Ekki svona almenna leti eins og
við könnumst við hjá okkur mann-
fólkinu, heldur er að verða viðvar-
andi almennt letiástand á sáðfrum-
um ungra manna. Í greininni er talað
um rannsókn á ástandi sáðfrumna
danskra karlmanna. Ungra manna,
þar sem sáðfrumur eiga að vera hvað
sprækastar, og svo hjá mönnum sem
komnir eru yfir sjötugt. Hvað kom
ekki í ljós? Jú, sáðfrumur þeirra
eldri voru mun sprækari en þeirra
yngri og munaði þar miklu. Í grein-
inni er talað um, að líklega sé það ut-
anaðkomandi eiturefni sem valdi
slappleikanum hjá þeim yngri. Ekk-
ert eiturefni er nefnt til sögunnar.
En margt er það í heiminum í dag,
sem vinnur að því að gera okkur
mennina ófrjóa. Enda var sagt fyrir
margt löngu, að það yrði ekki loft-
steinn sem eyddi lífi á jörðinni, held-
ur við sjálf, með fávisku og græðgi.
Flúor er það efni, sem heldur betur
hefur verið haldið að manneskjunni
og þá sérstaklega á seinustu þrjátíu
árum eða svo hér á landi, og var efnið
skyldað inn í skólakerfið hvað þá
annað. Ótal rannsóknir hafa sýnt
fram á að flúor er eitt hættulegasta
eiturefni sem til er í veröldinni og
veldur fólki alvarlegum skaða og
jafnvel dauða. Flúor er á lista með
tveimur öðrum eiturefnum sem eru
talin hvað hættulegust, en það eru
blásýra og arsenik. Ekki trúi ég að
nokkurt foreldri mundi vilja troða
barnið sitt út af blásýru eða arsen-
iki? Af hverju þá flúor, sem er í sama
eiturefnaflokki? Það vita kannski
ekki allir, en það er stranglega bann-
að að flytja eiturefni til Íslands. Af
hverju er þá flúor flutt til landsins?
Hvernig stendur á því, þrátt fyrir
þær upplýsingar sem til eru í dag, að
ennþá sé flúor haldið að fólki, börn-
unum okkar? Það eru bæði læknar
og tannlæknar á Íslandi sem vita vel
hvað eiturefnið flúor er. Ég skora á
lækna að skera upp herör gegn flúor
og stuðla þannig að betra heilbrigði á
Íslandi. Í rannsóknum sem fram
hafa farið á flúor hefur nefnilega
meðal annars komið í ljós, að flúor
letur sáðfrumur og gerir þær nær
óvirkar eða jafnvel óvirkar. Það
skyldi þó ekki vera að flúor væri
sökudólgurinn í þessu alvarlega máli
sáðfrumnanna dönsku? Og þá um
leið þeirra íslensku líka? Sífellt fleiri
þurfa á gervifrjóvgun að halda.
Hvers vegna er það? Almennur
krankleiki ungs fólks er staðreynd.
Hjartasjúkum fjölgar og aldur fær-
ist neðar. Krabbameinstilfellum
fjölgar og aldur færist neðar. Gigt-
artilfellum af öllum toga fjölgar og
aldur færist neðar. Skyldi flúor eitt-
hvað hafa með þetta allt að gera?
Rannsóknir hafa sýnt að flúor gæti
átt stóran þátt í öllu þessu. Og hvað-
an kemur allur þessi misþroski og öll
þessi ofvirkni í dag? Það hefur nefni-
lega komið fram í rannsóknum að
flúor veldur heilaskaða, vegna þess
að flúor hemur frumuöndun í líkam-
anum. Og þar sem heilinn tekur 25%
af því súrefni sem við öndum að okk-
ur og reyndar meira hjá ungbörnum
þar sem heilinn er að þroskast sýnist
mér ekki þurfa neinn sérfræðing til
að sjá hverjar afleiðingarnar verða.
Og flúor er troðið í sífellt yngri börn.
Getur verið að flúor eigi þarna ein-
hverja sök? Hvað erum við að gera
afkomendum okkar? Er þeim sem
halda þessu efni að fólki alveg sama
um manneskjurnar eða vita þeir
kannski ekki betur? Ég þekki enga
rannsókn sem sannar að flúor geri
glerungi á tönnum gott, enda hvern-
ig á efni sem brennir sig í gegnum
gler að vernda glerung tanna? Ég er
ekki að segja að flúor sé eini orsaka-
valdur að heilsutjóni manna, þar
kemur fleira til, svo sem skortur vít-
amína og steinefna vegna breytinga
á fæðuvali. En ég held að flúor eigi
stærri þátt í almennu heilsuleysi,
sáðfrumuletinni og ófrjóseminni en
margan grunar.
Í Bandaríkjunum hefur flúor t.d.
verið tekið út úr skólakerfinu vegna
þess að flúor er viðurkennt skaðlegt
eiturefni og því hægt að fara í mál við
yfirvöld vegna þess. Sagt er að flúor
valdi heilsutjóni sem ekki verði leið-
rétt til baka, vegna þess að flúor
hleðst upp í líkamanum. Ég ætla
ekki hér og nú að telja upp allan
þann óhugnað sem rannsóknir hafa
sýnt fram á að flúor geti valdið okkur
mönnunum, en ég vonast til að þessi
mál verði litin alvarlegum augum og
skora á Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra að láta skoða þau áður en
skaðinn verður svo mikill að ekki
verður aftur snúið. Ég vona að við
Íslendingar viljum geta fjölgað okk-
ur á eðlilegan hátt í framtíðinni. Ís-
land í forystu með heilbrigða þegna,
án flúors.
AÐALSTEINN BERGDAL,
leikari.
Hvað erum við
að gera?
Frá Aðalsteini Bergdal leikara: